Morgunblaðið - 03.06.2005, Qupperneq 2
2 B FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
STÆRSTA sérhannaða bílasölu-
svæðið á Íslandi, hið fyrsta sinnar
tegundar hér á landi, er risið við
Klettháls í Reykjavík. Svæðið er at-
hyglisverð nýjung fyrir okkur Ís-
lendinga. Það er hannað og teiknað
af E.S. teiknistofu með því hugar-
fari að gera alla aðstöðu fyrir sölu-
menn og viðskiptavini sem besta og
glæsilegasta og má svo sannarlega
segja að tekist hafi sem skyldi.
Sif Björk Birgisdóttir, löggiltur
bílasali hjá Bílalífi, segir að hér sé
um byltingu að ræða fyrir þá fjöl-
mörgu sem eru að leita sér að bíl.
„Það má segja að aðdragandinn að
þessu sé búinn að vera nokkuð lang-
ur, eða um 13 ár. Það hafði legið fyr-
ir í nokkurn tíma að sölusvæði Bíla-
sölu Matthíasar/Bílalífs þurfti að
víkja vegna færslu Hringbrautar.
Nokkuð er því síðan að við fórum að
líta í kringum okkur eftir hentugu
svæði fyrir bílasölur og með velvilja
og skilningi borgaryfirvalda er þetta
glæsilega bílasölusvæði við Klett-
háls orðið að veruleika. Þróunin hef-
ur líka verið á þann veg, bæði hér-
lendis og erlendis, að ákjósanlegt er
að hafa sem flestar bílasölur á sama
stað. Staðsetningin við Klettháls er
mjög góð og aðgengileg. Svæðið er
gegnt efstu íbúðarblokkunum í
Hraunbæ. Bílasölusvæðið mun njóta
nálægðar ört vaxandi íbúðarbyggð-
ar, svo sem við Norðlingaholt,“ seg-
ir Sif Björk.
Húsin eru skemmtilega hönnuð
og eru að mestu úr gleri svo sölu-
menn og viðskiptavinir geti séð alla
bíla á söluplani án þess að fara út úr
húsi. Söluplönin eru öll malbikuð.
Svæðið á Kletthálsi býður upp á
að allt að átta bílasölur geti verið
þar samtímis með um eitt þúsund
bíla til sýnis og sölu hverju sinni.
Nú þegar eru komnar þrjár
bílasölur á fullan snúning á svæðið
með nokkur hundruð bíla til sýnis
og sölu og eru fleiri fyrirtæki
væntanleg á næstunni.
„Viðskiptavinir hafa sérstaklega
haft orð á því hversu gott aðgengi er
að bílum á svæðinu og hversu
snyrtilegt svæðið er í heild sinni og
erum við auðvitað hæstánægð með
þau ummæli, það er jú alltaf gaman
að fá hrós. Við viljum endilega bjóða
alla velkomna að líta til okkar uppá
Klettháls og virða fyrir sér þessa
skemmtilegu nýjung,“ segir Sif
Björk.
Morgunblaðið/Eyþór
Þrjár bílasölur hafa þegar hafið starfsemi á nýja svæðinu á Kletthálsi.
Eins og teikningin sýnir er svæðið stórt og rúmar allt að 1.000 bíla.
Sérhannað
bílasölusvæði
við Klettháls
BÍLALEIGA Akureyrar
í Skeifunni hefur hafið
útleigu á Hummer H2,
fyrst bílaleigna í land-
inu. „Við erum að
reyna að vera dálítið
öðruvísi en aðrir og
tókum líka inn Dodge
Durango flottustu gerð
og Audi A6,“ segir
Bergþór Karlsson,
framkvæmdastjóri bíla-
leigunnar.
Fyrirtækið er með
tvo fimm manna
Hummer-bíla og báða
mjög vel búna. Annar
er svartur á lit og er
hlaðinn búnaði. Hann er
leðurklæddur, með sól-
lúgu og Bose-
hljómkerfi. Sé átt við
bílinn lætur hann vita
af því í fjarstýringuna
fyrir samlæsingarnar
með hljóðmerki. Vélin er sex lítra,
V8 bensínvél sem skilar 316 hest-
öflum og togar að hámarki 488
Newtonmetra.
En hver er markhópurinn fyrir
Hummer bílaleigubíl?
„Það er náttúrulega alltaf eitt-
hvað af Íslendingum sem vilja
prófa svona bíl. Svo vilja margir
efnaðir útlendingar, t.d. lax-
veiðimenn, hafa svona þægindi á
hjólum. Alltaf eru á ferðinni ein-
hverjar stórstjörnur hér á landi.
Þetta er fyrst og fremst tilraun en
mér sýnist vera áhugi fyrir þessu.
Við höfum ekki kynnt bílana ennþá
en þeir eru báðir að fara í útleigu,
og sá svarti í tvær vikur. Fyrst um
sinn verða þeir merktir bílaleigunni
en síðan verður merkingin tekin
af,“ segir Bergþór.
Það kostar 19.500 kr. að leigja
Hummer í einn dag og innifalinn er
100 km akstur. Sé ekið innan við
200 km er dagsleigan 29.500 kr.
Fyrirtæki í föstum viðskiptum fá
afslátt frá þessu verði.
Hummer til útleigu í Skeifunni
Morgunblaðið/Eyþór
Hummer merktur Bílaleigu Akureyrar er nú til útleigu.
TOYOTA stefnir hraðbyri að sömu
markaðshlutdeild og merkið hefur
haft undanfarin ár hérlendis, eða ná-
lægt 26-27% af markaðnum. Núna er
markaðshlutdeildin 24,6% og hefur
fyrirtækið selt 1.757 nýja bíla það
sem af er árinu, þar af ekki færri en
605 í maímánuði einum. Hyundai
skýst upp í annað sætið yfir sölu-
hæstu merkin og er aukningin milli
ára 109%. Mikil söluaukning hefur
verið á þessu tímabili. Alls hafa selst
7.144 nýir fólksbílar, sem er 55%
aukning miðað við sama tíma í fyrra.
!"#$#
$%$
$!&
&'(
&''
)%'
)#'
))$
*%%
*&'
**)
*+*
!##
!$*
!&+
%*%
55% meiri bílasala
BÍLASALAN Hraun í Hafnarfirði
hefur hafið innflutning á rússnesk-
um Gazella vinnuflokka- og sendibíl-
um. Fyrstu tveir bílarnir eru komnir
til landsins og að sögn Rafns Guð-
jónssonar, framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins, verður bíllinn á góðu verði.
Tveir bílar eru komnir til landsins.
„Bíllinn er framleiddur í Gaz-verk-
smiðjunum rússnesku og hann kem-
ur eingöngu með fjórhjóladrifi og
háu og lágu drifi. Bíllinn er ekkert
ósvipaður Mercedes-Benz Sprinter
en það er hærra undir hann og hann
er smíðaður á grind. Hann fæst með
dísilvélum frá Perkins eða Steyr og
Bosch raf- og olíukerfi. Bíllinn er að
hluta til hannaður hjá Ford,“ segir
Rafn. Bíllinn mun kosta frá um 2,1
milljón kr. til verktaka án virðis-
aukaskatts. Bílasalan Hraun mun
annast þjónustu á bílunum í sam-
starfi við verkstæði í Hafnarfirði.
Gazella ætti einkum að höfða til
verktaka og bæjarfélaga fyrir vinnu-
flokka. Fyrstu bílarnir sem hingað
koma eru með tvöföldu húsi en einn-
ig er hægt að fá þá með einföldu húsi
og sem sendibíl. Sendibíllinn er á
svipuðu verði og Toyota High Ace,
en Rafn segir að Gazella sé töluvert
stærri og burðarmeiri og auk þess
með fjórhjóladrifi og millikassa.
Drifin í bílana eru framleidd af Gaz.
Gazella er nýr kostur fyrir verktaka.
Kostar frá 2,1 milljón án vsk.
Með umboð
fyrir GAZ-bíla