Tíminn - 19.02.1970, Page 7
FIMMTUDAOUR 19. febrúar 1970.
TIMINN
?
AVÍÐOGDREIF
Óhæft og skipulags-
laust bankakerfi
Ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar a'ð láta bankastjóra við-
skiptabankanna skipa fratm-
kvæmdastjórn Norræna i'ðnþró-
unarsjóðsins er að vísu alveg
fráleit út frá almennum sjón-
armiðum um að hlaða ekki í
sífellu nýjum og nýjum störf-
um og aukasporslum á embætt.
ismenn, sem þegar hafa í of-
mörgu að snúast og hafa ekki
einu sinni aðstöðu til aö sinna
aðalverkefnunum sínum sem
skyldi. En þegar staðreyndim
ar um skipulagið eða réttara
sagt skipulagsleysið og ringul-
reiðina, sem ríkir í okkar fjár-
mála og bankakerfi eru hafðar
i huga, er þessi ákvörðun rík-
isstjórnaiinnar ails ekki glóru
Iausar. í þessari fyrirætlan rík-
isstjórnarinnar felst nefnilega
játning um handahófið og
ringulreiðinai sem ríkir í útlán-
um bankakerfisins. Þetta er í
rauninni viðurkenning á því, að
núverandi skipulag f jármála- og
bankakerfisins sé óhæft og úr.
bóta sé þörf.
Með því að safna bankastjór-
um allra bankanna saman á
einn stað í framkvæmdastjórn
Iðnþróunarsjóðsins er viður-
kennd sú staðreynd, að heildar-
stefnu og samræmd vinnubrögð
milli bankanna vantar. Það er
ekki unnt að gera úttekt og
samræma lánveitingar banka-
og peningastofnana til einstakra
fyrirtækja, nema hinum fjöl-
mörgu — og óþarflega mörgu
— þráðum sé safnað saman í
eina hendi. Einn hankinn veit
nefnilega nú mjög takmarkað
um það hvað hinn er að gera
fyrir einstök fyrirtæki. Loks nú
er þetta játað.
Heildarstjórn
Það er raunar gert í verki
með því að hæta emi einu appa
ratinu við í hið flókna og óhæfa
opinbera lánakerfi. Framhaldið
ætti hins vegar að vera að gjör
breyta bankakerfinu, fækka
bönkunum og sameina opinbera
fjárfestingarsjóði undir einni
heildarstjórn og taka síðan upp
glöggtvari verkaskiptingu á milli
allra sjálfstæðra dcilda og vís-
indalega og skipulagslega at-
hugun á arðsemi fjárfestingar
í atvinnulífinu.
Bönkunum hefur stöðugt ver.
ið að fjölga og ráðagerðir eru
nú um að stofna enn einn nýj-
an. Bankatkerfi ríkisins, þrír
sjálfstæðir bankar að ógleymd-
um Seðlabankanum, — sem er
að verða aða'l f járfestingarbank
inn auk miðbankahlutverksins,
— hefur í sífellu verið að þenj
ast út og verða umfangsmeira.
En ekki hefur ki’ónunum fjölg-
að við það. Kostnaðurinn við
að dreifa þeim hlýtur hins veg-
ar að hafa farið stórvaxandi.
Þetta umfangsmikla og dýra
bankakerfi hinnar 200 þúsund
manna þjóðar veitir atvinnu-
vegunum fyrirgreiðslu, sem er
langt að baki þeirri þjónustu,
sem bankar t. d. í samkepp.ús-
löndum okkar veita sínum at-
vinnuvegun-. Fjármagnsskort.
ur er mesta og a’varlegasta
meinsemdin í okkar atvinnulífi
og hún virðist hafa farið versn-
andi í sama hlutfalli og út-
þensla' bankakerfisins.
Engin heildarstjóm, sem
Ieggur megin línur í útlánum,
ríkir í bankakerfinu. Verka-
skipting er mjög ófullkomin og
skrýtin milli viðskiptabankanna
þriggja, sem ríkið rekur. Þeir
eru allir að vafsast í öllu, enda
í harðri samkeppni sín á milli
um innlánin, um spariféð. Lítil
fyrirtæki og stór eru kannski
með viðskipti við þá alla og
virðist það vera eitt neýðarúr-
ræðið til að reyna að draga úr
rekstrarfjárskorti fyrirtækisins.
En vegna þess að engin eða
takmörkuð verkaskipting á sér
stað verða þetta eins konar
smáskammtalækningar og tími
bæði bankastjóra og forstöðu-
manna fyrirtækja fer til ónýtis.
Óhæf aðstaða
bankastjóra
Bankastjórarnir, sem eru í
rauninni eins konar skömmtun
arstjórar og miklu skiptir fyrir
heill alls þjóðfélagsins að tak-
ist vel í starfi sínu geta ekki
sinnt verkefnum sínum sem
skyldi, sem er að kynnast at-
vinnulífinu og einstökum fyrir
tækjum til hlítar og ofan í
kjölinn — þörfu,. þeiira og
rekstri og raunvei-ulega leggja
á ráðin um skynsamlegri og
hagkvæmari rekstur og aðstoða
við að koma honum á. Forstöðu
menn fyrirtækja eyða dýrmæt
um tíma sínum á biðstofum
eins bankans eft;r annan hjá
bankastjórum, sem hafa raun
ar ekki aðstöðu til að meta
beiðnir þeirra af skynsemi. Ég
efast ekkert um það, að banka-
stjórar séu yfirleitt greindir
menn sem vilja vel. Ei kerfið
er þannig að það er ógerlegt
að komast inn í málin til hlít-
ar vegna þess að verkaskipting
in er svo takmörkuð. Við þess
ar aðstæður mikillar eftirspurn
ar en takmarkaðs framboðs
fjármagns, hafa flestir banka-
stjórarnir teki upp þá gull
vægu reglu að deila alltaf með
tveimur, -;tundum með þrem.
ur, þegar fjármagn bankanna
er í lágmarki, þ. e. a. s.
þegar þeir ekki segja nei, sem
er þeim tamt orð í munni. Það
skiptir engu þótt það sé stað-
reynd, að upphæðin sem beð-
ið var um hefði tryggt rekstur
fyrirtækisins til alllangrar
frambúðar en helmingi lægri
upphæð slé vandanum aðeins á
freat í bili, og vandinn kemur
u; aftur í enn magi.aði mynd.
Þetta bitnar ekki síður á laun-
þegunum en eigendum atvinnu
fyrirtækjanna, því að báðir
eiga allt sitt undir því að at-
vinnufyrirtækin geti gengið
sem bezt.
Sægur sjóða
En það cr kannski vegna
þess að bankaJ.irfið hefur
reynzt óhæft til a' sinna þörf-
um atvinnulífsins, sem gripið
hefur verið til þess ráðs að
>fna til æ fleiri oi'inhena
s.'óða til a@ sinna einstökum
þörfum !iass. Út af fyrir sig
má segja að þessum sjóðum
hafi öllun verið mörkuð þörf
verkefni að sinna. Ef teknir
eru til athugunar t. d. nokkrir
þeir sjóðir, sem sérstaklcga
eiga að styðja við sjávarútveg-
og fiskiðju með ciuum eða öðr-
uin hætti má nefna Fiskimála
sjóð, Fiskveiðasjóð, Stofnlána-
deild sjávarútvegsins, Atvinnu-
jöfnunarsjóð, Framkvæmdasjóð
og nú síðast AtvinnUmálasjóð
með öllu því apparati, sem með
honum var sett á fót, að ó-
gleymdum öflugasta sjóðnum
Atvinnuleysistryggingasj. All-
ir þessir sjóðir hafa sérstakar
stjórnir og sjálfstæða starf-
semi. Þeir eru þó ailir meira
og minna að vinna að sömu
verkefnunum eða svo skyldum
verkefnum og tengdum, að
þau verða alls ekki slitin hvert
frá öðru ef vel á að takast að
leysa þau.
Frá Pontíusi
til Pííatusar —
Menn þurfa svo að ganga
á milli þessara mörgu sjóða
og herja út fjárhæð á hverjum
stað, gjarnan með hjálp póli-
tískra samherja. Hins vegar fer
engin skipuleg starfsemi svo
heitið gcti fram hjá þcssum
sjóðum, ekki neinum þeirra
fremur en bankakerfinu, er
snertir mat á arðsemi fjárfest-
inga í atvinnulífinu og engin
heildarmynd er dregin upp af
hagkvæmni fjárfestinga, hvað
eiga að sitja í fvrirrúmi og
hvað megi helzt bíða, svo sem
vera þyrfti þar sem um
hreina skömmtunarstarfsemi á
fjármagni þjóðarinnar cr þarna
að ræða. Þa® er handahnfið og
oft pólitísk skringilegheit sem
ráða. Og það er betta handa-
hóf o0 þessi skii-ilagslausi of-
vöxtur og fjarstæðukennda
skipting eða dreifing verkefn-
a'iina, sem er orðið einkenni
hins opinbera lánakcrfis. Og
þrátt fyrir liina mörgu og sí
fjölgandi sjóði vantar þó enn
þær lánveitingar, sem mest ríð
ur á, en það er sérstök lána-
starfsemi til framlciðniaukning
ar. Okkur getur aldrei farnast
vel ef við tökum ekki upp skyn
samlegt og skipulegt mat
á arðsemi lánveitinga og fjár
festingar. Við höfum takmark-
að fjármagn og án skipulags
mun okkur ekki takast að
ávaxta það með árangsrík-
uni hætti í atvinnulífinu.
Ég tel persónulega að við
verðum að komr, öllum ríkis-
bönkunum nndir eina ábyrga
stjórn, en taka jafnframt upp
skýra verkaskiptingu milli sjálf
stæðra deilda í bönkunum. Við
eigum jafnframt að sameina
hlna mörgu sjóði og taka upp
skipulega og árangsríka starf
semi um mat á arðsemi útlána
og fjárfestingar og draga meg
inlínur, sem allt peninga- og
fjármálakerfið í lan 'inu verð-
ur að lúta og stefna markvisst
að aukjnni framleiðni. Svo ciga
stjórnvöld að beita öllum öðr-
um hugsanlegum ráðum jafn
framt til að stuðla að því að
þau markmið sem stefnt er að
náist. — T. K.
FINNSK ÚRVALS VARA
Athugið að gera góð kaup áður en söluskattur-
inn hækkar.
Kæliskápar
Frystikistur
SOKKA-
Heildverzlun: ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. H.F.
Sími 18700.
150 L kr. 13.200,00 *
240 L kr. 19.200,00 Kæliborð
Kælihillur
Djúpfrystar
fyrir verzlanir.
H. G. GUÐJÓNSSON & CO.
Umboðs- og heildverzlun, Stigahlíð 45—47.
Sími 37637
LIV eru
ótrúlega
endingargóðar.
Þær fást víða
í tízkiulit og
þremur stærðuim.
Reynið þessar
tegundir og
þér miunið
komast að raiun
um framúnskar-
andi vörugæði.
20 den LIV
kosta aðeins
kr. 116,20.
30 den LIV
kosta
kr. 134,60.
270 L kr. 23.850,00
350 L kr. 31.500,00
550 L kr. 39.500,00
VEIZLUR - HÁBÆR
Getum nú tekið pantanir á veizlum inni og einnig
hinum vinsælu garðveizlum
Pantið fermingarveizlumar í tíma.
Skólavörðustíg 45.
Símar 21360 og 20485.
HÁBÆR