Mánudagsblaðið - 01.07.1974, Blaðsíða 7
Mánudagur 1. júlí 1974
Mánudagsblaðið
7
Stýrímenn útskrífast
Stýrimannaskólanum í Rvík
var sagt upp hinn 18. maí í
83. sinn. Viðstaddir skólaupp-
sögn voru margir af eldri nem-
endum skólans.
í upphafi ræddi skólastjóri
um breytingar á námstilhögun
við skólann. Til inngöngu í 1.
bekk er nú krafist gagnfræða-
prófs eða hliðstæðs prófs. Starf-
rækt er sérstök undirbúnings-
deild fyrir þá sem hafa ekki til-
skilinn undirbúning I þeirri
deild eru aðeins kenndar 5
námsgreinar: Stærðfræði, eðlis-
fræði, íslenska, danska og enska.
Próf úr 1. bekk veitir skip-
stjórnarréttindi á fiskiskipum
allt að 120 tonnum. Námsefni
2. bekkjar hefur nú verið sam-
ræmt fyrir farmenn og fiski-
menn þannig að nú fá allir
sömu réttindi að loknu prófi 2.
stigs, þ.e. full skipstjórnarrétt-
indi á fiskiskipum af hvaða
stærð sem er og kaupskipum
allt að 400 tonnum, ennfremur
undirstýrimannsréttindi á kaup-
skipum af hvaða stærð sem er.
Skipstjórnarréttindi á fiskiskip-
um eru þó háð því, að menn
hafi tilskilinn siglingatíma á
fiskiskiptum. Skipstjórnar- og
undirstýrimannsréttindi á kaup-
skipum eru og háð ákvæðum
um siglingatíma á slíkum skip-
um.
Með þessari breytingu á að
verða auðveldara fyrir alla að
ljúka prófi 3. stigs, sem veitir
full skipstjórnarrétindi.
Þá gat skólastjóri þess að
aðstaða til tækjakennslu hefði
batnað verulega, eftir að skólinn
fékk tækjasal í nýbyggingunni
fyrir austan skólann.
I vemr var haldin deild fyrir
skipstjóraefni á varðskipum
ríkisins, eða 4 stigs deild. Sótm
hana 10 menn og luku þeir
prófi í janúarlok. Hæstu eink-
unn hlaut Einar Róbert Árna-
son, 7,26 sem er ágætiseinkunn.
Að loknu prófi færðu þeir skól-
anum að gjöf fagra mynda-
stytm. Hefur henni verið komið
fyrir á hentugum stað í kenn-
arastofu.
Að þessu sinni luku 23 far-
mannaprfi 3. stigs og 46 annars
stigs prófi. Efsmr við 3. stigs
prófið var Dagþór Sigmar Har-
aldsson, 7,70 og hlaut hann
verðlaunabikar Eimskipafélags
Islands, farmannabikarinn. Efst-
ur við annars stigs prófið var
Þórarinn Ólafsson, 7,84 og
hlaut hann verðlaunabikar Old-
unnar, Öldubikarinn.
Hámarkseinkunn er 8.
Bókaverðlaun úr verðlauna-
og styrktarsjóði Páls Halldórs-
sonar, fyrrverandi skólástjóra,
hlum eftirtaldir nemendur, sem
allir höfðu hlotið ágætiseink-
Laugav. 22 - Hafnarstr. 1 - Bankastr. 11 - Reykjavík
RÖMERTOPF
STEIKARA-
POTTAR
úr eldföstum leir 2 stærðir
• Bækur með 400
uppskriftum
• Grill í botninn
• Svampar til að
hreinsa með
• Sendum í póstkröfu
um allt land
unn: Dagþór Haraldsson, Jens
G. Jensson, Jóhann Kiesel, Jón
Börkur Ákason, Lúðvík Einars-
son og Sigurður Bergsveinsson
úr 3. stigi, en Árni Sigmunds-
son, Guðmundur Kristjánsson,
Guðni Einarsson, Helgi Arason,
Hreggviður Hreggviðsson, Jó-
hannes Sigurðsson, Jón Stein-
grímsson, Sigurður Jónsson,
Þórarinn Ólafsson og Þorsteinn
Baldvinsson úr 2. stigi.
Skipstjórafélag Islands veitti
Lúðvík Einarssyni bókarverð-
laun fyrir hámarkseinkunn í
siglingareglum.
Skólastjóri ávarpaði síðan
nemendur og óskaði þeim til
hamingju með prófið. Benti
hann þeim á ábyrgð og skyldur
yfirmanna á skipum.
Taldi hann góðar horfur á
því, að þeir gæm fljótlega not-
fært sér þau réttindi, sem þeir
hefðu aflað sér með skólaver-
unni, skipastólinn væri í örum
vexti og skortur væri á yfir-
mönnum á skipum. Hann
brýndi fyrir þeim að virða rétt
annarra á hafinu og varaði við
þeim afleiðingum, sem hlotist
gæm af því, ef Settar reglur
væru ekki í heiðri hafðar.
Þá þakkaði hann nemendum
samveruna og óskaði þeim far-
sældar í framtíðinni.
Að lokinni ræðu skólastjóra
tóku þessir til máls:
Jón Eiríksson fyrir sextíu ára
skólasveina. Hann, Jón Högna-
son og Valdimar Guðmundsson
gáfu skólanum ljósrit af sigl-
ingafræði hið fyrsta á íslensku.
Hana samdi Árni Thorlacius
1843.
Ingólfur Möller hafði orð
fyrir 40 ára prófsveinum. Þeir
færðu skólanum fjárhæð t
Verðlauna- og styrktarsjóð Páls
Halldórssonar, skólastjóra. Er
hún til minningar um skólafé-
laga þeirra Markús Finnboga
Sigurjónsson.
Þórhallur Hálfdánarson tal-
aði af hálfu 25 ára skólasveina.
Þeir gáfu fjárhæð í styrktarsjóð
nemenda.
20 ára prófsveinar gáfu fjár-
hæð til kaupa veðurkortamót-
takara. Orð fyrir þeim hafði
Helgi Hallvarðsson.
10 ára farmenn gáfu rafknú-
ið sjóúr. Af þeirra hálfu talaði
Pémr Sigurðsson. 10 ára fiski-
menn gáfu fjárhæð í tækjasjóð
skólans.
Brautskráðir prófsveinar 3.
stigs gáfu fjárhæð í styrktar-
sjóð nemenda.
Að lokum þakkaði skólastjóri
góðar gjafir og gesmm kom-
una. Einnig þakkaði hann kenn
urum og prófdómendum störf
þeirra á liðnu skólaári og sagði
skólanum slitið.
ALLT GENGUR
(hvar sem er og hvenær sem er
- við leik og störf - úti og inni
og á góðra vina fundum -)
BETUR MEÐ COCA-COLA
drykkurinn sem hressir bezt, léttir skapið
og gerir lífið ánægjulegra.
FRAMLEITT AF VERKSMIÐJUNNI VÍFILFELL. í UMBQÐI THE CDCA-CQLA EXPCRT CCRPDRATICN