Morgunblaðið - 23.09.2005, Blaðsíða 4
4 B FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
NÝR Suzuki Swift kom á markað
hérlendis sl. vor og vakti athygli
fyrir laglega útlitshönnun. Bíllinn
er hannaður með þarfir Evrópubúa
í huga. Hann er þess vegna há-
byggður og rýmið að innan er
meira en menn í fyrstu hyggja. Við
höfum prófað bílinn með 1,5 l bens-
ínvélinni en auk þess er hann fáan-
legur með 1,3 l bensínvél og núna
er hann kominn hingað með 1,3
lítra dísilvél.
Hannaður með þægindi
í umgengni í huga
Það er ekki algengt að sjá smá-
bíla með dísilvélum en kosturinn
við þær er auðvitað sérlega lítil
eyðsla og þá um leið hagstæður
rekstur. Dísilbíllinn er að öllu leyti
alveg eins og bensínbíllinn, nema
hvað hann er með 68 hestafla 1,3
lítra samrásardísilvél sem byggð er
á Fiat Multijet-vél. Þótt dísilgerðin
verði ekki til þess að trufla mikið
markaðinn hérlendis er þetta mjög
mikilvæg útfærsla fyrir Suzuki, því
vænta má að dísilbíllinn auki mjög
eftirspurn eftir Suzuki Swift í Evr-
ópu. Suzuki hefur ekki verið stór-
tækt í dísilvélum en nú bregður
svo við að þær eru fáanlegar í
næstum alla bíla fyrirtækisins.
Léttleiki í innanrýminu
Swift er einn þessara smábíla
sem samsvara sér óvenjulega vel.
Þar ræður kannski mestu mikið
hjólhaf og sporvídd, há hliðarlína
og stórir gluggafletir. Að sumu
leyti minnir hönnunin á Mini en
Swift er þó umtalsvert hábyggðari.
Þetta byggingarlag gerir það líka
mjög auðvelt að umgangast bílinn.
Maður sest inn í hann án þess að
þurfa að bogra og fótarými í fimm
dyra útfærslunni er ágætt. Þar
geta tveir fullorðnir ferðast í þæg-
indum.
Það er léttleiki líka yfir innan-
rýminu í nýjum Swift. Þegar sest
er inn verður vart við stærstu
breytinguna; Swift hefur breyst úr
litlum þröngum smábíl í afar rúm-
góðan borgarbíl. Það er t.d.
óvenjuhátt til lofts í bílnum sem er
mikill kostur, ekki síst í aftursæt-
um, og auðveldara er fyrir vikið að
ganga um bílinn; setjast inn í hann
og fara út úr honum. Eins og al-
gengt er í smábílum er mikið um
plast í innréttingum, t.a.m. eru
hurðarhúnar að innan úr harð-
plasti. Farangursrýmið er að sönnu
ekki mikið, frekar en í öðrum bíl-
um í þessum stærðarflokki, en með
því að fella niður sætisbökin og
velta síðan sætunum upp að fram-
sætisbökunum skapast gott pláss
fyrir talsverðan farangur; fer úr
213 lítrum í 562 lítra. Sömuleiðis er
sætastaðan í bílnum hærri sem
eykur bæði yfirsýnina út úr bílnum
og gerir langan akstur síður þreyt-
andi. Smekklegur frágangur er á
öllu í innanrýminu; stýrið komið
með fjölrofastillingar, innbyggð
hljómtæki eru með gegnsæjum
plastglugga.
Hljóðlát og togmikil dísilvél
Dísilvélin í Swift er sérstök
vegna smæðar sinnar. Hún er 16
ventla og með samrásarinnspraut-
un og eyðslan er uppgefin 4,6 lítrar
að meðaltali. Þetta er því sannkall-
aður sparibaukur á tímum elds-
neytisverðs sem í hámarki. Með
þessari vél er bíllinn 68 hestöfl.
Það verður að koma vélinni upp á
dálítinn snúning ef menn vilja ekki
sitja eftir þegar græna ljósið
kviknar, en togið er mikið og bíll-
inn léttur og þess vegna þægilegur
og lipur bæði á stuttu sprettunum
innanbæjar og í langkeyrslu. Þetta
er þýðgeng vél og hljóðlát. Við
hana er tengd afbragðsgóð fimm
gíra handskipting.
Swift er á verði frá 1.479.000 kr.
og þá með 1,5 lítra bensínvél og
handskiptur en í dísilgerðinni kost-
ar hann 1.619.000 kr. Í þessu verð-
dæmi sést greinilega munurinn á
innkaupsverði bensínbíls og dísil-
bíls í sömu vörugjaldsflokkum;
120.000 kr. í þessu tilviki. Þar sem
dísilbíllinn eyðir nokkru minna en
bensínbíllinn og dísilolían er lítið
eitt ódýrari en bensínið þarf að
reikna dæmið til enda ef hagsýn-
isástæður ráða bílkaupunum. Und-
irritaður er ekki vafa um að Swift
með dísilvélinni gæti komið mörg-
um á óvart sem ekki hafa hingað til
verið hallir undir dísilvélar.
Swift er vel búinn í grunninn og laglegur er hann að innan. Dísilvélin er ekki nema 1,3 lítrar en skilar 170 Nm togi. Harðplast er í hurðarhúnum og rafstýrðir gluggar að framan.
Swift sparigrís með dísilvél
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Swift er frísklega hannaður smábíll, hábyggður og stöðugur á vegi.
Há hliðarlína, stórir gluggafletir og mikið hjólhaf einkennir bílinn.
Afturhlerinn opnast hátt og þægilegt er að umgangast skottið.
Vél: 4 strokkar, 1.248
rúmsentimetrar, samrás-
arinnsprautun, 16 ventlar.
Afl: 68 hestöfl við 4.000
snúninga á mínútu.
Tog: 170 Nm við 2.000
snúninga á mínútu.
Gírkassi: Fimm gíra
handskipting.
Hröðun: 14,2 sekúndur
úr kyrrstöðu í 100 km.
Hámarkshraði:
km/klst.
Lengd: 3.695 mm.
Breidd: 1.690 mm.
Hæð: 1.500 mm.
Farangursrými: 213–562
lítrar.
Eigin þyngd: 1.065 kg.
Hemlar: Kældir diskar að
framan, tromlur að aftan.
Eyðsla: 5,7 lítrar
innanbæjar, 4,6 lítrar
í blönduðum akstri.
Verð: 1.599.000 kr.
Umboð: Suzuki bílar hf.
Suzuki Swift
GL Diesel
REYNSLUAKSTUR
Suzuki Swift
Eftir Guðjón Guðmundsson
gugu@mbl.is