Mánudagsblaðið - 01.07.1974, Page 4
4
Mánudagsblaðið
Mánudagur 1. júlí 1974
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: AGNAR BOGASON.
Sími ritstjórnar: 1 34 96. — Aulýsingasími: 1 34 96
Verð í lausasölu kr. 80,00. — Áskriftir ekki teknar.
Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Kapítalismi og óvinsældir
Það er í senn broslegt og barnalegt þegar íslenskir
vinstri menn og kommúnistar eru að tala um 9,hægri“
flokka og kapitalista hér á landi. Eins og í öðrum
Norðurlöndunum, þá eru allir flokkar til vinstri, þ.e.
misjafnt frá centrum í stjórnmálum. Ef litið er á alla
þá hjálparstarfsemi sem ríkið rekur bæði í styrkjum,
heilbrigðismálum, bótapólitík og alls kyns öðrum
styrkja og stuðningsaðbúnaði, þá getur enginn sagt
með sanni, að hér sé ríkjandi kapitaliskur flokkur
eða hægri flokkur.
Á Islandi er svo komið, að ríki og borg hafa putt-
ann í öllum meiriháttar fyrirtækjum. Þá setur ríkið
hinum svokölluðu einstaklingsfyrirtækjum strangar
reglur um rekstur, smígur inn á hvern kima einstak-
Iingsfyrirtækjanna undir yfirskini rannsókna og eft-
irlits. Ástandið hér er litlu eða engu betra en t.d. í
Ítalíu, sem nú er að fara á hausinn, vegna of-afskipta
hins opinbera um leið og það sjálft ræður ekkert við
þau vandamál, sem þessi afskipti skapa.
Þess verður ekki langt að bíða ef svo heldur áfram
sem nú, að við getum sagt eins og Angelli, aðaleigandi
og forstjóri FIAT-verksmiðjanna á Italíu, að ríkis-
stjórnin ræður næstum öllu hér á landi, en getur
engu stjórnað. Við getum litið hvort heldur er á fisk-
iðnaðinny Iandbúnað eða iðnað. Allt er þetta meira
og minna í höndum eða undir afskiptum ríkisins, þó
úr hófi keyri um útgerðina. títgerðin var á sínum
tlma sjálfstæð, en nú er hún ekki annað en hálfgild-
ings beinakerling á framfæri ríkisins. Sú síæpandi af-
sökun, að útgerð megi ekki stöðva hvort heldur hún
tapi eða græði gerir suma útgerðarmenn okkar að
heilögum kúm í þjóðfélaginu, sem ekkert tvísýnt geta
gert.
Fyrir ekki all-löngu sagði einn af þekktustu útgerð-
armönnum okkar, er sjónvarpsmaður spurði hann
hvort ekki yrði erfitt að greiða nýtt skip, að „þetta
færi einhvern veginn“ og glotti við. Það er alveg rétt,
hlutirnir fara einhvern veginn. En jafnvel í Tékkósló-
vakíu, þá yrði litið á svona ábyrgðarlaust svar tals-
vert alvarlegum augum og svo gæti farið, að sá yrði
ekki lengi í tölu frjálsra er léti svona orð um munn
fara opinberlega.
En útgerðin er ekki ein um hituna. Mærðin og vein-
ið í iðnaðinum er orðin hvimleiður þáttur í opinber-
um málgögnum. Frambjóðendur og flokksblöðin
hafa nú hafið upp eitt mikilfenglegasta harmavein
sem enn hefur verið rekið upp fyrir kosningar. ÖIl
sveitarfélög eru á heljarþröm, allt skortir, vegi, nýjar
vélar, ný skip, hagstæðari lán, endurbyggingar heilla
kaupstaða, félagsheimili og öll önnur þægindi. Hvert
blaðið á fætur öðru keppist við að Iýsa þeim ógnum
og hörmungum, sem dynja yfir sveitir og kaupstaði
og ekki sízt hve bágt vesalings fólkið hefur það.
Það er vissulega eitthvað til í því, að þjóðin sé að
verða snarvitlaus. Þetta er skiljanlegt. Þjóð, sem ný-
stigin er upp úr vesöld og kemst í kjötkatlana þarf
sterk bein. Þau eru ekki fyrir hendi. Heimtufrekjan er
orðin svo gegndarlaus að aðrar þjóðir eru farnar að
hafa okkur að spotti og erlendar peningastofnanir eru
farnar að verða uggandi um okkar hag. Eilífir frí-
dagar, allt aftan úr forneskju, hafa orðið til þess að
milljónir vinnustunda hafa tapast. Yið höfum unnið
markvisst að því, að stytta svo vinnutímann, að hann
er nú sá Iangstyttsti í heimi. Allt stefnir að því að fá
allt fyrir ekkert eða a.m.k. með sem minnstri fyrir-
höfn.
Það verður því erfitt fyrir næstu stjórn að taka við.
Framhald á 6. síðu.
KAKALI skrifar:
I HREINSKILNI
Það sýndi sig glöggt s.l.
miðvikudagskv. í sjónvarp-
inu, að Lúðvík Jósefsson Iæt-
ur ekki af Rússadekri sínu og
ætlar sér, verði honum gefið
tækifæri að flæma burtu
varnarliðið og koma okkur
úr Nato-samtökunum, eins og
hann heefur lofið yfirboður-
um sínum í Moskvu. Svo
heitt trúir þessi ráðherra á al-
sælu Islendinga undir oki
Moskvuvaldsins, að hann hik-
ar ekki að halda því fram,
að 55 þúsund manns, sem
undirrituðu Varið Iand, séu
ekki annað en frávillingar
sem engan rétt eiga á sér og
ekkert mark sé takandi á.
Þetta þarf ekki að undra
( þá, sem ekki þckkja vel til
kommúnista. Kommúnismi er
minni stjórrnmálask. held-
ur en óbifandi trú. Engin rök
engar skýrslur eða staðreynd-
ir koma þvílíkum heitttrúar-
mönnum af upprunalegri
skoðun sinni. Ekkcrt efna-
hagslegt áfall Rússa t.d., né
mistök í áætlunum þeirra, al-
menn vesöld hins almenna
borgara í Rússlandi, eða al-
gjört bann við frjálsri hug-
sun, prcntfrclsi eða yfirliett
nokkru frelsi í nokkurri
mynd, fær þessa öfgmenn af
þeirri trú að þcirra sé hinn
Írétti málstaður. Þótt fyrri
valdhafar Rússlands hafi
myrt tugni milljóna, pyndað
og gert útlæga til hinna ill-
ræmdu fangabúða Sibcriu, og
menn cins og Solzenishin hafi
rifaö um það bækur, þá fær
ekkert bifað heittrúarmönn-
i um kommúnismans.
Þess ber að gæta að Lúð-
vík og Magnús eru ekki i
neinu líkir unglingalýð þeim,
bítlum og loðinbörðum, sem
skreyta raðir kommúnista.
Þessir tveir höfðingjar eru
lærðir i þcssum cfnum,
sprenglærðir og hafa kynntst
og alist að vissu leyti upp í
anda Moskvuvaldsins, svarið
því eiða og ætla sér að efna
þá. Hér er ekki um stráklihga
og stelpulýð að ræða, sem
heldur það stefnu Rússa að
vera skítugir, þurfa ekki að
þvo sér né hirða, heldur geta
ruðst um allt í cinkennisföt-
um beiningamannsins. Lúlli
og Maggi eru allt annar kali-
ber, báðir snyrtimcnni og
hafa báðir raunverulegan við-
bjóð á þessum flóttalegum at-
kvæðum, sem safnast að
þeim á þcssum forscndum.
Það er talið víst, að ör-
vænting kommúnista í kosn-
ingunum nú um helgina, sé
ein ástæða fyrir því, að svo
injög er hraðað öllu í sam-
bandi við varnarmálin. Það
er staðreynd, að herinn fer
ekki, en til þess að reyna að
sýna „lit“, þá er því hraðað
eins og kostur er á að loka
fyrir sjónvarpið. Þarna sést
snilli þcirra kumpána. Þeir
hafa alltaf haldið því fram,
að varnarliðið skuli fara á
brott, fái þeir nokkru ráðið,
og við það myndu þeir
standa.
Hins vegar er þeim cinnig
Ijóst, að með því að tak-
marka sjónvarp vallarins við
Sannar sitt rétta
eðli — Varnar-
mál og sjón-
varpsmál —
Samkvæmt skip-
un frá Moskvu
— Varnarliðið
og AFRTS — (Jm
allan heim —
Hvar liggur
munurinn? —
Hægt að Ijúka
málunum.
varnarliðið eitt, þá skaða þeir
ekkert sjálfa sig, en hins veg-
ar veita Framsókn enn eitt
voðahögg. Flækingur Einars
Ágústssonar til Washington
D. C. á dögunum til að semja
um lokun sjónvarpsins hcfur
verið af öllum skoðaður sem
gjörð Framsóknar og einskis
annars. Það er staðreynd,
þótt margir vilji kalla það
hégómamál, að Keflavíkur-
sjónvarpið er vinsæl tilbreyt-
ing frá því íslcnska, enda sýn-
ir það mörg dýrustu prógröm
í heimi, sem af hvcrjum hið
íslenska hefur keypt fyrir
ógrynni fjár, t. d. Bonanza,
Bernstein o.fl. öldruðu fólki
AGT - I
þykir gaman að skoða þessar l
myndir, rúmföstu fólki og /
hcimakæru, er þetta hin j
mesta gleði og tilbreyting J
Allt þetta fólk mun vart 7
blessa þann vesalings ráð- J
herra, sem lét glepjast í Am- \
eríkuferð til þess eins að 1
nema á brott þennan liitla J
vísi að skemmtun, sem þetta \
fólk hafði. Snilli skálkanna í
tveggja Iýsir sér best í, hversu 4
þeim tókst að leika á Fram- í
sóknarforustuna, leiða þá eins i
og þursa í ófæruna og skilja L
þá eftir í kcldunni. 1
Lúðvík og Magnús telja í
það óvirðingu að á landinu í
skuli rekinn önnur sjónvarps- /
stöð en sú íslenska. Hann ’
veit en vill ekki játa, að her- 4
mannasjónvarpið er rekið um 4
allan heim þar sem banda- »
rískir hermenn eru staðsettir. 4
Það er í samningi okkar við t
NATO að þessi skiki verði t
nýttur fyrir stöðina sem <
varnarliðið gætir. Hvort svo ?
fer, að við getum náð í /
myndir að sunnan, er allt /
annað mál, fylgir sömu )
reglu og þeirri að við get- 5
um hlustað á útvörp um 1
heim allan, jafnvel Moskvu, 4
A.-Þýzkaland osfrv. Skrítið
að þeir féllagar skuli ekki
leitast við að Brcznov tak->»
marki sendingar útvarpsins í
Moskvu við Rússland eitt
saman, svo tslendingar spill-
ist ekki.
Ef við íslendingar erum
þeir regin-ræflar og skoðana-
leysingjar að við Iátum fá-
mennan hóp hamingju-
snauðra ...öfgamanna ...banna
okkur að hlusta á og horfa
á það sem okkur sýnist, þá
er sýnt að vesalingstímabilið
í sögu niðurlægingarinnar er
enn ekki runnið á enda. Við
crum ennþá sama kynslóðin
sem lét danskar aúðarlokur
reka okkur á kjaftinn fyrir
eitt staup brennivíns og
sleiktum á þeim skóna í
þakkarskyni, en þeir höfðu
þó einhvcrja en einkar lélega
afsökun. Hungur og vesölld
var þeirra lagskona, náttúru-
hamfarir árlegt brauð, dauði
og vesöld allsstaðar.
Kynslóðir þær sem í dag
lifa, hafa enga slíka afsök-
un. Þær verða að hrinda af
sér oki og bönnum sið-
spilltra tækifærissinna og eið-
svarinna Moskvu-agenta eins
og þessarra. Þeir verða að
hrinda af sér skaplausum aft-
aníossum eins og utanríkis-
ráðherra sem svo herfilega
hcfur látið blckkjast.
Þessi helgi getur gert gæfu-
muninn.
Reynið viðskiptin
IragnTmvnDfliTOMin hp.
Brautarholti 16 sími 25775
Frentmyndagerð — Of fsetþjónusta