Morgunblaðið - 17.10.2005, Page 36
36 MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Upplifðu stórkostlegustu
endurkomu allra tíma.
Óskarsverðlaunahafarnir Russell
Crowe og Renée Zellweger fara á
kostum í sterkustu mynd ársins.
Mynd eftir Ron Howard
(“A Beautiful Mind”).
TOPPMYNDIN Í USA
2 VIKUR Í RÖÐ
Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd
ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster.
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
TOPPMYNDIN Í USA
2 VIKUR Í RÖÐ
Spenntu beltin og undirbúðu þig
undir háspennumynd ársins með
Óskarsverðlaunahafanum
Jodie Foster.
Flight Plan kl. 5.50 - 8 - 10.15 b.i. 12 ára
Cinderella Man kl. 5.30 - 8.30 - 10.10 b.i. 14 ára
Must Love Dogs kl. 6 - 10
Charlie and the... kl. 5.45 - 8
Strákarnir Okkar kl. 8
Must love dogs kl. 6 - 10
KÓRINN
íslensk heimildarmynd
Sýnd kl. 8
Það er gaman að vera í kór!
Vinsælasta
myndin í
USA og á
BRETLANDI
Í dag.
V.J.V. TOPP5.IS
ROGER EBERT Kvikmyndir.com
H.J. / MBL
M.M.J. / Kvikmyndir.com
M.M.J. / Kvikmyndir.com
NÝ leikgerð Hrafnhildar Hagalín Guðmunds-
dóttur á Sölku Völku eftir Halldór Laxness var
frumsýnd hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Borg-
arleikhúsinu á laugardagskvöldið. Það er Ilm-
ur Kristjánsdóttir sem fer með titilhlutverkið í
sýningunni en leikstjóri er Edda Heiðrún
Backman.
Umsögn Maríu Kristjánsdóttur leiklist-
argagnrýnanda um uppfærsluna er á bls. 16 í
blaðinu í dag.
Morgunblaðið/Golli
Leikurum og aðstandendum sýningarinnar, með Eddu Heiðrúnu Backman leikstjóra fremsta í
flokki, klappað lof í lófa að frumsýningunni á Stóra sviði Borgarleikhússins lokinni.
Forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og
Dorrit Moussaieff, mættu til leiks og heilsa
hér upp á leikstjórann, Eddu Heiðrúnu.
Salka Valka
frumsýnd í Borg-
arleikhúsinu
Ilmur Kristjánsdóttir, sem leikur Sölku, og
Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir, höf-
undur leikgerðarinnar, gleðjast í leikslok.
NÝTT leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar,
Halldór í Hollywood, var frumsýnt á Stóra
sviði Þjóðleikhússins síðastliðið föstudags-
kvöld. Fjallar það, svo sem nafnið gefur til
kynna, um dvöl Halldórs Laxness í Banda-
ríkjunum á þriðja áratugi síðustu aldar. Leik-
stjóri sýningarinnar er Ágústa Skúladóttir en
Atli Rafn Sigurðarson fer með hlutverk Hall-
dórs.
Þorgeir Tryggvason, leiklistargagnrýnandi
Morgunblaðsins, sagði í umsögn sinni um sýn-
inguna í blaðinu í gær að hún væri góð
skemmtun og að Atli Rafn smellhitti línuna
milli skopgervingar og persónusköpunar og
finni ferska leið að þessum mest eftirhermda
manni Íslandssögunnar.
Morgunblaðið/Golli
Leikarar hylltir eftir frumsýningu. Atli Rafn Sigurðarson, sem leikur Halldór, er fyrir miðju.
Halldór í Holly-
wood frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu
Morgunblaðið/Golli
Höfundurinn og leikstjórinn, Ólafur Haukur
Símonarson og Ágústa Skúladóttir, voru
kampakát í leikslok á föstudagskvöldið.
Þrjár kynslóðir leikkvenna úr sömu fjölskyldu mættu á frumsýninguna, Tinna Hrafnsdóttir,
Herdís Þorvaldsdóttir og Tinna Gunnlaugsdóttir, sem nú ræður húsum í Þjóðleikhúsinu.