Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 12
12 B FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að er gaman að reka
fyrirtæki í bygging-
ariðnaði nú um stund-
ir, þegar eftirspurnin
eftir framleiðslunni er
jafn mikil og raun ber
vitni,“ segir Andrés
Konráðsson, framkvæmdastjóri og
aðaleigandi Loftorku í Borgarnesi,
en umsvif fyrirtækisins hafa aukist
mikið að undanförnu. Á síðustu
þremur árum fer nærri að félagið
hafi þrefaldast að stærð.
Við Andrés sötrum kaffi í nýju
skrifstofu-
húsnæði, sem áð-
ur hýsti starfsemi
Mjólkursamlags
Borgfirðinga.
Fyrirtæki Andr-
ésar, Hólasel ehf.,
keypti húsið á
uppboði af KB-
banka og skrif-
stofurnar voru
fluttar núna í
haust. Húsið er
gegnt iðnaðarlóð Loftorku við
Engjaás og fyrir utan glugga kaffi-
stofunnar blasir við frekari vitn-
isburður um vaxandi umsvif félags-
ins: Verið er að stækka
einingaverksmiðju fyrirtækisins og
búið er að reisa súlur við gafl og
koma fyrir botnkeri og undirstöðum.
Verksmiðjuhúsið verður 3.000 fer-
metrar að flatarmáli og mun stór-
auka framleiðslugetu félagsins þeg-
ar það verður komið í notkun.
Elst upp innan
um steypu og rör
„Það jaðrar við að ég segi, og láti
hafa það eftir mér, að ég hafi verið
búinn til í þessu fyrirtæki,“ svarar
Andrés þegar ég bið hann um að
segja mér frekari deili á sér. „Karl
faðir minn stofnaði félagið 1962 og
langstærstan hluta starfsævi minnar
hef ég eytt hjá fyrirtækinu. Tólf ára
byrjaði ég að vinna hér á sumrin og
það eru ekki mörg störf í fyrirtæk-
inu sem ég hef ekki sjálfur unnið á
einhverjum tímapunkti,“ segir
Andrés. Hann tók síðan BS-próf í
viðskiptafræði á Bifröst og eftir það
vann hann ýmis stjórnunarstörf hjá
fyrirtækinu, en síðastliðin þrjú ár
hefur hann gegnt stöðu fram-
kvæmdastjóra.
Nafnið Loftorka kom til þegar
Konráð Andrésson, faðir Andrésar,
og Sigurður Sigurðsson stofnuðu fé-
lagið 16. apríl 1962. Fyrsta fjárfest-
ingin sem félagið réðst í var loft-
pressubíll og er nafnið dregið af
honum. Árið 1969 hófst rörasteypu-
og hellugerð og fimm árum seinna
bættust við steypustöð, steypubílar
og viðgerðarverkstæði. Kaflaskil
urðu hjá fyrirtækinu þegar fram-
leiðsla á húseiningum hófst árið
1981, en hún varð fljótlega stærsti
þátturinn í rekstri félagsins.
Uppgangur og umsvif
Á síðustu tíu árum hefur verið stöð-
ugur uppgangur hjá fyrirtækinu og
fjölbreytni framleiðslunnar aukist til
muna. „Árið 1997 var rörafram-
leiðslan endurnýjuð frá grunni og
við sköpuðum okkur sérstöðu á
markaðinum með framleiðslu á rör-
um með innsteyptum gúmmí-
hringjum. Sú breyting heppnaðist
vel, enda hittum við á réttan tíma
þegar uppsveiflan var að hefjast. Á
síðasta ári fórum við af stað með
framleiðslu á strengjasteypu, eða
forspenntri steypu, sem felst í að vír
er komið fyrir í steypunni en hann
pressar hana saman þannig að hún
verður miklu sterkari fyrir vikið. Í
sumar byrjuðum við að framleiða
svokallaðar kúluplötur, en það eru
steypueiningar sem innihalda plast-
kúlur sem gera það að verkum að
eigin þyngd fullsteyptrar plötu verð-
ur 30–35% léttari en venjulegrar
staðsteyptrar plötu. Þetta þýðir að
plöturnar spanna mun stærra höf og
hægt er að vera með minna af bitum
og súlum í byggingunni, auk þess
sem þær létta bygginguna í heild
sinni.“ Andrés segir að kúluplöt-
urnar séu hollensk uppfinning og að
Loftorka hafi fengið einkaleyfi á
framleiðslu þeirra sem gildir í sex
ár. Salan hafi gengið vel og fyr-
irtækið sé búið að tryggja sölu á
150.000 fermetrum af þessum plöt-
um á næstu 2–3 árum.
„Undanfarin ár hefur markmið
okkar verið að framleiða allt það
Loftorka hefur þrefaldast á þr
Aukin umsvif Undanfarna mánuði hefur verið unnið að stækkun einingaverksmiðju Loftorku og mun framleiðslan tvöfaldast í kjölfarið.
Steypueiningar Loftorka framleiðir margar gerðir af steypuplötum.
Á myndinni má sjá holplötur.
Morgunblaðið/Golli
Framleiðslan Í Borgarnesi er framleitt nánast allt sem hægt er að framleiða úr
steypu og vörur Loftorku spanna þannig allan markaðinn.
UPPSVEIFLA Í BORGARBYGGÐ
Andrés
Konráðsson
Boðað er til fundar með hluthöfum í dag
fimmtudaginn 10. nóvember kl 17.00
á Hótel Borg.
Arctic Ventures
A R C T I C V E N T U R E S