Mánudagsblaðið - 29.04.1968, Page 8
t
úr EINUI
ÍANNAÐ
Grillið 09 loftræstinyin — Gott þótt lítið — Góðir
útvarpsþættir — „Orðhagír'* íréttamenn — dkn-
kennsla 09 H-dagur — Engeyjarhrossin.
Vandaðri
kvikmyndun
Knudsen, Eld-
• r
Mikið er kvartað yfir þvi{ er sumra fer, að ekki skuli vera
loftraesting í Grillinu á Hótel Sögu. Þama er fegursta útsýni
höfuðstaðarins, gluggar veggháir og gestir njóta þess að mat-
ast og skoða sig um. Ef sól skín er nær óþölandi inni á Grilli
eða á barnum vegna hitans, og engin loftrsesting. Er .því ekki
annað að gera á Grillinu en byrgja alla glugga, og 'þar með
fyrir útsýnið. Hótelstjórinn lofaði úrbót í fyrra, en ekki varð
af, en væntanlega kippir hann þessu í lag áður en hitna fer
eða a.m.k. sólar nýtur betur.
Guðbjöm, pressumaður Morgunblaðsins, er karlmenni
mikið og hetja, starfsmaður góður og^vel liðinn og stund-
um all-spozkur. Honum þykir, eins og flestum, gott að fá sér
í staupinu á hátíðum, en er þó erigin drykkjumaður. í þá daga,
sem Morgunblaðið var prentað í prentsmiðju • ísafoldar við
Austurvöll, komu jafnan næturhrafnar á glugga Guðbjörns,
þar sem hann prentaði Moggan og báðu hann gjarnan að
opna. fyrir sig brennivinsflösku', sem þá höfðu korktappa
Tók Guðbjöm jafnan vel í það, en þáði ekki sjúss, að jafnaði,
þótt boðinn væri. Eitt sinn seint á lauyardagsnóttu komu
næturhrafnar tveir í þann mund er Guðbjöm var að Ijúka
prentun op báðu • hann opna fyrir sig 3. pela Svartadauða-
flösku. Guðbimi var skapbrátt, en varð þó við ósk þeirra.
Félagarnir réttu flöskuna aftur inn um gluggann og báðu
hann þiggja sjúss í launaskyrii. Seig þá nokkuð í Guðbjöm,
svo hann tók flöskuna, setti. á munn. sér, saup niður fyrir
miðjan miða, röskan helming í einum teig, rétti hana út
aftur og maelti:
„Alltaf er það gott, þótt ekki sé það mikið“.
Þættir Áma Óla blaðamanns og Jónasar Jónassonar, útvarps-
manns, um Reykjavík, gömul hús, eru einhverjir beztu
þaettir sem þar þafa heyrzt baeði að efni og flutningi. Árni
Óla er þjóðkunnur fræðimaður og hefur ritað geysimkrgt
um þau efni og frásögur hans af gömlum byggingum hér
hafa vakið óskipta athygli, því litla athygli veitir hinn al-
menni Reykvíkingum þessum gömlu húsum, þótt hann dag-
lega gapgi framhjá þeim. Skrítið er að sjónvarpið skuli ekki
hafa séð sér leik á borði, og sjónvarpað þessum þáttum sem
"yrðu þá mun áhrifaríkari. Én hvað um það, hafi þeir Árni
Óla og Jónas beztu þakkir.
Mærðin í fréttariturum utvarpsins á, sumardaginn fyrsta
var með eindæmum og sýnir glöggt hve lítil kúnst það- er
að vera fréttaritari. Þeim bar að lýsa komu sumarsins í fá-
um orðum, en í stað þess röktu fréttaritararnir raunir sínar
og sveitunga sinna, vetrarhörkur, snjóa, frost og aðra óáran.
sepi víst er sönn, en hinsvegar fellur ekki undir daglegan
fréttamat. Auk þess voru karlagreyin að bögglast við að vera
hátíðlegir í orðum, hlóðu saman „konungi vetrar“ og öðr-
um alkunnum slag og skáldaorðum og þóttust', -heyranlega,
vera miklir snillingar af.
Er nokkuð vit í þvi, að ökukenMurum skuli leyft að halda
áfram að kenna unglingum á bifreiðir nokkrum vikum fyr-
ir Hdag? Þessi breyting virðist orðin hlægilega erfið við-
fangs, en, engu að síður, væri máske eitthvað vit í, að koma
i veg fyrir að kenna byrjendum á bifreiðir rétt áður en breyt-
ingin fer fram. Mynclu sumir ætla, að H-nefndin með allt sitt
umstang gæti séð, að* auðveldara verður að kenna unglingum
á eftir heldur en að fullnuma þá í reglum núverandi akst-
urs en breyta því strax að prófinu lokriu.
» ' r
Þá er búið að leiða til lykta mál hrossanna í Engey, og
létti þjóðinni mikið, svo ekki sé talað úm hrossin sjálf, sem
óvön eru öllum þessum pilsaþyt. Yfirdýralæknir fór á vett-
vang, lýsti yfir að hrossin hefðu það gott, en bætti þó við, að
vafasamt væri að hafa hross þar á vetrum vegna samgöngu-
leysis við LAND!!! Þessi furðulega áthugasemd sýnist álmenn-
ingi, vera einskonar sáttatillaga við kærendur og undarlegt
að yfirdýralæknir skuli láta hafa sig í þetta. Flestir blaða-
menn vita hver það er, sem kvabbað hefur um þessi hross
undanfarin ár,-, og algjör óþarfi að koma með athugasemdir á
borð við þær sem hér um ræðir. Og nær væri Dýraverndun-
arfélaginu að rannsaka annarsstaðar útigng en hér í kringum
Reykjavík, almennt.
jarn
Þóttur Flosa
Sjónvarpið hefur viðað að
sér mjög miklu af fréttamönnum
um land allt og er það vel. Að
vísu eru sumir þeirra ekki sem
liprastir í myndatöku og nauðsyn
á skólun í því efni, því oftar en
ekki eru myndirnar flausturs-
legar og hlaupið úr einu í annað.
Hér verður að ráða bót á svo ekki
verði hjakkað um of í sama fari.
Og víst væri ekki vanþörf á því,
að sumir hinna lærðu hér í Rvík,
sem vinna við aðalbækistöðvar
sjónvarpsins vönduðu sig betur
eða bara lærðu betur. Amatör-
menriska verður ekki að eilífu
afsökun.
Síldveiðar á Norðurslóðum
Jóns Ármanns Héðinssonar var
góður en fremur losaralegur
þáttur, sem þó gaf áhorfendum
nokkra hugmynd um störfin á
þessum . fjarlægu veiðisvæðum.
væri skemmtilegt ef samán yrði
rækilegur og nákvæmur þáttur
um þetta efni.
Það var ánægjulegt að hlusta
og horfa á þátt MA, en þar sungu
22 félagar úr menntastofnuninni
nyrðra. Þátturinn hafði allan
sjarma amatöranna, jafnframt
því, sem hann gaf skemmtilega
mynd af söngstarfsemi skóla-
nema. Lögin voru vel valin —
skorti þó, merkilegt^ nokk alla
skólasöngva — og vel sungin.
Unglingar höfðu talsvert vald á
vinsælum, heimsfrægum lögum
Bl&ó fyru eUla
Mánudagur 29. apríl 1968.
úr söngleikjum og „klassíkk-
inni“, og hjálpaði Ingimar Eydal
og félagar þar vel upp á sakirnar.
Akureyringar virðast hafa upp á
myndarlegan hóp meyjí og
sveina að bjóða, og er gott að
vita til þess, að eitthvað annað
%
finnst í æðri stofnunum þessa
lands en úfnir byltingasinnar og
úfnar, herskáar skjaldmeyjar í
blettóttum nankinsþuxum. Þetta
var ein bezta sending sem við
gátum fengið frá Akureyri og
sýndi öllu meiri menningarbrag
en sú öskurapa samkunda MR,
sem við búum við hérna í Rvík,
og menntast á kostnað almenn-
ings.
Sjófuglalíf var sæmileg mynd,
en ósköp klaufalega sýnd. Vera
má, að sjónvarpinu'sé.bannag að
„klippa“ þessar myndir en hálf-
kjánalegt er að horfa á fugla-
skoðara tala í röska mínútu —
lokað fyrir sjálfa -röddina — og
hlýtur sjónvarpið að koma í veg
fyrir svona klaufaskap í fram-
tíðinni. Kvikmyndir Osvalds
Knudsens eru,.ýmsar, afar fræð-
andi og skýringar og tal dr.
Kristjáns Éldjáms glæða þær
sérkennilegu lífi enda fara þar
saman fróðleikur og skemmtileg
frásagnargáfa. Eru sumar þess-
ara mynda ómetanlegar heim-
ildir ár sögu okkar.
Stjömur vetrarins FIoso Ól-
Framhald áf 6. siðu.
KVIKfí
MYNDin
Bond-Lemmy háðmynd í Nýja bíói — Agætar
„endurminningar" í Háskólabíóí.
Nýja bíó sýnir nú „Ofurmenn-
ið Flint“ (Oour Man Flint) amer.
í,ska gamanmynd. Flint vinur
okkar er einskonar háðblanda af
James Bond og Lemmy, bæði að
afli, snilli, lipurð og kvensemi og
þó örlítið betur, því anna® eins
karl í krapi er ekki að finna
hvort heldur til kvenna eða af-
reka. Efnisþráðurinn er enginn,
en atburðarásin er hinsvegar ein
sú fjörugasta og æfintýraríkasta,
sem um getur. Flint berst ekki
við einstaklinga eða rússneska
SMERCH - njósnarsamkunduna,
heldur eiginlega við þvílík ofsa-
öfl og tækniska galdra, að hrein
unun er á að horfa. Hvergi verð-
ur honum ráðafátt og í eina
skiptið, sem honum er verulega
hætt, er þegar verið er að kljúfa
hann í tvennt með sérstökum
geisla, snakkar hann sig úr sitúa-
sjóninni á undraverðan hátt, ber
sigur af hólmi og í lokin sökkvir
hann heilu spillingarbæli með
því að sængá með undurföðrum
konum.
Þetta er ein af þessum ágætu
fantastísku háðsmyndum, sem
einstaka sinnum rekast hmgað að
vestan. Hún hefur ekki smákímni
Breta, tvíræði Frakka, heldur
aðeins glit, tækni, lipurð og liti
Bandaríkjanna, svo ekki sé
gleymt konunum og kynþokkan-
uiri, eins og Ameríkumenn túlka
hann.
Akrobatic James Coburt og
leikur erkióvinarins Lee J. Cobb
— þess er nýlega brill'eraði í
Sölumaður dgyr á Broadway - er
með hreinum ágætum. Óþarfi er
að tala um leik annarra, en vissu.
lega falla þau öll vel í glæst lita-
val og glinguripennsku þessar-
ar skemmtilegu vitleysu. — A.B.
Fyrir þá, sem nú eru um fer-
tugt eða eldri er einstakt tæki-
færi til að rifja upp gamlar og
mjög skemmtilegar endurminn-
ingar um kvikmyndir og leikara,
sem þá voru eins og ungu stjörn-
urnar í dag. Háskólabíó sýnir nú
„Gamanmyndasafn frá MGM“
bráðfyndna myndakafla með
heilum skara af beztu^stjörnum,
allt frá þöglu myndunum og upp-
Framhald á 7. siðu.
STAÐREYNDIR - sem ekki mega gleymast:
PÓLLAND SKAL HLJOTA..
6
/
Ekkert Þýzkaland framar — 700 ára menningar-
líf á enda — Dauðadómi fullnægt — Marianne
BaodoWski var þýzk — Friðarletur Churchills.
„Það var Roosevelt forseti,
sem í Jalta sveik Pölland og
Kina og ofurseldi Austur-Evr-
ópu hryllingum kommúnism-
. ans. Það var Roosevelt for-
seti, sem var Stalin sam-
mála um, að „skaðabóta-
greidslur í fríðu“ skyldu fara
fram með þrælkunarvinnu
þýzkra karia og kvenna. Það
var ennfremur hinn lýðræð-
islegi forseti Bandaríkjanna,
sem beitti sér fyrir að Morg-
enthau-áætlunin um að svelta
miljónit Þjóðverja í hel yrði
framkvæmd, og var samþykk-
ur útlegð og burtrekstri milj-
óna Þjóðverja frá Schlesiu,
Austur-Prússlandi, Súdeta-
löndunum og Ballkanskaga
fyrir þann glæp einan, að þeir
heyrðu hinum þýzka „kyn-
þætti“ til“.
— Freda Utley: „THE HIGH
COST OF VENEGANCE",
Henry Regnery Company,
Ohicago, 1949, bls. 8.
„Það war Roosevelt forseti,
' ’ I
sem..Seinit munu allir þeir
hörrmmgabálkar samtímasögunn-
ar, sem óh j ákvæmi lega hljóta
að hefjast á þessum orðum,
verða festir á blað eða færðir
til bókar. Aldnei mun sanmleik-
anum verða þjónað til viðun-
andi hlítar með skrásefcndngu
þeirra, nema orðunum „ásamt
Winston S. Churchill" sé bætt
við aðalsetninguna. Um enga ó-
hæfu gagnvart hinum 1 siiferuðu
voru ‘þeir ósammála, enda þótt
Churchill hafi óneitanlega verið
undirförulili og lúmskari í 6-
þokkaskapnum en sökunautur
hans. Auk þess haifði Churchill
tækifæri, sem hann notaði ó-
spart alveg fram á grafarbaikk-
ann, til þess að bera af sér og
klína og/eða láta klína ósóm-
anuim á „mannvininn", sem burt-
kal'laðist næsfcum því 20 árum á
undan honum sjálfum, og átti
sér æ færri og færri afsak-
endur. „Drengsikapur" Churc-
hills gagnvart framliðnum Roose-
velt reyndisfc nákvæmlaga sama
eðlds og „drengskapur“ hans
gagnvart þeim floktoum og klfto-
um, sem fiann flæktist á milli
eða daðraði við á meðan hann
var að bojabrailla sig með ai-
kunnum hætti upp metorðastiga
föðurianda sínis, sem í upphafi
valdaferils hans var bæði vold-
ugt og sfcertot, en hann ski Idi
við í aumtoumarverðri niiður-
læginigu. Eða edns og „dreng-
skapur“ hans gagnvart sigruðum
samherjum. T.d. Frökkum. Eða
auðeveipum íhengjum. T.d. Pól-
ökkúm.
Útrým ingaráætflun sú, sem
kennd er víð Morgenifhau jun.,
fjármálaráðherra Bandaríkjanna
(1934-1945), löggilt alf höfuðpaur-
um heimnslýðræðisin/s, þeim Ohur-
chill og Roosevelt, í lok Que-
be»-ráðstefnunnar síðari, 10.-16.
September 1944, áréttuð á Tru-
man/Stalin -ráðstefnunn i í Pots-
dam, 17. Júlí — 2. Ágiúsfc 1945,
og „lögleidd" með hundruðum
hemámsstjórna-tilskipunum og
-reglugerðum, svo og lýðræðis-
dómum, var tekin til fram-
kvæmda með jötunefldu ofur-
kappi strax og hersveitir Banda-
manna stigu á þýzka grund.
Færstu 3 árin án þess að nokk-
urs staðar væri slakað á. Næsfcu
' ' '' - , ‘ ’ /• ■
árin með dviriandi ákafa.
í 2. gr., a)lið, áæfclunar þess-
amr segir að
„Pólland skal hljóta þann
hluta Austur-Prússlands, sem
ekki fellur i hlut Rússlands,
aukþess suðurhluta Schlesiu‘‘.
Eftir Heimsstyrjöld I hafði
enski blaðarinaðurinn Dougias
Reed sikrifað á þessa leið: „Ég
leitaðd hins niðurbrotna og svelt-
andi, uppgefna og útblædda
Þýzkalands — og ;fanm það ekki.
Ég fann land, sem ekki hafði
reymt striðið á sínu eigin yfir-
ráðasvæði . . . , sem sagði því
lokið, þegar það var orðið ó-
vinnandi . . . , og sem komst hjá
alfgerandi hemaðarósigrum með
þessari málamyndauppgjöf . . .
Land, sem ekki með öllu að á-
stæðulausu, telur sig hafa verið
slyngara en óvinir þess . . . “.
En forsprakkar lýðræðis og
kommúnisma höfðu einsett sér
að láta slíkt ekki spyrjast aftur.
Að Heimsstyrjöld II afetaðinni
var ekki um neitt „Þýzkaland"
að ræða lengur. Aðeins,, svæði“,
sem voru algerlega á valdi er-
lendra fjandríkja, til fullnustu
hern.umin af óvinaherjum, en að
vísu byggð þýzkumælandi fólki.
Árið 1945 var Þýzkatand ekki
annað en ógreinilegt, lamdfræði-
Framhald á 6. síðu.
/