Tíminn - 07.05.1970, Qupperneq 1
101. tbl. — Fimmtudagur 7. maí 1970. — 54. árg.
IGNIS
HEimiUSTfEKI
lÉMWWMlMIÍIWiiiTBf - '.TJ.,rii ,ú«in
Gyffi lofar kaup-
mönnum samþykkt
verðgæzlufrumvarps-
ins sáluga í haust
TK-Rcykjavik, miðvikudag.
A fundi, sem Kaupmannasam-
tökin efndu til að Hótel Sögu í
gærkveldi, sagði Gylfi Þ. Gíslason
i'iðskiptam álar áðherra, að menn
gætu treyst því, að verðgæzlu-
frumvarpið sáluga yrði að lögum
fyrir jól og skipulagsbreytdngin,
er í því fælist, mundi taka gildi
ekkert síðar en ráð hafði verið
fyrir gert, þ. e. fyrri hluta árs
1971, .þrátt fyrir skrípaleikinn
á Alþingi“, eins og ráðh. orðaði
það sjálfur. En er Sigurður
Magnússon, framkvæmdasitjóri
Kaupanannasamtakanna, gekk á
ráðherann og bað hann að skýra
frá iþví hvernig ráðherrann ætl-
aði að tryggja framigang frum-
varpsins í haust, þegar það væri
nýfallið með atkvæðum hans eig-
in flokksmanna, sagði ráðherann,
áð með orðum sínum hefði hann
ekki átt við það, að þeir þrír
þingmenn Aliþýðuflokksins, sem
lýst ihefðu yfir andstöðu við frum-
varpið, myndu fylgja því, heldur
treysti hann því sjálfur að frum-
varpið yrði samiþykkt fyrir jól, ef
ríkisstjórnin legði það fram ó-
breytt í haust.
Fannst mönnum þetta skringi-
leg yfirlýsing sumum, en Guðm.
Garðarsson lýsti því yfir, að hann
tryði á yfiriýsingu ráðherrans og
kvaðst ekki í neinum vafa um,
að ráðherrann mundi efna heit sitt
og tryggja frumvarpinu framgang
í haust
Öðrum fannst 'helzt mega skilja
yfiriýsingu ráðherrans svo, að
hann treysti iþví að Framsóknar-
flokkurinn samþykkti frumvarpið
óbreytt. Kom það iþó spánskt fyr-
sjónir, þar sem ráðh. notaði
mikið af ræðutíma sínum til að
rægja Framsóknarflokkinn.
— Hafa andstæðingar frum-
varpsinc í Alþýðuflokknum
skipt um skoðun?
Sjá Víðavang bls. 3.
VINNINGASKRÁ
SÍBS Á BLS. 18
VINNINGASKRÁ
DAS Á BLS. 16
Dagskrá hljóð-
varps og sjón- j
varps fylgir
blaðinu í dag
Vegna vélarbilunar í prent-
smiðju Tímans fylgir Sunnu-
dagsblaðið, lesbók, ekki Tím-
anum um helgina.
FerSalangar á leiS niSur snjóskafl í áft aS tveim nýjum hrauntungum vlS Sölvahraun. Þarna má meS sanni segja aS otætist eldur cg
á þremur
EJ-Reykjavfk, miðvikudag.
Fldgosin á Heklusvæðinn
drógu að sér fjölda fólks í dag,
enda hin tignarlegustu á að
líta, þótt þau jafnist ekki á
við Heklugosið 1947.
Um er að ræða þrjú hraun-
gos á Heldusvæðinu. Eitt
þeirra er á svæðinu milli
Rauðuskálar og Skjólkvía, og
rennur hraunið þaðan í átt að
Grænavatni, en myndirnar hér
á síðunni eru einmitt frá því
hraunflóði. Segir nánar frá
því í frétt á blaðsíðu 13.
Þá er anna'ð mikið hraungos
suður af Heklu og streymir
þaðan hraun niður að Trippa-
fjöllum og meðfram þeirn.
Blaðamenn Tímans flugu yfir
þær eldstöðvar í gærkvöldi, og
segir nánar frá því á bls. 13.
Þriðja eldgosið er síðan í
suðvesturhlíð Heklu, og renn-
ur hraunstraumur þaðan ttl
norðvesturs.
Á blaðsíðu 3 er nánar sagt
frá eldgosinu og þá einkum
öskufallinu, sem fylgdi þvi,
en á hls. 14 er sagt frá för
fréttamanna Tímans að Búr-
felli og víðar og myndir þaðan
birtar.
ÞUSUNDIR
AÚSTUR í
SVEITIR í GÆR
Nýja hraunið hefur þarna brætt djópa gell I snjóskafl, og forvitnir áhorfendur virðasf ekki vera hredd-
ir við hraunið, þar sem það sígur fram, og uppaf því stígur gufa. Flestlr þeirra sem fóru Inn að hraun-
inu nýja voru með öryggishjálma, sem þeir fengu léða í Búrfelli. (Tímamyndir)