Morgunblaðið - 19.08.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 9
FRÉTTIR
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, lau. kl. 10-15
Stakir jakkir
Margar gerðir - stærðir 36-56
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Nýjar haustvörur
Sparifatnaður
Kjólar - pils - toppar
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Stórútsala
Yfirhafnir í úrvali
Mörg góð tilboð
Stuttkápur
Heilsársúlpur
Jakkar
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 11-16
20-50%
afslátt
ur
SÚPER
VEGNA FLUTNINGS OKKAR ÚR FAXAFENI Í KRINGLUNA
AÐEINS Í KRINGLUNNI
VIÐ ERUM FLUTT ÚR FAXAFENI Í KRINGLUNA
Satín sængurföt
vönduð, mjúk og falleg
ER AÐEINS Í KRINGLUNNI
Verð nú aðeins 1.995.-
áður kr. 3.995.-
Rúmteppi einstaklega vandað,
vattstungið, fallegur frágangur á kanti.
2 púðaver + rúmteppi.
Stærðir 260 x 240 cm
Stærðir 260 x 280 cm
sama verð.
Verð nú aðeins 9.990.-
áður kr. 17.990.-
tk
.i
s
fallegt fyrir heimilið
Myndlist
L e i r l i s t
G l e r l i s t
gallery
GL BAL
GRÍPTU GOTT TÆKIFÆRI ÞESSA VIKU
HEIMASÍÐA www.tk.is
Úrval af buxum frá
RALPH LAUREN og
Margar síddir!
• Gallabuxur • Flauel • Kakhi
RALPH LAUREN
Laugavegi 40 - SÍMI 561 1690
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
20%
afsláttur
af náttfatnaði í dag
og á morgun
Nýjar vörur
Kringlunni 8-12
Sími 553 4100
UPPLÝSINGAR um greiðslukort-
anotkun Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar, sem fram koma í ákæru ríkislög-
reglustjóra gegn honum og birtar
voru í Morgunblaðinu og DV í gær,
eru opinber gögn og því virðist ekk-
ert vera því til fyrirstöðu fyrir fjöl-
miðla að birta þær. Þetta segir
Þórður Sveinsson, lögfræðingur hjá
Persónuvernd.
Greiðslukortafærslur geta snert
viðkvæm persónuleg málefni og
ættu yfirleitt aðeins að vera í hönd-
um greiðslukortafyrirtækja og við-
komandi korthafa, að mati Þórðar.
Hann segir að öðru máli gegni þeg-
ar slíkar upplýsingar séu hluti af
ákæru í sakamáli því þar með séu
þær orðnar hluti af opinberu gagni.
„Málið er rekið fyrir dómi og þar
með er ákæran orðin að opinberu
gagni. Dómstólarnir starfa fyrir
opnum tjöldum og þess vegna eru
grundvallarskjöl í dómsmálum, eins
og ákærur, opinber skjöl,“ segir
hann. Því telji hann að í þessu til-
felli sé birting á greiðslukorta-
færslum væntanlega ekki í and-
stöðu við lög um persónuvernd.
Hann bendir auk þess á að dómur
héraðsdóms verði væntanlega birt-
ur í fjölmiðlum og verði málinu
áfrýjað til Hæstaréttar muni dóm-
urinn birtast á heimasíðu hans. „Og
þá munu allir þessir ákæruliðir birt-
ast þar,“ segir hann.
Siðareglur og almenn
sjónarmið til skoðunar
Við mat á réttmæti þess að birta
slíkar upplýsingar megi einnig líta
til siðareglna Blaðamannafélags Ís-
lands og almennra sjónarmiða um
friðhelgi einkalífsins. Umrætt birt-
ing gangi þó tæpast gegn þeim. „Ef
réttmætt er að birta nafn sakborn-
ings í fjölmiðlum þá ætti að mega
koma fram fyrir hvað hann er
ákærður,“ segir Þórður. Við bætist
að flestir þeirra sem eru ákærðir
teljast að líkindum opinberar per-
sónur og kastljós fjölmiðla beinist
talsvert að þeim, málið sé umdeilt
og hafi mikið þjóðfélagslegt gildi.
„Þannig að það er mjög margt sem
bendir til þess að það sé heimilt að
birta þennan hluta ákærunnar,“
segir Þórður.
Lögmaður hjá Persónuvernd um
birtingu á greiðslukortafærslum
Greiðslukorta-
færslur hluti af
opinberu skjali
LANDBÚNAÐARSÝNING fer
fram í reiðhöllinni Svaðastöðum á
Sauðárkróki um helgina. Sýningin,
er nefnist Fluga, hefst í dag og
henni lýkur kl. 18 á sunnudag. Fjöl-
margt er í boði fyrir bændur og
áhugamenn um landbúnað. Fjöl-
mörg fyrirtæki kynna þjónustu sína
og tækjabúnað en einnig verður
keppt í hestaíþróttum og fjár-
hundar, nautgripir og hrútar sýnd-
ir.
Meðal atriða er kynbótasýning á
nautgripum, Kýr 2005, en þar koma
saman norðlenskir kúabændur og
keppa með gripi sína.
Þá er boðið upp á fyrirlestra um
ýmis fagleg mál í landbúnaði og að
sjálfsögðu verða Skagfirðingar með
skemmtiatriði og söng.
Svaðastaðir verða opnir í dag og
á morgun milli kl. 10 og 19 en frá
kl. 12 til 18 á sunnudaginn.
Landbúnaðarsýning
á Sauðárkróki
ATVINNA
mbl.is