Tíminn - 21.01.1970, Blaðsíða 16
mmm
16. tbl. — MiSvikudagur 21. janúar 1970. — 54. árg.
SAMÞYKKT VAR í NEÐRI DEILD ALÞINGIS, MEÐ 26 GEGN 9 ATKVÆÐUM AÐ
i n~ 7,
Kvennaskólinn úl
skrifi stúdenta
Frá undirritun samninganna.
Fiugliðar Loftleiða halda til Miami til að læra á þotur:
Fkgst/érar á þotum LoftleiSa
fá65-105þásund kr. á mánuði
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
19 flugliðar hjá Loftleiðum eru
farnir áleiðis til Miami í Banda-
ríkjunum til þess að hefja nám
í þotuflugi hjá Eastern Airlines
þar. Jafnframt hafa Loftleiðir
náð samningum við Félag ísl. at-
vinnuflugmanna og Flugvirkjafé-
lag fslands um kaup og kjör flug-
liða á þeim þotum, sem Loftleið-
ir kunna að taka í notkun í fram-
tíðinni. Er þetta þriggja ára samn
ingur, sem veitir flugstjórum lág-
markskaup 65—105 þúsund krón-
ur á mánuði og 5% kauphækkun
Ivisvar á samningstímabilinu.
Frá þessu segir í fréttatilkynn
ingu, sem blaðinu barst í dag frá
Loftleiðum, og fer hún hér á
eftir:
„Stjórn Loftleiða h.f. stefnir að
því að end-urnýja flugflota félags-
ins með leigu á þoturn í stað Rolls
Royce-flugvélanna, sem Loftleiðir
nota nú til áætlunarflugferða yfir
Norður-Atlantsihafið. Enn er ekki
ijóst, hvenær af þessari breytingu
á flu.gkosti félagsins gæti orðið.
Vegna þessa og annarra mögu-
leika á þoturekstri á vegum félags
ins taldi stjórn Loftleiða tíma-
bært að veita flugiiðum félagsins
þotuþjálfun, og hafa verið gerðir
um það samningar að 20 fluglið-
ar, flugstjórar, aðstoðarflugmenn
og flugvélstjórar Loftleiða, hefji
nú þegar nóm í þotuflugi hjó
Eastern Airlines í Miami í Banda
ríkjunum.
í dag var gengið frá Kjarasamn-
ingi milli Loft'.eiða h.f. annars
vegar og F'élags íslenzikra atvinnu
flugmanna og sfjórnar og trúnað-
armannaráðs flugvirkjafélagsins
(FFVÍ) hins vegar, um kaup og
kjör flugliða miðað við þotuflug
félagsins í framtíðinni.
Samningurinn gildir til þriggja
ára og er óupipsegjaniegur á því
tímabili. Umsamið kaup flugstjóra
yrði frá kr. 65.000,00 á mánuði
fyrir flugstjóra á fyrsta ári, til
kr. 105.000,00 fyrir flugstjóra á
25. ári. Kaup aðstoðarflugmanna
yrði kr. 47.000,00 á mánuði á fyrsta
ári, en hiámarkskaup eftir 10 ára
starf kr. 63.000,00 á mánuði. Eru
nú innifaldar allt að 80 flugstund
ir á mánuði í kaupinu í stað 65
stunda áður.
Þá kveður samningurinn á um,
að kaup flugliða, sem hann tekur
tii, hækki uim 5% eftir 12 mán-
uði af samningstímanum, og um
önnur 5% eftir 24 mánuði af samn
ingstímanum.
Taiki LoftXeiðir i þjónustu sína
þotu af gerðinni DC-8-63. — sem
tefcur 250 farþega — er ennfrem-
ur fyrirfram samið um 5% kaup-
hœfekun, ef til þess kemur að haf-
ið verði flug með þotu af þeirri
gerð.“
SKB-Reykjavík, þriðjudag.
í dag var á dagskrá neðri deild
ar Alþingis frumvarp til laga um
heimild til handa Kvennaskólan-
um í Reykjavík til að brautskrá
stúdenta. Birgir Kjaran framsögu
maður meiri hluta menntamála-
nefndar sagði m.a. að frumvarp
þetta hafi verið flutt á síðasta
þingi af menntamálanefnd, en hafi
þá ekki hlotið fullnaðarafgreiðslu.
Menntamálaráðherra liafi nú árétt
að óskir sínar um að taka málið
upp að nýju. Nefndin hafi talið
nauðsynlegt að fá álitsgerð frá
stjórn skólans um þetta mál. Hafi
þar verið innt eftir liúsnæðismál-
um skólans og hafi stjórn skólans
álitið þau fullnægjandi a. m. k.
næstu tvö ár, þótt þessi viðbót
yrði.
Sagði Birgir Kjaran, að máJinu
allvel athuguðu, legði meiri hluti
nefndarinnar því til að frumvarp-
ið yrði samþykkt óbreytt.
Magnús Kjartansson sagðist vera
andivígur þessu frumvarpi. Hann
teldi það ranga stefnu áð skipa
ungu fóiki saman til stúdents-
náms eftir kynferði. Hann teldi
það einkennileg vinnubrögð að láta
nefnd flytja málið aftur og aftur,
en gera í eng> grein fyrir mikiX-
vægi þess. Stjórnleysi í þessum
mikiisverðu miálum verði að linna.
Marka verði heiidarsfefnu í mennta
málum. Sagði Magnús að hús
Kvennaskólans hefði verið byggt
1909 og væri því fyrir löngu orðið
ófullnægjandi fyrir þá starfsemi
sem þar væri rekin nú. Ef nú
ætti að fara að bæta við einni
deiid til að brautsferá stúdínur, þá
væri fyrirsjóanlegt að byggja yrði
skólabús fyrir tugi miiijóna.
Augljóst væri einnig að hug-
myndin um stúdentsnám í Kvenna
skóianum bryti algjörlega í hága
við áform þau um nýskipan mennta
skólanáms, sem væntaniega yrði
lögfest á þessu þingi. Einnig
mætti benda á að alilir skóiastjór-
ar menntaskólanna i landinu, fyrr-
verandi rektor Háskóla ísiands og
skólasfjóri Kennaraskólans hefðu
lýst sig andvíga þessari hugmynd.
Einnig geri stofnun menntaskól-
ans við Tjörnina það enm fráleit-
ara að veita Kvennaskólanum þessi
réttindi. Af þessum ástæður legði
hann til að frumvarpið yrði feilt.
Björn Fálsson tók einnig til
rnóiis og tók mjög í sama streng.
Síðan var nafnakail um fyrstu
grein frumvai'psins, en hún er á
þessa ieið: Heimilt er að veita
Kvennasfeólanum í Reykjavík rétt
til þess að starfræfeja menntadeild
fyrir stúlkur. Lokapróf úr mennta
deild er stúdentspróf, og veitir
það réttindi til inngöngu ' Há-
skóla íslands með þeim takmörk-
unum, sem settar eru í lögum
hans og reg’ugerð.
Námskröfur til stúdentsprófs frá
Kvennaskólanum skulu sambæri-
legar kröfum tii stúdentsprófs
menntaskólanna, samikvæmt því
sem nánar verður ákveðið í reglu
gerð.
Þessi grein var samþykkt með
26 atikv. gegn 9, að viðlhöfðu
nafinaballi. 5 voru fjarverandi.
Var síðan samþykkt að vísa m-ái
inu til þriðju umræðu.
Þorrablót í Kópavogi :
Þorrablót Framsóknarfélag-.
anna í Kópavogi verður í Félags--
heimili Kópavogs, laugardaginn
24. janúar. Þorrablótið verður í,
efri sal félagsheimilisins og hefst
með borðhaldi kl. 10.30. Á borð- ■
um verður hinn landskunni þorra- ’
matur Sveinbjörns Péturssonar.,
Góð skemmtiatriði, söngur og
dans. Aðgangur 350 krónur. Miða-,
pantanir í símum 4 11 31 og 40656. •
Nefndin. '
Framhaldsaðalfundur ;
Fulltrúaráðs Framsókn
arfélaganna í Rvk
Framhaldsaðalfundur Fuí!-'
trúaráðs Framsóknarfélag-.
anna í Reykjavík, verður í |
Framsóknarhúsinu við Frí- *
kirkjuveg, fimmtudaginn 22.'
janúar, og hefs hann kl. 20,30
— Verður þar gengið frá
reglum um prófkjör og skoð-
anakannanir og kjörin upp-
stillingarnefnd Fulltrúaráðs-
ins.
mmm
MALFLUTNINGIIMORÐMALINU L0KIÐ
VERDUR SVBNBJ. DÆMDUR Á LÍKUM?
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Málflutningi i máli Svein-
björns Gíslasonar, leigubflstj.
sem ákærður er fyrir að hafa
mytt Gunnar Tryggvason, leigu
bflstjóra, lauk laust fyrir kl.
sjö í kvöld, og var málið lagt
í dóm. Sækjandi málsins, Hall
varður Einvarðsson, aðalfuil-
trúi saksóknara ríkisins, lauk
sóknarræðu sinni kl. 11,30 í
morgun. Telur hann ákærða
sekan um morðið og krefst
þyngstu refsingar. Verjandi,
Björn Sveinbjömsson, hæsta-
réttarlögmaður, krefst þess að
Sveinhjörn verði sýknaður af
ákærunni og til vara að hann
verði aðeins sekur fundinn um
élöglega meðfcrð skotvopna.
Sækjandi héXt áfram sóknar-
ræðu sinni í morg-un, en réttar-
höldin hófust kl. 10 árdegis.
Hélt hann áfram þar sem frá
var horfið kvöldið áður og
ræddi um byssueign Svein-
björns og meðferð hans á byss
unni, sem sannað þykir að sé
morðvopnið og að hann hafi
leynt henni fyrir lögreglunni,
þótt hann hafi vitað að hann
hefði morðvopnið undir hönd-
um. Taldi hann að allt háttar-
lag hans i sambandi við það
mál væri svo grunsamXegt, og
líkurnar svo sterkar fyrir því
að hann hafi frarnið morðið,
að jafngilti sönnun.
Eins og kornið hefur fram
hafði Sveinbjörn tvær skamm-
byssur undir höndum árið 1966
Hafði hann keypt aðra þeirra
af tiltefenum manni. Er sú
byssa af Mauser gerð, en hana
seldi Sveinbjörn árið 1966. Þá
hafði hann einnig undir hönd-
um Skammbyssu af gerðinni
Smith & Wesson, en hann hef-
ur játað að hafa tefeið þá byssu
ófrjálsri hendi á heimili Jó-
hannesar Jósefssonar; Er sú
byssa m-orðvopnið. Á heimiii
Sveinbjörns fundust tvö skamm
byssuskot. Er annað cal. 35, en
það er sú stærð sem passar í
morðvopnið. Við athugun kom
í ljós að byssan var hlaðin
sams konar skotu-m, þegar h-ún
fannst í geymsluhólfi í bíl
Svejnbjörns í janúarmánuði
1969
.Skothylki það, sem skotið var
úr þegar Gunnar var myrtur,
fannst á gólfi báls hans. Það
vakti athy-gli rannsóknarlög-
reglumanna, að á botni skot-
hylkisins voru för eftir tvo
byssupinna, annað á miðju en
hitt rétt utan við miðjuna. Á
botni 35 cal. skothylkisins sem
fannst heim-a hjá Sveinbirni,
fannst sams konar far og það
se-m var utan við miðj-u sfcot-
hylkisins, sem fannst í bílnum.
Sonur Sveinbjörns o-g tveir
kunningjar hans hafa borið við
yfirheyrsXur, að þeir hafi fyrir
nokkrum árum, eða þegar þeir
voru um fermingaraldur, tekið
Mauser-byssuna ófrjálsri hendi
á heimili Sveinbjörns og skot,
og reynt að skjóta úr skarnm-
byssunni. Skotin pöss-uðu efcki í
þeim tíkki að sfcjóta nema sum-
um skotunum, önnur sprungu
ekki. Benti satíkjandi á að farið
utan við miðju s'kothylkjaibotn-
anna væru eftir þessar tilraun-
ir drengjanna. Rannsóknarlög-
reglu-menn reyndu einnig að
skjóta skoti af sömu stærð úr
Ma-user-byssunni. Skotið sprakk
ekki, en far myndaðist utan við
miðju skothylkis-botnsins eftir
pinnann.
Farið var með þessi gögn til
FBI í Bandaríkjunum til að fá
úr þvi skorið að förin utan við
miðju botnanna væru eftir pinn
ann úr Mauser-byssunni. Sér-
fræðingarFBI gátu ekki skorið
úr um þetta atriði svo óyggj-
andi væri. Sækjandi taldi að
Framhald á bls. 14. .■