Mánudagsblaðið - 19.03.1956, Blaðsíða 8
iOREINUIAMMAÐ
Kona skrifar:
,41oltsapótek við Langholtsveg hefur þann ágæta
sið að senda lyf heim ef þess er óskað- Það væri sann-
arlega þakkai*vert ef önnur apotek bæjarins tækju upp
þennan sið það er vissulega oft erfitt að komast frá
börnum til að sækja lyf, sem nauðsynleg eru. Það er al-
mennt vitað að apotek gefa góðan arð og eigendur ættu
ekki að sjá.ofsjónum yfir þeim kostnaði sem svona
iijmrð hefði í för með sér.
1 !
n
?
\
Rík hjón hér í bæ héldu ýlega gildi og var sumblað
fram eftir nóttu og hálf-full glös skilin eftir í stofu
þegar gengið var til svefns. Voru vínleyfar blandaðar
sítróni. Dóttir hjónanna, fjögurra ára, reis árla úr
rekkju og gekk til stofu. Þegar hjónin komu á fætur,
svaf dóttir þeirra í stofu með bros á vör og varð ekki
vakin.
Fluttu hjónin telpuna í ofboði til læknis-, en hann
brosti lítið eitt og sagði hana sofa vei og að hún myndi
vakna bráðlega.
Stundu seinna vaknaði litla telpan •— var um stund
að átta sig, en segir síðan:
,,Meira dídrón, mamma“.
Hvernig stendtu' á þvi að forstjóri Trípolibíós sýni-
ir ekki hina ágætu mynd „The inoon is blúe“ (Undir
heillastjörnu) með David Niven í aðalhlutverki? Mynd
þessi hefur vakið fádæma athygli, enda góðir leikendur
og efnið hverjum manni hugstætt. Tiípolíbíó hefur átt
þessa mynd yfir ár og óskiljanlegur seinaganlgur á
þessu. — Það sakar ekki að hún var bönnuð í tólf ríkj-
USA — sönnun fyrir ágæti heimar;
um i
Þau mistök urðu í síðasta blaði í frásögn af Frarn-
sóknaiþingi að Jón Ivai sson var talinn með hægri
mönnum flokksins. Þar átti að standa, að Jón hefði
haldið klukkutíma ræðu fyrir vinstri ai*m flokksins en
Vilhjálmur Þór, Eysteinn etc. svaraði fyrir hönd hægri
xnanna — en sú lína féll niður af ógáti-
Hl jómsveitin á Hótel Borg ætti nú að læra nýtt lag
undir vorið. Tilbreytingarleysið i lagaVali er’-nú' orðið
svo, að nálega má setja klukkuna sína eftir hvaða lag
er leikið þá og þá stundina. Yfirleitt mega hljómsveit-
ir hér í Reykjavík leggja meiri stund á fjölbreytni en
til þessa, því þjónusta hljómlistarmanna er ekki gefin
~ kaupið ekki í hlutfalli við gæðin —.
*
Sigurður Bjarnason, alþingismaður ídg’ ritstjóri,
kvongaðist nýlega ytra og í tilefni hins gleðilega at-
burðar ortu samstarfsmenn hans á þingi visur til hans.
Eftirfarandi vísu gerði Gutuiar Thoroddsen, borg-
aistjóri, og skal tekið fram, að feitletruðu orðin skulu
borin frarn á vestfiraku, en þann framburð brúkar Sig-
uí'ður eins og alkunna er:
Úti í kóngsins Kaupinhöfn
í kuldanum langa, stranga.
Einni bauð hann ungri sjöfn,
í sitt fang að ganga.
★----------------------
Það er sannarlega ánægjulegt að geta hvatt fólk
til þess að fara og sjá kvikmynd. Mvnd sú. Móðurást,
sem Austurbæjarbíó sýnir nu er með beztu myndum
sem hér hafa' verið sýndar og er almenningi eindregið
ráðlagt að sjá hana áður en það er \mi séinan. Efnið
er mjög (hugstætt og leikurinn frábær.
,y.o'ýpgc - ■ : -
Hrað á að arra í krald?
& yv>
Crala Bló: Nístandi ótti. Joan Crawford. Ki. 5, 7 og 9.
Nýja Bíó: Milljónaþjófurinn. Joseph Cotten, Ki- 5, 7 og 9.
Tjarnarbíó: Förin til Indlands. Kl. 9. Lifað hátt á heljar-
þröm. Kl. 5 og 7.
Austurbæjarbló: Móðurást. Kl. 7 og 9.
Stjörnubíó: Klefi 2455. Kl. 7 og 9. í lok þrælastríðsins kl. 5-
Hafnarbíó: Eyjan í himingeimnum. Jeff Morrow. Kl. 5, 7, 9.
Tripolíbíó: Sirkusdrottningin. Maria Littó. Kl. 5, 7 og 9.
Þjóðleikhúsið: Jónsmessudraumur. Rúrik Haraldsson- Kl. 20
Iðnó: Caldra-Loftur. Gísli Halldórsson. Kl. 20.
(Birt án ábyrgðar) .
EimsigiarForditn
Það var beðið eftir því með
miklum spenningi hver úr-
slitin mundu verða í hinni
frægu kanadísku vetrar-
keppnl, sem fram fór dagana
10-—12. febrúar s.l. - Keppni
þessi er sú erfiðasta vetrai’-
keppni sem um getur. og
leggja þvi bílaframleiðendur
mikla áherzlu á að spnda bíla
sína til þátttöku, en leiðin
sem ekin er, er ca. 2250 km.
Úrslitin að þessu sinni urðu
þau að enskur 4ra maima
Ford Prefect ’55 varð sigur-
vegari. I þriggja bíla sveitar-
keppni sigmðu Fordbílamir
Zephyr Zodiac, Prefect og
Squire Estate. Mörgum komu
þessi úrslit ekki á óvart því
Ford Anglia, sem hefm' sams-
konar vél og Prefect og er af;
sömu stærð, hafði á undan- |
förnum tveim áruni. ásamt
Foi’d Consul og Zephyr Six,
unnið hverja keppnina á fæt-
ur annarri í Evrópu og víðar.
Er það frægt er sex Anglia
bílar 1 röð komu fyrstir að
marki í 3400 km. Konunglégu
bifreiðafélagskeppninni---
(Great Britain R.A.C. Rally)
9.—14. marz 1954 og skömmu
síðar (17.—20. apríl) urðu
þrír Anglía bílar fyrstir í
1700 km keppni á Irlandi-
Miðnætursólarkepjinin, er
fram fer árlega í Svíþjóð og
er yfir 3000 km vann Anglia
síðast og einnig í hollenzku
keppninni (Tulip Rally) 1954
en í fyrra vann Ford Zephyr
Six eins og mörgum er kunn-
ugt.
Meðal þátttökubifreiða í
öllum þessum keppnum voru
m. a. Volkswagen, Austin,
Fiat, Hillmann, Simca, Ren-
ault, Chevix)let svo og flestai'
tegundir Ford-bifreiða.
íslenzk leikhús
framhald aí 7. síöu.
Lokaorð
Þessi greinarflokkur er í raun
og vei'u ekki annað en áfram-
hald af því, sem ég skrifaði í
Leikskrá Þjóðleikhússins 1951
undir nafninu: Hvertiig verða
sýningarhæf leikrit til?
„Dixi et salvavi animam meam“.
(Eg hef talað og frelsað sál
mína).
(Nokkrar bækur og ■ tímarit,
sem notað var við sámningu
greinaflokksins: Stanislawski:
Die Arbeit dés Schauspielers an
der Rolle og My lifé in art. Ron-
ald Hingley: Chekov. A biograp-
hical and Critical study. Formál-
ar fyrir ýmsum verkum T.jckofs
eftir Elisavet Fen, A. G. Colin
og Yarmolinsky. Eugene Walter:
How to write a play. Walter
Kerr: How not to write að play.
Francis Fergusson: The idea of
a Theater. Francis Bull: Norges
Litteratur og Verdenslitteratur-
ens Historie. Lárus Sigurbjörns-
son: Þáttur Sigurðar málara.
Brynjólfur Bjarnason: Forn ög
ný vandamál. Sean O’Casey:
Nokkur tímarit. Theatre arts,
Soviet Literature, Úrval og Sow-
jetwissenscliaft, Kunst und Litt-
eratur).
Endir.
Mánudagsblaðið
Sirkusmynd í Tripolíbíó
Trípolíbíó sýnir nú mjög góða þýzka sirkusmynd sem nefnist Slrk-
usdrottningin. Myndin f jallar, eins og nainið bendir til, um sirkus-
líf, baráttu og sigra, ósigra og líf fólksins sem ferðast í sirkus. Mynd
þessi er mjög vönduð, kvikmyndun ágæt og efnið vel unnið. Lelk-
endur skila hlutverkum sinum vel, og sérstaka athygli vekja Maria
Litto i lilutverki dansmeyjarinnar og Hans Sönhker svo og P. Kemp,
Lndirritaðor ráðleggnr öllum að sjá myndina.
’ ’ A. B.
Islenzkur jistiðnaöuráal-
þjóðasýningu í Munchen
Félaginu „íslenzk listiðn" hef-
ur nýlega borizt tilboð um að
taka þátt í álþjóðlegri listiðnað-
ar- og handiðnaðarsýningu, sem
haldin yerður í Miinchen dagana
27. apríl til 10. maí n. k.
Á fundi sínum í gær ákvað
stjórn félagsins að beita sér fyrir
að íslenzkir listiðnaðax'menn taki
þátt i sýningu þessari.
AJlii', sem hafa í hyggju að
taka þátt í sýningunni eru hvatt-
ir til áð tilkýnna stjórn félagsins
þátttöku sina hið allra fyrsta og
eigi síðar en laugardaginn 24. þ.
m. Munir héöan, sem eiga að fara
á sýninguna, vei'ða sendir utan
einhvern fyrstu dagana t april.
í stjórn „íslenzkrar listiðnað-
ar“ eiga sæti Lúðvíg Guðmunds-
son skólastjóri formaður, Ragn-
ar Jórisson hæstai'éttavlögm. fé-
hirðir, og Björn Tli. Björnsson
listfr. ritari. Varaformaður er
Sveinn Kjarval húsgagnateikn-
ari og meðstjórnandi Gunnar
Friðriksson.framkv.stj.
Svo sem kunnugt er, tók ís-
land í fyrsta sinni þátt í listiðn-
aðarsýningu þessari, sem árlega
er haldin í Múnchen. Með sýn-
ingum þessum er að því stefnt,
að gefa sýningargestum, sem ár-
lega hafa verið um og yfir 250
þúsund manns, kost á að sjá og
kynnast því fegursta og vandað-
asta á sviði listiðnaðar sem fram-
leit er víðsvegar um heim.
Var það einróma álit þeirra,
er sáu Múnchen-sýninguna í
fyrra, að sýningarmunir Norður-
landanna hafi í heild verið með
því bezta er var á sýningunni og
veitti íslandi sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir vandaða og fagra sýn-
ingavmuni og hvatti mjög til
frekari kynna á íslenzkum list-
iðnaði á meginlandinu.
(Frá ísl listiðn )
Fré aðaifundi Fél. ísl.
myndlistarmanna
H. K. Laxnes beiðÚBsfélagi
; ■ (
Aðalfuiulur Eélags ;:i|I. pxýnd-
Vstármanna var haldinn í Bað-
, siofu iðnaðarmanna, mánudaginn
12. marz. Stjórn félagsins var
! endurkjörin, en hana skipa:
Formaður: Svavar Guðnason.
i
Ritari: Hjörleifur Sigurðsson.
Gjaldkeri: Valtýr Pétursson.
Á fundinum var Halldór Kiljan
Laxnes einróma kjörinn heiðurs
félagi Félags íslenzkra ntyndlist-
armanna.