Tíminn - 07.05.1970, Side 2
2
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 7. maí 1970.
Hópur nýútskrifaðra Samvinnuskólanema að leggja af stað í gær í 6 daga skólaferðalag til Færeyja.
(Tlmamynd: Guðjón).
Aðalfundur Kennarafélags Suð-
urlands var haldinn í Vík nýlega
Kosningaskrifstofa B-iistans
Skúlatúni 6, opin frá 2-10
Kosningaskrifstofa B-llstans að Skúlatúni 6 verður framvegls optn á
virkum dögum frá kl. 2—10. Skrifstofan er einnig opin síðdegis um
hetgar.
Stuðningsmenn og sjálfboðaliðarl Komið á skrifstofuna eða haffð
samband við hana i simum 26671, 26672 og 26673.
80 ÞÚSUND KR. VERDLAUN-
UM HEITID FYRIR MYNÐIR
1. Aðalí'un-dur Kennarafélags
Suðurlands varar mjög við þeirri
þróun, sem orðið hefur á síðust.u
árum, að frumikvæði og fram-
kvæmd fræðslu- og skólamála sé
dregin úr 'höndum kennaramennt-
aðra manna og fengin í hendur
Skrifstofumönnum í Reykjavfk, svo
Og að einstökum fulltrúum í ráðu-
neytum sé selt sjálfdæmi um það,
hvernig eigi að skera úr um ein-
stök ákvæði laga, sem ágreining-
ur er um, hvernig skilja beri (sbr.
íkólakostnaðarlög), þegar skýr
regluigerðarákvæði eru ekki fyrir
hendi. Skorar fundurinn fastlega
á stjórn S.Í.B. að berjast fyrir
því, að þeir menn sem valdir eru
til forystu í fræðslumálum þjóð-
arinnar, hafi kennaramenntun og
reynslu.
2. Aðaifundur Kennarafélags
Suðuriands, haldinn 22. marz ‘70,
beinir þeim eindregnu tilmælum
til menntamálaráðherra, að lög
um skólakostnað verði endurskoð-
uð hið fyrsta með það fyrir aug-
um, að öl'lum íslenzkum ung-
mennum séu sköpuð jafngóð sCiil-
yxði til skyldufræðslu.
3. Þá samþykkti fundurinn að
ítreka fyrri samþykktir sínar um
skipan námsstjóra fyrir Suður-
land, sem búsettur sé á starfs-
svæðinu. Síðastliðin tvö ár hefur
Suðurland engan námsstjóra haft.
Stjórn Kennarafélags Suður-
lands er kosin tiT tveggja ára i
senn og er stjórnin til skiptis úr
sýslunum þrem.
Núverandi stjórn skipa: Berg-
þór Finnbogason, Selfossi, Frið-
Iþijiörn Gunnilaugs:son, Stokkseyri
og Óskar Magnússon, Eyrarbakka.
í tilefni Heklugossins, hefur
fyrirtækið Stetfán Thorarensen
h.f. í samráði við Agtfa-Gevaert
ákveðið að efna til samkeppni um
beztu ljósmyndirnar af atburðin-
um.
Litmyadir era ákjósanlegastar,
en þó koma einni'g til greina
svart-hvítar myndir.
Veitt verða verðiaun að upp-
Ihæð samtals kr. 80.000,00 og skipt
ist þannig:
1. verðlaun kr. 50.000,00. 2.
verðlaun kr. 20.000,00. 3.—12.
verðlaun kr. 1.000,00.
Kvenfélag
Grensássóknar!
Kaffisala verður sunnudaginn
10. maí kl. 3—6 e. h. í Þórs-
kaffi. Verð 80 kr. fyrir fullorðna
og 35 fyrir börn. Félagskonur oig
aðrir velunnarar félassins. tekið
á móti kökum eftir kl. 10 f. h.
á sunnudag 1 Þórskaffi. Munið
svo fundinn mánudaginn 11. maí
í safnaðarheimilinu, Ingólfur
Davíðisson, grasafræðingur bem-
ur á fundinn.
Áskilið er af hálfu Agfa-Geva-
ert, að notaðar séu Agfa filmur
og að fyrirtækið hljóti allan rétt
til birtingar og notkiunar á film-
unum. Teljist engin myndanna
verðlaunahasf, falla verðlaiunin að
sjálfsögðu niður.
Þrír kórar
syngja í Sel-
fosskírkju
Þriðja maí s.l. héldu þrír kórar
ásamt einsöngvurum söngskemmt
un í Neskirkju. Voru þar kirkjn-
kór Neskirkju og kiúkjukór Njarð
víkur, báðir undir stjórn Jóns
Isleifssonar og kirkjukór Hverd-
gerðis og Kotstrandarsóknar und-
ir .stjórn Jóns H. .Tónssonar, skóla-
stjóra í Hláðardalsskóla.
Einsðngvarar voru Sigurveig
Hjaltested, Friðbjörn Jónsson, Álf
heiður Guðmundsdóttir og Guð-
mundur Jónsson. Var skemmtun-
in mjög vel heppnuð og kiiikjan
fullskipuð.
Kórarnir endurtaka skemmtan-
ina í Selfosskirkju sunnudaginn
10. maí n.k. kl. 21.
Á efnisskrá era: Fyrsti og fjórði
þáttar úr oratóriunni Friður á
jörðu eftir Björgvin Guðmundss.
Eldsvoði
á Skagaströnd
JJ—Skagaströnd, þriðjudag.
í gærkvöldi um klukkan sjö,
kom upp eldur í feitipotti í
íbúðarhúsinu Laufási á Skaga
strönd og munaði minnstu að
mikið tjón yrði af eldinum, en
fjögurra ára sonur hjónanna eir
þarna búa, var úti að leika sér,
kom inn til mömmu sinnar og
sagði: „Mamma, mamma, komdu
og sjáðu það eru iól í eldhúsinu“
Móðirin Fjóla Sigurðandóttir,
brá skjótt við, og sá þá að kvikn
að hafði í feitipotti á rafmagns
eldavélinni. Var hún að bræða
útálátiö fyrir kvöldmatinn, en
1 isbóndinn Jón Kr. Jónsson var
að gera að grásleppu niðri við
höfnina á Skagaströnd. Fyrir
mikið snarræði f jólu og móður
hennar tókst þeim að slökkva
eldinn. Reif hún fyrst niður
hengi, er var í eldhúsinu, og
sömuleiðis reii hún niður glugga
töldin. Þá skvetti hún vatni á
logana, sem voru farnir að læsa
sig í innviði eldhússins, og þær
mæðgur gættu þess að loka öll
um gluggum og hurðum. svo að
trekkurinn æsti ekki eldinn. Er
slökkvilið staðarins kom á staðimn,
voru þær búnar að slöfekva eld
Framhald á 11. síðu
VERÐLÆKKUN
UMSÖGN
Innra Hólmi, 28/10 1969.
Á síðastliðnu vori keypt-
uai við sjálfhleðsluvagn af
Glóbus h.f. Vagn þessi
reyndist í alla staði mjög
■ el og komu engar bilanir
frar. í honum allt notkunar-
tímabilið. Kostir við að geta
hirt heyið beint úr múguim
um leið og tekið er satnan
eru:
1. Að losna við að sæta
heyið og fer mikið betar
bæði með hey og tún. 2.
Ein dráttarvél sparast. Þar
sem vagninn tekur heyið i
sig sjálfur þarf ekki dráttar-
vél með ámoksturstæki. 3.
Þar sem ekki er mjög langt
að keyra að hlöðu er eins
fljótlegt að keyra heyimi
heim eins og að sæta það.
GuSmundur Jónsson,
Innra Hólmi,
Akraneshreppi.
Með tilliti til mikilla
og ánægjulegra við-
skipta Fella-verksmiðj-
anna við ísland, hefur
hún ákveðið lækkun á
öllum gerðum sjálf-
hleðsluvagnanna, nema
Peggy, og nemur lækk-
unin um kr. 10.000,00
frá því verði, sem gefið
er upp í verðlista okkar
og sendur var bændum.
Fella sjálfhleðsluvagn-
arnir eru fáanlegir í
fjórum stærðum og hafa
hlotið jákvæða dóma
Bútæknideildarinnar á
Hvanneyri. Þeir hafa
verið í notkun hér á
lan i í þrjú ár og engin
ein tegund hefur selzt
eins vel og Fella Öllum
eigendum Fella vagn-
anna ber saman um ágæti
þeirra enda munu þeir
vera með fullkomnasta
mötunarútbúnað allra
heyhleðsluvagna.
Farið var að ráðlegg-
ingum Bútæknideildar-
innar um allan aukaút-
búnað, sem fylgja
þetta hugfast þegar bor-
in eru saman verð við
aðra vagna á markaðn-
um.
Bændur! Takið nýj-
ustu tækni í þjónustu
yðar og tryggið um leið
að ná heyjunum inn
óskemmdum. Það verð-
ur bezt gert með Fella
vagni.
skyldi, og ber að hafa
PantiS strax. — Greiðsluskilmálar.
MSG/obusp
LÁGMÚLI Ss, SlMI 81555