Tíminn - 05.04.1970, Blaðsíða 3
PBNNUDAGUR 5. aprfl 1970.
TÍMINN
3
Þriðja atriði
fyrsta þáttar
leikþáttur eftir John Lennon
Leikþáttur sá, sem hér fer á
eftir er ein frægasta ritsmfð
Johns Lennons (að undanskild
um textimum hans auðvitað).
Honum hefur nú verið breytt í
kvikmyndahandrit, svo að ef
til viJl getum við fengið að
sjá hann í kvikmyndahúsi eða
sjónvarpi einhvem daginn.
Myndin, sem fylgir leikþætt-
inum er Uka eftir John Lenn-
oru
(iLeiiksviðið)
Herðabreitt herbergi með
stórum ami, sem snýr að risa-
vöxnu'm iglugga. Gríðarlega
tröllaukið skrifborð á miðju
gólfi, þakið allskyns hellingis af
fjölmörgum viðskiptapappír
um í mikilli óreiðu til að sjá.
Þrír eða fjórir stólar snúa að
skrifborðmu. Einn er upptek-
inn (one are occupied), þar
sem ruddalegur verkamanns-
fantur situr í honum. Hann
hefur krók í stað handar á
öðrum handlegg og sveiflar
,honum ógnvekjandi en auð-
mjúklega í áttina að feitu kapí
talistasvíni, sem situr við
hinn enda borðsins. Hvítur
maður setur gætilega kol í eld-
inn og labbar síðan í áttina
að svimandi háum dyrum, sem
virðast liggja í allt aðra átt.
Köttur snyrtir sig í horninu
hjá eldinum, hleypur upp og
brosir allur á veggteppið. Ljós
mynd af Fieldmarcher Loud
Montgammery leysandi úr
vanbamáli (prodlem) horfir
niður á mennina tvo, en þeir
þola augnaráð hans illa.
Hundur nagar hljóðlega
dverg undir risaskrifborð-
inu. Klukkan er hálfpartinn
fjögur á gömlu Borgund-
arhólmsklufckunni hjá glugg-
anum.
Sá feiti: Klubkan er orðin hálf
fjögur. Froskmundur og menn
imir eru ekki komnir í verk-
fall. Hvers vegna getum við
ekki útkljáð þessi mál strax,
án þess að fara út í langar
verkalýðsumræður og ailt
þetta þras um hann pabba
þinn?
Ruddinn: Kvörzvegna reyn-
irðu ekki að halda kjafte, anz-
godans feduklessan þín, eða
ég sbarka aðér fésinö? Þeð
eröð aliir eins, þessir feidu
börgeisar — ládeð okkur
þræla tél dauða, herðið svo
kaubið okfcar og sdingið af til
Frakklanz í sömarfríinö.
Feita svínið (roðnar og fer
hjá sér): Já, en Froskmundur.
Þið vinnið ekki nema tvo tíma
á dag núna og þrjá daga í
viku og við töpum peningum
eins og er — svo siturðu
hérna kvartandi undan því að
skrúf-a þessar skrúfur og ég
er að reyna að hjálpa þér. Við
hefðum að vísu getað byggt
verksmiðjuna annars staðar,
þar sem fólk nennir að vinna
í henni, en almáttugur nei —
hérna eruni við styrktir af rífc-
inu og allt það.
Ruddinn: Kvörz vegna reyn-
irðu ekfci að halda fcjafte, anz-
godans feduklessna þín, eða
ég sbarka afðér fésinö? Þeð
eröð allir eins, þessir feidu
börgeisar — ládeð okkur
þræla tel dauða, herðið svo
kaubið okkar og sdingið af til
Frakklan2 í sömarfríinö.
(Inn kemur þeldökfcur kven
maður, syngjandi þeldöifckan
söng. Hún er með stóran pofca
á bakinu).
Mammy: Raniglar sál á bak við
Arnarhól.
Hálfur pottur er í beisku
blandi. . . (Hún skutlar pok-
anum hægra megin á skrif-
borðið).
Feiti karlinn- (óþolimnÖð-
ur): Æ, hvað er þetta mamimy,
sérðu ekki að ég er að ræða
vandamál við hann Frosk-
mund — og svo fcemur þú
hingað inn öll svört og syngj-
andi? Og komdu svo þessari
ruslahrúgu af skrifborðinu
mínu.
Mammy: Ókei. Kimu sahib
bwana, massa. (hún lyftir pok-
anum og étur hann). Tetta
war wirfcilega gott.
Fitukeppurinn: Nú jæja —
hvað var í pokanum mammy?
Mammy: Tað war hún dóttir
tín úr annad hjónaband með
Kimu Sahib.
Sá feiti (roðnar): En ég er
ekki giftur mammy gamla.
Mammy (lklappar höndum á
höfuð sér, skelfingu lostin):
Je minn. Tá hefur ég étid
lausaleiksbarn.
(Hún helypur nokki'a hringi
um henbergið, krossar sig og
syngur annað vers).
Ruddinn (stendur upp og set-
ur derhúfuna festulega á sig.
Hann labbar að dyrunum, snýr
sér í hálfhring, e;ns og þeir
gera í bíómyndunum og skek-
ur hnefann):
Komdu þessu kvendi úf úr
verksmiðjunni, áður en menn
irnir komast að þessu, annars
förum við í verkfall á stund-
inni. Ég segi þér þetta í eitt
rkipti fyrir neitt, rónahundur.
(hann labbar út úr herberg-
inu og sfcilur feitabolluna,
mammy og f jórtán lítil gyðinga
börn eftir. Þau syngja öí sam-
an — eins konar sálm).
Tjaldið fellur.
Úrslit í nýafstöðnum hljóm-
sveitakosningum.
Fyrir nokkru fóru fram
kosningar eða skoðamakönnun
um vinsælustu pop-hljómsveit-
ina innanlands og erlendis og
vinsælasta pop-hljómlistar-
manninn innanlands og erlend
is. Mér voi-u send úrslitin í
pósti — og ég þakka kærlega
fyrir. Það væri gamatn að fá
svona kosiiingaúrslit úr fleiri
skólum, ef þeír efna til svona
kosninga. Ef nægilega margir
skólar efna til svona kosninga
— og senda mér úrslitin, þá
gæti ég birt heildarúrslit —
sem nokkuð mark væri tak- ‘
andi á. En þá verða skólarn-
ir líka að skila mér úrslitun-
um fyrir 20. aprfl í síðasta
lagi.
En hér koma þá nrslitin í
Gagnfræðaskóla Austuibæjar.
Gunnar Þórðar: Númer 1.
Innlendatr hljómsveitir:
1. Trúbrot, 66 atkvæði.
2. Náttúra, 51 atkvæði
3. Óðmemi, 12 atkvæði
4. Sinfóníubljómsveit íslands,
7 atkvæðL
5. Roof Tops, 5 atkvæði.
Erlendar hljómsveitir:
L Beatles, 68 atkvæði
2. Led Zeppelin, 54 atkvæði
3. Jethro Tull, 19 atkvæði
4. Rolling Stones, 8 atkvæði
5. Ten Years After, 7 atkvæði
Innlendir hljómlistarmenn:
1. Gunnar Þórðarson, 53 at-
kvæði
2. Björgvin Gíslason, 48 at-
kvæði
3. Jónas Jónsson, 45 atkvæði
4. Rúnar Júlíusson, 14 atkvæði
5. Gunnar Jökull, 6 atkvæði
Erlendir Hljómlistarmenn:
1. Eric Clapton, 55 atkvæði
2. Bob Dylan, 32 atkvæði
3. John Lennon, 29 atkvæði
4. Jan ANDERSEN, 18 atkvæði
5. —6. Paul McCartney, 6 at-
bvæði
5.—C. Jack Binxce, 6 atkvæði
Kaflar úr bréfi frá þeirri, sem
kallar sig „Ég“.
Komdu sæll Þorsteinn.
Þú varst að minnast á frétt-
ir úr heimahögunum.
Eitthvað ætti ég nú að
muna.
í fyrradag drap pabbi leið-
inlega kálfinn sem alltaf
þambaði alla mjólkina frá hin
um kálfunum. Mikið varð ég
fengin. Og veiztu barasta hvað.
Anuna fékk svo mikla maga-
★★★★★ AFBRAGÐ
★★★★ MJÖG GOTT
★★★ GOTT
irk SÆMILEGT
★ SLÆMT
ÓÐMENN
Nýlega gáfu S.G. Hljómplöt-
ur út fyrstu tveggja laga
stereoplötuna á íslandi. Fyrir
valinu varð hljómsveitin Óð-
menn — og var það vel til
fundið, vegna þess að hljóm-
list þeirra er af því tagi, sem
maður hlustar á í þægilegu um-
hverfi með dempuðum ljósum
— gegrnun mjög góðar „stereo
græjur“. Lögin á plötunni
heita Spilltur heimur og
Komdu heim — og mun ég nú
freista þess að leggja persónu-
legt mat mitt á þau.
★★ Spilltur heimur. Lag-
línan er einföld, ódýr og afuð-
samin, en allur búningur lags-
ins er hinn vandaðasti og auð-
sjáanlega gerður af kunnáttu-
mönnum, þannig að útkoman
hefur tilætluð áhrif.
Annars er uppistaða þessa
lags textiim, sem auðsjáanlega
er samiim af miklum inn-
blæstri, enda hoU ádeila og
mjög góður texti frá efnislegu
sjónarmiði.
irk Komdu heim. Sölu-
legra lag og sölulegri texti.
Ódýr texti myndi ég segja,
ef ekki væri í honnm þetta
vissa dramatíska ívaf,
sem sumt fólk hugsar um með
viðbjóði og aðrir með lotn-
ingu.
Hér er músíkm látin
„fljúga“ til að undirstrika
þetta „dramatáska undirvaf"
og heUdarútkoman verðnr að
mínum dómi betri en í fyrra
laginu.
Hljóðfæraleikur, söngur,
upptaika og pressun er allt
fyrsta flokks. Að vísn hefur
Jóhann (söngvari, lagasmiður,
bassaleikar og textahöfundur)
Jóhannsson ekki mikla söng-
rödd, en hann kann að beita
henni að efninu og í tónlist
Óðmanna skiptir það mcstu
málL
Plöttrumslag er mjög prakt-
ískt, þar sem textarair eru
préntaðir innan í það.
Það má kannski geta þess
að platan var hljóðrituð í 01-
ympic Studios í London, en
það er eitt fuUlcomnastai
„stúdíó“ þar í borg og var
upptöku stjóraað af Derék
Wordsworth, sem meðal amt-
ars hefur stjórnað tónlistar- i
flutningnum í söngleiknnm
HAHt, svo sem frægt er orðið.
Þetta er sem sagt öndvegis-
plata, sem er fyrst og fremst
sniðin til að hlusta1 á í ein-
rúmi — eða tvö saman...
pínu (innanskömm), að það
þurfti að flytja hana tíl lækn-
is, en veiztu af hverju hún
varð veik?
Það var vegna þess að hún
hafði ékki þolað aUan rjóm-
ann og steikina og allt, sem hún
skóflaði í sig á sunnudaginn
var...
Og ef þú sernur textana fyr-
ir Trúbrot, þá vildi ég bara
segja þér það, að kýr beygist
svona: kýr, kú, kú, kýr.
Varðandi það, sem einhver
(man ekki hver) skrifaði um
það, að ekki ætti að skrifa lít-
inn staf af nöfnum fólks, þótt
manni væri Ula við það, þá
finnst mér bara að fólk sé
sjálfrátt um það og það kem-
ur engum við (nema málfræð-
ingum).
Eitt enn. Geturðu gcfið mér
ráð til að lækna þágufallssýki
og að venja fólk af leiðinleg-
um orðatiltækjum?
æja þá............ nú man
ég ekki fleiri fréttir,
,,ÉG“.
Mig hefur lerigi langað að
gera grein fyrir þcgsu með
kúna ha'ns Sigurjóns vestan af
fjörðum. Jú, það er að vísu
rétt, að ég samdi textann um
KONUÞJÓFINN við lag eftir
Gunnar Þórðarson, en ég sarndi
ekki formálann að laginu, þar
sem sagt er að söguhetjan
hafi átt „eina kýr“. Ég hefði
sagt „eina kú“ — eða „fjórar
kýr“.
Annars er mér sagt að þetta
með kúna sé viðskiptabreUa
hjá TRÚBROTI — svo að fólk
hafi eitthvað til að fjasa um.
Meðai við þágufaUssýki og
svoleiðis, já. . . Ég ætla að
bíða með það, þangað til á
sunnudaginn kemur.
Kæri þáttur.
TUefni þess, að ég pikka
þetta bréf, er, að ég settist nið
ur og fór að pæla í því, hvers
vegna svo sjaldan er getið um
hljómsveitir í þættinum sem
ekki koma fram í sjónvarpi og
útvarpi. Ég veit um eina sem
er alvég trufluð, og m.a. tóku
þeir það upp þó nokkuð á
undan John Lennon að láta
skera hár sitt. Þessi æðislega
hljómsveit er hljómsveitin
Benóný frá Hvanneyri.
AB lokum vil ég þakka þér
fyrir margt gott í þættinum,
sérstaklcga fyrir sögurnar
hans Johns Lennons.
P.s. Er Þorsteinn Eggerts-
son giftur?
Virðingarfyllst,
Pára.
Ég hef ekkert á móti því að
fá upplýsingar um hljómsveit-
ir utan af landi. Þvert á móti
— og ég er þér mjög þakklát-
ur fyrir upplýsingarnar um
Benóný frá Hvanneyri.
Það væri gaman að fá mynd
af þeim jinhverntíma — og
þá væri líka gaman að fá
myndir og upplýsingar um
hljómsveitir hvaðanæfa að af
landinu.
Framhald á 11. síðu