Morgunblaðið - 19.08.2005, Side 42
HIN geðþekka Kate Hudson (How
To Lose A Guy in 10 Days) leikur
hér í spennumynd með yfirnátt-
úrulegu bragði en sögusviðið er í
New Orleans. Hudson er í hlut-
verki Caroline Ellis, sem ræður
sig til vinnu á óðalssetri í Suð-
urríkjunum, nánar tiltekið í New
Orleans, til að hlúa að fársjúkum
manni (John Hurt). Síðan kemst
hún að því að eiginkonan er að
leggja álög á manninn sinn með
hjálp vúdúgaldurs. Sálfræðin er
hér notuð óspart til að trekkja
taugarnar á áhorfendum og víst að
þeim bregði við oftar en einu sinni.
Til viðbótar fara Gene Row-
lands, Peter Sarsgaars og Joy
Bryant með stór hlutverk. The
Skeleton Key er leikstýrt af Iainn
Softley (K-PAX) en handritshöf-
undur er Ehren Kruger (Ring og
Ring 2).
Frumsýning | The Skeleton Key
Yfirnáttúruleg spenna
Kate Hudson berst við illa anda í hlutverki Caroline Ellis.
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 47/100
Roger Ebert 1/2
Hollywood Reporter 70/100
New York Times 60/100
Variety 50/100 (metacritic)
42 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6
Miðasala opnar kl. 15.00
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 10.30 B.i 16 ára
kl. 5.40
kl. 3.40 og 5.50 Í þrívídd
VINCE VAUGHN OWEN WILSONVINCE VAUGHN OWEN WILSON
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30
Sýnd kl. 8 og 10.20Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i 10 ára
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR
Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
WWW. XY. IS
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR
Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
ÞRIÐJA STÆRSTA
OPNUN ÁRSINS Í USA
Sýnd kl. 3.20, 4.20, 5.40, 6.40, 8, 9, 10.20 og 11.20 B.i 10 árawww.borgarbio.is
Sími 564 0000
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
BESTA GRÍNMYND SUMARSINS
„FGG“ FBL.
BESTA GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
kl. 8 og 10.30
WWW. XY. IS
WWW. XY. IS
ÞRIÐJA STÆRSTA
OPNUN ÁRSINS Í USA
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
H.J. / Mbl.. . l.
H.J. / Mbl.. . l. FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OG ÍSLANDIFÓR BEINT Á TOPPINN Í
USA OG ÍSLANDI
Á komandi menningarnóttverður ýmislegt um að veravíða í miðbæ Reykjavíkur.
Meðal atburða verður endurvinnsla
á ljóðum sem aðstandendur vefsíð-
unnar ljod.is standa fyrir á Lækj-
artorgi með hjálp skilti.is og Blikk-
ás.
Uppátækið er sniðugt og allrar
athygli vert en forsvarsmenn ljod.-
is ætla að bregða á leik með gest-
um og gangandi. Endurvinnslan
felst í því að þátttakendum gefst
kostur á að endurraða orðasafni
tveggja þekktra íslenskra ljóða.
Margir kannast eflaust við segla
sem gjarnan eru hafðir á ísskápum
með orðum sem hægt er að raða
saman á ýmsa vegu. Þaðan er hug-
myndin komin að sögn Davíðs A.
Stefánssonar, annars umsjón-
armanns ljod.is.
„Hvert orð í ljóðunum verður á
sér seguldúk og hver punktur og
hver komma einnig. Fólki er svo
boðið að púsla saman eigin ljóði úr
orðunum,“ segir hann.
Ljóðin tvö eru annars vegarþjóðsöngur Íslendinga eftir
Matthías Jochumsson og hinsvegar
Ó borg, mín borg eftir Vilhjálm frá
Skáholti. Ástæðuna fyrir því að
þessi ljóð hafa orðið fyrir valinu
segir Davíð: „Það þekkja svo fáir
skil á Þjóðsöngnum, þetta eru þrjú
löng erindi sem fáir kunna. Það
eru margskonar skemmtileg orð í
þessu ljóði, sameiningartákni þjóð-
arinnar, sem gaman er að draga
athyglina að og þetta er svona
prakkaraleg leið til þess að gera
það,“ segir Davíð.
Hann segist hlakka til að sjá af-
raksturinn.
„Ef þú færð 10 ólíka einstaklinga
til að raða orðunum uppá nýtt
færðu örugglega 10 mismunandi
útgáfur af ljóðum.“ Til varðveislu
ætlar Davíð að taka myndir af af-
rakstri vergafarenda og birta á
vefsíðunni ljod.is.
Endurvinnsla ljóðanna fer framá laugardaginn á Lækjartorgi
í nágrenni við klukkuna milli
klukkan 14 og 18, og lengur ef
áhugi er fyrir hendi. Það eru öllum
velkomið að koma og taka þátt í
endurvinnslunni.
Davíð segist sjálfur vera „á kafií ljóðum“. Hann hefur gefið út
þrjár ljóðabækur og sú fjórða er á
leiðinni.
Á Menningarnótt í fyrra stóð
Davíð, ásamt öðrum hjá ljod.is, fyr-
ir svokölluðu skáldati í Tjarnarbíói
en sjálfur lýsir hann fyrirbærinu
sem „ljóða-Idoli“. Það vakti, að
hans sögn, mikla lukku og stendur
til að endurtaka leikinn síðar á
árinu.
Davíð segir ekki ólíklegt að
ljóðaendurvinnslan komi þar eitt-
hvað við sögu, en það sé einn
möguleiki á að láta skáld keppa sín
á milli, að endurvinna ljóð eftir
aðra.
Endurunnin ljóð
’Endurvinnslan felst í því að þátttak-
endum gefst kostur á
að endurraða orðasafni
tveggja þekktra
íslenskra ljóða.‘
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Davíð Stefánsson með töfluna góðu þar sem ófá ljóð eiga eftir að líta dags-
ins ljós á laugardaginn.
birta@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.ljod.is
Kvikmyndin Bjólfskviða (Beo-wolf and Grendel) verður
frumsýnd síðar á árinu en myndin
er kanadískt, íslenskt og breskt
samstarfsverkefni leikstýrt af
Sturlu Gunnarssyni. Sagan er
byggð á rúmlega þúsund ára gömlu
kvæði um hetjuna Bjólf sem sigr-
ast á jötninum Grendli sem hrelldi
Dani á 6. öld.
Með hlutverk Bjólfs og Grendels
fara þeir Gerard Butler og Ingvar
E. Sigurðsson en Elva Ósk Ólafs-
dóttir leikur
móður Grendels.
Nú berast
fregnir af því að
í bígerð sé önnur
stórmynd, byggð
á sömu sögu.
Það er leikstjór-
inn Robert Zem-
eckis (Polar Ex-
press) sem hyggst leikstýra
verkinu. Í aðalhlutverkum verða
þau Ray Winstone (Sexy Beast) og
Crispin Glover í hlutverkum Bjólfs
og Grendels og Angelina Jolie í
hlutverki móður Grendels.
Bjólfskviðan síðarnefnda verður
frumsýnd árið 2007.
Fólk folk@mbl.is