Mánudagsblaðið - 01.07.1974, Blaðsíða 5
Mánudagur 1. júlí 1974
Mánudagsblaðið
c
w
Pólitískar vangaveltur
Framhald a_' 1. síðu.
ur síns á Ísafirði.
Efstir á listum Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags
eru nýir menn, Sighvatur
Björgvinsson og Kjartan
Ólafsson. Báðir eru þeir Vest
firðingar að ætt, hvort sem
það kemur þeim að einhverju
haldi í kosningunum.
í öðru sæti á Framsóknar-
listanum er nýr maður Gunn-
laugur Finnsson í Hvilft, einn
hinna þekktu Hvilftarbræðra,
sem nú mig minnir að hafi
verið sjö. Sumir þeirra hafa
verið þekktir menn í Reykja-
vík. Gunnlaugur á mikinn
frændgarð í önundarfirði,
hann er t.d. skyldur Traðar-
mönnum, svo sem Guðlaugi
Rósinkranz.
NORÐUR-
LAND
VESTRA
Hér er ennnig ólíklegt að
breyting verði á skiptingunni.
Sjálfstæðisflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn fá tvo
hvor og Alþýðubandalagið
einn.
Það er talsvert áfall fyrir
Framsókn að missa Frosta-
staðamenn yfir til Samtak-
anna. Magnús Gíslason á
Frostastöðum, sem í undan-
förnum kosningum hefur ver
verið í þriðja sæti Framsókn-
ar, er nú kominn í Möðru-
vallahreyfinguna og er í öðru
sæti Samtakanna. Honum
fylgir aldinn faðir hans, Gísli
Magnússon í Eyhildarholti,
sem í meira en hálfa öld hef-
ur verið einn tryggasti Fram-
sóknarmaður á íslandi og
skrifað mikið í Tímann. Gísli
er vel ritfær, en skrif hans
hafa verið mótuð af þröngum
semsagt gamli maðurinn bú-
inn að yfirgefa flokkinn sinn
góða. Frostastaðamenn eru
gömul og gróin stórbænda-
flokkssjónarmiðum. En nú er
ætt i Skagafirði og hefur á
sér höfðingjasnið um margt.
í henni eru líka kunnir og lit-
ríkir menntamenn, svo sem
Guðmundur Þorláksson mag-
ister, kallaður Glosi, föður-
bróðir Gísla. Hann var þekkt
ur maður um síðustu alda-
mót, fluggáfaður og fjölhæf-
ur en ekki lánsmaður að
sama skapi. Frostastaðaætt-
in er frjósöm ætt og fjöl-
menn, en ekki mun það þó
duga til þess, að Samtökin
komi manni að í kjördæminu.
En þau geta dregið nokkur
hundruð atkvæði frá Fram-
sókn, þó ekki nóg til að fella
annan manninn á Framsókn-
arlistanum.
Björn á Löngumýri hverfur
nú af Alþingi og ekki fríkkar
sú samkunda við brottför
hans. Þarna var þó maður
með fastmótaðan prófíl, hann
hafði lögun og lit innan um
hina tryggu flokksmenn og
gráu vélmenni. Sæti Börns
tekur frændi hans, Páll Pét-
ursson, sem er ekki mikið
þekktur utan Húnaþings.
Hjá Sjálfstæðismönnum er
sú breyting, að Eyjólfur Kon-
ráð tekur sæti séra Gunnars
Gíslasonar. Einhver urgur
mun vera í Sjálfstæðismönn-
um í Skagafirði út af þessu,
þeir vildu fá heimamann í
sætið. Pálmi Jónsson skipar
nú efsta sæíið'. Þétta er Ijúf-
ur og góður drengur, en mik-
ið vantar á, að hann sé jafn
litrík persóna og faðir hans,
Jón á Akri, sem var orðinn
þjóðsagnahetja þegar í lif-
anda lífi. Jón var síyrkjandi,
en ekki hef ég heyrt, að
Pálmi hafi ort vísur, en þó
getur það vel verið. Hinir lit-
ríku fulltrúar íslenskrar
sveitamenningar eru nú að
heita má allir horfnir af þingi,
enda voru þeir farnir að
verka sem anakrónismi. Eftir
eru róbotarnir, gráir og húm-
arlausir. Það mætti segja
mér, að það yrði lítið spenn-
andi lýður á Alþingi um
aldamót. Þar verður enginn
Jón á Akri, Björn á Löngu-
mýri, Pétur Ottesen eða
Skúli Guðmundsson. Bara
allt grátt í gráu.
AUSTUR-
LAND
Þetta kjördæmi er spenn-
andi og vel hugsanlegt að
breytingar verði. Við margar
undanfarnar kosningar hefur
Framsóknarflokkurinn fengið
þarna þrjá menn, Sjálfstæðis
flokkurinn einn og Alþýðu-
bandalagið einn. Nú er þriðji
maður Framsóknar sagður í
hættu. Sumir halda, að Fram
sókn missi sætið til Alþýðu-
bandalagsins, sem kunni nú
að fá tvo menn kjörna. Aðrir
halda, að Samtökin með
Ólaf Ragnar Grímsson í
efsta sæti kunni að vinna
sætið.
Á Framsóknarlistanum
hafa orðið miklar breytingar,
og það er óhætt að fullyrða,
að hann er stórum veikari en
áður. Mikilhæfasti þingskör-
ungur Framsóknar, Eysteinn
Jónsson, er hættur þing-
mennsku. Og einnig Páll Þor
steinsson, sem leyndi á sér
og stóð fyrir sínu. Vilhjálmur
Hjálmarsson er einn eftir af
þeim gömlu, og þó að hann
sé gegn maður, er hann eng-
inn baráttumaður á við Ey-
stein. Og það eru heldur ekki
Tómas Árnason og hinn ungi
Halldór Ásgrímsson, alnafni
afa síns, Halldórs þing-
manns. Það kann því vel að
fara svo að Framsókn missi
þarna sæti til Helga Seljan
eða Ólafs Ragnars.
Það stóð alltaf styrr um
Ólaf Ragnar í Framsóknar-
flokknum. Af hinum gömlu
foringjum flokksins þótti Ey-
steinn Jónsson honum alltaf
hlynntastur en milli hans og
nafna hans Jóhannessonar
var ískuldi. Ef Ólafur Ragnar
skyldi komast á þing má bú-
ast við, að það verði líf i
tuskunum í kringum hann.
En ekki líst mér á blikuna, ef
hann ætti t.d. að vera í ríkis-
stjórn með sínum fyrri flokks
bræðrum.
SUÐUR-
LAND
Að líkindum verður skipt-
ingin hér óbreytt. Sjálfstæð-
isflokkurinn fær þrjá, Fram-
sóknarflokkurinn tvo og Al-
þýðubandalagið einn. Sumir
segja, að Alþýðuflokkurinn
sé þarna frekar í uppgangi,
en varla nægir það honum
til að fá mann kjörinn. Sumir
segja, að ef Magnús Magnús
son, bæjarstjóri í Vestmanna
eyjum, hefði verið í efsta
sæti, hefði hann getað kom-
ist nærri því að komast að.
Efstu mennirnir á lista
Sjálfstæðisflokksins eru hin-
ir sömu og áður, Ingólfur,
Guðlaugur og Steinþór. Fram
sóknarflokkurinn skiptir aftur
á móti um báða sína þing-
menn. Ágúst og Björn sýslu-
maður hætta báðir, enda
rosknir menn. í þeirra stað
koma Þórarinn Sigurjónsson
í Laugardælum og Jón Helga-
son í Seglbúðum. Með Jóni
fá V'estur-Skaftfellingar aftur
þingmann. Í þriðja sæti er
svo Guðmundur Þórarinsson
skákmaður og verkfræðing-
ur. Rangæingar fá engan
mann i efstu sætunum. Lengi
var talið, að Jón R. Hjálmars-
son skólastjóri yrði í öðru
sætinu sem arftaki Björns
sýslumanns, en þessu var
breytt á síðustu stundu. Mun
vera talsverð óánægja meðal
sumra Rangæinga út af
þessu. Jafnvel er talið að
sumir Framsóknarmenn þar
muni kjósa Samtökin, þar
sem fyrrverandi Framsóknar-
maður Arnór Karlsson, er í
efsta sæti. Ekki mun þetta þó
duga til að koma Arnóri að.
EFTIR
KOSNINGAR
Hvað verður svo eftir kosn
ingar? Hverjir mynda hina
nýu ríkisstjórn? Það er nohte
urn veginn víst, að Sjálfstæ?
isflokkurinn bætir við sig
þingsætum, sennilega þrem-
ur eða fjórum. En hreinan
meirihluta fær hann ekki.
Líkur á nýrri vinstri stjórn
eru ekki ýkja miklar, jafnvel
þótt gömlu stjórnarflokkamir
fengju aftur meirihluta.
Hægri menn í Framsókn vilja
það ekki, og sumir Alþýðu-
bandalagsmenn óttast, að
uppreisnaröflunum vinstra
megin við þá mundi aukast
fylgi, ef slík stjórn yrði mynd
uð. En ef Sjálfstæðisflokkur-
inn og Alþýðuflokkurinn fá
meirihluta saman? Mynda
þeir þá ekki nýja viðreisnar-
stjórn? Þetta er heldur ólík-
legt. Slikt myndi skapa mikla
ólgu meðal vinstri manna í
Alþýðuflokknum, sem telja
slíkt ganga næst sjálfsmorði
fyrir flokkinn. Og margir
Sjálfstæðismenn eru þessu
líka andvígir. Þeir mundu
heldur vilja mynda stjórn
með Framsóknarflokknum.
Einkum er það áberandi um
fylgismenn Gunnars Thorodd
sens, að þeir vilja ekkert
saman við Alþýðuflokkinn að
sælda. Menn Geirs virðast
fúsari á að reyna nýja við-
reisnarstjórn. Svo heyrast
raddir um, að mynduð verði
þjóðstjórn eða samstjórn
Sjálfstæðisflokks, Framsókn-
arflokks og Alþýðuflokks.
Slíkar stjórnir yrði þó áreið-
anlega mjög erfitt að mynda.
Kannske eru likurnar mestar
á samstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks.
En forustan í Framsókn yrði
hrædd við slíka samstjórn,
hún óttast, að Möðruvelling-
ar mundu græða á henni.
Það er því erfitt að spá
neinu um það, hvernig hin
nýja stjórn verður skipuð. En
einu er óhætt að spá með ör-
uggri vissu hver sem stjórn-
in verður. Framundan er óða
verðbólga, ógurleg dýrtíð,
gengisfellingar og vandræði,
en einnig sukk oð svindl. ís-
lendingar eru samir við sig,
hvað svo sem stjórnarherr-
arnir heita.
AJAX.
Nafniö, sem allir þekkja
axminster
AXMINSTER - annaö ekki
Giensásvegi 8 Reykjavík, sími 30676. Einii h i. Alcuieyii. sími 11536. Sighyggni lónsson Ölaisiiiii. simi 62321.
........................