Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 2
2 B FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ  Tilvalinn fjárfestingarkostur fyrir flá sem vilja binda fé í skamman tíma án mikillar áhættu. Enginn munur er á kaup- og sölugengi og innstæ›an er alltaf laus til útborgunar. 10,4% E N N E M M / S IA / N M 17 5 9 5 P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ U R Peningamarka›ssjó›ur er fjárfestingarsjó›ur skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is. * Nafnávöxtun á ársgrundvelli fyrir tímabili› 30/9/05-31/10/05 – kraftur til flín! *                                                                                      Viðskiptablað Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins EIMSKIP, dótturfélag Avion Group, hefur fest kaup á stórflutn- ingaskipi sem ber nafnið Laxfoss. Skipið er sérhæft flutningaskip til flutninga með fóðurvörur og aðra stórflutninga og verður í flutn- ingum milli Íslands og Evrópu. Í tilkynningu félagsins segir að stórflutningar hjá Eimskip hafi aukist mikið að undanförnu og Laxfoss sé annað flutningaskipið sem Eimskip kaupi á skömmum tíma. Fyrir átti Eimskip skipið Trinket sem hefur fengið nafnið Írafoss. Laxfoss er 82 metrar að lengd og hefur 2.500 tonna burð- argetu ogvar smíðað í Þýskalandi árið 1995. og hét áður Stroom- bank. Stórflutningaskipin sinna al- þjóðlegum verkefnum á N-Atlants- hafi, þar á meðal flutningum á fóðri til Íslands og útflutningi á fiskimjöli frá Íslandi. Eimskip hef- ur notast við leiguskip til að ann- ast þessa auknu flutninga hingað til. Í flota Eimskips eru nú 29 skip og að auki eru fjögur í smíðum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eimskip kaupir stórflutningaskip HEILDARVIÐSKIPTI í Kaup- höll Íslands í gær námu um fjórum milljörðum króna. Mest viðskipti voru með hlutabréf fyrir um 1,5 milljarða en næst mest með íbúða- bréf fyrir um 1,3 milljarða. Mest hlutabréfaviðskipti voru með bréf Straums-Burðaráss fyrir um 374 milljónir króna. Mest hækkun varð á bréfum Hampiðjunnar, 10,26%, og næst mest á bréfum Kögunar og Flögu, 1,83%. Mest lækkun varð á bréfum Össurar, eða 1,5%. Úrvalsvísitala aðallista hækkaði um 0,41% og er hún nú 4.694,32 stig. Mest viðskipti með Straum- Burðarás ÞÝSK-íslenska viðskiptaráðið (ÞÍV) heldur í dag upp á tíu ára amæli ráðsins með fundi á Nordica hóteli frá kl. 8 til kl. 9.30. Kristín S. Hjálmtýsdóttir, fram- kvæmdastjóri ÞÍV, fer þar stutt- lega yfir sögu ráðsins. Að því loknu verða pallborðsumræður undir yf- irskriftinni: Þýskaland í dag, hvað er framundan? Þar taka þátt þeir Ingimundur Sigfússon, fyrrverandi sendiherra, Halldór Guðmundsson, rithöfundur, Gunnar Páll Sigurfinnsson hjá Icelandair og Páll Kr. Pálsson, formaður ÞÍV. Karl Blöndal, aðstoðarritastjóri Morgunblaðsins, stýrir pallborðs- umræðunum. Þýsk-íslenska viðskiptaráðið 10 ára FRÁ vetraráætlun 2005 fjölgar Icelandair Cargo verulega ferðum með frakt- vélum til og frá Íslandi. Ferðum til og frá Liege í Belgíu fjölgar úr átta í ell- efu á viku og er fjölgunin sérstaklega til að mæta auknum inn- flutningi. Liege hefur byggst upp sem helsti innflutningsflugvöllur fyr- ir Ísland í Evrópu en einnig sem dreifistöð fyrir íslenskan fisk. Allt flug til Liege er frá Íslandi að kvöldi og koma er snemma morguns til Keflavíkur. Þá verður ferðum til og frá New York, JFK-flugvelli, fjölgað úr fimm í sex á viku. Viðbótarferðin er á laug- ardegi með viðkomu í Halifax í baka- leið á sunnudagsmorgni. Fram kem- ur í tilkynningu félagsins að innflutn- ingur hafi farið vaxandi frá Banda- ríkjunum auk þess sem mikil spurn sé eftir kanadískum humri í Evrópu. Þá bætist við fjórða ferðin í viku til Humberside auk einnar ferðar á Ed- inborg og East Midlands og er þá fraktflug til Bretlands alla daga nema sunnudaga. Icelandair Cargo fjölgar ferðum Morgunblaðið/Halldór Kolbeins ég hef áður fengist við. FlyMe er mikið frum- kvöðlafyrirtæki. Hjá því er mjög vönduð flug- rekstrardeild með sex flugvélar í rekstri. Reksturinn hefur reyndar skilað tapi, sem er ekki óeðlilegt enda er fyrirtækið ungt og í uppbyggingu. Reksturinn hefur verið end- JÓHANNES Georgsson, fyrrum fram- kvæmdastjóri Iceland Express, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá sænska lágfar- gjaldafélaginu FlyMe. Jóhannes hefur undanfarna tvo mánuði unnið að endurskipulagningu leiðakerfis og markaðsmála FlyMe. Í gær var tilkynnt að hann hefði verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu, við hlið Fredrik Skanselid, sem er stofnandi og aðalframkvæmdastjóri félagsins og hefur flugrekstur þess á sinni könnu. Sem framkvæmdastjóri hjá FlyMe ber Jó- hannes ábyrgð á öllum markaðs- og sölu- málum fyrirtækisins, leiðakerfi og verðlagn- ingu. Í samtali við Morgunblaðið segist Jóhannes afar ánægður með að fá að takast á við þetta verkefni. „Þetta er á margan hátt líkt því sem urskipulagður og ég er mjög bjartsýnn fyrir hönd félagsins,“ segir Jóhannes. FlyMe tók til starfa í mars 2004. Félagið hefur fjórar Boeing 737-300 þotur í rekstri og fær að auki tvær til viðbótar á leigu frá flug- félaginu Falcon á háannatímum. FlyMe flýg- ur innanlands í Svíþjóð, milli Stokkhólms, Gautaborgar, Malmö og Östersund. Ennfrem- ur sinnir félagið áætlunarflugi milli Stokk- hólms og Helsinki. Félagið flýgur að jafnaði fimm ferðir á dag á milli áfangastaðanna. Að auki sinnir FlyMe leiguflugi fyrir ferðaskrif- stofur. Á þessu ári er áætlað að félagið flytji 500 þúsund farþega. Höfuðstöðvar FlyMe eru í Gautaborg. Áður en Jóhannes kom til starfa hjá FlyMe var hann ráðgjafi Fons eignarhaldsfélags við endurskipulagningu og samþættingu Sterling og Maersk. Fons er hluthafi í FlyMe og ræð- ur, með vinveittum fjárfestum, um 30% hlut í félaginu. Jóhannes var einn af stofnendum Iceland Express og framkvæmdastjóri þess frá stofn- un til ársins 2004. Hann var þar áður fram- kvæmdastjóri SAS á Íslandi. Í tilkynningu FlyMe um ráðningu Jóhann- esar til félagsins kom fram að í dag, fimmtu- dag, verði sagt frá nýjungum í rekstri þess. Ráðinn framkvæmdastjóri hjá FlyMe Frumkvöðlafyrirtæki FlyMe er með sex flugvélar í rekstri. Morgunblaðið/Ásdís Jóhannes Georgsson Eftir Helga Mar Árnason hema@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.