Mánudagsblaðið - 27.08.1973, Síða 2
2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 27. ágúst 1973
ÚR SÖGU LANDS OG LÝÐS
Einstakir galdramenn
Brikur í Vogsósum
Prestsskapur
Eiríks á Vogsósum
Um fyrra hluta af ævi Eiríks
prests á Vogsósum eða um upp-
runa og uppvöxt hans ganga
hér (þ. e. í Mýrdal) engar sög-
ur. Það er fyrst um hann sagt
að hann hafi gengið í Svarta-
skóla, en borið þá lítið á kunn-
átm hans. En hins er getið að
hann hafi verið góðmenni og
mesti stillingarmaður. Ungur
og ókvæntur er sagt hann hafi
fengið brauð á Vestfjörðum
(óvíst hvar) þar sem prestum
hafi jafnan orðið klaksárt. Er
svo sagt að hann hafi verið þar
hjá fullorðnum bónda sem var
hinn ríkasti í brauðinu, til húsa
— og haft þar fæði og þjón-
usm. Kerlingar voru tvær á þess
um bæ; önnur var skylduómagi,
en hin niðursetningur og ný-
komin. En er kom aðfangadag-
ux jóla var allt fólk í starfi
miklu, sumir í sendiferðum, en
sumir í öðru starfi, en presmr
einn á gangi og varð þá þess
var að kerlingarnar voru ein-
samlar inni í baðstofu og voru
að tala saman með því móti að
sú kerlingin sem lengur hafði
verið á bænum var mjög harm-
full að biðja fyrir sér og tala
um hvað hörmulegt það væri
að geta ekki haft gleði um jólin
eins og aðrir kristnir menn og
væri það allt vondum mönnum
að kenna. Niðursetningskerling-
in spyr því hún sé með þessar
harmatölur og kvað ólukkutil-
felli hún sjái fyrir. Þá svarar
hin: „Það er auðséð að þú ert
ókunnug hérna, og get ég þá
sagt þér að nú er verið að búa
til veizlu, en þó mun eiga eins
og vant er að sjá um að prestur-
inn verði ekki ellidauður. Hefur
til þess verið brúkaður sami
maður og er hann mesta uppá-
hald hjónanna hérna, en er nú
orðinn svo ellihrumur að hann
verður að ríða í söðli og er nú
farinn maður til að sækja hann.
Hann er orðlagður galdramað-
ur og hefur allan sinn vísdóm
úr bók einni sem hann ber á
brjóstinu nótt og dag, og skilur
hann þessa bók aldrei við sig.
Nú þykir mér það hörmulegt
ef að þessi prestur verður drep-
inn á hátíðinni, þetta góðmenni,
þetta blessað Ijós sem hann hef-
ur sýnt sig að vera við alla eins
síðan hann kom hér." Niður-
setningskerlingin kvað þetta
vera Ijóta sögu ef hún rættist,
en sagði þar hjá að betur kynni
að takast til, enda kvaðst hún
vilja óska þess. Þetta samtal
kerlinganna heyrði presmr full-
gjörla, en gerði ekki orð á því,
heldur lézt hann vera að búa r-ig
undir hátíðina. Um kvöldið fór
fólk að drífa til veizlunnar og
meðal annars gamall karl í
söðli mjög hmmur. Hjónin
fögnuðu gesmm sínum, en móti
karli þessum gengu þau bæði
og leiddu hann milli sín inn í
hús. Prestur veiti því nákvæma
eftirtekt sem fram fór, en sér
í lagi hvar gamli karlinn svaf.
Þegar fólk fór að hátta lét prest
ur sem hann háttaði að vanda
sínum, en hann fór ei úr fötum,
heldur fór hann á fætur undir-
eins og allt var komið til ró-
leg heita. Fór hann þá þangað
sem gamli karlinn lá, því hann
var einn sér í afviknum stað.
Tók þá presmr fyrir kverkar
karlinum og kyrkti hann, en tók
bókina af brjósti hans og varð-
veitti sjálfur. Að morgni fannst
karlinn dauður, en prestur
gegndi sínum störfum. Sagt er
að hjónin hafi harmað karlinn
og einstöku boðsmenn, en aðrir
er sagt að ekki hafi fengizt um
það þó karlinn hrykki upp af.
Sagt er að skömmu eftir þetta
hafi Eiríkur presmr farið að
Vogsósum, en aldrei hafi hann
sleppt fyrrnefndri bók, og þókti
síðan bera miklu meira á kunn-
átm hans, en þó hafi hann
aldrei gjört öðrum illt með
henni án þess hann ætti sín í
að hefna.
Dagsverkið
Þegar búið var að vígja síra
Eirík að Vogsósum og hann er
kominn þangað fer hann að
fletta upp máldögum kirkjunn-
ar og sér að margir þar eiga að
gjalda sér dagsverk og þar á
meðal ekkja ein, Málfríður á
Ertu. Einu sinni um sumarið
segir síra Eiríkur við hana að
hún eigi að gjalda sér dags-
verk. Hún sagðist vita það, en
hún sagðist nú vera orðin sjálf
ónýt að vinna, en hún sagðist
eiga dótmr er Kristín héti sem
hún sagðist skyldi senda í dags-
verk til hans. Það sagði hann að
sér þætti vænt um, þar hann
hefði fáar vinnukonur. Málfríð-
ur sagði sér litist ekki svo á
vinnumenn hans að þeir væru
duglegir slátmmenn og sagði
það mundi vera betra fyrir hann
sjálfan að slá og Iáta hana raka
eftir sér. Það sagðist hann skuli
gjöra. Nú fer konan í burtu og
nú líður nokkur tími.
Einu sinni um sumarið gengu
rigningar nokkurn tíma. Einn
morgun er presti sagt að úti
standi stúlka sem komi í dags-
verk. Hann skipar að segja
henni að koma inn. Hún gjörir
það og hann spyr hana að nafni.
Hún segist Kristín heita og dótt-
ir Málfríðar. Hún var mikið
skikkanleg stúlka að sjá og fá
lát. Hann segir vinnumönnum
sínum sem voru fimm að fara
að slá og segir henni að hún
skuli raka eftir þeim. Hún gjör-
ir það. En eftir nokkurn 'dma
EINNAR MINUTU
GETRAUN:
sendir hann dreng upp í slægj-
una til að vita hvernig gangi,
en dregur segir afmr að Kristín
sitji og hafi ekkert að raka.
Hann gengur þá út og tekur orf
sitt og gengur upp í slægjuna
og segir við Kristínu: „Þú hefur
ekkert að raka?" Hún segir það
vera. Síðan fer hann að slá og
herðir sig, en það dugar ekki
heldur; hún hefur ekkert að
raka fyrir því og simr öðru
hvoru. Þá sér prestur að það
dugar ekki og segist hann því
þurfa að fara heim til að klappa
hjá sér. Kristín heldur honum
sé þess þörf. Síðan fer presmr
heim, en þá finnur hann hvergi
smiðjuna, en eftir að hann er
lengi búinn að leita finnur hann
hana og klappar hjá sér og kem
ur síðan upp í slægjuna. En þá
finnur hann hvergi orfið sitt og
leita lengi, en á endanum finn-
hann það og byrjar nú að slá
og herðir sig og eins hitiir fimm
vinnumenn hans. En það fer á
sömu leið að hún situr öðru
hvoru. Nú er kominn matmáls-
tími og er stúlkan kölluð heim
að borða og fer hún, en á með-
an er hann og þeir að slá og '
herða sig á allan hátt. Þegar
hún kemur afmr finnur hún
hrífuskaftið, en hvergi höfuðið
af hrífunni. Hún fer heim með
skaftið og kemur aftur með
hrífu og nú fer á sömu leið að
hún simr oftast. Þá segir síra
Eiríkur: „Nú skulum við hætta
Kristín því ég hef nú fengið
mig fullreyndan." En síðan
héldu vinnumennirnir áfram að
slá, en síra Eiríkur hætti og hún
rakaði eftir þeim og þá gekk
raksmrinn náttnirlega.
„Sástu nokkra
nýlundu?”
Einu sinni sem oftar kom
yngismaður nokkur til Eiríks
prests og bað hann að kenna
sér galdur. Eiríkur mælti: „Ekki
ertu hæfilegur til að læra hann
því mér lízt svo á þig að þú
munt ekki hafa hug til að mæta
öllu því er honum fylgir."
Sveinninn svarar: „Því skal ég
ekki trúa fyrr en ég reyni það
að mér verði hugfátt hvað sem
fyrir kemur." Eiríkur mælti: „Ef
þú vilt mátm vera hér nokkra
daga þó það sé ekki til neins."
Hann kvaðst það gjarnan vilja.
Var hann þar svo nokkra daga.
Einn morgun þá hann kom
á fætur þykir honum sem hann
sjái Eirík ganga út og fer hann
þegar eftir honum. Eiríkur geng
ur nú norður fyrir tún á Vogs-
ósum og' sveinninn eftir. Þar
verður fvrir Jx‘im hús ógnar
stórt; þar ganga þeir inn. Bekk-
ur var allt um kring í húsinu og
sezt Eiríkur yzt á bekkinn öðru-
Framhald á bls. 6.
slyngur
rannsóknarí
ertu?
40 þúsund dolluru
lamnubréf
Fordney prófessor hafði fengið upplýsingar um að Am-
os Rector yrði skilað í bifreið hálfri blokk frá húsi sínu
þá um kvöldið. Honum hafði verið rænt tíu dögum áður
og lausnarféð, 40.000 dollarar, hafði nýlega verið greitt af
bróður Rectors.
Fordney stóð I dimmu skoti, þegar stór bifreið nam
staðar á horni Clark og Camp-götu, og leit á sjálflýsandi
armbandsúrið sitt. Klukkan var á slaginu 11:38.
Hann elti manninn, sem kom út úr bifreiðinni. Rétt í
þann mund, sem hann var að ganga inn í hið upplýsta
Rector-heimili, þá snerti Fordney léttilega við öxl hins
granna, hávaxna og snyrtilega klædda manni. Maðurinn
snéri sér snöggt við, hræðslulega.
„Ert þú Rector?“ spurði Fordney, um leið og hann
kynnti sig.
„Já, prófessor . . . komdu inn , . . hvað er þér á hönd-
um?“
— O —
Eftir að eiginkona Rectors hafði heilsað honum af
geysilegri ánægju, þá settust þau öll framan við arinn,
• en þar logaði glatt.
„Nei, ég veit ekki hvar þeir geymdu mig,“ sagði Rect-
or. „Mannræningjarnir höfðu bundið fyrir augu mér alb
an tímann, þar til rétt áður en þeir slepptu mér. Ég varð
að sofa í fötunum og þeir gáfu mér nóg af góðum mat.
Einu sinni, þegar ég reyndi að rífa af mér augnabindið,
sló einhver; sem stóð að baki mér, mig rokna högg í
höfuðið, svo ég missti meðvitund.“
Fordney tók eftir stórri kúlu rétt ofan við hægra eyrað
og spurði: „Hvenær var það?“
„Eftir því sem ég get komizt næst, þá var það fyrir
tveim dögum.“
„Hvers vegna tóku þeir ekki demantshringinn af fingr-
inum á þér?“
„Satt að segja . . . veit ég það ekki, hreinlega veit ekk-
ert um það.“
„Þú ert að ljúga í Jæssu máli, og ég vil vita sannleik-
ann,“ sagði prófessorinn.
Hvernig vissi hann, að Rector var að ljnga? — Svar
á 6. síðu.
Tilkynning
Athygli innflytjenda skal hér með vakin á því,
að samkvæmt auglýsingu Yiðskiptaráðuneytis-
ins, dags. 5. jan. 1973, sem birtist í 4. tbl. Lög-
birtingablaðsins- 1973, fer 2. og 3. úthlutun
gjaldeyris- og/eða innflutningsleyfa árið 1973,
fyrir þeim innflutningskvótum, sem taldir eru
í auglýsingunni, fram í september 1973. Um-
sóknir um þá úthlutun skulu hafa borizt
Landsbanka íslands eða Otvegsbanka Islands
fyrir 1. b&ptember 1973.
LANDSBANKI ÍSLANDS
UTVEGBANKI ISl ANDS
(