Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 7
þó kannski ekki síst nýju dísilvél- arlínuna sína sem er ein sú skemmtilegasta sem nokkur fram- leiðandi getur státað af. V8-vélina fékk Volvo frá Yamaha í Japan, en vandamálið var að fá nógu netta V8 vél sem myndi passa á þverveginn í vélarrýmið svo áfram væri hægt að uppfylla þá örygg- isstaðla sem Volvo gengur út frá í þessum hluta bílsins. Þarna eru nefnilega árekstrarbitar sem af- marka vélarrýmið og vélin þarf að passa þar fyrir innan svo ekki þurfi beinlínis að breyta arkitektúr bílsins. Til þess að sleppa ofan í vél- arrýmið þurfti því vél með minni halla á strokksamstæðunum en vant er. Yamaha hafði áður smíðað 60° V8 vél fyrir móðurfyrirtækið Ford á miðjum níunda áratugnum sem not- uð var í Ford Taurus. Þess vegna leitaði Volvo, nú dótturfyrirtæki Ford, aftur austur á bóginn og fékk Yamaha til að smíða fyrir sig nýju vélina með 60° halla í stað hefðbund- ins 90° halla. Nýja vélin er, auk þess að vera fyrirferðarlítil, fremur létt á fóðrum miðað við slagrými og afl. Í raunverulegum borgarakstri við reynsluaksturinn sýndi aksturstölv- an að bíllinn eyddi rúmum 22 lítrum á hundraðið. Sumum þykir kannski nóg um en þegar haft er í eigu að vélin skilar 315 hestöflum og það var enginn sparakstur stundaður þá daga sem bíllinn var til prófunar, þá má vel við þessar tölur una. Volvo gefur upp að meðaleyðsla í blönd- uðum akstri fari niður í 13 lítra á hundraðið og efast undirritaður reyndar um að það fái staðist nema þá með sérstökum aðgerðum í akstri. Með þeim sportlegri í flokknum Með þessari nýju V8-vél er XC90 kominn í hóp þeirra sportlegri í þessum flokki. Hröðunin innanbæjar er ánægjuleg og áreynslulaus og úti á vegum er bíllinn þýður og hljóð- látur, nema þegar honum er gefið vel inn. Þá gefur vélin frá sér hraustlegan tón. Nýja sex þrepa sjálfskiptingin er síðan rúsínan í pylsuendanum, eða aflrásinni öllu heldur; sér til þess að bíllinn er allt- af að skila hámarksvinnslu sem ger- ir allan framúrakstur að hreinum leik. Eins og aðrir bílar í þessum klassa er Volvo XC90 vel hljóðein- angraður. Að aka honum er eins og líða áfram á teppi inni í stofu hjá sér. Aksturinn er fyrirhafnarlaus og hljóðlátur og aflið alltaf til staðar. Öryggið og þægindabúnaður er síð- an eins og vera ber í Volvo af hæsta standard. Þyngdarpunkturinn er lágur í XC90 miðað við borgarjeppa og fyrir vikið er hann stöðugur á vegi og minnir aksturinn mun meira á eiginleika fólksbíla en jeppa í því tilliti. Hann er stöðugur í beygjum og fjöðrunin er málamiðlun á milli bandaríska skólans, þar sem allt er á mýktina, og evrópska skólans, þar sem almennt má segja að meira sé lagt upp úr aksturseiginleikum en þægindum. Eins og allir góðir hlutir kostar XC90 V8 sitt, eða 6.790.000 kr. með sex þrepa sjálfskiptingunni. Brim- borg er hins vegar að bjóða 5% lægra verð frá verðlistaverði vegna gengis. V8 bíllinn kostar því 6.450.000 kr. Sami afsláttur er á öll- um aukahlutum. Til samanburðar má nefna að BMW X5 4.4 kostar sjálfskiptur samkvæmt verðlista frá B&L 7.592.000 kr. XC90 V8 verður líka borinn saman við Mercedes- Benz ML 500, en hann er ókominn á markað hérlendis í nýjustu kynslóð- inni og ekki enn vitað hvert verðið verður. gugu@mbl.is XC90 er ansi vígalegur í návígi. Komið er króm í kringum lugtirnar og V8- merking á grillið en að öðru leyti eins og XC90 með minni vélum. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 B 7 bílar Opið frá kl. 12-16 laugardaga Söluumboð: Bílás sf., Akranesi - BSA, Akureyri - Betri bílasalan, Selfossi - SG Bílar, Reykjanesbæ 1.720.000 kr. Komdu, reynsluaktu og gerðu verðsamanburð. Gæðin eru augljós. Gegnheil gæði og gott verð Kynntu þér fjölda freistandi tilboða! Sími 540 5400 H im in n o g h a f / SÍ A Mazdaer japanskur bíll, framleiddur í Japan semvermir nú toppsætið samkvæmt stærstu gæðakönnun Evrópu og skarar fram úr hvað varðar endingu og lága bilanatíðni. Aukahlutir á mynd: álfelgur Mazda3 T 5 dyra 1,6 l kostar aðeins VERKSMIÐJUR Ford í Evrópu eru á fullum afköstum um þessar mundir, einkum vegna mikillar spurnar eftir nýjum Ford Focus og C-Max. John Fleming, yfirmaður Ford í Evrópu, seg- ir að Ford, ólíkt öðrum bílaframleið- endum, hafi náð því sem næst 100% nýtingu á verksmiðjum sínum í álf- unni. Ford bætti við fimm aukavöktum í verksmiðju sinni í Saarlouis í Þýska- landi til þess að hafa undan að fram- leiða nýjan Focus. Ford jók einnig ár- lega framleiðslugetu sína í verksmiðju sinni nálægt Pétursborg í Rússlandi úr 27.000 bílum í 40.000 bíla. Fram- leiðsla á nýja Focus-inum hefst þar í maí. Ford hyggst hins vegar ekki auka framleiðslugetu sína frekar annars staðar í Evrópu. Ásíðustu fjórum árum hefur Ford reyndar staðið í stórræðum og end- urskipulagt alla framleiðslu sína í Evr- ópu og sagt upp um 7.000 starfs- mönnum. Nýr Ford Focus var frumkynntur síðastliðið haust og fyrstu tvo mánuði þessa árs seldust tæplega 66.000 bílar í Vestur-Evrópu, sem er 1.200 bílum meira en fyrstu tvo mánuðina 2004. Þá seldust tæplega 22.000 C-Max fyrstu tvo mánuðina, sem var fækkun upp á tæplega 2.100 bíla mið- að við sama tíma í fyrra. Fleming segir að horfur séu góðar á aukinni bílasölu Ford í Mið- og Austur-Evrópu á árinu en fyrirtækið þurfi samt ekki á nýjum verksmiðjum að halda. Hægt væri að sinna þessum mörkuðum með verk- smiðju Ford í Istanbul og verksmiðjum í Vestur-Evrópu. Verksmiðjur Ford í Evrópu fullnýttar Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson Ford Focus gerir það gott í Evrópu og verksmiðjur Ford eru fullnýttar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.