Mánudagsblaðið - 06.06.1960, Blaðsíða 6
6
manudagsðlaðbd
Mánudagur 6. júni 1960
Hún lék á þá
Georg, frændi Periwinkles,
ihefði átt að vera varkárari.
því að ungur maður, sem
starfar í gimsteinverzlun í
fáfömu hverfi á á hættu að
vekja áhuga glæpamanna af
vissu tagi.
En Georg var ungur mað-
ur og ástfanginn og í hvei't
sinn sem hann leit ástmey
sína augum, var öll varkárni
farin út í veður og vind.
Hún vann á kaffistofu
ekki langt frá skartgripa-
verzluninni.
Rósamund, svo hét hún,
var dálítið meira en óbreytt
frammistöðustúlka. Móður-
systir hennar átti kaffistof-
una, og var álitið sjálfsagt,
að þegar gamla konan drægi
sig í hlé, tæki Rósamund við.
Það var hægt að fá morg-
unkaffi, góðan hádegisverð
og te og heimabakaðar kök-
ur. Kaffistofan þótti mjög
arðvænleg.
Hin Ijóshærða Rósamund
náði Georg í öxl, hafði tindr-
andi blá augu, kirsuberja-
rauðar varir, og líkaminn
var eins girnilegur og rjóma
kökumar hennar frænku
hennar. Það var ekki að
furða, þó að Georg yrði rugl-
aður í kollinum í hvert skipti
sem hann sá hana. Á meðal
skartgripa frænda síns var
Georg þegar búinn að merkja
sér einn, sem átti að prýða
þriðja fingurinn á vinstri
hendi Rósamundar.
En það varð allt að bíða
síns tíma, því raunverulega
höfðu þau ekki farið út nema
þrisvar sinnum saman, og í
hvert skipti hafði Georg tal-
að of mikið.
Svo nú vissi hún meðal
annars, að Georg hafði farið
að vinna hjá frænda sínum
strax og hann hafði lokið
herskyldutímanum. Hún
vissi, hvernig gamli maður-
inn var, þó að hún hefði
aldrei séð hann, og hún vissi,
að hann var óhemju vinnu-
harður. Hún vissi orðið ýmis
iegt um viðskiptavinina og
þeirra skrítnu háttu.
Af þvi sem hann hafði
sagt henní, vissi hún í stór-
um dráttum um fyrirkomu-
lag verzlunarinnar og meira
að segja hafði hann trúað
henni fyrir því, að undir búð
ai'borðinu væri smá leyni-
tæki, sem frændi hans hafði
iátið útbúa, ef svo kynni að
fara, að frændi hans Væri
einn í búðinni, þegar glæpa-
raenn bæri að garði. Hann
lét hana þó á sér skilja, að
sjálfur mundi hann aldrei
þurfa á slíku leynivopni að
halda við slíkt tækifæri.
Hann trúði henni líka fyrir
Eftir
því, að þetta leynivopn væri
1 rauninni ekkert annað en
smáhnappur, sem væri í sam
bandi við bjöllu á lögreglu-
stöðinni. Ef stutt væri á
hnappinn, væri lögreglan
komin á vettvang á sléttum
níutíu sekúndum.
Eitt kvöld, þegar Georg
sat í uppáhaldssætinu sínu á
kaffistofunni, kom Rósa-
mund til hans, til að taka
af borðinu.
„Það er orðið framorðið,
Georg,“ sagði hún, en hann
horfði ástföngnum augum á
hana. „Þú ættir að fara
heim núna, því ég er búin
að segja þér, að ég get ekki
komið út með þér í kvöld.“
Georg andvarpaði. „Eg
veit það, en ég verð þá að
fara aftur í búðina og bíða
eftir gamla manninum. Hann
er í Westbury að meta ein-
hverja gripi og kemur ekki
fyrr en eftir, að þú ert búin
að loka, því er nú verr og
miður.“
„Samt sem áður er betra
fyrir þig að fara,“ sagði
Rósamund, „ég á eftir að
gera hér ýmislegt, eftir að
viðskiptafólkið er farið.“
„Nú, jæja þá,“ samþykkti
Georg raunalega, „það er
bezt ég fari og líti á demant-
ana til að sjá, hvort ég finn
nokkurn, sem jafnast á við
augun í þér.“
Þegar hann fór út úr kaffi
stofunni flýtti annar maður
sér að drekka úr bollanum
sínum, fleygði peningum á
borðið og flýtti sér út.
Þetta var eini viðskiptavin
urinn fyrir utan Georg, mið-
aldraj maður, illmannlegur.
Georg kom að dyrunum á
gimsteinaverzluninni án þess
að hafa nokkra hugmynd
um, að þrír menn veittu hon-
um eftirför og stóðu hinum
megin við götuna. Og um
leið og hann lokaði hurðinni
var hún opnuð aftur. Og á
næsta augnabliki fann hann,
að einhverju hörðu var þrýst
í bakið á honum.
„Farðu inn á skrifstof-
una,“ var skipað hvassri
röddu að baki honum.
„Hver fja....“, byrjaði
Georg, en menn sitt til hvorr
ar hliðar honum ýttu honum
ruddalega á undan sér.
Þegar inn á skrifstofuna
var komið, var honum ýtt
niður j. stól. Tveir menn
stóðu yfir honum. Georg sá,
að sá þriðji stóð vörð við
búðardyrnar. Hann horfði á
árásarmennina. Einn af þeim
var hár dökkhærður maður,
með hæðnisglott á vör. Ann
an kannaðist hann við. Það
var viðskiptamaðurinn frá
HAMPSHIRE
kaffistofunni. Hann minntist
þess nú, að hann hafði oft
séð þennan mann í seinni tíð.
Hann hafði ávallt tekið sér
borð rétt hjá Georg, svo
hann hlaut að hafa heyrt
samtal þeirra Rósamundar.
Hann bölvaði sjálfum sér
fyrir kæruleysið.
1 hendi unga mannsins var
svört, gljáandi skammbyssa.
„Ef þú hagar þér almenni
lega, monthani, hleypur hún
eggi af,“ sagði hann
kvikindislega og bætti við,
„en ef þú hreyfir þig, þá ertu
búinn að vera.“
Hinn maðurinn var á hnján
um fyrir framan peninga-
skápinn.
„Réttu mér lyklana," sagði
ungi maðurinn hranalega við
Georg.
Georg svelgdist á. „Það er
leyninúmer.“
„Allt í lagi, láttu okkur
hafa það.“
„Hvernig er leyninúmer-
ið,“ rumdi í hinum mannin-
um.
„Komstu að því sjálfur,"
svaraði Georg.
Ungi maðurinn gekk að
Georg og sló hann með flöt-
um lófanum yfir andlitið.
Vertu ekki að reyna að
tefja fyrir okkur, eða við
berjum þig í klessu,“ hótaði
hann.
Áður en Georg áttaði sig
hafði gamli maðurinn bundið
hann við stólinn, svo hann
var ósjálfbjarga.
Ungi maðurinn hafði lyft
hendinni til að slá aftur ■—
þegar ljóshærð fegurðardís
sást koma hlaupandi af göt-
unni að dyrunum.
Maðurinn, sem gætti dyr-
anna, hafði misst sígarett-
una á gólfið og beygði sig
niður eftir henni einmitt í
sama mund sem Rósamund
kom á sjónarsviðið, opnaði
dyrnar og var komin inn fyr
ir áður en hann hafði rétt
úr sér.
Maðurinn með byssuna
sneri sér frá Georg, og gekk
á móti henni.
„Nei, sæll og blessaður,
fallegi vinur,“ sagði Rósa--
mund og horfði með aðdáun
á unga manninn, „Nei, þið
eru þó ekki að — hm —
vinna hérna. En spennandi.
Mig hefur alltaf langað til
að sjá lifandi ræningja að
störfum.“
Ungi maðurinn setti byss
una í vasa sinn. Þrátt fyrir
tortryggnina — þá kunni
hann vel að meta það, sem
fyrir sjónum hans varð.
„Hvemig komst hún hing-
að?“ spurði hann dyravörð-
inn, sem yppti öxlum og
sagði:
Hún er stelpan frá kaffi-
stofunni.“
Rósamund gekk að foringj
anum. „Eg gæti nú orðið
hrifin af þér, drengur minn,“
sagði hún og brosti, „en lát-
þið mig ekki tefja fyrir ykk
ur.“ Hún horfði á Georg, sem
var afmyndaður af reiði. „Ö,
ert það þú,“ sagði hún kæru-
leysislega og sneri sér að
unga manninum. „Eg ætla
að skoða mig hérna um, með
an þið eruð að vinna. Svo
gætum við kannske farið eitt
hvað á eftir.“
Ungi maðurinn setti upp
skælingsbros.
„Hafðu auga með henni,“
sagði hann við mann-
inn við dyrnar. Hann sneri
sér aftur að Georg, á meðan
Rósamund slangraði framhjá
búðarborðinu undir áfergju-
legum augum dyravarðarins.
„Svikakvikindið þitt ■—!“
Georg sparkaði frá sér með
báðum fótunum, og árangur
inn var undraverður. Spark-
ið kom í hnén á unga mann-
inum, svo að, hann datt og
hljóðaði af kvölum. Og á
sama augnbliki hafði Georg
rifið sig lausan af hinum
manninum og slegið hann
með stólnum.
Rólega hafði Rósamund
tekið upp þunga silfurskál,
sem stóð á búðarborðinu, og
kastað henni af öllu afli í
manninn við dyrnar.
Og allt í einu var búðin
orðin full af lögreglumönn-
um, sem höfðu komið úr lög
reglubíl, sem stóð fyrir utan.
• "I
Seinna sagði Georg iðrandi
við Rósammidu:
„Elskan, geturðu nokkurn
tíma fyrirgefið mér fyrir að
ihalda, að þú værir gengin í
bandalag með þessum glæpa
mönnum?"
„Fannst þér ég ekki leika
það á sannfærandi hátt,“
hvíslaði Rósamund og hall-
aði sér upp að brjósti hans.
„Mér datt í hug, að eitt-
hvað væri á seiði, þegar ég
sá þennan hræðilega mann
við dyrnar. Eftir að ég kom
inn, þurfti ég ekki annað en
finna hnappinn á gólfinu,
sem þú sagðir mér frá. Eg
veit annars ekki, hvernig
'hefði farið.
„Það var vel af sér vikið,“
sagði Georg, „en hvernig
hittist svo á, að þú skyldir
koma hingað.“
Rósamund leitaði í hand-
töskunni sinni.
„1 fyrsta lagi til þess að
skamma þig fyrir að skilja
þetta eftir á borðinu í kaffi-
stoHunni, þar sem frænka
hefði getað fundið það.“
Hún rétti honum mál af
hringnum, sem á var skrifað:
Eg elska Rósamund.
„Og hver var hin ástæð-
an?“ u
Rósamund roðnaði.
„Hin ástæðan var sú, að
ég víldi segja þér, að þetta
væri ekki rétt mál.“
Hún stakk fingrinum gegií
um opið á kortinu.
„Alltof lítill, sérðu? Trú-
lofunarhringur stúlku verð-
ur að vera mátulegur,“ sagði
hún.
Ctboð
Tilboð óskast mn lögn hitalagnar í Bæjarsjúkra-
húsið í Fossvogi.
Útboðslýsingar og uppdrátta naá vitja í skrifstofu
vora Traðarkostsundi 6, gegn 500 króna skila-
tryggingu.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBÆJAK 1
Aðalfundur
Iðnaðarbanba íslands h.f. verður haidinn í Tjárnar-
café í Reykjavik laugardaginn 11. júní n.k.,
klukkan 2 e.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöf-
um og umboðsmönnum þeirra í afgreiðslusal bank-
ans dagana 6.—10, júní að báðum dögum meðtöldum.
Reykjavík, 2. júní 1960.
Kr. Jóh. Kristjánsson
form. bankaráðs
Ferðaskrif stof a
i
ÚJfar Jakosbsen 3
Austurstræti 9 — Sími 13-499. |
* KYNNIST LANDINU. — Hvítasunnuferðir: ' ?
1. Kerlingafjöll; 2. Þórsmörk; 3. Snæfelsnes ‘I
. - (gist að Búðum); 4. Breiðafjarðareyjar.