Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 6
6 B FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Mercedes-Benz ML 500. Í þessum bílum liggur vaxtarbroddurinn hjá bílaframleiðendum. Eftirspurnin virðist óendanleg og nánast sama á hvaða markaði það er. Volvo kom fremur seint fram með þennan bíl en gerði það engu að síður eft- irminnilega, því XC90 er ásjálegur bíll í alla staði. Eins og aðrir í þess- um flokki er hann með sítengdu al- drifi sem í raun virkar sem framdrif nema þegar veruleg þörf er á fjór- hjóladrifi. Þetta dregur að sjálfsögðu úr eldsneytiseyðslu og þar með rekstrarkostnaði en Haldex-drifið sænska er háþróaður drifbúnaður og hér í sinni nýjustu mynd. Það er tölvustýrður rafeindabúnaður sem deilir átakinu milli hjóla á hvorum öxli fyrir sig. Svo lengi sem fram- hjólin hafa grip fer næstum allt átakið til þeirra en jafnframt er svo- kallaður DSTC-búnaður í bílnum, sem er stöðugleikastýring og spól- vörn. Menn finna ekki fyrir því í venjulegum akstri að bíllinn er fjór- hjóladrifinn en verða þess áþreif- anlega varir ef eitthvað bjátar á í færðinni. Í V8 bílnum er að auki nýj- ung í Haldex drifinu sem kallast átaksdeilir sem virkar þannig að við fyrstu inngjöf, þegar bíllinn tekur af stað, er fjórhjóladrifið tengt á öll hjól. Yamaha smíðar Marga rekur kannski í rogastans þegar þeir heyra á það minnst að Volvo sé farinn að bjóða V8-vélar í sína bíla. Fyrirtækið er jú þekktast fyrir áherslu sína á umhverfisvæna bíla og örugga bíla fremur en annað. Þessi ímynd hefur þó verið að breyt- ast á síðustu árum og Volvo komið fram með mjög athyglisverðar vélar, FRÁ fyrsta degi virtist sem heim- urinn væri tilbúinn að taka á móti jeppa frá Volvo hinum sænska. XC90 kom fyrst á markað 2003 og var fyrsti jeppi sem Volvo smíðaði. Hann hefur frá þeim tíma selst vel út um allan heim, ekki síst í Banda- ríkjunum, þar sem hann var í hópi mestseldu lúxusjeppanna. Þá var hann líka valinn bíll ársins í flokki jeppa og jepplinga í Norður-Am- eríku árið 2003 og Motor Trend valdi hann sömuleiðis jeppa ársins 2003. Það er því greinilega ýmislegt sem mælir með þessum bíl. Það merkilega við þetta allt saman er samt að á þessum tíma var bíllinn ekki fáanlegur með V8-vél, sem eins og margir vita er nánast trúaratriði hjá kaupendum jeppa í Bandaríkj- unum. Vélarnar sem hafa verið í boði í XC90 eru fimm strokka bens- ín- og dísilvélar með forþjöppum og ein 2,9 lítra, sex strokka bensínvél með tveimur forþjöppum, 272 hest- afla. Fyrsta V8-vélin í Volvo Nú eru breyttir tímar og kominn á markað XC90 með V8-bensínvél – fyrstu V8-vélinni í Volvo. Nýja vélin er kannski fyrst og fremst ætluð fyrir Bandaríkjamarkað, þótt Evr- ópubúar fái einnig að njóta góðs af molunum sem hrjóta af því gnægt- arborði. Þrátt fyrir góða frammi- stöðu í Bandaríkjunum með minni vélunum vill Volvo enn stærri sneið af kökunni þar og það ætti að vera hægðarleikur með nýju V8-vélinni því tölulegar staðreyndir sýna að þriðjungur allra lúxusjeppa sem selj- ast í Bandaríkjunum er með V8-vél. Þarna er því mikil eftirspurn. Volvo XC90 var prófaður á dög- unum með nýju V8-vélinni og nýrri sex þrepa sjálfskiptingu með hand- skiptivali. Þetta er borgarjeppi og um leið lúxusjeppi sem er í hörkusamkeppni við bíla eins og BMW X5 4.4 og Hljóðlátur, aflmikill og lipur XC90 V8 REYNSLUAKSTUR Volvo XC90 V8 Guðjón Guðmundsson Morgunblaðið/Þorkell XC90 er sjö sæta jeppi og kominn með V8-vélina er hann sportlegur og um leið annálaður fyrir öryggi. Leðraður í hólf og gólf. Leðrið er samt aukabúnaður. Farangursrýmið er stækkanlegt og lengdin getur orðið 1,89 m. Baksvipurinn er sérstæður með sín- um skörpu formum og stóru ljósa- lugtum og þekkist úr fjarlægð. Rafstýrð sæti eru aukabúnaður. V8-vélin er smíðuð af Yamaha í Jap- an og er nægilega fyrirferðarlítil til þess að komast fyrir í vélarrýminu. Sjálfskiptingin er með handskiptivali. Vél: Átta strokkar, 4.414 rúmsentimetrar, 32 ventlar. Afl: 315 hestöfl við 5.850 snúninga á mínútu. Tog: 440 Nm við 3.900 snúninga á mínútu. Drif: Haldex, sítengt aldrif. Gírskipting: Sex þrepa sjálfskipting með handskiptivali. Hröðun: 7,3 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km. Hámarkshraði: 230 km/klst. Dráttargeta með hemlum: 2.250 kg. Lengd: 4.798 mm. Breidd: 1.898 mm. Hæð: 1.743 mm. Hjólhaf: 2.860 mm. Veghæð: 22 cm. Farangursrými: 613–1.837 lítrar. Eigin þyngd: 2.207 kg. Felgur og dekk: 235/65R17. Eyðsla: 13 l í blönduðum akstri (tölur frá Volvo). Staðalbúnaður: ABS, EBD, sex loftpúðar, tölvu- stýrð loftkæling, SIPS- hliðarárekstravörn, WHIPS-bakhnykksvörn, spólvörn með stöðug- leikastýringu, hraðastillir, þokuljós að framan, fjöl- rofastýri, rafdrifnar rúður að framan og aftan, upp- hituð framsæti, aksturs- tölva, regnskynjari, bakkskynjari, sex diska geislaspilari, AWD- átaksdeilir, sex þrepa sjálfskipting. Verð: 6.450.000 kr. Umboð: Brimborg hf. Volvo XC90 V8 bílar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.