Morgunblaðið - 19.08.2005, Síða 17

Morgunblaðið - 19.08.2005, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 17 ERLENT ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali 533 4200 eða 892 0667 Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 Hef kaupanda að vönduðu einbýlishúsi á stór-Reykjavíkursvæðinu Seljendur vinsamlega hafið samband í síma 533 4200 eða 892 0667 UNDANFARNAR tvær vikur hef- ur Cindy Sheehan, 48 ára gömul kona frá Vacaville í Kaliforníu, haldið til skammt frá búgarði George W. Bush Bandaríkjaforseta í Crawford í Texas og beðið þess að forsetinn komi og eigi við hana orð. Bush dvelur nú á búgarðinum í fimm vikna sumarfríi. Hún þurfti þó að bregða sér frá tímabundið til að vera við hlið móð- ur sinnar á sjúkrahúsi í Los Angel- es, en hún fékk heilablóðfall. „Ég mun þó snúa aftur við fyrsta tæki- færi, ef mögulegt er,“ tilkynnti hún. Erindi Sheehan við Bush er að biðja hann um að draga bandarískt herlið frá Írak, en sonur hennar Casey var liðsmaður hersins og féll í Írak á síðasta ári, 24 ára að aldri. Sheehan gagnrýnir Bush harðlega fyrir að réttlæta áframhaldandi stríðsrekstur í Írak með vísan til þeirra sem hafa látið lífið í stríðinu. „[Bush] sagði að við yrðum að heiðra þá fórn sem föllnu hermenn- irnir hafa fært með því að ljúka ætl- unarverkinu,“ sagði Sheehan í við- tali við CNN. „Ég vil ekki að hann noti nafn sonar míns til að halda mannskæðum bardögum áfram. Það er nógu slæmt að sonur minn skuli vera dáinn.“ Frá því að Sheehan kom sér fyrir í námunda við búgarð Bush hafa hundruð manna sem eru andsnúnir Íraksstríðinu, þar á meðal fleiri for- eldrar fallinna hermanna, komið til liðs við hana. Íbúar í nágrenni við Crawford eru margir ósáttir við nærveru mótmælendanna og eins hafa stuðningsmenn forsetans mætt á staðinn og viljað sjá á bak þeim. Á mánudag var maður úr nágrenninu handtekinn fyrir að keyra yfir og eyðileggja krossa sem mótmælend- urnir lögðu í grasið til að heiðra látna hermenn. Þá skaut maður að nafni Larry Mattlage, sem býr á búgarðinum við hliðina á Bush, skotum út í loftið áður en hann greindi fjölmiðlafólki frá óánægju sinni með mannfjöldann á svæðinu. Aðspurður hvort skotin hefðu falið í sér einhver skilaboð sagði hann: „Þið getið svarað því sjálfir.“ Segir Bush hafa sýnt sér óvirðingu á fundi þeirra Mótmælendur færðu sig í fyrra- dag frá svæðinu, sem þeir hafa haldið til á og er almenningssvæði, yfir á landareign annars nágranna Bush, Fred Mattlage, sem vill svo til að er frændi Larrys. Fred Matt- lage, sem er fyrrverandi hermaður, vildi forða mótmælendum frá áreitni fólks sem er ósátt við að- gerðir þeirra. „Mér finnst að fólk megi mótmæla án þess að verða fyrir aðkasti,“ sagði hann í viðtali við AP-fréttastofuna, „og ég er á móti stríðinu.“ Bush hefur einu sinni farið frá búgarði sínum síðan fólkið safnaðist saman og þá keyrði bílalest hans hratt framhjá þeim án þess að nema staðar. Forsetinn hefur sagt að hann hafi samúð með Sheehan og að hún eigi fullan rétt á því að tjá skoðanir sínar. Hann hefur þó ekki gefið til kynna að hann ætli sér að hitta hana. „Ég hef heyrt mál- stað hennar frá öðrum,“ segir Bush, „og hann er: „Farið frá Írak strax.“ En það væri slæmt fyrir öryggi þessa lands og möguleikann á því að vinna að friði til lengri tíma, ef við gerðum það.“ Í viðtali við CNN sagði Sheehan að aðstoðarmenn forsetans hefðu komið að máli við sig og sagt sér að forsetanum væri alls ekki sama um hana og málstað hennar. „Ég veit hins vegar að honum er sama,“ sagði hún og vísaði þar til fundar sem hún átti með Bush fyrir um ári þegar fjölskylda hennar var í hópi 15 fjölskyldna fallinna hermanna sem forsetinn vottaði virðingu sína. Sheehan segir að Bush hafi sýnt ónærgætni og óvirðingu á þeim fundi. „Hann lét eins og þetta væri partí,“ segir hún. „Hann vildi ekki heyra neitt um Casey … Alltaf þeg- ar við reyndum að tala um Casey og hvað við söknuðum hans, þá skipti hann um umræðuefni“. 38% hlynnt framgöngu Bush Bandarískir fjölmiðlar hafa sýnt framgöngu Sheehan og málstað hennar mikinn áhuga og benda á að áhugi fólks á baráttu hennar komi heim og saman við hug margra Bandaríkjamanna til Íraksstríðsins um þessar mundir. 1.810 bandarísk- ir hermenn hafa fallið í stríðinu og nýleg skoðanakönnun AP- fréttastofunnar sýnir að aðeins 38% Bandaríkjamanna eru hlynnt fram- göngu Bush í stríðsrekstrinum. „[Sheehan] hreyfir við þeirri vax- andi almennu tilfinningu að stjórn Bush sé ekki í tengslum við veru- leika og fórnarkostnað Íraksstríðs- ins,“ sagði í leiðara dagblaðsins The New York Times fyrir fáeinum dög- um. Þar sagði einnig að Bush hefði ekki sýnt föllnum hermönnum, á borð við Casey Sheehan, þá virð- ingu sem þeir verðskulduðu. Stjórn- völd hefðu hikað við að láta forset- ann taka þátt í athöfnum sem kynnu að draga víðtæka athygli að þeim fjölda hermanna sem hafa fall- ið og særst alvarlega í stríðinu. Al- varlegast þykir leiðarahöfundum NYT þó að Bush skuli ekki vera hreinskilinn varðandi stríðið: „Al- menningur veit að staðan í Írak er slæm á fjölmörgum sviðum og á skilið heilsteyptari og heiðarlegri umræðu sem forsetinn á að hafa forgöngu um.“ AP Cindy Sheehan talar við fréttamenn við búgarð Bush í Texas þar sem hún hefur dvalið í tvær vikur. Hún ætlar hvergi að fara fyrr en hún hefur fengið að biðja forsetann augliti til auglitis að draga bandarískt herlið frá Írak. „Nógu slæmt að sonur minn skuli dáinn“ Móðir fallins hermanns stendur fyrir mótmælum gegn Íraksstríðinu fyrir utan búgarð Bush í Crawford í Texas Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur bab@mbl.is Nuuk. AFP. | Grænlendingar hyggjast setja kvóta vegna veiða á hvítabjörn- um frá og með janúar á næsta ári en tilgangurinn er sá að vernda stofn- inn en embættismenn segja hvíta- birni hafa orðið illa úti vegna áhrifa loftslagshlýnunar í heiminum. En um leið eru uppi áform um að heim- ila safarí-ferðir þar sem erlendum ferðamönnum myndi gefast færi á að skjóta nokkra hvítabirni ár hvert. Grænlenskir veiðimenn drepa á bilinu 200 og 250 hvítabirni á ári hverju, að sögn Amalie Jensen, full- trúa yfirvalda. „Við teljum að þessi tala ætti að vera lægri,“ sagði hún. Ekki hefur þó verið tekin ákvörðun um hversu stór kvótinn verði. Talið er að um 25.000 hvítabirnir fari um norðurheimskautssvæði Kanada og Grænlands. Niðurstöður skýrslu Norðurskautsráðsins, sem kynntar voru á fundi í Reykjavík á síðasta ári, voru á þá lund að svæðið hefði minnkað um 8% á síðustu 30 árum og er loftslagsbreytingum kennt þar um. Var varað við því að innan 100 ára gæti sú staða verið komin upp að norðurheimsskauts- ísinn bráðnaði alveg á sumrin með tilheyrandi áhrifum á dýralíf á svæð- inu, sem og líf og viðurværi inúíta sem búa á þessum slóðum. „Hvíta- birnir eiga undir högg að sækja, þeir verða að ferðast æ lengra í leit að æti og þessi leit þeirra er þeim mikil raun og hefur neikvæð áhrif á æxlun þeirra,“ sagði Jensen. Setja kvóta á hvíta- bjarna- veiðar Reuters Hvítabirnir eru tignarleg dýr. Þessi býr í dýragarði í Yongin, um 50 km suður af Seoul í Suður-Kóreu. Colombo. AFP. | Stjórnvöld á Sri Lanka hafa farið fram á það við norsku stjórnina, sem hefur reynt að miðla málum milli þeirra og skæru- liða Tamíl-tígra, að hún reyni að fá skæruliða til að fallast á auknar tryggingar fyrir núgildandi vopna- hléi. Margir óttast, að það geti farið út um þúfur vegna morðsins á Lakshman Kadirgamar, utanríkis- ráðherra landsins. Sri Lankastjórn hefur rætt málið við Jan Petersen, utanríkisráðherra Noregs, en hann var við útför Kad- irgamars. Sagt er, að hún vilji breyta vopnahlésskilmálunum og gefa eft- irlitsmönnum með því vald til að beita refsiaðgerðum gegn þeim, sem gerast sekir um vopnahlésbrot. Pet- ersen átti einnig fund með Anton Balasingham, helsta samningamanni Tamíl-tígra, í London og er talið, að þá hafi þeir rætt hugsanlega afleið- ingar morðsins á Kadirgamar. Sri Lankastjórn telur, að Tígrarnir hafi verið þar að verki en þeir neita því. Tígrum sýnd linkind? Chandrika Kumaratunga, forseti Sri Lanka, hyggst biðja þingið um að framlengja neyðarástandið, sem ákveðið var í síðustu viku, eftir að Kadirgamar var ráðinn af dögum. Mangala Samaraweera hafnamála- ráðherra sagði í gær, að Norðmenn og eftirlitsnefndin með vopnahléinu, hefðu hingað til tekið með silki- hönskum á vopnahlésbrotum Tamíl- tígra og mál væri, að því linnti. Vilja nýja vopna- hlés- skilmála    0"    (& #  9  :     1; 4(         ! "  #     !# $   & #  '' ( ! )*'#  !#  '     +      ! #,    -++./ 0( &'1  '$   ' .  " ( &  #$ ((' (  5#   !(< = "1-#( (& #5 " ' "#  &  (-"1#  " " 2  1# #' **5 # 1# ( #(" (( &  (" " " 0%1 2>(<#  <  '<*(**# ("#((& ('  ' '# 3%12>(<# ' .   "  4( <*(& 2 #   4%  # 20 #(1;"  !(&# (#* !1#$  1' .  #'   . #"&( # ( &'<#  '$ <*("$ '#"   '" %  # 2>(<# "' . - "# * #( (" 04%(  2/( (&#?#" '# 1$ ' < .< 400@#( 1 (#(($' < >(<# ( %1 2A'" #'  #'  (<# "&#<# "# *1 3   512BC'#  4( =&(  ," (1$ ' < . 6 1 2," (  '( '"- # <*(& 2" " <  #    . )# *  ?1& ( %(  20(   <1   !&# (#* ! ';&'( ((  & 5<'" !(< &' &'( (( '"5# < .(" 7# 1 2BC'. &#/( D E #"# (&#  '(  <*(& 2"( (< <# 0((  4 0880 61 20(  &# ( ("   '( (&!* . <   #(5# "&! 5< ;' <*(& 2<< 5<#((C  1 2$' <'( 0884 %1 2  # -&#"#(('  "01.  < #   !(&# %1 2400@"5$ <*(& 2  ;'5 F(.  8  " 9  $:;<="< G''( ,($ 0 (E" ##  # >BH4:BH $:;<="<  '  #  '  ,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.