Morgunblaðið - 07.03.2005, Síða 23

Morgunblaðið - 07.03.2005, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 23 MINNINGAR ✝ Guðmundur Eyj-ólfsson fæddist á Breiðabólstað í Ölf- usi 21. nóvember 1919. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík fimmtudaginn 24. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Eyjólfur Guð- mundsson, f. 5.4. 1894, d. 20.1. 1988, og Sigríður Magnús- dóttir, f. 9.1. 1896, d. 5.9. 1977. Systkini Guðmundar eru Marta Guðrún, f. 1918, maki Jón Sigurþórsson, lát- inn; Sigrún, f. 1921, maki Erik Söderin, látinn; Gunnlaugur, f. Börn Guðmundar og Guðbjargar eru Eyjólfur, f. 21.10. 1944. Kona hans er Eygló Ú. Ebenesardóttir og eru börn þeirra fjögur. Hörð- ur f. 13.3. 1946. Núverandi eig- inkona hans er Anna Margrét Tryggvadóttir. Börn Harðar eru þrjú. Sigrún, f. 14.6. 1950. Eig- inmaður hennar er Vilhjálmur Sigurgeirsson og eiga þau tvö börn. Þórunn, f. 14.8. 1951. Eig- inmaður hennar er Ólafur R. Vil- bertsson. Börn þeirra eru fjögur. Nanna, f. 7.6. 1957. Eiginmaður hennar er Sigurður G. Geirsson og eiga þau þrjú börn. Guðlaugur Björn, f. 1.7. 1964. Kona hans er Anna María Valdimarsdóttir. Börn þeirra eru þrjú. Sigurjón, f. 27.5. 1970. Eiginkona hans er Dagbjört Ásgeirsdóttir og eiga þau þrjú börn. Langafabörnin eru orðin 28 talsins. Útför Guðmundar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. 1924, d. 1999; Magn- ús, f. 1925, d. 1999, eftirlifandi maki Mar- grét Sigþórsdóttir; Ásgeir, f. 1929, maki Sigrún Víglundsdótt- ir; Kristinn, f. 1932, maki Ólöf H. Sigfús- dóttir; Ásthildur, f. 1933, maki Þórður R. Jónsson. Guðmundur kvænt- ist 16.6. 1945 Guð- björgu Guðlaugsdótt- ur, f. 12.1. 1927, d. 10.1. 1990. Foreldrar hennar voru Guðlaug- ur B. Oddsson, f. 27.2. 1898, d. 16.3. 1981, og Þórunn Guðlaugs- dóttir, f. 2.10. 1903, d. 23.2. 1976. Elskulegur vinur okkar, Guð- mundur Eyjólfsson, er fallinn frá. Við kynntumst honum fyrir tíu til tólf árum þegar hann í fyrsta skipti tók þátt í einni af sumarferðum Eft- irlaunadeildar símamanna, en hann hafði unnið á trésmíðaverkstæði Landssímans í mörg ár. Hann tók þátt í mörgum fleiri ferðum og alltaf var góða skapið með í för, leiftrandi húmor, léttur hlátur, sögur frá liðn- um dögum, velvilji, glaðværð. Nokkur síðustu árin treysti hann sér ekki til að fara í ferðir Eftir- launadeildarinnar sökum fótafúa, eins og hann sagði. Í staðinn tókum við upp á því, fjögur eða fimm saman, að skreppa dagsstund út fyrir bæinn, og fórum þá oftast austur fyrir Fjall, til Eyrarbakka, Hveragerðis eða eitthvað annað sem okkur datt í hug. Í þeim ferðum var „gamli tíminn“ allsráðandi, sögur frá æskudögum, af búskaparháttum, veðurfari eða fólkinu í sveitinni. Í einni slíkri ókum við um Þrengslin og þá var ekki kom- ið að tómum kofunum hjá Guðmundi. Hann þekkti hvern hól og hverja hæð, fellin og fjöllin, sandflákana og hraunin. Enda var drengurinn alinn upp á Hrauni í Ölfusi og þangað ók- um við heim í hlað. Guðmundur gekk óhikað heim að húsi, barði að dyrum, opnaði og gekk inn, og urðu þar mikl- ir fagnaðarfundir er þeir hittust, fóstbræðurnir Ólafur bóndi og Guð- mundur. Sest var að borðum og hús- freyjan Helga bar fram kræsingar. Setið var góða stund og var hrein un- un að fylgjast með þeim vinunum rifja upp gamla daga, heyskapinn, veiðina í Ölfusárósi, göngur og réttir, og fá fréttir af gömlum vinum. Allan tímann sem við stöldruðum við ljóm- aði andlitið á Guðmundi, honum leið vel á þessum stað. Við þökkum Guðmundi samfylgd- ina sem aldrei bar skugga á. Far vel, góði vinur. F.h. ferðafélaga í Eftirlaunadeild FÍS. Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Valgarð Runólfsson. GUÐMUNDUR EYJÓLFSSON ✝ Kristinn HólmVigfússon fædd- ist á Skáldstöðum í Eyjafirði 18. júlí 1936. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 27. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Steinunn Kristins- dóttir frá Úlfá, f. 2.7. 1905, og Vigfús Þor- steinsson, f. 31.10. 1904. Kristinn ólst upp hjá móður sinni á Akureyri. Kristinn kvæntist hinn 8. nóvember 1959 Elínu Ingu Bragadóttur frá Birkihlíð í Ljósa- vatnsskarði, f. 8.11. 1937, d. 14.9. 1993. Börn þeirra eru: 1) Lára Björk, f. 17.4. 1959, maki Halldór Árnason, þau eiga níu börn. 2) Bragi Hlíðar, f. 2.12. 1962, kona hans er Fríða Pétursdóttir, þau eiga tvær dætur. Einnig ólst elsti sonur Láru, Baldur Ingi Karlsson, f. 18.11. 1975, upp hjá afa sínum og ömmu. Náin vinkona Kristins síðastliðin ár er Anna Rósants- dóttir. Kristinn lauk hefðbundinni barna- skólagöngu á Akur- eyri. Hann fór ung- ur til sjós og lengst af starfaði hann hjá Útgerðarfélagi Dal- víkinga. Heilsu sinn- ar vegna lét hann af sjómennsku fyrir rúmum fimm- tán árum og starfaði eftir það í landvinnslu hjá Útgerðarfélagi Akureyringa þar sem hann lauk sinni starfsævi. Kristinn Hólm verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Tengdafaðir minn, Kristinn Hólm Vigfússon, er fallinn frá. Hann er nú laus úr fjötrum erfiðra veikinda sem hann tókst á við af miklu æðruleysi. Hann þurfti reyndar oft að glíma við heilsuleysi á ævinni. Ungur þurfti hann að gangast undir hjartaaðgerð og var þá sendur einn af landi brott, óharðnaður unglingur, til Kaup- mannahafnar. Það hefur eflaust sett mark sitt á hann og mér finnst það hafa einkennt hans ævi að hann tók því sem að höndum bar og gerði ekki miklar kröfur til ann- arra né til efnislegra gæða. Hann var einkasonur einstæðrar móður sem lagði stolt sitt í að gera það sem hún gat fyrir son sinn sem hefur áreiðanlega ekki alltaf verið auðvelt á fyrri hluta síðustu aldar. Hans starfsvettvangur varð sjór- inn. Þegar ég kynntist honum þá fannst mér hann vera ímynd hins sanna sjómanns. Tattóveraður á handleggjunum, kraftalegur og glaðlegur með engar tær á öðrum fæti eftir óhapp á sjónum. Svo ein- kennilegt sem það nú er þá var Kiddi skírður eftir afa sínum sem einnig missti sínar tær. Kristinn Jónsson, frá Úlfá, var afi hans. Einhverjir hafa sjálfsagt heyrt hans getið vegna þess afreks að bjarga sér til byggða á Suðurlandi eftir að hafa villst í smalamennsku upp af Eyjafirði í lok 19. aldar. Var hann af sumum nefndur Fjalla- Kristinn eftir þá för og er þess get- ið að hann missti tærnar eftir hrakninga og raunir sem hann lenti í í þeirri för. Kiddi gekk ekki heill til skógar og þær urðu fleiri hjartaaðgerð- irnar sem hann þurfti að fara í. Við Bragi fylgdum honum út til Lond- on árið 1988 þar sem hann gekkst undir þriðju aðgerðina. Þegar við komum út þá kom í ljós að það yrði einhver bið eftir aðgerðinni svo við náðum að leika ferðamenn í nokkra daga. Þar sá ég alveg nýja hlið á tengdapabba. Hann naut þess að vera ferðamaður. Þó að hann væri heimakær og fyndist gott að sitja yfir boltanum og fylgjast með sín- um mönnum í sjónvarpinu þá blundaði líka í honum útþrá. Hann var af þeirri kynslóð sem vildi um- fram allt standa við sínar skuld- bindingar og helst ekki skulda neinum neitt. Það var því ekki fyrr en hann og Ella voru búin að koma undir sig fótunum að þau létu það eftir sér að fara að ferðast. Eftir að hún lést langt um aldur fram árið 1993 þá dró úr ferðalögum um tíma. En eftir að Kiddi kynntist Önnu þá fór hann að ferðast með henni og eignaðist þar náinn og góðan vin og ferðafélaga. Að leiðarlokum kveð ég elskuleg- an tengdaföður minn sem ásamt konu sinni opnaði heimili sitt og hjarta fyrir mér þegar við Bragi fórum að draga okkur saman. Sam- skipti okkar voru alltaf góð og ánægjuleg og fyrir það er ég þakk- lát í dag. Blessuð sé minning Krist- ins Hólm og konu hans Elínar Ingu. Fríða Pétursdóttir. KRISTINN HÓLM VIGFÚSSON Erfidrykkjur Salur og veitingar Félagsheimili KFUM & KFUK Holtavegi 28, 104 Reykjavík. Upplýsingar í síma 588 8899. www.kfum.is Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l. Þ ó rh . 1 2 7 0 .9 7 Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR, Mýrargötu 18, Neskaupstað, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Nes- kaupstað miðvikudaginn 2. mars, verður jarð- sungin frá Norðfjarðarkirkju miðvikudaginn 9. mars kl. 14. Birna Geirsdóttir, Ágúst Jónsson, Smári Geirsson, María Jórunn Hafsteinsdóttir, Heimir Geirsson, Lára Birna Hallgrímsdóttir, Jóhann Geir Árnason, Ingibjörg Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma AÐALBJÖRG VALENTÍNUSDÓTTIR, Frá Hömrum, Reykholtsdal. Garðvangi, Garði lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi föstudaginn 4. mars. Útför verður auglýst síðar. Ásta Hansdóttir, Þorsteinn Pétursson, Magnús Jakobsson, Valgerður Sigurðardóttir, Guðrún Jakobsdóttir, Sigurður Hallgrímsson, BorghildurJakobsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson Ólafur Jónsson, Ólafur Tryggvason barnabörn, langömmu-og langalangömmubörn. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eir.) Elsku Birgir, ég vil þakka fyrir þinn þátt í uppeldi mínu. Átta eða níu ára fór ég að venja komur mínar á Bjarkargrundina til að leika við dóttur þína. Þrátt fyrir að við vinkonurnar værum BIRGIR VIKTOR HANNESSON ✝ Birgir ViktorHannesson fædd- ist í Norðtungu á Akranesi 29. septem- ber 1941. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 4. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akraneskirkju 11. febrúar. mjög uppátækjasamar tókstu skammarstrik- unum með miklu jafn- aðargeði. Ég gleymi aldrei rauðu Lödunni þinni sem við fengum að líma með raf- magnslími fyrir eitt uppátækið þegar við tókum þátt í hæfi- leikakeppninni á Skaganum. Þú varst okkur einnig ómetan- legur þegar við óharðnaðar stúlkurn- ar lentum í bílveltu í sveitinni og komum til þín með skottið á milli lappanna. Þú varst sannur heiðursmaður. Þín verður sárt saknað. Elsku Laufey, Marta, Hannes, Jói, Magga, Ella og fjölskylda, megi Guð styrkja ykkur. Hulda Birna. Dóri, kæri vinur, minn besti vinur, búinn að vera vinir frá barn- æsku á Álfaskeiðinu, þar sem svo margt skemmtilegt gerðist. Árin liðu og alltaf vorum við í góðu sambandi, síðar með konum okkar og börnum. Okkur fannst svo fyndið er við urðum afar, jæja, það var sko gaman hjá okkur, Dóri minn. Þið Eygló voruð alltaf sem eitt, og voruð þið nú aldeilis búin að gera heimilið ykkar glæsilegt, alltaf var HALLDÓR MARÍAS ÓLAFSSON ✝ Halldór MaríasÓlafsson fæddist í Reykjavík 15. apríl 1955. Hann lést á Líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 4. febrúar síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Seljakirkju 11. febrúar. nú gaman að hitta ykk- ur, mikið hlegið. Í desember þegar ég sagði þér að ég væri hættur á sjónum þá varst þú svo glaður, nú ættum við eftir að hitt- ast oftar og eiga fleiri góðar stundir saman, en þá verður þú enn veikari, Dóri minn. Við þökkum fyrir all- ar góðu stundirnar. Guð gefi Eygló og börnum ykkar og barnabörnum styrk í sorginni. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Kærar kveðjur. Einar og Helga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.