Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 22
22 B FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
FYRSTA aðgerðin er að sjálfsögðu
að þvo bílinn hátt og lágt. Notið bíla-
sápu með vaxi, sem fæst á öllum
bensínstöðvum og víðar. Hún varð-
veitir gljáann í lakkinu. Reynið helst
að forðast að nota leysiefni því þau
fjarlægja alla bónhúð af lakkinu.
Byrjið á því að þvo dekkin og felg-
urnar. Úðið felguhreinsi eða tjöru-
eða olíuleysi á felgurnar og látið
leysinn liggja á felgunum í u.þ.b.
tvær mínútur.
Notið síðan felgubursta, eða
venjulegan uppþvottabursta úr eld-
húsinu heima, til að vinna á óhrein-
indunum sem hvað fastast sitja á
felgunum. Skolið síðan felgurnar
með vatni. Látið ekki hreinsilöginn
þorna á felgunum.
Dekkin á að þvo með sápu og
svampi. Á bensínstöðvunum fæst
efni sem sprautað er á dekkin eftir
að þau hafa verið þrifin sem gefur
þeim gljáa og gerir þau eins og ný.
Ekki má sprauta þessu efni á dekkin
fyrr en eftir að þau eru orðin þurr.
Efnið þornar síðan af sjálfu sér á
dekkjunum.
Spúlið bílinn með vatnsslöngu til
þess að losa í burtu öll laus óhrein-
indi og sand. Þvoið síðan bílinn með
sápu og svampi og byrjið á toppnum
og endið niðri. Ef bíllinn er útataður
í tjöru eða salti verður fyrst að úða
yfir hann tjöru- eða olíuhreinsi, en
samt er ekki ráðlegt að gera það
nema til standi að bóna bílinn á eftir.
Ef það er hlýtt í veðri getur verið
þægilegra að þvo aðeins lítinn hluta
af bílnum í einu og skola hann síðan
með vatni í stað þess að þvo bílinn
allan og eiga það á hættu að sápan
þorni á bílnum.
Að þurrka bílinn
Bestur árangur næst með því að
nota sérstakt skinn sem selt er á öll-
um bensínstöðvum. Skinnin eru til í
ýmsum gerðum en þau bestu eru
gerð úr ekta skinni.
Bíllinn bónaður
Byrjið á því að hreinsa og með-
höndla alla gúmmí- og plasthluta ut-
an á bílnum með efni sem endurnýj-
ar litinn á þessum hlutum. Efni af
þessu tagi er til á öllum bensínstöðv-
um og víðar. Efnið hreinsar þessa
hluta bílsins og gefur þeim auk þess
gljáa. Það kemur líka í veg fyrir að
hvítir blettir myndist á þeim frá bón-
inu. Ef þessir hlutar bílsins eru orðn-
ir mjög gráir og upplitaðir er hægt
að nota sérstakan stuðaraáburð, grá-
an eða svartan, á þá til þess að ná aft-
ur fram upprunalega litnum.
Ef lakkið á bílnum er orðið matt
og slitið er ráðlegt að nota lakk-
hreinsi áður en bónað er. Lakk-
hreinsirinn frískar upp oxíderað
(matt) lakk. Bónið að því loknu bílinn
með góðu bílabóni. Rispur í lakkinu
má fela eða deyfa með því að nota
bón í sama lit og lakkið.
Bæði bón og lakkhreinsi á aðeins
að bera á lítinn hluta af bílnum í einu.
Setjið lítið eitt af bóni í grisju og
nuddið á lakkið með hringlaga hreyf-
ingum. Því meir sem bónið er nudd-
að inn í lakkið því betri verður
árangurinn. Látið bónið þorna þar til
það verður hvítleitt og nuddið það þá
af með hreinni grisju. Bón sem fest-
ist í bílmerkinu eða öðrum stöðum á
bílnum sem erfitt er að ná til, er snið-
ugt að fjarlægja með litlum bursta,
t.d. tannbursta. Sama aðferð er not-
uð þegar lakkhreinsir er borinn á bíl-
inn. Sumir nota bónvél bæði til að
bera bónið á og nudda það af, sér-
staklega þegar notað er Mjallarbón,
sem er erfiðara í notkun alla jafna.
En þá verða menn að muna að skipta
um tusku á bónvélinni eftir að búið
er að bera bónið á.
Þrif að innan
Byrjið á því að ryksuga bílinn vel
og vandlega að innan. Notið textíl-
hreinsi á sæti og teppi. Textílhreinsi
er sprautað á óhreina partinn og efn-
inu síðan nuddað inn með rökum
klút. Efnið er látið þorna og það síð-
an ryksugað í burtu ásamt óhrein-
indunum.
Plast, vínyl og gúmmíhlutir
Notið gúmmí- og plasthreinsi á
þessa hluti. Ef þeir eru mjög skítugir
getur verið betra að þvo þá fyrst með
mælaborðshreinsi. Notið ekki
gúmmí- eða plasthreinsi á stýri eða
pedala því þeir verða sleipir. Mæla-
borðshreinsir kemur líka í veg fyrir
að sprungur eða litabreytingar verði
á innréttingum bílsins. Þeir sem það
kjósa geta líka notað gúmmí- og
plasthreinsi sem gefa matt yfirborð.
Leðursæti og leðurklæðning í inn-
réttingum eru meðhöndlaðar með
leðurhreinsi. Efnið er borið á leðrið
með hringlaga hreyfingum með
hreinum klút. Látið efnið þorna og
nuddið af með þurrum klút. Berið
fyrst á lítið áberandi hluta til að
ganga úr skugga um að ekki verði
litabreyting. Efnið dregur úr hættu á
því að leðrið upplitist, þorni upp og
springi.
Vorhreingerning á bílnum
Hvað sem Kára og Frosta líður
þá er vorið á næsta leiti og við
það tækifæri eiga menn að
þrífa vetrargrámann af bílnum.
Hér verður stiklað á helstu at-
riðunum í velheppnuðum þrif-
um á þarfasta þjóninum.
Spúlið bílinn með vatnsslöngu til þess að losa í burtu öll laus óhreinindi og sand.
Morgunblaðið/ÞÖK
Það þarf ekki síður að taka bílinn í gegn að innan eftir veturinn.
RAUÐUR NISSAN PATROL, ÁRG. 1994
til sölu. Ek. 213 þús. km. Upptekin vél. Ný-
skoðaður. Upplýsingar í síma 894 1162.
TOYOTA RAF4 ÁRG. 09/96
Ljósgrænsans., ek. aðeins 97 þús., reyk-
laus. Einn eigandi. 100% þjónustubók.
Staðgrverð kr. 800 þús. Engin skipti.
Upplýsingar í síma 892 7121.
VOLKSWAGEN GOLF GL
5 dyra, ekinn 173.000 km, árg. 1995.
Upplýsingar í síma 821 3770.
HYUNDAI ELENTRA GLS 16 A
5 manna kóreubíll, sjálfskiptur, árg. 1993,
ek. 113 þús. Ágætur. Samkomulag um
verð. Skipti t.d. á ódýrari
Toyota Avensis Terra árg. '98, 1800
slagrými, 4 dyra, sjálfsk., ek. 61 þús. Ásett
verð kr. 970.000. ABS-hemlar, dráttarkúla,
samlæsingar, geislaspilari, innspýting,
líknarbelgir, rafdrifnar rúður. Uppl. í síma
694 2544.
TIL SÖLU VOLVO V70 01/03
Sjálfskiptur, ek. 34 þús., leður, 17" álfelg-
ur, engin skipti. Verð 3150 þús.
Uppl. gefur Magnús í síma 899 1121.
TIL SÖLU ER SCOUT II
Algjörlega óbreyttur fornbíll, sem er í
toppstandi. Ekinn 130 þús. Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 898 3857.
SUZUKI GRAND VITARA 8/2000
Ekinn 82 þús. km., V6, 2500cc, sjálfskiptur,
hraðastillir, loftkæling, álf., geislaspilari
o.fl. Einn eigandi, reyklaust faratæki. Verð
1.490 þús.
Upplýsingar hjá Toppbílum,
Funahöfða 5, sími 587 2000.
M.BENZ ML 270 CDI
Nýskráður 05/2000. Ekin aðeins 67 þús,
sjálfskiptur, leður, aftengjanlegt dráttarb-
eisli, hraðastillir o.fl. Er á nýjum heils-
ársdekkjum. Toppeintak.
Ásett verð 3.390 þús. Engin skipti.
Uppl. hjá Bílasölu Selfoss í síma
482 4002. www.bilasalaselfoss.is
Jeppar
TIL SÖLU GÓÐUR OG VEL MEÐ FARINN
Nissan Terrano II Luxury dísel, árg. 2000,
ekinn 78 þús. km. Verð 2.180.000. Sjálf-
skiptur, sóllúga, útvarp/CD, 31" dekk,
dráttarbeisli. 7 manna ferðabíll.
Upplýsingar í síma 898 0291.
Mótorhjól
TIL SÖLU FRÁBÆRT FERÐAHJÓL!
Yamaha Royal Star Ventura, árg. '01, ek.
34 þús. km. Verð 1.580.000. Útv./kas., int-
com, cruise contr., digitalmælir, 3 farang-
urstöskur. Ný yfirfarið og tilbúið í ferða-
lagið. Upplýsingar í síma 898 0291.
Ýmislegt
ÞESSI 14 FETA BÁTUR ER TIL SÖLU
án mótors, en með vagni. Verð 350.000 kr.
Upplýsingar í síma 893 6983.
Bílavarahlutir
JEEP GR CEROKEE
Nýtt: Ónotaðir toppgrindarbogar auk skíð-
afestinga eða veiðistangafestinga. Verð
25 þús. Lítið slitin dekk, 4 stk.,
Yokohama P225-70R, R16-109S radial.
Verð 28 þúsund.
Upplýsingar í s. 551 5575 og 660 6618.
Bílasmáauglýsingar 569 1111
SUZUKI GRAND VITARA 2004
5 d. sjálfskiptur, álfelgur. Ek. 18 þ. km.
Fjarst. samlæsingar. Verð 2.490 þús. Ath.
skipti á ódýrari. Uppl. í s. 690 2577.
SAVAGE 25 SPEC - 2 PAKKA TILBOÐ
Bíll með öllu nauðsynlegu.
Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.is .
VW GOLF 9/2000
Sjálfskiptur, álfelgur, ek. 72 þús. Verð
1050 þús. Upplýsingar í síma 691 1944.
HYUNDAI GETZ, ÁRG. 2003
Ekinn 54 þús. km., 5 dyra, 5 gíra, blár.
Verð 990 þús.
Upplýsingar í síma 892 8705.