Morgunblaðið - 23.09.2005, Page 8
8 B FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
ENN einn gullmolinn hefur bæst í safn
þeirra fornbíla sem þúsundþjalasmiðurinn
Björn Sverrisson á Sauðárkróki hefur tekið
og gert eins og nýja úr kassanum. Hér er
um að ræða Chevrolet herbíl, árgerð 1942,
en þessi bíll er nátengdur bjargvætti sínum
því hér er um að ræða fyrsta bílinn sem
Björn eignaðist, árið 1956.
Björn segir að þessi umræddi bíll hafi
fyrst verið keyptur af hernum til skólabús-
ins á Hólum að afloknu stríði, og notaður til
ýmissa verka og aðdrátta fyrir búið, og bar
hann þá skráningarnúmerið K 9. Síðan
gekk bíllinn manna á milli þar til árið 1956
að Björn eignaðist hann, en seldi nokkru
síðar suður í Voga á Vatnsleysuströnd. Eft-
ir það frétti Björn lítið af bílnum, vissi þó
að hann fór austur á land og var meðal ann-
ars um tíma á Breiðdalsvík og síðar notaður
við síldarvinnsluna á Eskifirði. Það var svo
upp úr 1990 sem Björn rakst á bílflak á
bænum Finnsstöðum við Egilsstaði og þótt-
ist þar kenna sinn gamla vin, enda eitt af
sérkennum hans að bensíntankurinn var
ekki upprunalegur. Einhverra hluta vegna
hafði verið skipt um tank og settur flug-
véla-tankur á bílinn og var þetta það sem
kom Birni til þess að athuga flakið betur.
Kom þá í ljós að hér var hann kominn og
hafði staðið ógangfær og í niðurníðslu í
fjölda ára. Þegar svo eigandinn bauð Birni
að eignast gripinn var boðið þegið og um
páska 1998 fór Björn austur, sótti hann og
flutti heim. Í tvö ár var bíllinn í geymslu en
árið 2000 var hafist handa við endurgerðina
og nú nýverið var þessum aldna vinnuþjarki
ekið út í sólskinið og hann settur á sitt
gamla skráningarnúmer K 9.
Áflog við stýrið
Það er ævintýri líkast að setjast upp í
þetta farartæki með Birni og aka af stað.
Ferðin er ekki mikil, nálin á hraðamælinum
stendur í um 15 mílum og ekki er mýktinni
fyrir að fara, og það lætur hátt í vélinni –
„en á góðum degi komst hann allt að 70
kílómetra hraða,“ segir Björn og hlær, „en
þetta var erfitt, það voru stöðug áflog við
stýrið, miklir snúningar og svo þurfti maður
sífellt að vera að tvíkúpla þegar skipt var
um gír.
En það var margt gott við þennan bíl, til
dæmis er lága drifið svo lágt, að þegar ég
kom að hliði sem þurfti að opna þá setti ég
hann bara í lága og fyrsta svo hljóp ég út á
meðan hann mjakaðist áfram, opnaði hliðið
og hann kom á eftir mér í gegn, ég lokaði
og hljóp svo á eftir honum og hélt áfram,
hann bara rólaði þetta og fór ekkert upp úr
hjólförunum,“ segir Björn.
„Þessir bílar voru mikið notaðir til liðs-
flutninga, þeir eru ekki með sturtum, en þá
voru á pallinum langbekkir og segldúksskýli
á bogum yfir. Ég veit ekki hvort ég set
þetta á hann, en ég á ónotað orginal segl
sem ég get notað ef mér dytti það í hug.“
Hann segist muna eftir fimm bílum af þess-
ari gerð í Skagafirði uppúr stríði, og líklega
sé til annar gangfær ennþá hérlendis, og
hann viti ekki um marga slíka í Evrópu
enda lítil not fyrir slíka bíla núorðið.
Inni á verkstæðinu hjá Birni stendur
gamall Volvo Amason, sem sonur hans á, en
þessi aldurhnigni Volvo bíður frekari að-
hlynningar.
Björn segist ekki vera á leið í þennan bíl,
það sé verk eigandans, og hann segist ekki
vera búinn að afráða næsta verkefni, hann
þurfi að sinna gamalli dráttarvél fyrir kunn-
ingja sinn, en það er líka ljóst að ekki
myndast dauður tími hjá þessum völundi
því að stöðugur straumur er á verkstæðið
með hin aðskiljanlegustu verkefni smá og
stór, sem þarf að sinna.
Hann kom á eftir mér í gegn
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Björn Sverrisson við hertrukkinn K 9, sem er eins og nýr á að líta.
Það var árið 1990 sem Björn rakst á bílflak á bænum Finnsstöðum við Egilsstaði. Við nánari athug-
un kom í ljós að þetta var hertrukkurinn sem hafði staðið ógangfær og í niðurníðslu í fjölda ára. Um
páska 1998 fór Björn austur, sótti hann og flutti heim.
BÍLABÚÐ Benna fagnar 30 ára afmæli sínu um þessar
mundir. Í tilefni af tímamótunum flutti fyrirtækið, sem hefur
umboð fyrir Chevrolet, SsangYong og Porsche, inn Chevrolet
af árgerð 1922 og verður hann til sýnis í versluninni um
helgina.
Bíllinn heitir fullu nafni Chevrolet 490 Utility Coupe. Þetta
er stórglæsilegur fulltrúi þriðja áratugarins í bílaframleiðslu
vestanhafs.
Dekkjastærðin er 32x4 og hann er á 32" tréfelgum. Fram-
leiddir voru 1.945 bílar af þessari gerð en óvíst er hve margir
eru til í dag. Það er þó ljóst að þetta er með fágætari bílum í
heiminum. Þetta eintak er þrátt fyrir háan aldur ekki ekið
nema 63.000 mílur, en það hefur verið á bílasafni í Pennsylv-
aníu í yfir 40 ár.
Bíllinn var ekki með ventlaloki en það fylgdi olíukanna með
og gripu menn til hennar ef það fór að ískra í rokker-örmum. Í
auglýsingum sem birtust þegar bíllinn kom á markað var sagt
að þessi eðalvagn væri „kjörinn fyrir farandsölumanninn þar
sem hann skilaði honum í fullkomnu andlegu og líkamlegu
ástandi til viðskiptavina sinna“ (Perfect for the traveling
salesman, as it carries him to the customer in the physical
and mental condition best adapted to successful sales con-
tacts). Árið 1922 kostaði bíllinn 680 dollara í Bandaríkjunum. Með upprunalegu númeraplöturnar og á tréfelgum.
Morgunblaðið/RAX
Ekki mikil þægindi en sagður kjörinn fyrir farandsölumanninn.
Snúningssveifin er á sínum stað.
Benni með Chevrolet 1922
Bíllinn var sagður tryggja velgengni farandsölumannsins.