Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 B 11
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Þ
eir sem ekið hafa framhjá golf-
vellinum við Borgarnes hafa
sjálfsagt flestir tekið eftir risa-
kókdósinni sem stendur við
þjóðveginn. Færri vita að nú í
sumar reis Hótel Hamar á sama
golfvelli, enda er hótelbygg-
ingin lágreist og fellur vel að fallegri náttúru
Borgarfjarðar. Hótel Hamar er fyrsta ís-
lenska hótelið sem stendur undir því að vera
kallað golfhótel. Hægt er að ganga beint úr
herbergjunum út á völlinn og geta gestir allt
eins tekið upphafshögg dagsins rétt fyrir utan
þröskuldinn.
Hjónin Hjörtur Árnason og Unnur Hall-
dórsdóttir eiga og reka Hótel Hamar. Hug-
myndina að rekstrinum fengu þau á síðasta
ári þegar þau tóku við rekstri golfskálans og
komust að því að talsverð eftirspurn var eftir
gistingu í nágrenni vallarins. „Við höfum tals-
verða reynslu af þjónusturekstri og rákum t.d.
Shell-stöðina í Borgarnesi í nokkur ár áður en
við tókum við rekstri golfskálans í fyrra. Þeg-
ar við tókum við fórum við fljótlega að veita
því eftirtekt að töluverður fjöldi fólks kom að
Hamri til að grennslast fyrir um hvort ekki
væri hægt að gista og spila golf. Þegar það sá
hins vegar aðstöðuna, svefnpokapláss og
sturtu frammi á gangi, varð áhuginn strax
minni,“ segir Hjörtur sem tekur á móti blaða-
manni þegar hann ber að garði. Unnur er
stödd erlendis.
Við spjöllum saman yfir kaffibolla í veit-
ingasal hótelsins. Það er heiðskírt og útsýnið
stórfenglegt. Skjaldbreiður og Hafnarfjall
gnæfa yfir Hvanneyri í suðri og hálendið blas-
ir við. Í vestri sést Langjökull og í góðu veðri
segir Hjörtur að Eiríksjökull skjóti upp koll-
inum.
„Þessar heimsóknir vonsvikinna gesta urðu
þó til þess að við fórum að velta því fyrir okk-
ur hvort raunhæfur möguleiki væri að hefja
hér hótelrekstur. Við veltum þessu fyrir okkur
í rúmt ár og bárum hugmyndina undir vini
okkar sem eru í hótelrekstri. Og það varð sem
sagt úr að við ákváðum að ráðast í verkefnið.“
Reis á einum og hálfum mánuði
Arkitektinn sem Hjörtur og Unnur réðu til
verksins er danskur en hönnuður hússins er
dr. Guðni Jóhannesson, verkfræðingur og pró-
fessor við Konunglega háskólann í Stokk-
hólmi. Er byggingarmátinn alfarið hans hönn-
un. Blikkstoðir og harðpressuð steinull frá
Sauðárkróki á milli, klætt að utan með kross-
viði og álplötum, og að innan með gifsi.
„Fyrsta stoðin var reist 4. mars sl. en 20. júní
var húsið tilbúið og í júlí var hótelið opnað,“
segir Hjörtur.
Hótelið er bókstaflega á miðjum golfvell-
inum eða á milli 7. og 8. brautar. „Völlurinn er
12 holur eins og er, en það er búið að móta og
sá í þær sex holur sem vantar upp á.“
Hótel Hamar er þriggja stjörnu hótel, rúm-
ir 1.200 fermetrar að flatarmáli, með 30 her-
bergjum og eru salerni og sturta í hverju
þeirra. Tveir veitingasalir og/eða funda-
herbergi eru á hótelinu, auk veitingastaðar og
bars. Allur útbúnaður er fyrsta flokks; þráð-
laus nettenging, heitir pottar við húsin og her-
bergin fallega innréttuð með gólfhita, sjón-
varpi og hvers kyns þægindum. Aðstaða til
ráðstefnuhalds er einnig góð og allur búnaður
fyrir hendi; myndvarpar og myndbandstæki,
flettiflötur og faxtæki.
Hjörtur segist vera mjög sáttur við sum-
arið. Lítil reynsla sé að sjálfsögðu komin á
reksturinn en byrjunin gefi góð fyrirheit um
framhaldið.
Íslendingar í sókn
„Mjög stór hluti af viðskiptavinum okkar er
Íslendingar sem koma hingað í stórum hóp-
um, gagngert í þeim tilgangi að spila golf.
Annars eru Íslendingar almennt sjaldséðir
fuglar á íslenskum hótelum. Seinnipart sum-
ars og í haust hafa verið haldnar hér nokkrar
ráðstefnur. Menn hafa þá komið að morgni og
fundað, fengið sér hádegismat og farið svo út
seinnipart dags og spilað golf. Á kvöldin koma
menn inn þreyttir eftir hringinn og borða
kvöldmat. Seinni daginn er venjulega fundað
aftur um morguninn og svo farið út og spilað
golf frameftir degi.“
Hjörtur tók upp samstarf við Icelandair
Hotels um markaðsstarf og sjá þeir alfarið um
markaðssetningu hótelsins erlendis. Hann
segir að samstarfið hafi gengið vel, enda mörg
góð hótel á snærum Icelandair á landsbyggð-
inni, t.a.m. á Flúðum, Klaustri, Egilsstöðum
og Rangárvöllum, og ófáir erlendir ferðamenn
þræða sig eftir þeim á ferð sinni um landið.
Annars segir Hjörtur að yfir veturinn beini
þau spjótum sínum fyrst og fremst að Íslend-
ingum og segir Hjörtur ánægjulegt að sjá
hvernig aðsókn þeirra að íslenskum hótelum
hefur aukist að undanförnu. „Núna í október
erum við með tilboð á gistingu og kvöldverði
og um miðjan desember verðum við með jóla-
matseðil. Nú þegar er búið að panta töluvert
inn á það,“ segir Hjörtur.
Fyrsta golfhótelið hér á landi
Morgunblaðið/Golli
Golfhótel Hótel Hamar er á miðjum golfvellinum, eða á milli 7. og 8. brautar.
Hótelstjórar Hjónin Hjörtur Árnason og Unn-
ur Halldórsdóttir eiga og reka Hótel Hamar.