Tíminn - 04.01.1970, Síða 3

Tíminn - 04.01.1970, Síða 3
BROT A F TRÚBROT? TRÚBROT. 11 lög. UPPTAKA: Trident Studios, London. ÚTGEFANDI: FálMnn. Þegar veljast sarrtan jafin snjallir hljóðfœraleifcarar, og þeir, sem skipa Trúbrot, er ekM nema eSlHegt að gerðar séu miklar ikröfur tH þeirra fyrsta framlags á hljómplötu- markaðinum, og ekki hvað sízt vegna þess að fullkomin tækni leg upptatea, sér um að skila flutningi þeirra á hljómplöt- nnni, ailt að því eins ag maður væri að hlýða á hljómsveitina í hlj'ómleikasal. Hljóðfæraleikurinn á plöt- unni er ákaflega vandaður, og flestar útsetningarnar bera það með sér, að í þær hefur verið lögð mikil vinna. Yfirleitt eru Trúbrot einir um flutninginn, en í nokkrum laganna koma brezkir aðstoðarhljóðfæraleik- arar við sögu, en Magnús Ingi- marsson útsetti þeirra kafla. í samvinnu við Trúbrot, og verð- nr ekki annað sagt en að þessi brezka aðstoð sé smekklega lít- ið notuð. Reyndar skildi mað- ur ætla að „fimmstirnið“ væri einfært um að sjá um flutn. ing á simii fyrstu plötu. Því er efldki að neita að ég hafði búizt við meiri stormandi tíJiþrifuim lijá Gunnari Jöikli, við trommurnar, og sérstak- iega Karli Sighvatssyni við orgelið. En flest lögin eru þannig að það heyrir til undantekninga ef þessir snill- ingar fá virteilega tilefni til að leika, þanni-g að geta þeirra fái notið sín óbeizluð á sem lit- ríkastan túlkunarmáta. Ég tel ekki rétt jafnvægi á milli hröðu og hægu lag- anna, og það er ekki la-ust við að sum þeirra beri æði mikinn Hljóm-akeim. — „En sínum augum lýtur hver á silfr- ið“. Rúnar og Shady skipta með sér söngnum, sum lögin eru þó lítillega rödduð, og í „Afgangar", syngja allir með- limir Trúhrots. Ekki verður sagt að Rúnar Júlíusson sé fjölhæfur söngv- ari, hann er fyrst og fremst beat-söngvari, þess vegna kom það mér mjög á óvart hve vel hann sleppur frá túlkun sinni á „Elskaðu náungann". Það er auðheyxilegt að hann syngur lagið af milkilli innlifun, og vart hefur honum fyrr tekizt jafn vel upp í sön-g sínum á hijómplötu. En það er ekki þar með sagt að þetta sé þversfcurð urinn á söng Rúnars á plöt- uruni. Það var í desember 1967, sem hin bandarísk-fædda Shady Owens kom fyrst fram í ísL sviðsljósi, þessi unga og glæsi- lega stúlka vakti þegar í stað mikla athygli fyrir sinn frá- bæra söng og frjálslegu sviðs- hreyfingar. Þetta er í annað sinn sem hún syngur á ís- lenzku inn á hljómplötu, og þótt árangurinn sé betri nú, þá er greinilegt, að hún getur ekki tjáð sig í sönig á sama hátt á íslenzku og ensku, hún reyn- ir mjög greinilega að ná rétt- um framburði, en tekst það misjafnlega, enda er íslenzkan ekki auðlærð, sízt til söngs. Shady lætur hezt að syngj-a hröð lög, sem gefa henni góð taakifæri til að beiita rödd- inni, en þau lög sem hún syng ur hér á plötunni eru ekki þess eðlis. Hvíslsöngur er ekki við hennar hæfi, en það er ef til vili þannig, sem hén n-aar sér bezt u-pp við túlkun laga með ísl. texta. Alla vega var hún ekki lík sjálfri sér er hún söng „Ég elska alla“ á Hljómaplöt unni, en þetta hraða „beat“-lag gaf fyllilega tilefni til tölu- vert mikillar raddbeitingar. Þorsteinn Eggertsson hefur samið texta við 10 laganma, þeir eru flestir ákaflega hag- iega samdir, ekki eingöngu innantóm orð sem falla sam- an eins og í ,,púslu“--spili, sem myndar síðan eioa stóra ein- falda og f allega mynd. Textar Þorsteins ná lengra, þeir hafa margir hverjir sinn boðskap að flytja, og vekja mann til umhugsunar upp úr drunga hversdagsleikans. Hafi hann þölkk fyrir. Rúnar Júlíus- son hefur samið einn textann, og verður ekki annað sagt en hann fari vel af stað sem texta- höfundur. (,,Við“) Albúmið er ákaflega vandað, og útlitsteikningin hittir í mark. Þegar hað er opnað gef- ur að líta myndir af fim-m- menningunum hægra megin, en hinum megin í opnunni eru ailir textarniir birtir, og er það stór kostur. „Við“, „Frelsi andans" „Lít ég börn að leika sér“, þessi þrj-ú lög eru greinilega það bezta sem Gunnar Þórðarson hefur fram að færa á þessari hljómplötu, þetta eru nokkuð margslungin lög, gædd vissum þokka sem maður meltir ekki þegar í stað, fallegar melódíur en nokkuð keimlíkar. í „Við“ kemur „brezíka hjálpin" við sögu, en það er einkar gott jafnvægi milli f-lutn in-gs þeirra og hins eiginlega fkntnimgs Tnúlbrots. 1 hinum tveim lögunum er fágaður og öruggur gítarleik- ur Gunnars Þórðarsonar aðal- uppistaðan. „Sama er mér“, er hið áheyrilegasta lag, hefði gietað verið enn kröftugra, ef orgelið hefði verið í aðalhlut- verkinu. „Konuþjófarnir", lag sem al-1- ir geta raulað, einfalt en skemmtilegt á sinn hátt. Þá er komið að laginu sem stærsta rúmið tekur á plötunni, enda þrig-gja laga maki að lengd. „Afgangar“, er samansafn nokkurra laga, með einu gegn umgangandi aðalstefi, einhver var svo frómur að nefna þetta „pop-óperu“. Hér tvinnast mjög . saman framlag laga og textahöfund- ar, lögin eru í sjálfu sér vel vi'ð hæfi, en ekki er nægileg snerpa í háðinu hjá Þorsteini, heildarmyndin er nokkuð sund urlaus, og rölt söguhetjunnar mær eíkki að ten-gja aitriðin eðliiega saman. Þetta er virð- in-garverð tilraiun til nýbreytni hjá þeim Gunnari og Þorsteini. En nokteuð þykir mér það mik- ið að fórna níu mínútum í þessa tilraun. Þá eru upptalin lög Gunnars Þórðarsonar, en svo er eitt lag eftir þau öll: „Byrjenda boog- ie“, og hljómar í tuttugu og eina sekúndu. „Hlustaðu á regnið“, (R-ain) fallega seiðandi lag, hér er hlutur aðstoðarmúsíkkant- anna ákaflega mikilvægur við áð ná hinni réttu stemningu með strengjunum. „Þú skait mig fá“, þ-etta er hið útjaskaða la-g Beatles, „Thing you said to day“, en Trúbrot hafa „gert það u-pp“ útsetningin er gerbreytt og stórkostlega vel unnin. Gunn- ar Þórðar, Jökull og Kalli eru hér í fremstu víglínu, og standa ákaflega vel fyrir sínu. „Ám þín“, þykir mér bezt af erlendu lögunum, ásamt því sem ég fjalia hér um á eftir, Framihald á bls. 15. Hvern dreymir ekki um betra líf, þægiiegra, skemmtilegra, ríkara af ti!- breytingu? Öll viljum við eignast eitthvað nýtt, hús, bíl, bækur, svo eitthvað sé nefnt. Eða kannski viljum við heldur fara í ferðaiag? En því miður, draumum gengur oft svo grátlega seint að rætast. Og þó, miði í happdrætti SÍBS gæti gert drauminn að veruleika. Já, það eru meira að segja talsvert miklar líkur á að miðinn hljóti vinning. Meira en fjórði hver miði fær vinning. í engu ööru happdrætti hérlendis eru eins miklar vinningslíkur og í happdrætti SIBS Við skulum vona aðdraumurinn rætist i i * t l I I i I i ; \ ( i f i. ) '\

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.