Morgunblaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 B 17
bílar 480 8000
SELFOSSI
480 8000
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
Toyota Land Cruiser 90 LX
33" 1999, ek. 137þkm sjálfsk.
Verð 2.320þ. Skipti möguleg.
Toyota Rav 4 6/2004, ek.
13þkm, sjálfsk. Verð 2.690þ.
Engin skipti.
M.Benz E 200 Kompressor
2003, ek. 52þkm, einn með öllu.
Sjálfsk.
Verð 4.170þ. Skipti möguleg.
M.Benz 320 CE 1994,
ek. 190þkm, 17" o.fl. Sjálfsk.
Verð 1.590þ. Skipti möguleg.
Nissan Patrol GR SE
7/1998, ek. 202þkm,
krókur o.fl. Beinsk.
Verð 1.790þ. Skipti möguleg.
Nissan Terrano II luxury 3,0
TDI 6/2004, ek. 16þkm,
sjálfsk. Diesel, 7 manna.
Verð 4.390 þ. Skipti möguleg.
Nissan Double Cab E TDI 35"
2003, ek. 55þkm, topplúga
o.fl. beinsk. Verð 2.790þ.
Skipti möguleg.
Chrysler Town and Country
5/2000, ek. 100þkm,
einn með öllu, sjálfsk. Verð
1.990þ. Skipti möguleg.
Toyota Avensis 1800 S/D
4/2004, ek. 10þkm, spoiler
og filmur, sjálfsk.
Verð 2.380þ. Skipti möguleg.
M.Benz C 200 Kompressor
Avantgarde 4/2002,
ek 60þkm, topplúga, sjálfsk.
Verð 3.150þ. Skipti möguleg.
Toyota Land Cruiser 90 GX
9/2004, ek. 17þkm, aukasæti,
krókur o.fl. sjálfsk.
Verð 4.650þ. Skipti möguleg.
Toyota Land Cruiser 90 LX
35" 11/2003, ek. 33þkm,
leður o.fl. sjálfsk.
Verð 5.200þ. Engin skipti.
Toyota Land Cruiser 100 TDI
1/1999, ek. 157þkm, sjálfskiptur,
bensín, leður o.fl. leður,
lúga og tems sjálfsk.
Verð 3.790þ. Skipti möguleg.
Toyota Land Cruiser 100 TDI
7/2000, ek. 125þkm,
leður og tems sjálfsk.
Verð 4,290þ. Skipti möguleg.
ÝMSAR reglur eru í gildi er
varða akstur ökutækja hér á
landi. Til að fá réttindi til að aka
vélknúnum ökutækjum þarf að
standast bæði skriflegt og verk-
legt próf. Eftir að hafa fengið
þessi réttindi í hendur er alger
óþarfi að kunna þessar reglur og
um að gera að gleyma öllu sem
fyrst, eða allavega passa sig á að
fara ekki eftir nema hluta af regl-
unum. Það eru einkum þrjú smá-
atriði sem fara alveg óskaplega í
taugarnar á greinarhöfundi.
Gemsarnir
Það er bannað að tala í GSM-
síma án handfrjáls búnaðar á
meðan verið er að aka bifreið.
Eða svo er mér sagt. Gefi maður
sér tíma til að fylgjast með bíl-
stjórunum í kringum sig mætti
hins vegar ætla að gefin væru
sérstök verðlaun fyrir að tala sem
lengst og mest í GSM-síma undir
stýri. Menn láta það heldur ekk-
ert aftra sér að tala í símann sinn,
þó að þeir séu að stýra 10 hjóla
trukki með aftanívagni, takandi
vinstri beygju í gegnum fjölfarin
gatnamót. Og sérstök bónusstig
fær maðurinn sem ók fyrir aftan
mig á Kringlumýrarbrautinni í
eftirmiðdagsumferðinni um dag-
inn. Hann var að reykja og tala í
GSM-símann sinn og svo hvarf
höfuðið alltaf reglulega bak við
mælaborðið. Ég held að hann hafi
verið að skipta um gír með tönn-
unum. Ætli hann hefði jafn glað-
hlakkalega sturtað í sig úr vodka-
pela undir stýri fyrir framan alla í
umferðinni? Hvers vegna finnst
fólki allt í þessu fína að hundsa
bann við GSM-notkun án hand-
frjáls búnaðar? Væntanlega hafa
einhverjir hugsað út í þessi mál
og komist að þeirri niðurstöðu að
engin hætta sé fyrir hendi. Það
væri þá gaman að heyra þau rök,
og fá að vita hvað liggur að baki.
Eða hentar mönnum bara ekki að
fara eftir þessu?
Hringtorg
Hvað skyldu þessar hvítu línur
á götunni í hringtorginu eiginlega
tákna? Ekkert ef miðað er við
aksturslag mjög margra öku-
manna. Tökum sem dæmi lítið
hringtorg við Laugarsdalshöllina,
á mótum Reykjavegar og Sigtúns.
Þetta er torg með 2 akreinum en
komi maður akandi Sigtúnið eða
frá Laugardalshöllinni, sjái bíl á
innri hringnum og haldi að óhætt
sé að fara inn á ytri hring og síð-
an út af við fyrsta tækifæri, er
hætta á ferðum. Bíllinn sem kem-
ur akandi á innri hringnum mun
að öllum líkindum skera aksturs-
línu þína og keyra beint yfir á
hægri akrein þegar hann fer út úr
torginu. Sennilega kom hann af
hægri akrein inn í torgið og til að
komast nógu hratt beint í gegn er
ekin stysta leið og báðar akreinar
notaðar. Þetta er ekkert eins-
dæmi, víða má sjá ökumenn haga
sér á svipaðan hátt. Ekkert hugs-
að út í að bíllinn á ytri akreininni
eigi að koma út á hægri akrein og
sá fyrir innan á vinstri akreinina.
Sennilega er þetta sama fólkið og
kann ekki að taka vinstri beygju á
tveggja akreina vegi og fer alltaf
beint á hægri akreinina. Ef hægt
væri að treysta öðrum ökumönn-
um til að gera þessa einföldu hluti
rétt, gengi umferðin hraðar fyrir
sig. En reynslan kennir manni að
það jaðri við fífldirfsku að treysta
á að næsti ökumaður muni fylgja
reglunum. Því er betra að bíða og
leyfa honum að skera hringtorgið
á meðan hann spjallar í símann.
En fyrst hér hefur verið minnst á
hringtorg. Þeir sem hafa ekið
Nóatúnið milli Laugavegar og
Borgartúns hafa rekist á eitt af
misheppnaðri hringtorgum lands-
ins. Þar var sett smá upphækkun
á stærð við bíldekk í miðjuna á
gatnamótunum við Nóatúnsversl-
unina. Þetta minnir helst á leif-
arnar af hraðahindrun sem
gleymdist að fjarlægja. Það hefði
verið gaman að vera fluga á vegg
á fundinum þegar menn sátu og
ákváðu að þetta væri það besta
sem kæmi til greina.
Stefnuljós
Það skrifa alltaf einhverjir
reglulega um notkun stefnuljósa,
en það hefur engin áhrif. Stefnu-
ljós eru mjög einföld í notkun og
gefa öðrum ökumönnum upplýs-
ingar. Á evrópskum hraðbrautum
eru þau meira að segja notuð til
að biðja aðra um að skipta um ak-
rein og hleypa ökumanni fram úr.
Hér myndu menn sennilega halda
að viðkomandi hefði bara gleymt
stefnuljósinu á, enda er tilhugs-
unin um að hleypa einhverjum
vísvitandi fram úr sér afar fram-
andi, svo ekki sé meira sagt. Hér-
lendis virðist notkun stefnuljósa
vera algerlega valfrjáls. Sumir
nota þau til að láta vita af kom-
andi stefnubreytingu. Aðrir virð-
ast reka höndina í stefnuljósa-
stilkinn fyrir slysni um leið og
þeir snúa stýrishjólinu til að
beygja. Það er svona meira til að
segja frá því sem þegar er aug-
sýnilega að eiga sér stað, frekar
en til að gefa innsýn í framtíðina.
Annars mega menn ekkert vera
að því að gefa stefnuljós, það er
svo erfitt þegar halda þarf á síg-
arettu og GSM-síma. Maður hefur
jú bara tvær hendur.
Að lokum
Auðvitað er þetta tuð og nöld-
ur, en á meðan ökumenn þrjósk-
ast við, þá verða einhverjir að
tuða og reyna að beina mönnum á
rétta braut. Og að sjálfsögðu eru
fleiri atriði einnig mikilvæg þegar
kemur að umferðaröryggi. En
þessi þrjú atriði sem hér hefur
verið tæpt á eru svo einföld. Þetta
snýst bara um að kunna helstu
umferðarreglur og fara eftir
þeim.
Arnbjörn Ólafsson
Morgunblaðið/Þorkell
Hvers vegna virða margir ekki bann við notkun GSM-síma án handfrjáls búnaðar, spyr greinarhöfundur.
Kunna allir bílstjórar
örugglega að keyra?
TUÐIÐ
Fréttir
í tölvupósti