Morgunblaðið - 15.04.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 B 11
bílar
Toyota Land Cruiser 90 VX, nýskráð-
ur 3/1998, ekinn 141 þ. km., sjálfskipt-
ur, 3.0 diesel, 8 manna, prófíl beisli,
vínrauður. Verð 2.190.000. Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 90 VX, nýskráð-
ur 2/1998, hvítur, 33” breyttur, 3.0
diesel, 8 manna, beinskiptur.
Verð 1.890.000. Ath. skipti.
421 4888
REYKJANESBÆ
Toyotasalurinn - Njarðarbraut 19 - Reykjanesbæ
421 4888
Honda CRV, nýskráður 6/1997, ekinn
122 þús. km., 4x4, orange, sjálfskipt-
ur. Verð 920.000. Ath. skipti.
Toyota Rav 4, nýskráður 8/2001, ek-
inn 60 þús. km., 4x4, sjálfskiptur, silf-
urgrár, dráttarkúla. Verð 1.850.000.
Toyota Avensis NEW stw, nýskráður
7/2004, sjálfskiptur, blár, krókur, ekinn
18 þús. km., 16” álfelgur.
Verð 2.450.000. Ath. skipti.
Mercedes Benz ML 270 Turbo
diesel, nýskráður 9/2002, AMG útlits-
pakki, 7 manna, leður. Töff bíll.
Verð 4.690.000. Ath. skipti.
MMC L 200 Turbo Diesel extra cab
nýskráður 12/2001 rauður ekinn 77 þ
km beinskiptur. Verð 1.490.000- ath
skipti
Lexus RX 300 exe nýskráður 10/2004
ekinn 10 þ km grár krókur heilsásdekk
bíll með öllu sjálfskiptur. Verð
5.150.000- ath skipti
Toyota Land Cruiser 90 VX, nýskráð-
ur 12/2000, ek. 115 þús. km., 33”
breittur, leður, sóllúga, aukasæti,
spoiler, krókur, filmur o.fl., sjálfskiptur,
3.0 diesel, silfur. Verð 3.400.000.
Toyota Land Cruiser 90 VX, nýskráð-
ur 5/2000, ekinn 88 þús. km., 33”
breyttur, leður, sjálfskiptur, 3.0 diesel,
blár. Verð 3.050.000. Mjög góður bíll.
Ath. skipti.
Nissan Patrol, nýskráður 10/1998,
2,8 Turbo diesel, intercooler, ekinn
140 þús. km., beinskiptur, 44” breytt-
ur. Aukabúnaður. Verð 3.860.000.
Lán getur fylgt. Ath. skipti.
Toyota Avensis NEW stw, nýskráður
8/2003, sjálfskiptur, vínrauður, ekinn
24 þús. km. Verð 2.290.000.
Ath. skipti.
Toyota Rav4, nýskráður 12/2000, blár,
4x4, sjálfskiptur, ekinn 70 þús. km.
Verð 1.790.000. Ath. skipti.
Einn eigandi - toppbíll.
Nissan Patrol, árg. 1996, ekinn 191
þús. km., 2.8 diesel, 7 manna, svartur,
beinskiptur, nýbreyttur fyrir 39,5”, ný
dekk, kantar, felgur, kúpling og kassi.
Mikið endurnýjaður. Verð 1.800.000.
NÝ Mercedes Benz-bifreið í S-flokki verður búin skynj-
urum, sem ætlað verður að auka öryggi. Þeir eiga einn-
ig að hjálpa til við að bremsa. Bíllinn verður meira að
segja það fullkominn að hægt verður að aka honum
ljóslausum í niðamyrkri. Í mælaborðinu verður skjár
og myndgæðin verða, að því er fram kemur í nýjasta
tölublaði vikuritsins Der Spiegel, svipuð þeim, sem
voru í svart-hvítum sjónvarpstækjum á árunum eftir
heimsstyrjöldina síðari. Ný innrauð leysigeislamynda-
vél, sem á rætur að rekja til Bandaríkjanna, hefur gert
þetta mögulegt.
Ekið eftir skjá
Tímaritið spyr hverjum þetta eigi að koma að gagni
og hvort nú megi búast við því að ökumenn blússi af
stað í vetrarfrosti án þess að skafa af rúðunum og láti
sér nægja að horfa á skjáinn í bílnum. Framleiðend-
urnir benda hins vegar á að tækinu sé einungis ætlað
að vera til stuðnings, til dæmis þegar ökumaður blind-
ast af ljósum bíla, sem koma á móti, eða þegar ekið er í
svartaþoku.
Búist er við því að hin nýja útgáfa flaggskips Merce-
des Benz komi á markað í haust og verður hún búin
mjög flóknum öryggisbúnaði og bendir Der Spiegel á
að hvað sem líði vandamálum hins virta bílaframleið-
anda sé ekki deilt um forustu og frumleika fyrirtæk-
isins á sviði öryggistækni.
Blaðið tekur þó fram að svo miklar framfarir hafi átt
sér stað í öryggismálum undanfarið að nú sé svo komið
að flestir bílar séu mjög vel búnir þannig að erfitt sé að
nýta hina tæknilegu möguleika miklu betur. Tækni-
menn Mercedes Benz vonast til þess að nú muni þeir
ná forskoti á samkeppnina með betri skynjaratækni,
sem verður falin fyrir aftan grillið framan á bílnum.
Honum verður ætlað að sjá, vara við árekstrum og ef
hægt er koma í veg fyrir þá.
Í bílnum verður annars vegar notuð ratsjá, sem þeg-
ar er fyrir hendi og sýnir hindranir á veginum í allt að
150 metra fjarlægð. Sú tækni notast við hátíðni eða 77
gígarið og dugar því aðeins til að nema hluti, sem eru
lengra burtu en 30 metrar. Þegar nær dregur verður
hún of ónákvæm og þá taka við nokkurs konar 24 gíga-
riða ratsjárlesgleraugu, svo notað sé orðalag Der
Spiegel. Bílaframleiðendum hefur nú verið leyft að nota
þá tíðni, en hingað til hefur hún verið notuð í gervi-
hnöttum. Fyrir vikið er bíllinn sagður eiga auðveldara
með að skynja hættur og taka til dæmis fyrr eftir því
en bílstjórinn ef bílstjóri flutningabíls ætlar að svína
inn á sömu akrein og hann er á. Í blaðinu Automotive
New Europe segir að 24 gígariða kerfið muni einnig
aðstoða bílstjórana við að taka eftir bílum í „blinda
blettinum“, hjálpa til við að skipta um akrein, vara við
árekstrum bæði að framan og aftan, nema gangandi
vegfarendur og aðstoða við að leggja bílnum. Þar kem-
ur fram að ýmsir aðrir bílaframleiðendur séu einnig að
vinna að kerfi með notkun þessarar tíðni og því sé ólík-
legt að Mercedes Benz muni lengi hafa markaðinn út af
fyrir sig.
Bremsar fyrir bílstjórann
Tæknimenn Mercedes Benz segja að tæknin muni þó
ekki taka völdin af ökumanninum, hún muni virða óskir
hans og hjálpa honum að fá þær uppfylltar.
Bílnum er sérstaklega ætlað að hjálpa bílstjóranum
þar sem hann er veikastur fyrir. Flestir bílstjórar
veigra sér við að stíga af fullum krafti á bremsuna jafn-
vel þótt mikil hætta steðji að og glata þannig verðmæt-
um metrum. Níu ár eru síðan Mercedes Benz kynnti til
sögunnar tækni til að aðstoða við að bremsa og var
henni ætlað að bæta upp fyrir þessa sálrænu bremsu á
bílstjórum. Þar var um að ræða skynjunartækni, sem
nam vilja bílstjórans þegar hann steig á bremsuna og
bremsaði sjálfkrafa. Þó eru sumir bílstjórar þannig að
þeir bremsa svo laust að þeir virkja ekki skynjarann í
bremsunni. Þar kemur ratsjáin til sögunnar. Kerfið er
þannig uppbyggt að skynji það hættu grípur það í
taumana um leið og ökumaðurinn snertir bremsuna og
bremsar af fullum krafti.
Gæti dregið úr slysatíðni
DaimlerChrysler fól 100 manns að taka þátt í tilraun
í ökuhermi þar sem virkni nýja kerfisins var borin sam-
an við gamla kerfið. Slysatíðnin minnkaði úr 44 í 11%. Í
Der Spiegel segir að tækið yrði enn skilvirkara ef það
gæti bremsað áður en bílstjórinn stígur á bremsuna.
Mercedes Benz mun bjóða upp á algjörlega sjálfvirkan
neyðarhemil í vörubílum á næsta ári. Hins vegar er
auðveldara að víkja í einkabíl og því ekki hægt að skera
úr um það með vissu að aðeins megi koma í veg fyrir
slys með því að bremsa. „Þegar við verðum algjörlega
viss munum við einnig láta einkabílinn bremsa sjálf-
krafa,“ segir Thomas Breitling, sem stjórnar þróun ör-
yggiskerfanna hjá Mercedes Benz, í samtali við Der
Spiegel.
Nýja 24 gígariða ratsjáin fylgist með umhverfi bílsins að framan með 80° sýn til hliða og 30 metra framundan.
Með gleraugu í grillinu
Umfangsmiklar prófanir hafa verið gerðar á bílnum beggja
vegna Atlantsála með þessum nýstárlega búnaði.
Glerauga í grillinu — búnaðurinn var settur í 24 bíla sem
prófaðir voru í Evrópu og Bandaríkjunum og eknir meira en
380.000 km.
Ratsjárbúnaðurinn var prófaður í eitt ár í leigubíl í Stutt-
gart þar sem honum var ekið um 40.000 km í þungri
borgarumferð. Hér eru sérfræðingar Mercedes-Benz að
lesa út úr mælingum sem gerðar voru.