Morgunblaðið - 17.10.2005, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 31
DAGBÓK
Ránið
hefur fengið
frábærar
móttökur
íslenskra
lesenda
og hér
bætist við
ein ný
viðurkenning
w w w. f r u m . i s
Tilnefnd á heiðurslis
ta IBBY
Frum
Innköllun skuldabréfaflokks
Sparisjóðabanka Íslands nr. SPB01
Sparisjóðabanki Íslands hf., kt. 681086-1379,
Rauðarárstíg 27, 105 Reykjavík, hefur ákveðið að nýta sér
heimild til innköllunar allra víkjandi skuldabréfa í
skuldabréfaflokki bankans númer SPB01.
Samkvæmt ákvæðum skuldabréfa í skuldabréfaflokknum
er innköllunin birt a.m.k. þremur mánuðum fyrir
vaxtagjalddaga 26. janúar 2006. Skuldin verður greidd í
samræmi við ákvæði skuldabréfaflokksins.
Greiðslustaður skuldabréfanna er hjá Sparisjóðabankanum,
Rauðarárstíg 27, 105 Reykjavík.
Að öðru leyti vísast til ákvæða skuldabréfa í
skuldabréfaflokknum.
Kór Flensborgarskólans hefur starfað í20 ár og fer ört stækkandi. Starfið erí miklum blóma, kórinn tók þátt ísterku kóramóti á Spáni í sumar og
um næstu helgi heldur hann glæsilega tónleika.
Í dag eru kórfélagar 65 talsins eða 10% nem-
enda skólans. Kórinn er blandaður og kynjahlut-
fallið jafnt, sem er óvenjulegt í ungmennakór.
Hrafnhildur Blomsterberg er stjórnandi kórsins
til margra ára.
„Fyrir 10 árum var þetta í raun sönghópur.
Skólinn hefur stækkað mikið á tímabilinu og
bæði nemendafjöldi og fjöldi kórfélaga stórauk-
ist. Við horfum björt til framtíðarinnar því nú er
verið að stækka byggingar skólans og við það
fáum við betri aðstöðu og enn fleiri nemendur.
Aðsóknin í inntökupróf kórsins hefur verið mjög
góð og komin er sterk hefð í skólanum fyrir
kórnum. Þetta er í raun orðin lítil stofnun innan
stofnunarinnar. Í kórnum er mikið félagslíf og
það hefur sýnt sig að vinátta krakkanna helst til
framtíðar.“
– Hvernig tónlist syngið þið?
„Hún er mjög fjölbreytt. Við syngjum ís-
lenska kórtónlist, erlenda tónlist, veraldleg og
kirkjuleg verk og svo framvegis. Einnig er tölu-
vert samið fyrir kórinn. Í sumar sungum við tvö
slík verk: Martröð eftir Hildigunni Rúnars-
dóttur, við texta hafnfirska ljóðskáldsins Arnar
Arnarsonar, og Rauða riddarann eftir Hreiðar
Inga Þorsteinsson. Á kóramótinu fluttum við hið
fræga verk Te Deum eftir Kodály, undir stjórn
Ungverjans Laszlo Heltay. Þetta var með öðr-
um kórum, samtals 400 manns, og með þessu
bæði einsöngvarar og sinfóníuhljómsveit. Það
var meiriháttar upplifun fyrir unga fólkið að fá
að vinna með jafnfæru fólki.“
– Hvernig er að stjórna skólakór?
„Það er náttúrlega ekkert yndislegra en að
geta sameinað starf og áhugamál og sérlega gef-
andi að stjórna ungmennakór. Ungt fólk í dag
er opið fyrir því að prófa það sem það þekkir
ekki og í tónlistinni kemur það jákvætt út. Með
því er hægt að kynna það fyrir svo mörgu. Ég
stjórna einnig Kvennakór Hafnarfjarðar og má
segja að það starf sé að mörgu leyti öðruvísi.
Þar þarf ég einfaldlega að hafa minna fyrir hlut-
unum. Unga fólkið er með alveg óskólaðar radd-
ir og þekkir þær lítið sem ekkert. Það er tilbúið
að opna sig þótt það hafi ekki sungið áður og
leyfa sér að prófa nýja hluti. Það er eins og
ómótaður leir.“
Tónleikarnir um næstu helgi eru í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði. Þeir byrja kl. 16 laugardag-
inn 23. október og miðaverð er 1.200 krónur.
Frítt er fyrir börn yngri en 12 ára og fyrir nem-
endur Flensborgarskólans. Á tónleikunum verð-
ur flutt sú dagskrá sem kórinn fór með til Spán-
ar í sumar.
Tónlist | Kór Flensborgarskólans flytur verk frá ferð sinni til Spánar
10% nemenda í skólakórnum
Hrafnhildur Blomst-
erberg er stjórnandi
Kórs Flensborgarskól-
ans. Hún stjórnaði
kórnum í fjögur ár
fram til ársins 1987
og tók aftur við stjórn
hans 1996. Hrafnhild-
ur er með meistara-
gráðu í kórstjórn frá
UCSB, Kaliforníuhá-
skóla í Santa Barbara,
og hefur stundað framhaldsnám í tónlist-
arfræðum. Áhugi hennar á kórstjórn kvikn-
aði í kór stórfjölskyldu hennar, Fjöl-
skyldukórnum. Hrafnhildur er gift Birgi
Finnbogasyni og saman eiga þau dæturnar
Valgerði og Hjördísi.
Einmanna vörn.
Norður
♠G92
♥10854
♦D7
♣ÁDG4
Vestur Austur
♠107654 ♠ÁK3
♥Á32 ♥7
♦KG65 ♦10983
♣9 ♣107532
Suður
♠D8
♥KDG96
♦Á42
♣K86
Eins og svo oft áður, urðu Ítalir
heimsmeistarar árið 1974, þá á heima-
velli í Feneyjum. En það var enginn
heimsmeistarabragur á vörn Ítala í
spilinu að ofan, sem er frá undan-
úrslitaleiknum gegn Brasilíu.
Suður varð sagnhafi í fjórum hjört-
um einfalda sagnröð:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Pietro Forquet hélt á spilum vesturs
og kom út með einspilið í laufi. Sagn-
hafi stakk upp ás og spilaði trompi,
sem Forquet tók strax og skipti yfir í ...
tígulkóng?!
Þetta er óskiljanlegt með allar hend-
ur uppi, en Forquet hafði svo sem
nokkur rök fyrir vörn sinni. Hann
hugsaði dæmið þannig: Það er því að-
eins rétt að spila spaða að austur sé
með ÁK, en ef makker á tígulás er
hægt að taka þar tvo slagi og fá stungu
í laufi. Og auðvitað eru meiri líkur á því
að félagi sé með eitt lykilspil (tígulás-
inn) en tvö (ÁK í spaða).
Kannski voru þetta gild rök á þess-
um tíma, en í dag þýddi ekki að bjóða
makker eða sveitarfélögum upp á slíkt
bull. Ef austur lætur lauftíu í fyrsta
slaginn, er það augljóst hliðarkall í
spaða og ætti að duga til að taka spilið
tvo niður. En treysti menn ekki full-
komlega á hliðarkallið í stöðunni, væri
einfalt að leita upplýsinga með því að
dúkka fyrsta hjartaslaginn og fá skýra
leiðsögn frá makker í næsta tromp. Þá
fer spilið reyndar aðeins einn niður, en
það er nóg í sveitakeppni.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O-O b5 6. Bb3 Be7 7. He1 d6 8. c3
O-O 9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12.
Rbd2 cxd4 13. cxd4 Hd8 14. d5 Bd7 15.
Rf1 Hdc8 16. Bd3 Rb7 17. Rg3 Rc5 18.
Bf1 b4 19. Rd2 g6 20. Rc4 Re8 21. Bd2
a5 22. Hc1 Db7 23. Kh2 Ra4 24. f4 exf4
25. Bxf4 Rb6 26. Df3 Rxc4 27. Bxc4 Bf6
28. b3 Be5 29. Bxe5 dxe5 30. Hf1 f6 31.
d6+ Kg7 32. Bd5 Bc6 33. Hxc6 Hxc6
34. Dg4 Db6 35. De6 Rxd6 36. Dxf6+
Kh6
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í St.
Vincent í Ítalíu. Nikola Djukic (2521)
hafði hvítt gegn Martin Taylor (2316).
37. Hf5! og svartur gafst upp enda
verður hann mát eftir 37... Rxf5 38.
Rxf5+ Kh5 39. g4#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Spilafíkn
ÞAÐ er vitað mál að spilafíkn er vax-
andi vandamál í því þjóðfélagi sem við
búum í í dag. Það eru tveir aðilar sem
mega reka spilakassa á Íslandi í dag.
Háskóli Íslands og Íslandsspil en síð-
ara félagið er rekstrarfélag þriggja
líknarfélaga en þau eru SÁÁ, RKÍ og
Landsbjörg sem njóta góðs af tekjum
Íslandsspils.
Það eru dæmi um að fólk sé að
missa allt sitt út af þessum söfn-
unarkössum. Heilu íbúðirnar farnar,
bílarnir farnir, hjón skilja, vantraust
og uppleystar fjölskyldur. Þetta eru
afleiðingar spilafíknar.
Það er mismunandi á hvaða stigi
spilafíkillinn er. Sjá nánar um spila-
fíkn í bók gefinni út af SÁÁ. En fyrst
spilafíkn er orðinn svona stór og mik-
ill vandi hér á landi, er þá ekki hægt
að koma einhverjum lögum á þessi fé-
lög sem standa að þessum söfn-
unarkössum og skylda þau til þess að
borga 5–6% af ágóðanum í hjálp fyrir
spilafíkla? Hagnaður þessara aðila er
gífurlegur. Mér er ekki kunnugt um
það hvað sá hagnaður er nákvæmlega
mikill en ég get leyft mér að fullyrða
það að hér sé um gífurlegar fjárhæðir
að ræða.
Af hverju eru þá þessi félög eins og
áður sagði ekki skyldug til þess að
borga vissa prósentu af hagnaðinum í
aðstoð og rannsóknir við spilafíkla og
á spilafíkn? Svo er annað, þessir söfn-
unarkassar eru í hverri einustu
sjoppu, hvernig væri að fækka þeim
og hafa þá á nokkrum stöðum á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem fólk myndi
þurfa að skrá sig inn og mætti bara
eyða ákveðinni upphæð í mánuði eins
og t.d. 1.000–3.000 kalli? Þetta væri
ágætisleið til þess að sporna gegn
spilafíkn. Ég er ekki að segja að það
eigi að banna söfnunarkassa, ég er að
segja að það eigi að auka eftirlit með
þessum aðilum, sjá í hvað tekjurnar
fara, koma með ákveðinn skatt sem
færi í rannsóknir og hjálp við spila-
fíkla og fækka söfnunarkössunum og
hafa aðgangsstýrt svæði með ákveð-
inni hámarksupphæð í mánuði sem
fólk gæti eytt. Ég hvet fólk til þess að
láta í sér heyra um þennan vanda því
spilafíkn er vandi sem er alls staðar á
Íslandi í dag og það þarf meiri opna
umræðu um þetta málefni.
Með kveðju.
Háskólanemi í Reykjavík.
Dýrainnflutningur
Innflutningur á kanínum hefur skap-
að vandamál hér á landi og nú er ver-
ið að flytja inn rottur sem eiga að
vera leikföng fyrir börn. Þetta býður
heim vandamálum.
Kristín.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
KRONOS kvartettinn sem heimsótti
okkur á Listahátíð 2002 heldur
áfram frægðarferð sinni um heim-
inn. Tónleikar kvartettsins í Barbic-
an listamiðstöðinni í London á dög-
unum hafa þó hlotið misjafna dóma,
en gestur tónleikanna var indverska
Bollywoodsöngkonan Asha Bhosle.
Um langt árabil hefur Bhosle sungið
sig inn í hjörtu Indverja í tugum, ef
ekki hundruðum kvikmynda fram-
leiddum í stærstu kvikmyndaborg
heims, Bombay. Bhosle sást þó ekki
á hvíta tjaldinu, – hún var bara
söngröddin fagra sem engin leik-
kona Bollywood gat jafnað.
Á tónleikunum voru verk R.D.
Burmans, látins eiginmanns Bhosle í
sviðsljósinu, en hann var eitt áhrifa-
mesta kvikmyndatónskáld Indverja.
Kronos kvartettinn er þekktur
fyrir samstarf sitt með tónlist-
armönnum víðs vegar úr veröldinni,
og á tónleikunum í Barbican lék
kvartettinn einnig lag Sigur Rósar,
Svefn-g-englar í útsetningu Steph-
ens Prutsmans, en samstarf Kronos
og Sigur-Rósar hófst á Listahátíð.
Gagnrýnandi Guardian segir
söng Bhosle hafa verið áhrifamik-
inn, en nokkuð hefði vantað upp á
að Kronos kvartettinn spilaði ind-
versku músíkina á sannfærandi
hátt.
Gagnrýnandi Independent er hins
vegar ánægðari með frammistöðu
Kronos, bæði í indversku bíómús-
íkinni og stöku lögunum, sem voru
auk Sigur-Rósar lagsins, frá Eþíóp-
íu og verk eftir Terry Riley. Gagn-
rýnandinn, Robert Maycock, sagði
að útsetning og flutningur Kronos á
Svefn-g-englum hefði risið í hæðir í
upphöfnum hátíðleika.
Tónlist | Kronos spilar Sigur-Rós og
Bollywoodmúsík í Barbican
Morgunblaðið/Golli
Kronos kvartettinn við Borgarleikhúsið á Listahátíð 2002.
Upphafinn hátíðleiki
Fréttir
í tölvupósti