Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 01.07.1974, Blaðsíða 7

Mánudagsblaðið - 01.07.1974, Blaðsíða 7
Mánudagur 1. júlí 1974 Mánudagsblaðið 7 Stýrímenn útskrífast Stýrimannaskólanum í Rvík var sagt upp hinn 18. maí í 83. sinn. Viðstaddir skólaupp- sögn voru margir af eldri nem- endum skólans. í upphafi ræddi skólastjóri um breytingar á námstilhögun við skólann. Til inngöngu í 1. bekk er nú krafist gagnfræða- prófs eða hliðstæðs prófs. Starf- rækt er sérstök undirbúnings- deild fyrir þá sem hafa ekki til- skilinn undirbúning I þeirri deild eru aðeins kenndar 5 námsgreinar: Stærðfræði, eðlis- fræði, íslenska, danska og enska. Próf úr 1. bekk veitir skip- stjórnarréttindi á fiskiskipum allt að 120 tonnum. Námsefni 2. bekkjar hefur nú verið sam- ræmt fyrir farmenn og fiski- menn þannig að nú fá allir sömu réttindi að loknu prófi 2. stigs, þ.e. full skipstjórnarrétt- indi á fiskiskipum af hvaða stærð sem er og kaupskipum allt að 400 tonnum, ennfremur undirstýrimannsréttindi á kaup- skipum af hvaða stærð sem er. Skipstjórnarréttindi á fiskiskip- um eru þó háð því, að menn hafi tilskilinn siglingatíma á fiskiskiptum. Skipstjórnar- og undirstýrimannsréttindi á kaup- skipum eru og háð ákvæðum um siglingatíma á slíkum skip- um. Með þessari breytingu á að verða auðveldara fyrir alla að ljúka prófi 3. stigs, sem veitir full skipstjórnarrétindi. Þá gat skólastjóri þess að aðstaða til tækjakennslu hefði batnað verulega, eftir að skólinn fékk tækjasal í nýbyggingunni fyrir austan skólann. I vemr var haldin deild fyrir skipstjóraefni á varðskipum ríkisins, eða 4 stigs deild. Sótm hana 10 menn og luku þeir prófi í janúarlok. Hæstu eink- unn hlaut Einar Róbert Árna- son, 7,26 sem er ágætiseinkunn. Að loknu prófi færðu þeir skól- anum að gjöf fagra mynda- stytm. Hefur henni verið komið fyrir á hentugum stað í kenn- arastofu. Að þessu sinni luku 23 far- mannaprfi 3. stigs og 46 annars stigs prófi. Efsmr við 3. stigs prófið var Dagþór Sigmar Har- aldsson, 7,70 og hlaut hann verðlaunabikar Eimskipafélags Islands, farmannabikarinn. Efst- ur við annars stigs prófið var Þórarinn Ólafsson, 7,84 og hlaut hann verðlaunabikar Old- unnar, Öldubikarinn. Hámarkseinkunn er 8. Bókaverðlaun úr verðlauna- og styrktarsjóði Páls Halldórs- sonar, fyrrverandi skólástjóra, hlum eftirtaldir nemendur, sem allir höfðu hlotið ágætiseink- Laugav. 22 - Hafnarstr. 1 - Bankastr. 11 - Reykjavík RÖMERTOPF STEIKARA- POTTAR úr eldföstum leir 2 stærðir • Bækur með 400 uppskriftum • Grill í botninn • Svampar til að hreinsa með • Sendum í póstkröfu um allt land unn: Dagþór Haraldsson, Jens G. Jensson, Jóhann Kiesel, Jón Börkur Ákason, Lúðvík Einars- son og Sigurður Bergsveinsson úr 3. stigi, en Árni Sigmunds- son, Guðmundur Kristjánsson, Guðni Einarsson, Helgi Arason, Hreggviður Hreggviðsson, Jó- hannes Sigurðsson, Jón Stein- grímsson, Sigurður Jónsson, Þórarinn Ólafsson og Þorsteinn Baldvinsson úr 2. stigi. Skipstjórafélag Islands veitti Lúðvík Einarssyni bókarverð- laun fyrir hámarkseinkunn í siglingareglum. Skólastjóri ávarpaði síðan nemendur og óskaði þeim til hamingju með prófið. Benti hann þeim á ábyrgð og skyldur yfirmanna á skipum. Taldi hann góðar horfur á því, að þeir gæm fljótlega not- fært sér þau réttindi, sem þeir hefðu aflað sér með skólaver- unni, skipastólinn væri í örum vexti og skortur væri á yfir- mönnum á skipum. Hann brýndi fyrir þeim að virða rétt annarra á hafinu og varaði við þeim afleiðingum, sem hlotist gæm af því, ef Settar reglur væru ekki í heiðri hafðar. Þá þakkaði hann nemendum samveruna og óskaði þeim far- sældar í framtíðinni. Að lokinni ræðu skólastjóra tóku þessir til máls: Jón Eiríksson fyrir sextíu ára skólasveina. Hann, Jón Högna- son og Valdimar Guðmundsson gáfu skólanum ljósrit af sigl- ingafræði hið fyrsta á íslensku. Hana samdi Árni Thorlacius 1843. Ingólfur Möller hafði orð fyrir 40 ára prófsveinum. Þeir færðu skólanum fjárhæð t Verðlauna- og styrktarsjóð Páls Halldórssonar, skólastjóra. Er hún til minningar um skólafé- laga þeirra Markús Finnboga Sigurjónsson. Þórhallur Hálfdánarson tal- aði af hálfu 25 ára skólasveina. Þeir gáfu fjárhæð í styrktarsjóð nemenda. 20 ára prófsveinar gáfu fjár- hæð til kaupa veðurkortamót- takara. Orð fyrir þeim hafði Helgi Hallvarðsson. 10 ára farmenn gáfu rafknú- ið sjóúr. Af þeirra hálfu talaði Pémr Sigurðsson. 10 ára fiski- menn gáfu fjárhæð í tækjasjóð skólans. Brautskráðir prófsveinar 3. stigs gáfu fjárhæð í styrktar- sjóð nemenda. Að lokum þakkaði skólastjóri góðar gjafir og gesmm kom- una. Einnig þakkaði hann kenn urum og prófdómendum störf þeirra á liðnu skólaári og sagði skólanum slitið. ALLT GENGUR (hvar sem er og hvenær sem er - við leik og störf - úti og inni og á góðra vina fundum -) BETUR MEÐ COCA-COLA drykkurinn sem hressir bezt, léttir skapið og gerir lífið ánægjulegra. FRAMLEITT AF VERKSMIÐJUNNI VÍFILFELL. í UMBQÐI THE CDCA-CQLA EXPCRT CCRPDRATICN

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.