Morgunblaðið - 03.04.2005, Page 31

Morgunblaðið - 03.04.2005, Page 31
3.4.2005 | 31 SMÁMUNIR… Clarins kennir kinnaliti vorsins við ferska ávexti, mandarínur og hind- ber, og má glöggt sjá á litatónum í línunni Multi Blush hvor er hvað. Nú er einmitt rétti tíminn til að fríska upp á íslensk andlit og til þess þykir gloss einnig heppilegur – glansandi gloss í túpum hefur farið eins og eld- ur um sinu síðustu misseri og í sumar verður engin breyting á; fölir, bleikir, appelsínugulir, rauðleitir og jafnvel eplagulir undir yfirskriftinni Colour Quench Lip Balm gefa vörunum frísklegt útlit – og kyssilegt, eins og sagt er. Úr ávaxtakörfunni Þegar regnið steypist af himnum ofan og allt virðist grátt og gleði- snautt er ráð að slá tvær flugur í einu höggi með því að skrýðast þessum ökklastígvélum. Litríkt munstrið ætti að lífga upp á sálar- tetrið um leið og vatnsþétt skótauið hamlar því að sá sem því klæðist fyllist kvefi vegna þess að bífur hans urðu blautar. Flestir kannast við gömlu gúmmístígvélin sem voru þörfustu þjónarnir á æskuárunum. Þrátt fyrir óvéfengjanlega yfirburði þess fótabún- aðar þegar kemur að því að ösla bleytu þurrum fótum hefur hann hingað til ekki uppfyllt ströngustu kröfur tískusérfræðinga. Hver veit þó nema að jafn nýstárleg hönnun og hér er á ferð eigi eftir að slá í gegn hjá glamúrþyrstum glæsimeyjum svo að gamla gúmmíið fari að njóta sannmælis á ný. Ökklastígvélin eru einnig til í bleiku og bláu en þau fást hjá Steinari Waage og kosta 4.495 krónur. Gamla gúmmíið slær í gegn Jamie nokkur Oliver, öðru nafni „kokkur án klæða“ eða„Íslandsvinurinn sem heimsótti fiskbúðina Hafrúnu“,hefur farið mikinn í breskum fjölmiðlum seinustu daga. Jamie var stjarna sjónvarpsþáttaraðar sem lauk nýlega á Channel 4 þar sem hann reyndi eftir fremsta megni að fá grunnskólabörn til þess að borða hollan mat. Hann sýndi áhorfendum í leiðinni hvers konar mat breskum grunnskóla- börnum er boðið upp á, sem var vægast sagt óhuggulegur. Jamie gekk fullur bjartsýni til verksins en átti vart orð yfir óþverrann í pottum breska skólakerfisins og komst að því að margt er þar rotið í bókstaflegum skilningi. Breskir foreldrar eru að vonum himinlifandi yfir þessu framtaki frægðarkokks- ins. Þeir þurftu nefnilega að borða sama viðbjóðinn í sinni æsku. Jamie sýndi börnunum m.a. hvernig kjúklinganaggar eru búnir til. Uppskriftin er eitthvað á þá leið að vænum skammti af kjúklingahúð, fitu og beinum er hent í hakkavél og búið til grátt mauk úr öllu saman. Lítil spörð eru síðan mótuð úr mauk- inu, þeim velt upp úr einhvers konar raspi og loks eru þau djúpsteikt í fitu. Meðlæti: djúpsteiktar franskar duft- kartöflur. Ef maður er það sem maður borðar þá er útlitið sannarlega slæmt. Bresk börn eru líka á góðri leið með að sanna þá einföldu reglu því offita er mikið vandamál meðal breskra barna og unglinga. Breska þjóðin hefur hlot- ið þann vafasama heiður að vera feitasta þjóð Evrópu. Bresk börn borða svo feitan og óhollan mat að það ógnar heilsu heillar kynslóðar í landinu. Jamie komst einnig að því að „tilraunadýrin“ hans þekktu ekki algengustu grænmetis- tegundir. Ein stúlkan hélt t.d. að rabarbari væri laukur. Ég las fyrir skömmu síðan umfjöllun í dagblaði hér að meiru er eytt í mat handa fanga en nemanda í Bretlandi. Það mætti því álykta sem svo að börnum sé refsað enn frekar en afbrotamönnum með því sem boðið er upp á á matseðlinum. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, átti sannarlega ekki von á því að hann þyrfti að kljást við sjónvarpskokk í kosn- ingabaráttunni. Írak, hryðjuverkaógnin, innflytjendur, bið- listar á sjúkrahúsum og ... Jamie Oliver! Þáttaröðin, „Jamie’s School Dinners“, hefur sýnt glögglega mátt fjölmiðla og fólksins en síðast en ekki síst mátt frægðarinnar. Þættirnir hefðu varla verið framleiddir hefði þessi frægi sjónvarpskokk- ur ekki tekið verkið að sér. Hvað sem því líður hefur alda óánægjunnar risið hátt og stefnir í risaflóðbylgju. Jamie gefur lítið fyrir fögur orð forsætisráðherrans um að ríkisstjórnin muni kanna málið og koma í veg fyrir að börnin séu látin borða óþverra. Jamie vill að eitthvað sé gert strax, ekki eftir kosningar. Hann hefur því opnað heimasíðu til styrktar bar- áttunni, www.feedmebetter.com, þar sem hann skorar á for- eldra sem aðra að skrifa undir bænaskrá til yfirvalda. Geta foreldrar, og aðrir, smellt á tengil og sent þingmönnum síns kjördæmis bréf og farið fram á að þeir geri eitthvað í málinu. Eitt af athyglisverðari atriðum umræddrar sjónvarpsþátta- raðar sýndi ungan dreng kasta upp. Orsökin var grænmetis- réttur „a la Jamie“. Þetta atriði minnti mig á ákveðið atvik úr eigin lífi. Yngri bróðir minn átti vin sem var aðeins í þyngri kantinum þegar þeir voru á mörkum barnæsku og ung- lingsára. Einhverju sinni bauð mamma honum að borða með okkur kvöldmat sem var ákaflega íslenskur. Soðin ýsa með kartöflum og bræddu smjöri. Drengurinn horfði skelfdur á ýsuflakið eins og það hefði hótað honum öllu illu ef hann dirfðist að stinga gafflinum í það. Hann lét þó vaða og stakk upp í sig vænum bita. Brunaði síðan inn á klósett og kastaði öllu upp. Við nánari eftirgrennslan móður minnar komst hún að því að hann hafði aldrei borðað fisk á ævi sinni. Hann var skyndibitabarn. Kannski borðar hann ýsu núna í djúpsteiktu naggaformi. | helgisnaer@mbl.is Skyndibitabörnin Pistill Helgi Snær Drengurinn horfði skelfdur á ýsuflakið eins og það hefði hót- að honum öllu illu . . .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.