Morgunblaðið - 17.10.2005, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Vörusýning í Kína
Get bætt á mig verkefnum á Canton Fair,
stærstu vörusýningu á útflutningsvörum Kína
sem haldin er í seinni hluta október. Áhuga-
samir hafi samband á einarrm@gmail.com.
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði
Karl í s. 892 0160
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur KTÍ
Boðað er til aðalfundar Kælitæknifélags Íslands
þriðjudaginn 18. október 2005. Fundurinn verð-
ur á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38,
kl. 19:30.
Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum Kæli-
tæknifélags Íslands.
Tvær kynningar verða að aðalfundarstörfum
loknum.
1. Stöðugleiki við geymslu og flutning frosinna
matvæla
- hitasveiflur og rekjanleiki.
Kynning: Sigurjón Arason. Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins.
2. Rakavandamál í frystigeymslum og lausnir.
Kynning: Sigurður J. Bergsson Kælitækni hf.
Stjórn Kælitæknifélags Íslands.
Kennsla
Námskeið og próf
til réttinda leigumiðlunar
Námskeið til réttinda leigumiðlunar verður
haldið dagana 31. október, 2. og 4. nóvember
nk., kl. 17:00-19:00 og próf 12. nóvember nk.
Námskeið og próf er haldið samkvæmt húsa-
leigulögum nr. 36/1994 og reglugerð um leigu-
miðlun nr. 675/1994 og kostar kr. 30.000.
Þátttöku ber að tilkynna til Endurmenntunar
Háskóla Íslands, sími 525 4444, fyrir 25. október
nk. Fyrirvari er gerður um næga þátttöku.
Prófnefnd leigumiðlara.
Til sölu
Nýleg skrifstofu-
húsgögn til sölu
5 stk. skrifstofuborð m/hliðarborði.
5 stk. skrifstofustólar.
20 stk. hilluskápar með/án hurða.
3 stk. lágir skápar undir skrifborð.
1 stk. móttökuborð.
10 stk. stólar.
Fullbúið símkerfi
og margt fleira.
Tilboð óskast í ofangreind í hús-
gögn
í heilu lagi.
Til sýnis og sölu í Austurstræti 16,
4. hæð.
Upplýsingar í síma 892 0160.
Fasteignafélgið Kirkjuhvoll.
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um nýtt
deiliskipulag og breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru
hér með auglýstar tillögur að nýju og breyttu
deiliskipulagi í Reykjavík.
Fossaleynir, Egilshöll.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi við
Fossaleyni, Egilshöll.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. stækkun lóðar úr
47.172 m2 í 94.000 m2, göngustígur færist
norður, akfær göngustígur kringum lóðina
færist til, gert verður ráð fyrir hringtorgi á
Víkurvegi með nýrri viðbótar aðkomu að
lóðinni, fyrirkomulagi bílastæða á lóð er breytt
og stæðum fjölgað og mön við vesturmörk
lóðar færist út fyrir lóðarmörk.
Einnig er gert ráð fyrir að byggingarreitir
stækki og þeim fjölgað. Byggt verður kvik-
myndahús, hús fyrir innigolf, geymslubygg-
ingar og gert ráð fyrir afgirtum sparkvöllum og
gervigrasvelli í fullri stærð.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Borgartún 32.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Borgartún 32.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að stækka bygg-
ingu að Borgartúni 32 með viðbyggingu til
vesturs, 314 m2 að grunnfleti, núverandi þak-
hæð verði rifin og byggð ein hæð , 597.3 m2 og
byggð verði inndregin þakhæð, samtals 602
m2, sem tengir saman núverandi byggingu og
viðbyggingu. Fullbyggt verður húsið 7 hæðir
með inndregnu þakhæðinni.
Einnig verður gert ráð fyrir að byggð verði
bílgeymsla austan og sunnan við núverandi
byggingu undir opnum bifreiðastæðum götu-
hæðar sem ná að Kringlumýrarbraut til austurs.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
8:20 – 16:15, frá 17. október til og með 28.
nóvember 2005. Einnig má sjá tillögurnar á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru
þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum
og athugasemdum við tillögurnar skal skila
skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipu-
lagsfulltrúa) eigi síðar en 28. nóvember 2005.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 17. október 2005
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Húsafriðunarnefnd ríkisins
auglýsir eftir umsóknum til Húsafriðunarsjóðs,
vegna endurbóta á friðuðum eða varðveislu-
verðum húsum.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar
vegna:
1. Undirbúnings framkvæmda, áætlanagerðar
og tæknilegrar ráðgjafar.
2. Framkvæmda til viðhalds og endurbóta.
Ennfremur eru veittir styrkir til húsakannanna,
byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu þeirra.
Styrkvetingin er háð því að farið sé eftir þeim
upplýsingum og áætlunum sem Húsafriðunar-
nefnd ríkisins samþykkir.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. desem-
ber 2005 til Húsafriðunarnefndar ríkisins, Suð-
urgötu 39, 101 Reykjavík, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást. Eyðublöðin verða póst-
lögð til þeirra sem þess óska. Einnig er hægt
að nálgast eyðublöðin á heimasíðu Húsafrið-
unarnefndar, www.husafridun.is .
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 570 1300
milli kl. 10.30 og 12.00 virka daga.
Húsafriðunarnefnd ríkisins.
Félagslíf
MÍMIR 6005101719 III
HEKLA 6005101719 IV/V
I.O.O.F. 19 18610178
I.O.O.F. 10 18610178 O.*
BORIST hefur eftirfarandi yfirlýs-
ing frá Sambandi íslenskra mynd-
listarmanna:
„Samband íslenskra myndlistar-
manna vill lýsa undrun sinni á um-
fjöllun um myndlist í Kastljósþætti
mánudagskvöldið 3.október síðast-
liðinn.
Umsjónarmaður þáttarins, Sig-
mundur Gunnlaugsson, gerði sig
þar vísan um vanþekkingu og rugl-
aði gróflega saman hugtökum um
myndlist samtímans.
Tilviljanakennd dæmi sem hann
nefndi um myndlist, sem sam-
kvæmt honum snýst helst um lík-
amsúrgang og óhreinindi, lýsa
bæði einkennilegum hugsunar-
hætti og miklum fordómum gagn-
vart greininni.
Það er miður að fréttastofa fjöl-
miðils með göfug markmið um
upplýsingaskyldu og menningar-
hlutverk skuli ekki geta fjallað af
meiri dýpt um listalífið í landinu.
Óupplýst sjónarhorn umsjónar-
manns Kastljóssins gerir ekki ann-
að en afbaka hugmyndir áhorfenda
RÚV um þá gróskumiklu sköpun
sem á sér stað í myndlist samtím-
ans.
Aðsókn er ekki eini mælikvarð-
inn á gæði og mikilvægi mynd-
listar.
Myndlist er ekki undirgrein
skemmtanaiðnaðarins, heldur
sjálfstæð listgrein sem fjölmargir
leggja stund á og enn fleiri hafa
áhuga á.“
Yfirlýsing frá Sambandi
íslenskra myndlistarmanna
RÚMLEGA þrjú þúsund manns hafa
hringt í söfnunarsíma Rauða krossins
undanfarna daga til að gefa fé í söfn-
un vegna hörmunganna í Pakistan.
Í fréttatilkynningu frá Rauða
krossinum segir að almenningur hafi
tekið vel í söfnunina og að eins hafi
ríkisstjórn Íslands ákveðið að leggja
fram rúmlega 9 milljónir króna til
hjálparstarfsins.
Alþjóða Rauði krossinn sendi út al-
þjóðlega neyðarbeiðni upp á um 100
milljónir svissneskra franka, eða um
fimm milljarða króna, til hjálpar-
starfsins. Féð verður notað til að að-
stoða 150.000 fjölskyldur eða um
750.000 manns, sem voru fórnarlömb
jarðskjálftans síðastliðinn laugardag
sem náði til norðurhluta Pakistans,
Indlands og Afghanistans.
Pakistanski Rauði hálfmáninn
heldur áfram að koma neyðargögnum
til svæða sem verst hafa orðið illa úti.
Rauði hálfmáninn hefur sent fleiri
tugi læknateyma á skjálftasvæðin.
Blóðbanki pakistanska Rauða hálf-
mánans sér um að útvega blóð fyrir
spítala og heilsugæslustöðvar.
Þrettán milljónir hafa
safnast fyrir Pakistan