Morgunblaðið - 10.11.2005, Side 14
14 B FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Í nóvember munum við byrja jólaundir-
búninginn, með tilheyrandi skreytingum
og til að breyta vananum munum við vera
með ekta amerískt jólahlaðborð. Það mun
verða í boði um helgar. Verð fyrir róman-
tískt herbergi, æðislegt jólahlaðborð og
morgunverð er aðeins 9.200 krónur á
manninn (miðast við tvo í herbergi). At-
hugið að sérstakt afsláttarverð er fyrir
eldri borgara og góða hópa í miðri viku.
Einnig minnum við á fundarsalinn okkar,
sem er mjög vel búinn. Við erum aðeins í
um klukkustundar akstursfjarlægð frá
Reykjavík og því tilvalið að kíkja til okkar
og slaka á og komast í réttu stemming-
una fyrir jólin. Einnig minnum við á
Draumakot Olgu, þar sem þú færð réttu
jólagjöfina.
Við vonumst til að sjá þig og þá sem þér þykir vænt um. Bestu kveðjur, fjölskyldan Minni Mástungu
Jólahlaðborð Hótel Freyju
Minni Mástunga, 801 Selfoss. www.hotelfreyja.is hotelfreyja@hotelfreyja.is sími 486 6174
A
llir stjórnendur Límtrés Vír-
nets eru staddir í Reykjavík
þegar blaðamann ber að garði.
Það er þó ekki amalegt að bíða í
Borgarnesi og fá sér bíltúr um
bæjarfélagið enda margir sam-
mála um að Borgarnes sé eitt
fallegasta bæjarstæði landsins. Gísli Vagn
Jónsson, markaðsstjóri, rennur innan skamms í
hlað og tekur á móti blaðamanni. Hann hlær
þegar hann er spurður hvort Límtré/Vírnet sé
landsbyggðarfyrirtæki en allir stjórnendurnir
staðsettir í Reykjavík.
„Það eru orð að sönnu að félagið er lands-
byggðarfyrirtæki, þar sem við erum með þrjár
starfsstöðvar úti á landi. Hins vegar hefur fé-
lagið gengið í gegnum miklar sameiningar á
síðustu misserum og í kjölfarið liggur fyrir tölu-
verð vinna við innra skipulag fyrirtækisins. Við
getum sagt að verið sé að gæta jafnræðis milli
vinnslustöðvanna með því að hittast í Reykjavík
og funda. Það er um það bil jafnlangt fyrir alla
aðila að sækja borgina heim.“
Sagan og framleiðslan
Það voru stórhuga athafnamenn frá Borgarnesi
sem tóku sig saman árið 1956 og stofnuðu Vír-
net hf. Fyrir þeim vakti að skjóta styrkari stoð-
um undir atvinnulífið heima í héraði og í hugum
þeirra var markmiðið mikilvægara en leiðin.
Upphaflega stóð til að framleiða vírnet, gadda-
vír og lykkjur, en fljótlega eftir stofnun félags-
ins kom í ljós að sá rekstur var bæði of dýr og
plássfrekur. Menn lögðu þó ekki árar í bát held-
ur sneru sér einfaldlega að annarri starfsemi og
hófu framleiðslu á nöglum. Reksturinn gekk vel
og naglaframleiðslan er enn í dag mikilvægur
þáttur í rekstri Límtré Vírnets.
Með árunum hefur fyrirtækið vaxið og dafn-
að. Í dag skiptist starfsemi Vírnets í Borg-
arnesi í fimm deildir, sem eru saumdeild
(naglaframleiðsla) sem framleiðir yfir 80 teg-
undir saums, völsunardeild sem valsar 28 mis-
munandi tegundir klæðningarstáls, blikksmiðja
sem veitir almenna þjónustu og smíði svo sem á
rennum, milliveggjastoðum og þaktúðum.
Járnsmiðja þar sem m.a. eru smíðaðar gjafa-
grindur, snjóplógar, hurðir og vörukassar sem
og festingar fyrir límtrésburðarvirki sem fram-
leidd eru á Flúðum. Rafmagnsdeild sem veitir
alhliða raflagnaþjónustu.
Gísli segir að Límtré Vírnet ehf. hafi ávallt
verið leiðandi á sínu sviði, sé t.d. eini framleið-
andi naglasaums á Íslandi og bjóði einnig upp á
ýmis afbrigði við völsun, s.s. bogavölsun og
grókóbeygjur. Í áranna rás hafi safnast upp
mikil sérþekking og reynsla hjá starfsmönnum
fyrirtækisins, og segir Gísli að það skili sér í
traustum og vönduðum vörum.
Sameiningar og útrás
Um síðustu aldamót hófst mikið sameining-
arferli hjá félaginu, þegar Vírnet og Límtré á
Flúðum sameinuðust. Hefur starfsemin breyst
mikið í kjölfarið.
„Sameiningarnar hafa gert félaginu kleift að
þróast frá því að vera fyrst og fremst fram-
leiðslufyrirtæki yfir í að vera þjónustufyrirtæki
sem býður upp á heildarlausnir fyrir bygging-
ariðnaðinn og þjónustar bæði endursöluaðila,
ekki síst með innlendri framleiðslu sem fyrst og
fremst er dreift í gegnum þá, verktaka og enda-
lega notendur,“ segir Gísli. Sameiningarferlinu
er að því er virðist hvergi nær lokið því fyrir
hálfum mánuði var gengið frá kaupum Límtrés/
Vírnets ehf. á Fagtúni ehf., fyrirtæki sem sér-
hæfir sig í frágangi á þakdúkum og Lett Tak
þakeiningum.
Límtré ehf., sem var stofnað 1982 og rak
límtrésverksmiðju á Flúðum í Hrunamanna-
hreppi, keypti allt hlutafé í Vírneti ehf. árið
2000. Seinna á sama ári keypti fyrirtækið einn-
ig Garðastál hf. í Garðabænum og úr varð fyr-
irtækið Vírnet Garðastál hf. Starfsemi þess síð-
arnefnda var að mestu flutt í Borgarnes í
byrjun árs 2001, en fyrirtækin Límtré og Vír-
net Garðstál voru fyrst rekin sem sjálfstæð fyr-
irtæki.
„Á síðasta ári var síðan tekin ákvörðun um að
sameina innlenda starfsemi félagsins og skilja
erlenda starfsemi samstæðunnar frá þeim
rekstri með stofnun nýs félags,“ segir Gísli og
bætir við að þetta hafi verið gert að undangeng-
inni ítarlegri stefnumótunarvinnu sem stóð yfir
í rúmt ár. „Í kringum áramótin síðustu var svo
starfsemi félaganna sameinuð undir nafninu
Límtré Vírnet ehf og er Stefán Logi Haralds-
son framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Auk þess
var stofnað nýtt fyrirtæki, LVG International
ehf., sem sér um starfsemi erlendra dóttur- og
hlutdeildarfélaganna; Flexilam í Portúgal, sem
framleiðir límtré, Glulam í Rúmeníu, sem rekur
límtrés- og einingaverksmiðju þar í landi, og
Danice í Danmörku, sem er fjárfestingar- og
þróunarfélag með aðaláherslu á uppbyggingu
og fjárfestingar í úrvinnslu timburafurða í
Austur-Evrópu. Guðmundur Ósvaldsson er
framkvæmdastjóri LVG International, en hann
var áður framkvæmdastjóri Límtrés hf.
Stjórnarformaður Límtré Holding, sem á bæði
fyrirtækin er Hörður Harðarson.“
Útrás fyrirtækisins er ekki eingöngu bundin
við verksmiðjurnar erlendis, útflutningur á ís-
lensku framleiðslunni hefur einnig aukist að
undanförnu. Klæðningarefni og saumur hefur
verið flutt út til Færeyja frá árinu 1995 og á
síðasta ári útflutningurinn tæpum 300 tonnum
af framleiðsluvörum.
120 manns á fjórum stöðum
Innlenda starfsemin er nú á fjórum stöðum.
Auk verksmiðjunnar á Borgarnesi er rekin
límtrésverksmiðja á Flúðum og einingaverk-
smiðja í Reykholti í Biskupstungum. Á höf-
uðborgarsvæðinu er síðan hönnunar-, tækni-
og innflutningsdeild auk lagers. Starfsmenn
eru um 120 talsins, þar af um 55 á Borgarnesi,
um 40 á Suðurlandi og um 25 á höfuðborg-
arsvæðinu. Velta félagsins er áætluð í kringum
1,8 milljarða króna á þessu ári.
Ákveðinn taugatitringur fylgir hjá starfs-
mönnum og bæjarfélögum þegar miklar sam-
einingar ganga yfir. Þetta á ekki síst við þegar
fyrirtækin eru út á landi þar sem afdrif byggð-
anna eru samofin fáum fyrirtækjum. Gísli segir
að vissulega hafi heimamenn haft vissar
áhyggjur af þróuninni, en þær hafi þegar til
kastanna kom reynst óþarfar.
„Bæði Límtré og Vírnet eru fyrirtæki sem
sprottin eru úr sama jarðveginum. Eitt af
markmiðum Guðmundar Magnússonar, bygg-
ingarmeistara, og annarra stofnenda límtrés-
verksmiðjunnar á Flúðum árið 1982, var
áþekkt því sem frammámennirnir á Borg-
arnesi lögðu upp með á sjötta áratugnum: Að
skjóta styrkari stoðum undir atvinnulífið í hér-
aði. Ég held að þessi samfélagsandi hafi fylgt
fyrirtækinu í gegnum breytingaferlið og að
stjórnendurnir séu meðvitaðir um að mikil arð-
semikrafa og mannlegi þátturinn þurfi ekki að
stangast á. Þvert á móti held ég að þessar sam-
einingar séu dæmi um að tillitsemi og skiln-
ingur á mannlega þættinum geti skilað fyr-
irtækjum tryggari starfsmönnum og velvild
samfélagsins, sem aftur kemur rekstrinum til
góða.“
Góð verkefnastaða
Gísli segir að verkefnastaða fyrirtækisins sé
með allra besta móti og gefi góð fyrirheit um
framtíðina. „Með sameiningu og kaupum á fyr-
irtækjum getum við nú þjónustað bygging-
ariðnaðinn og endursöluaðila mun betur en áð-
ur. Starfsmenn Límtrés Vírnets búa yfir mikilli
reynslu og þekkingu og fyrirtækið er vel í
stakk búið til að veita viðskiptavinum sínum
sérhæfða ráðgjöf við lausn verkefna frá upp-
hafi til verkloka. Það vill stundum gleymast í
æsilegum fréttaflutningi af yfirtökum og verð-
stríðum fyrirtækja, að velgengni fyrirtækja er
ekki síst undir góðu og dugmiklu starfsfólki
komin. Á því sviði tel ég að Límtré Vírnet
standi vel að vígi,“ segir Gísli Vagn Jónsson.
Sameining úr sama jarðvegi
Morgunblaðið/Golli
Stjórnendur Stefán Logi Haraldsson fram-
kvæmdastjóri og Gísli Vagn Jónsson mark-
aðsstjóri.
Blikk og járn Blikk- og járnsmiðja er í verk-
smiðju Límtrés Vírnets í Borgarnesi og þar
er allt frá rúmgrindum til snjóruðningstækja
smíðað.
Límtré Vírnet tekur
einnig þátt í útrásinni
Völsun Vinnsla á völsuðu stáli hefur verið
stunduð í Borgarnesi frá árinum 1978.
Saumur Agnar Ólafsson hefur haldið nagla-
framleiðslunni gangandi frá því á sjöunda
áratugnum.
UPPSVEIFLA Í BORGARBYGGÐ