Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BROTTFLUTNINGUR ísraelskra landtökumanna á Gaza stendur nú sem hæst og þrátt fyrir nokkur átök er stefnt að því að ljúka honum innan viku. Samkvæmt áætlun Ariels Shar- ons, forsætisráðherra Ísraels, eiga síðan síðustu ísraelsku hermennirnir að fara þaðan í október. Hér er um að ræða mikil tíðindi og hefur Sharon verið hrósað víða, eink- um á Vesturlöndum, fyrir framsýni og hugrekki. Um það eru þó flestir sammála, að það er ekki brottflutn- ingurinn frá Gaza, sem skera mun úr um framtíðarsamskipti Ísraela og Palestínumanna, heldur fyrirætlanir Ísraela á Vesturbakkanum. Terje Rød-Larsen, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda og fyrr- verandi milligöngumaður Sameinuðu þjóðanna í deilum Ísraela og Palest- ínumanna, segir Sharon hafa „sýnt forystuhæfileika og hugrekki“ með brottflutningnum, sem hugsanlega geti orðið „þúfan, sem velti hlassinu“. Það er að segja, verði honum fylgt eftir með viðræðum um endanlegan friðarsamning. „Ef hér er hins vegar um að ræða fyrsta skrefið og jafnframt það síð- asta, er ég hræddur um, að ástandið muni áfram einkennast af átökum og ofbeldi,“ sagði Rød-Larsen og bætti við, að nú væri „stund sannleikans“ runnin upp fyrir báða deiluaðila. Hvað vakir fyrir Sharon? Ísraelar og Palestínumenn féllust hvorirtveggja á Vegvísinn, frið- aráætlunina, sem Sameinuðu þjóð- irnar, Bandaríkin, Evrópusambandið og Rússar standa að, en samkvæmt honum er stefnt að sjálfstæðu ríki Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gaza og endanlegum friðarsamn- ingum milli þeirra og Ísraela. Ætla fulltrúar Kvartettsins, sem svo er kallaður, að koma saman um miðjan næsta mánuð til að ræða stöðuna eftir brottflutninginn frá Gaza og þá með það fyrir augum, að Ísraelar og Pal- estínumenn setjist aftur að samn- ingaborði í anda Vegvísisins. Hætt er samt við því, að Rød- Larsen og fulltrúar Kvartettsins verði fyrir vonbrigðum. Flest bendir til, að það, sem vaki fyrir Sharon með brottflutningnum frá Gaza, sé þetta tvennt: Annars vegar að bæta ímynd sína og Ísraela á alþjóðavettvangi og hins vegar að búa í haginn fyrir ákveðnar aðgerðir á Vesturbakk- anum. Með öðrum orðum, að Sharon hafi afráðið að draga upp á eigin spýt- ur nýja landamæralínu fyrir Ísrael og án nokkurs tillits til Palestínumanna eða umheimsins. Vert er að nefna, að í Ísrael hefur löngum hefur verið litið á landtökuna á Gaza sem hálfgert aukaatriði, jafn- vel meðal bókstafstrúaðra harðlínu- manna. Öðru máli gegnir um Vest- urbakkann, hin fornu landsvæði Júdeu og Samaríu, en þar er land- takan ýmist kölluð „gjöf frá guði“ eða réttmætur ávinningur í stríði. Sharon hefur tilkynnt, að fjórar smáar gyðingabyggðir á Vesturbakk- anum norðanverðum verði yfirgefnar en hann hefur líka margsagt, að meg- inbyggðirnar verði efldar. Hefur hann nýlega og oft áður leyft nýjar húsbyggingar þar, þvert ofan í Veg- vísinn, en nú búa á Vesturbakkanum um 240.000 Ísraelar. Sharon hefur gengist fyrir bygg- ingu múrsins mikla, sem víða liggur langt inni á palestínsku landi og hefur einangrað tugi þúsunda Palest- ínumanna frá sínu eigin samfélagi. Líklegt þykir, að Sharon sjái legu múrsins fyrir sér sem nýja landa- mæralínu og þá muni Austur- Jerúsalem, sem Palestínumenn vilja, að verði höfuðborg þeirra, lenda inn- an hans. Samkvæmt þessu og með landamærin frá 1967 í huga verða 10% Vesturbakkans í raun innlimuð. Óhagstæð tölfræði Annað, sem vegur þungt hjá Shar- on og Ísraelum almennt, er lýð- fræðin. Á Gaza, sem er aðeins 360 ferkm, réðu 8 til 9.000 gyðingar 33% landsins en á hinum 67% bjuggu tæp- lega 1,4 milljónir Palestínumanna. Á Vesturbakkanum, sem er 5.860 ferkm, býr nokkuð á þriðju milljón Palestínumanna. Ísraelar eða gyð- ingar, sem hafa þungar áhyggjur af fjölgun fólks af arabískum uppruna innan eigin landamæra, sáu í hendi sér, að yrðu þessi landsvæði innlimuð alveg, væru þeir þar með komnir í minnihluta. Á næstu mánuðum mun koma í ljós hvert framhaldið verður. Hvort brott- flutningurinn frá Gaza verður upphaf nýrra friðarviðræðna í anda Vegvís- isins eða hvort Ísraelar ætli sér að hunsa hann endanlega og þá jafnvel með þegjandi samþykki Bandaríkja- stjórnar. AP Ísraelar, sem búið hafa í byggðinni Neve Dekalim á Suður-Gaza, mótmæla brottflutningnum í gær en þá kom til harðra átaka við liðsmenn Ísraelshers. Gazasvæðið er ekki nema 360 ferkílómetrar en 8 til 9.000 Ísraelar höfðu lagt 33% landsins undir sig. Á hinum 67% hafa búið 1,4 milljónir Palestínumanna. Undanfari friðar eða ávísun á nýja ólgu? Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is IAN Blair, lögreglustjóri í London, reyndi að koma í veg fyrir að op- inber rannsókn yrði gerð á dauða Brasilíumannsins Charles de Men- ezes, að því er fullyrt er í dagblaðinu Independent í gær. Menezes var skotinn til bana af lögreglumönnum á Stockwell-lestarstöðinni í London 22. júlí síðastliðinn, daginn eftir að tilraunir voru gerðar til hryðjuverka í borginni, en hann var grunaður um að vera hryðjuverkamaður. Sam- kvæmt rannsóknarskýrslu sem lekið var í fjölmiðla í fyrradag mun Men- ezes þó ekki hafa hagað sér grun- samlega á lestarstöðinni né reynt að forðast lögreglu eins og hún hefur hingað til haldið fram. Fékkst staðfest í gærdag að lög- reglan stóð í fyrstu á móti því að efnt yrði til óháðrar rannsóknar. Öryggishagsmunir í fyrirrúmi Independent hefur eftir Scotland Yard að Ian Blair hafi, nokkrum klukkustundum eftir dauða Men- ezes, skrifað John Gieve, ráðuneyt- isstjóra í innanríkisráðuneytinu, bréf í þeim tilgangi að tryggja að hryðjuverkarannsóknin hefði for- gang yfir nokkra sjálfstæða rann- sókn rannsóknarnefndar innan lög- reglunnar (IPCC). Sama dag féllst lögreglan í London á að fela IPPC rannsókn á dauða Menezes. Scot- land Yard segir að bréf Ians Blairs, sem einnig var sent til IPPC, hafi átt að „skerpa hlutverk IPPC ef, eins og þá virtist raunin, að byssu- skotin á Stockwell-lestarstöðinni hafi tengst sjálfsmorðssprengju- manni sem hefði átt hlut að máli í atvikum sem áttu sér stað degi fyrr“. Independent segir einnig hafa komið fram í gær að Ian Blair hafi haft áhyggjur af því að sjálfstæð rannsókn gæti stofnað öryggishags- munum í hættu. Málið hefur hingað til verið „óreiðukennt klúður“ Lögfræðingar fjölskyldu Menezes gagnrýna lögreglu og lögreglustjór- ann harðlega og segja lögreglu hafa brugðist skyldum sínum með því að fara ekki strax fram á rannsókn IPPC á dauða Menezes. Harriet Wistrich, einn af lögfræðingum fjöl- skyldunnar, hvatti Ian Blair í gær til að segja af sér embætti. Gareth Peirce, annar lögfræðingur fjöl- skyldunnar, sagði í samtali við BBC í gær að málið hefði hingað til verið „óreiðukennt klúður“. Hún sagði að rannsókn á dauða Menezes yrði einnig að leita svara við því hvers vegna lögregla virtist ekki hafa leið- rétt rangar upplýsingar um atvikið sem komið hefðu fram. „IPPC verð- ur að komast að því hvað af þessu var vanhæfni eða vanræksla eða hvort eitthvað af þessu hafi verið eitthvað verra en það,“ sagði Peirce við BBC. Hún sagði einnig að stað- an eins og hún blasir við krefðist þess að svör kæmu fram „fljótt, ekki bara vegna hagsmuna fjölskyldunn- ar heldur einnig almannahags- muna“. Sagður hafa reynt að koma í veg fyrir rannsókn Lögmenn Brasilíu- mannsins Menezes krefjast afsagnar Ians Blairs, lög- reglustjóra í London Reuters Ljósmynd af líki de Menezes í lestinni sem ITV-sjónvarpsstöðin sýndi. Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur bab@mbl.is Bogota. AFP. | Björgunarfólk leitaði í gær dauðaleit að einhverjum sem kynnu að hafa komist lífs af þegar fiskibátur frá Ekvador sökk undan strönd kólumbísku eyjunnar Mal- pelo í fyrrakvöld en óttast er að meira en 100 manns hafi drukknað. Níu var bjargað í fyrrakvöld. Um lítinn mótorbát var að ræða en 113 manns voru um borð. Þykir ljóst að verið var að nota fiskibátinn til að smygla fólki með ólöglegum hætti milli landa. Umræddur bátur var á leið til Mið-Ameríku og munu far- þegarnir hafa haft í hyggju að smygla sér inn í Bandaríkin. Forseti Ekvador, Alfredo Palacio, vottaði fjölskyldum fórnarlambanna samúð sína í gær og hét því að draga þá til ábyrgðar sem skipulögðu þessa feigðarför. Jafnframt sagðist hann ætla að blása til sóknar gegn þeim sem stæðu í því að flytja saklaust fólk gripaflutningum, eftir að hafa sannfært það um að þess biði betri tíð og blóm í haga annars staðar. „Þetta er plága sem ræðst á hina fá- tækustu og hefur í för með sér harm- leiki eins og þennan,“ sagði hann ennfremur. Báturinn mun hafa lagt úr höfn frá borginni Esmeraldas í Ekvador, ná- lægt landamærunum að Kólumbíu, 11. ágúst sl. Allir um borð voru frá Ekvador, nánar tiltekið frá Azuay- héraði og hafnarborginni Machala. Yfir 100 Ekvador- búar drukknuðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.