Morgunblaðið - 23.09.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.09.2005, Qupperneq 10
10 B FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar DÓTASTUÐULL er hugtak sem flestir jeppamenn sem aka um á breyttum jeppum kannast við. Og eitt af því sem hækkar dótastuðulinn hvað mest er fjöldi loftneta á jeppanum. Þrátt fyrir að allt tal um dótastuðul sé nú mest í gríni getur það skipt sköpum að komast í samband við umheiminn þegar eitthvað bjátar á. Og þegar eitt- hvað bjátar á þá gerist það auðvitað þegar síst er á von og á versta stað. En hvað þýða þessar skammstafanir allar og virkar þetta á fjöllum? Flestir kannast við að GSM kerfið er skammdrægt og dugar lítt eða ekki á fjöllum. Þó mun vera hægt að fá langdrægari senda fyrir það kerfi en eru í notkun í byggð, jafnvel senda sem draga allt að 100 kílómetra í sjónlínu. Mér er ekki kunnugt um hvort síma- fyrirtækin hafa uppi áform um að setja upp slíka senda fyrir hálendið. Mörg dæmi eru um að menn hafi komist í vandræði á fjöllum og hafi ætlað að treysta á GSM en ekki dugað. NMT-kerfi að deyja út Gamla góða NMT-kerfið verður tekið úr notkun á næstu árum. Það er miður því þetta kerfi hefur reynst vel á fjöllum (og á miðunum) og það eru til- tölulega fáir staðir sem ekki er hægt að komast í samband með þannig síma. Miðhálendið, jöklar og vissir staðir á Fjallabaki syðra sem dæmi hafa þó verið sambandslausir. CB (Citizen Band 27 Mhz) talstöðv- arnar voru mjög vinsælar meðal jeppamanna á árum áður. Þær hafa mjög takmarkaða drægni eins og þær eru útbúnar í flestum bílum og hafa helst verið notaðar sem samskiptatæki milli bíla þar sem stutt er á milli. Þær eru á hröðu undanhaldi þar sem marg- ir eru að skipta yfir í VHF. Menn eru þó ekki á eitt sáttir hvað þetta varðar ef marka má spjallið á vefsíðu 4x4 klúbbsins – sjá www.f4x4.is. UHF (Ultra High Frequency 430 – 440 Mhz) talstöðvar eru einnig skammdrægar talstöðvar og nýtast ekki sem öryggistæki á fjöllum. Þessar stöðvar er hægt að kaupa á næstu bensínstöð (litlar handstöðvar) og drægni þeirra getur verið uppí 5 kíló- metra í beinni sjónlínu. Það getur hins vegar verið bráðskemmtilegt að hafa slíkar stöðvar með þegar ferðast er í hópi. Þá heyra allir sem hafa stöðvar í hver öðrum og geta þannig miðlað fróðleik til allra í einu. Og þessi sam- skiptamáti kostar ekkert í notkun nema rafhlöður. Símanum) og síðan skiptir síminn yfir á gervihnattasamband ef ekki næst samband við GSM- kerfið. Þessu fylgja auðvitað venjulegir annmarkar gervihnattasamskipta – loftnetið þarf að hafa óhindrað „útsýni“ til himins og loftnetið er ekki alveg af minni gerð- inni. Að hringja úr svona tæki er ein- falt; bara að bæta við +354 fyrir fram- an númerið á Íslandi. Mínútugjaldið hefur lækkað jafnt og þétt og er nú um eða innan við 100 kr. Það er ódýrara en stundum þegar GSM er notað í útland- inu með viðeigandi reikisamningum. Globalstar hefur verið stafrænt kerfi frá upphafi. Það er til dæmis ekkert mál að senda SMS-skilaboð í þessu kerfi eða að nota símtækið sem mótald við tölvu. Þetta kerfi er raunverulegt öryggistæki á fjöllum. Handtækið (sjá mynd) kostar innan við hundrað þús- und. INMARSAT hefur mest verið notað til samskipta við skipaflotann og hægt er að senda tölvupóst o.fl. í gegn- um þetta kerfi. IRIDIUM-kerfið er um margt líkt og Globalstar en hefur meiri útbreiðslu og öryggi í tengingu hér á landi en það síðarnefnda. Iridium er hins vegar dýrara í notkun því þar þarf að greiða mánaðarlegt gjald af símanum óháð notkun og símtækið er aðeins fyrir gervihnattasamskipti. Sjá nánar á http://www.siminn.is/control/ index?pid=35818 VHF Þá er bara eftir VHF (very high fre- quency 100 til 200 Mhz). Þetta kerfi hefur lengi verið í notkun á Íslandi og reynst vel. Þrátt fyrir að kerfið sé ekki langdrægt hefur verið bætt úr því með svokölluðum endurvörpum (sjá út- breiðslumynd á www.rsh.is) . Björg- unarsveitir, Ferðaklúbburinn 4x4 og fleiri aðilar hafa sett þessa endurvarpa upp. Því fer þó fjarri að alls staðar sé samband við endurvarpa. Þó má segja að á mörgum þeim leiðum þar sem ekki er NMT-samband sé nokkuð öruggt að ná í einhvern þessara end- urvarpa. Sagan er þó ekki öll því ein- ungis fáir aðilar hafa aðgang að öllum endurvörpunum. Góð vhf stöð kostar um 50 þúsund komin í bíl og rekstur hennar kostar um 2.400 krónur á ári. Vhf stöðvar eru til sölu hjá m.a. AMG Aukaraf ehf (www.aukaraf.is) og Bíl- anaust/Radíóþjónustu Sigga Harðar (www.rsh.is). Niðurstaðan af þessu öllu er þá sú að líklega eru menn best settir með gervihnattasíma eigi að velja eitthvert eitt tæki. Ég hef séð í einum jeppa SSB, CB, VHF/UHF, GSM og GLOBALSTAR. Sá ætti að vera nokkuð öruggur um að komast í samband hvar sem er á Ís- landi. Sigurður Grímsson SSB-stöðvarnar Eflaust muna margir enn eftir stóru loftnetunum sem voru á öllum alvöru fjallabílum hér í denn. Talstöðvarnar sem þurftu slík loftnet voru yfirleitt kallaðar SSB-stöðvar og margir kann- ast við þær sem Gufunesstöðvar. Þetta voru mjög langdrægar og öflugar stöðvar sem hægt var að hafa sam- band með á milli landshluta. Fjar- skiptamiðstöðin í Gufunesi hafði yfir- umsjón (ef svo má segja) með fjarskiptum um þessar stöðvar og gat verið milliliður í samskiptum. Mér er í fersku minni þegar haft var samband við bíl á Egilstöðum úr öðrum bíl sem var í Langadal í Þórsmörk en þetta var í kringum 1970. Þessar stöðvar voru fyrirferðarmiklar og dýrar og hafa svo til horfið af sjónarsviðinu. Gott ef fjar- skiptamiðstöðin í Gufunesi er ekki líka hætt þjónustu við þessar stöðvar. TETRA-kerfið er nú í notkun hjá viðbragðsaðilum, (lögregla, slökkvilið), á nokkrum þéttbýlisstöðum. Þetta kerfi virkar enn sem komið er tak- markað á fjöllum. Efasemdarraddir heyrast um að það verði nokkurn tíma en það getur tíminn einn leitt í ljós. Þó þykir ljóst að það verður ekki í nán- ustu framtíð. Sjá útbreiðslumynd á: http://www.siminn.is/control/in- dex?pid=55396 Frekari upplýsingar um tæknina má finna á: http:// www.siminn.is/control/in- dex?pid=55415 Nú, þá fer að þynnast listinn okkar. GLOBALSTAR, INMARSAT og IRIDIUM eru símkerfi sem byggjast á notkun gervihnatta. Ég hef sjálfur notað Globalstar-kerfið í nokkur ár og hef af því góða reynslu. Símtækið sjálft er líka GSM-sími, að vísu verulega stór miðað við nútíma símtæki, en tiltölu- lega einfalt í notkun. Það þarf bara að hafa gilt símakort (hef bara prófað frá Fjarskipti á fjöllum Frá hægri – Globalstar gervi- hnattasími, VHF-handtalstöð og GSM-sími af algengri gerð. Eldspýtu- stokkurinn er líka nauðsyn á fjöllum. Ef vel er gáð má telja 6 loftnet á þessum bíl – útvarp, CB, VHF, UHF, GSM og NMT. Litlar UHF-talstöðvar sem kosta inn- an við sjö þúsund kr. settið. UNDIRRITAÐUR var staddur á vinsælum ferðamannastað í sumar þar sem þannig háttar til að engin leið er að ná sambandi við umheiminn nema með gervi- hnattasíma. Þarna var þó einn maður sem brosti að öllum um- ræðum um sambandsleysi. Hann var með lítinn heimasmíð- aðan kassa með sér sem virtist fullur af einhverri víraflækju. Hann var sömuleiðis með nokk- uð langan stálvírsbút sem hann henti upp í næsta tré og tengdi við kassann. Setti síðan hlustarklemmu á höfuðið og byrjaði eitthvað að pota í víraflækjuna. Brosti síðan eftir smástund og sagðist vera búinn að láta vita af sér heim og hélt áfram að grilla. Ha? Og ég sem var handviss um að hann hefði bara drukkið blá- vatn! Það reyndist vera rétt en eft- ir smáútskýringar kom í ljós að þessi maður er radíóamatör. Allt og sumt sem hann þurfti var lít- ið senditæki (heimasmíðað) sem var knúið af fjórum litlum raf- hlöðum og áðurnefndan stálvírs- bút sem þjónaði sem loftnet. Og reyndar hafði enginn verið við heima þannig að hann hafði bara samband við radíóamatör í Nor- egi (!!!) sem var að hlusta þá stundina og bað hann að senda tölvupóst heim um að allt væri í himnalagi. Jú, það hafði nú kostað um fimm þúsund krónur á núvirði að smíða tækið en það hafði dugað undanfarin tuttugu ár! Og rafhlöðurnar væru skrambi dýr- ar. Undirritaður var ekkert að sýna rándýra gervihnattasímann sinn. Skoðið endilega www.ira.is, sem er heimasíða íslenskra radí- óamatöra. Sigurður Grímsson Stál- vírsbút- ur uppi í tré Á VEGUM úti er Q7 sagður sýna allar bestu hliðar sportbíls, bæði hvað varðar afköst og aksturseigin- leika og í utanvegaakstri setja ný viðmið í sínum flokki. Q7 er stór bíll, eða 5,08 metrar á lengd og hjólhafið er yfir þrír metrar. Þetta er því tals- vert stærri bíll en bæði Mercedes- Benz M, sem er 4,78 m á lengd, og Cayenne, sem er 4,80 m. Þá er hann 1,98 m á breidd og 1,74 m á hæð og með þessi mál tekur Q7 forystu í sín- um flokki jeppabifreiða. Fyrir vikið er farþegarýmið vel útilátið og boðið er upp á fleiri uppsetningarmögu- leika en hingað til hefur þekkst. Alls er hægt að raða sætum og hleðslu- rými upp á 28 mismunandi vegu. Sjö farþegar geta setið í bílnum í þremur sætaröðum. Hægt er að færa sætin í miðröðinni fram eða aftur hvert fyrir sig. Hægt er að leggja báðar aftari sætaraðirnar flatar niður og þannig fá 2.035 lítra farangursrými, ef nauðsyn krefur, án þess að fjarlægja sætin. Séu fimm sæti í notkun er farangursrýmið 775 lítrar eða það mesta sem um getur í þessum stærð- arflokki. Tvær vélar í byrjun Þegar Audi Q7 kemur á markað verður hægt að velja um tvær véla- stærðir í hann. Nýja 4,2 lítra V8 vélin með beinni FSI-innspýtingu skilar 350 hestöflum og togar að hámarki 440 Newton-metra. 3,0 TDI sex strokka dísilvélin býð- ur það nýjasta í samrásarinnspraut- un sem nýtir sér línutengda piezo- innsprautun og skilar þar af leiðandi alls 233 hestöflum og togi sem nemur 500 Newton-metrum. Báðar vélarstærðir eru búnar sex gíra tiptronic-sjálfskiptingu. Audi Q7 er með öllum sama stað- albúnaði og quattro með sídrifi og aldrifi. Miðlæga Torsen-mismuna- drifið miðlar afli út til allra fjögurra hjólanna, bæði á og utan vegar, og tryggir bæði hámarks veggrip og hliðarstöðugleika. Audi Q7 er líkt og Audi RS 4 búinn nýjustu kynslóð af Torsen-mismuna- drifi sem togar með staðalskipting- unni 40:60 (framan/aftan). Átakið á öxlana er því sem næst í jafnvægi og bílstjórinn nýtur þess í auðveldri og nákvæmri stýringu þar sem nær ekkert stýristog á sér stað. Í undirvagni Audi Q7 er að finna marga álhluti eins og t.d. sjálfstæð hjólaupphengi með tvöföldum bitum bæði að framan og aftan. Stálfjaðrir og tvöfaldir demparar eru hannaðir með sportlega aksturseiginleika og þægindi fyrir augum, jafnvel þótt ekið sé utan vega. Afturfjaðrir og demparar halla að- eins en þannig er dregið úr hæð kerf- isins og meira rými verður til aftan í bílnum. 18 tommu álfelgur með 235/60 dekkjum (255/55 á átta strokka bíln- um) eru staðalbúnaður. Hægt er að fá allar útgáfur Audi Q7 með 19 eða 20 tommu felgum. Bíllinn er einnig afhentur með sjálfstilltri loftfjöðrun. Bíll sem bú- inn er bæði loftfjöðrun og rafeinda- stýrðu höggdeyfingarkerfi býður bestu hugsanlegu blöndu sportlegra aksturseiginleika og þæginda í akstri. Stöðugleikakerfið er einnig staðalbúnaður en það dregur úr lengdarhreyfingum yfirbyggingar- innar eins og mögulegt er. Hæð frá jörðu er breytileg og get- ur verið allt frá 180 til 240 millimetra í efstu stillingu, þannig að bíllinn kemst yfir mjög háar ójöfnur. Sé ut- anvegastilling á er bíllinn 205 milli- metra hár og með aðlögunarhögg- deyfingu til að auðvelda akstur yfir miklar ójöfnur. Q7 hefur MMI-stýrikerfið nýstár- lega sem staðalbúnað en það hefur vakið athygli í A8 og A6. Hægt er að stækka það í tveimur þrepum og þannig bæta við fjölmörgum öðrum aðgerðum. Mikill valbúnaður Hægt er að fá fjölbreyttan valbún- að fyrir ökumann sem nú er kynntur í fyrsta skipti í fjöldaframleiddum bíl. Sem dæmi má nefna radarbúnað á hlið bílsins sem nýtist þegar skipt er um akrein og háþróað bílastæða- kerfi með sjón- eða hljóðmerkjum og myndavél aftan á bílnum. Í ESP jafnvægiskerfinu er að finna nýjar aðgerðir á borð við stuðning við akstur niður brekku. Sérstök utanvegastilling hámarkar hemlunargetu og veggrip á lausu yf- irborði. Stöðugleikakerfi fyrir drátt- arvagn dregur úr hættu á láréttum sveiflum eða „sporðaköstum“ vagns- ins með markvissum hemlunar- stuðningi. Tvær vélar í fyrstu í Audi Q7 Audi afhjúpaði í Frankfurt nýjan jeppa sem fyllir ört vaxandi flokk evrópskra lúxusjeppa. Audi Q7 er greinilega ætlað að keppa við þá bestu á þessu sviði, eins og Mercedes-Benz M og Porsche Cayenne. Audi Q7 er rúmir 5 m á lengd. Verið er að taka upp auglýsingu fyrir bílinn á Íslandi. Audi Q7 er sjö manna en hægt að fella niður báðar aftursætisraðir. Lúx- us blasir við hvarvetna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.