Mánudagsblaðið - 01.07.1974, Side 2
2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 1. júli 1974
TIL BLADSINS
Er það byssan
næst?
Hr. ritstjóri.
Það fer að verða skrítið- að
reyna að átta sig á því hver er
eða er ekki truflaður eða hættu-
legur hér á fslandi. Trésmiður
nokkur hefur nú tvívegis valdið
hneyksli og skömm við hátíð-
leg tækifæri, fyrst þegar hann
sletti skyri á biskup, forseta og
aðra embættismenn við þing-
setninga og í hitt skiptið er
hann ataði stjórnarráðshúsið út
í tjörublöndu þann 17. júní.
Lögreglan tók mannræfiiinn,
setti hann í fangelsi en þar neit-
aði hann að éta og tala við fólk.
í örvæntingu (!!!) sinni sleppti
svo réttvísin þessum geðsjúkling,
því Kleppur neitaði að hýsa
hann.
Sagt er af flokkshræðrum
þessa geðsjúklinigis, að hann
vinni vel á milli og sé dagfars-
prúður, en kommar sjá gjarnan
um sína og veita þeim brautar-
gengi ekki' sízt um kosningar.
Spurningin er sú: hvað gerir
þessi mannkind næst t.d. á þjóð-
hátíðardaginn í júlí. Gerir hann
sig ódauðlegan með því að grípa
til byssunnar og kála eða særa
einhverja af ráðamönnum okk-
ar. Fær hann sér annað vopn t.d.
sveðju eða annað álíka og ræðst
á fólk? Geta ábyrg yfirvöld Ieyst
manninn úr haldi á þeim for-
sendum að hann sé hættulaus
en geri þetta sér mest til gam-
ans?
Þetta eru aðeinr nokkrar
spurningar, en þessir möguleik-
ar eru fyrir hendi. Það skiptir
þjóðina engu máli hvort þessi
maður tilheyrir kristinni trú eða
er urðaður á víðavangi er hann
drepst. Alls engu. Hitt er ann-
að, að þjóðinni bfer engin skylda
að greiða skemmdir fyrir þennan
vitfirring eða hver skyldi kostn-
aður við hreinsun stjórnarráðsins
vera?
Og hverjir vilja taka á sig
ábyrgðina ef þessi maður drep-
ur einhvern?
Varkárr.
Hafnarfjarðar-
vegurinn og lög-
reglueftirlitið
Hr. ritstjóri.
Mig langar að vita hvaða lög-
regla er ábyrg fyrir eftirliti á
Hafnarfjarðarveginum. Hvað eft-
ir annað eru alls konar vinnu-
vélar á ferð þár, sem neita alveg
að hreyfa sig af miðjum vegin-
um og halda heilum flota á eftir
sér á mesta annatímanum. Þess-
ar vélar gætu vel flutt sig út á
vegarbrúnina og hleypt bílunum
framhjá, en því er sjaldnast að
heilsa, enda fátt um lögreglueft-
irlit.
Nákvæmlega sama gildir um
aðrar bifreiðir á götunum t.d.
þar sem tvær akreinar eru í
sömu götunum þ.e. þar sem tvær
akreinar eru í sömu átt. Mikill
fjöldi bíla ekur á vinstri akrein
og neyðir aðra að fara framhjá
hægra meginn sem er umferðar-
brot. Lögreglan hirðir ekki liið
minnsta um þetta og ökumenn
því öruggit í brotum sínum.
Það er ekki nóg að þykjast
kenna umferð í skólum og brýna
fyrir ökukennurum að fara eftir
umferðarreglum þegar sjálf lög-
reglan sinnir ekki skyldum sín-
um.
Löghlíðinn.
Framkoma
norsku sjólið-
anna
Mánudagsbldðið, Reykjavík.
Nú er kóngur farinn úr landi
(Noregskónigur) og tími til kom-
inn að minnast pínulítið á sjó-
liða hans, sem hingað komu.
Þetta viirtust agalausustu mann-
kerti sem til voru er þeir koma
í land. Alla fyrstu nóttina flækt-
ust þessir loðhundar með kask-
eytin sín ofan á lúfunni blind-
fullir um göturnar og út í
skemmtigarðinn við hljómskál-
ann með smástelpum sem þeir
stðan notuðu kinnroðalaust ná-
Iega þar sem þeim sýndist.' Lát-
um það nú vera, því þetta eðli
íslenzku stúlkunnar, þ.e. smá-
píkunnar, er orðið frægt út um
heim og veldur jafnvel hneyksli
í nág.annalöndunum, sem ekki
kalla allt ömmu sína.
Hitt er svo annað: Getur
norskur þjóðhöfðingi, sem hér
nýtur vinsælda, ekki valið í föru-
neyti sitt sæmilega siðaða menn,
en ekki einskonar uppstrílaðan
götuskríl, er hann kemur í opin-
bera heimsókn? Við vimm að
sjóhermennska Norðmanna er
ekki annað en sýnd: tóm, en
hitt er þó óskiljanlegt, að ekki
sé hægt að aga svo fámennt lið
sem þetta í slíkum heimsókn-
um, því í rauninni eru þetta þó
menn undir heraga. Við reynd-
um að taka á móti þessum ág-
æta manni, Ólafi konungi, eins
og okkur þótti bæði virðulegt
og sómasamlegt, en þessi sjóliða-
lýður setti Ömurlegan blæ á
heimsóknina með óafsakanlegu
framferði sínu, auðvitað án vit-
undar konungs og ráðherra hans
eða annarra yfirmanna.
Sómakcer.
Hvimleiðir
ferðamenn
Herra ritstjóri.
Hingað til Reykjavíkur, og ef-
laust út á land, er kominn
ferðamannahópúr setti menn
hafa iillan bifur á. Annaðhvort
eru þeir enskir eða amerískir,
því ensku tala þeir. Þessir menn
hanga í Austurstræti og útbýta
fyrir peninga einhverskonar pés-
um um vinstri sælu, eru klædd-
ir eins og ræksni og í einu og
öllu hinir hvimleiðustu. Það er
máske ekki neitt á móti því að
þetta fölk komi til íslands en
hitt er óhæfa að það skuli vera
að reka einskonar áróður á göt-
um úti. Er ekki nög áð hafa
þessa gerfi-byltingamenn sem
flykkjast á götur miðborgarinn-
ar og bjóða eldrautt plagg til
sölu, úrgangsfólk sem flestir láta
afskiptalaust. Þetta eru þó að
nafninu til íslendingar, þó þeir
vilji þjóðina feiga eða a.m.k.
þjóðskipulagið. Hitt er ófært að
líða údendingum að pranga með
þessi plögg.
íslendingur.
Hnakkrónar,
vín og ástir
Mánudagsblaðið, R.
Það hefur lítið borið á hesta-
mönnum í vor a.m.k. hafa þeir
ekki valdið miklum vandiræð-
um á vegum né sýnt sig drukkna
á hestbaki. Þó er undantekning.
Fyrir skömm usá ég leiðindasjón,
sem ekki er algeng. Upp við
Álafoss voru þrír menn og tvær
konur á hestum. ÖIl voru þau
drukkin en þó kvenfólkið nær
útúr. Þegar þau áðu í brekkunni
sem snýr að sjónum (Leirárvogn-
um?) þá upphófst rifrildi um
gæði hestanna sem stóð stutt en
síðan var pelinn á lofti en þá
gekk fram af okkur öllum. Eitt
parið fór í heiftarkelirí með
þeim afleiðingum að nærhald
knapans og knapynjunnar runnu
niður og alveg ,ósjenert" tóku
þau að athafna sig þarna í brekk-
unni.
Nú er sagt, að hestamenn
séu harðir til víns og kvenna,
en þvílíkar demestrasjónir má
máske gera í heimshöfn en ekki
á víðavangi eins og dýrin gera.
Framhald á 6. síðu.
EINNAR MINUTU
GETRAUN:
Hve
slynaur
rannsóknarí
ertu?
Morðið í borðstofunni
Þetta var undarleg sjón. Hin smávaxna, und-
urfagrá Mado Gougin, hékk á armi mikils loft-
lampa og fæturnir hengu í opnu bili á borð-
stofuborðinu. Hún var í götuklæðum, fallegum
háhæluðum skóm, stuttu pilsi og grænni silki-
blússu.
Þau þrjú borð, sem tekin höfðu verið úr
miðju borðinu voru geysivel bónuð, en hafði
verið staflað upp við vegginn. Hinn klaufalegi
hnútur hélt naumlega. Hengingarbandið var
mjótt og hafði tognað talsvert. Fætur Mado
voru aðeins nokkra sentimetra frá gólfinu.
Hin ríka Mado, sem hafði verið undrabam,
en hafði aldrei lifað fyllilega upp til vona sem
til stóðu um hana, hafði verið ólæknandi exibit-
ionisti.
Hversvegna hún hafði gifst hinum leiðinlega
Herbert Ashley var öllum vinum hennar undr-
unarefni.
„Ég er hræddur um að dauði Redfields majór
hafi verið orsökin til þessa. Hann féll í Kyrra-
hafsbardaga fyrir skömmu. Já, ég veit að Mado
elskaði hann, en —“ hann yppti öxlum von-
leysislega — „sjéni getur leyft sér það, sem við
sem minni hæfileika höfum getum ekki leyft
okkur. Ég var að koma úr veiðiferð fyrir
klukkustundu og fann hana svona á sig komna.
Hún var ein — gaf öllu þjónustufólkinu frí í
síðustu viku . . . áleit það sjálfsagt að sýna
föðurlandsást. . . .“
„Einu ummerkin á borðinu eru fingraför
konunnar og einn vaxdropi, en það er andlits-
farði og rautt rispufar og fingraför hennar
einnig á borðunum“. Bell sergent horfði for-
vitnislega á Ashley og hélt áfram: „Við fundum
vigt í eldhúsinu. Hún vegur nákvæmlega 101
pund. Á ég að bóka Ashley fyrir morð, pró-
fessor?“
Fordney kinkaði kolli.
Hversvegna hélt Fordney að Ashley hafi myrt
konuna sína. — Svar á 6. síðu.
Ðtt
I rás timans hefur þessi gamli málsháttur öSlazt nýja
og víðtækari merkingu. Öllum ætti a3 vera Ijóst,
a3 reykjarsvæla af tóbaki veldur alvarlegri
mengun eri annar reykur. Sannað hefur veriS,
að tóbaksreykingar geta valdið banvænum
sjúkdómum svo sem lungnakrabbameini og
hjariasjúkdómum. Bezta ráðið til þess
að komast hjá þessari hættu er að
byvja aldrei að reykja, en ef þú
reykir, ættirðu að hætta þviT
feigðarf'ani sem fyrst.
Rannsóknir sýna, að hjá fólki,
sem hættir að reykja, minnka
jafnt og þétt líkurnar á því,
að það verði hjnrta- og
lungnasjúkdómum að bráð.