Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 15
FLESTIR fyrirtækjasamrunar í
Danmörku eru árangursríkir og
meirihluti fyrirtækja sem eru seld
eða yfirtekin spjarar sig betur undir
stjórn nýrra eigenda og helstu kenni-
tölur þeirra batna. Það á hins vegar
mun síður við þegar stærri fyrirtæki
eiga í hlut.
Þetta er niðurstaða í nýrri doktors-
ritgerð Carmine Gioia við Við-
skiptaháskólann í Kaupmannahöfn.
Hún telst mjög athyglisverð enda
hafa þær rannsóknir, sem gerðar
hafa verið hingað til, nær allar leitt í
ljós að flestir samrunar og yfirtökur á
fyrirtækjum dragi úr verðmætum
þeirra.
Kaupa oft „lökustu“
fyrirtækin
Í umfjöllun Børsen kemur fram að
munurinn á þessari rannsókn og öðr-
um slíkum rannsóknum, dönskum
sem erlendum, sé sá að í henni séu
tekin með öll fyrirtækjakaup, jafnt á
litlum sem stórum.
„Þetta gefur allt aðra mynd. Flest
fyrirtækjaviðskipti taka til fremur lít-
illa fjölskyldufyrirtækja. Og þegar
þau eiga sér stað eiga þau í einhvers
konar rekstrarerfiðleikum. Þessi
rannsókn sýnir að helstu kennitölur
fyrirtækjanna batna við eigenda-
skiptin og störfum hjá fyrirtækjunum
fjölgar meira,“ segir Steen Thomsen,
prófessor við Viðskiptaháskólann í
Kaupmannahöfn.
Margar fyrri rannsóknir hafa gefið
fremur neikvæða mynd af því sem
gerist eftir samruna fyrirtækja.
Þetta á ekki einna síst við um sam-
runa stórra fyrirtækja sem skráð eru
á hlutabréfamörkuðum en í fyrri
rannsóknum hafa menn einatt beint
sjónum sínum að þeim.
Í dönsku rannsókninni voru öll fyr-
irtækjaviðskipti á árunum 1990 til
1991 tekin með, um 1.000 talsins, og
nákvæmlega fylgst með frammistöðu
fyrirtækisins sem keypt var í allmörg
ár, bæði fyrir og eftir kaupin.
En stærð fyrirtækja skiptir engu
að síður máli í þessu samhengi;
greinilega kom í ljós að mun meiri ár-
angur næst þegar lítil fyrirtæki
renna saman eða þegar þau eru keypt
en hann reyndist vera minni þegar
um samruna eða kaup á stærri fyr-
irtækjum var að ræða. Þróunin í efna-
hagslegum lykistærðum reyndist
þannig fara versnandi þegar stærri
fyrirtæki voru keypt/sameinuð og er
ástæðan m.a. rakin til þess að allar
ákvarðanir verða flóknari þegar
stærri fyrirtæki eiga í hlut.
Samrunar jafningja erfiðastir
Rannsóknin tók einnig til sölu
danskra fyrirtækja til erlendra aðila
og niðurstaðan reyndist einnig vera
jákvæð. En erlendu fyrirtækin eða
fjárfestarnir reyndust þó oft á tíðum
kaupa „lökustu“ fyrirtækin.
„Það bendir til þess að útlendingar
hafi ekki nægjanlega góða tilfinningu
fyrir því hvað þeir eru að kaupa og
það eykur líkurnar á því að þeir kaupi
köttinn í sekknum,“ segir Steen
Thomsen.
Þó er tekið fram að útlendingun-
um, sem kaupa dönsk fyrirtæki, tak-
ist yfirleitt að snúa rekstri þeirra
hraðar við. Søren Milner, yfirmaður
fyrirtækjafjármála hjá KPMG í Dan-
mörku, segir afar marga pytti að var-
ast þegar fyrirtæki séu keypt eða þau
sameinuð, raunar svo marga að erfitt
sé að komast hjá því að stíga ofan í
einhvern þeirra. Því sé nauðsynlegt
að fyrir liggi áþreifanleg aðgerða-
áætlun um samtvinnun rekstrarins.
Og hann bendir á að bein kaup þar
sem eitt fyrirtæki kaupi annað séu
líklegri til árangurs en þegar tvö svip-
að stór fyrirtæki séu sameinuð.
„Samrunar eru alltaf erfiðir. Hrein
yfirtaka er miklu auðveldari, þ.e. þeg-
ar eitt fyrirtæki kaupir beinlínis ann-
að og ákveður á skynsamlegan hátt
hvernig hlutirnir eigi að vera í fram-
tíðinni,“ segir Christian Aarosin, yf-
irmaður fyrirtækjafjármála hjá
Ernst & Young.
Stærðin
skiptir máli
Ný rannsókn í Danmörku um árangur af
samruna og yfirtöku fyrirtækja
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
SKRIFSTOFAN Í VASANUM
800 4000 - siminn.is
Síminn býður sérhæfð þráðlaus samskiptatæki sem hjálpa þér að nálgast nauðsynlegar upplýsingar
og gögn og sinna starfi þínu nánast hvar sem þú ert.
Auk farsíma færðu öruggan og auðveldan aðgang að tölvupósti, dagbók, tengiliðaskrá og netþjóni
fyrirtækis þíns. Einnig getur þú skoðað og unnið með skjöl í Word, Excel eða Powerpoint svo dæmi
sé nefnd.
Ráðgjafar Símans hjálpa þér að velja þá lausn sem hentar þér best. Hafðu samband við viðskiptastjóra
þinn eða ráðgjafa okkar í 800 4000 og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig og þitt fyrirtæki.
„Ég ferðast mikið og þarf að vera
í góðu sambandi hvar sem ég er“
Kristín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri hjá KB banka
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
18
6
4
6
The RIM and BlackBerry families of related marks, images and symbols are the
exclusive properties of and trademarks of Research In Motion - used by permission.
Sérhæft, þráðlaust samskiptatæki
sérstaklega hannað til að vinna með
gögn auk þess að vera farsími.
Tækið hefur einfalt og þægilegt
lyklaborð og stóran skjá.
Hugbúnaður sem veitir
aðgang að tölvupósti,
dagbók o.fl. Openhand
er hægt að keyra á
nokkrum mismunandi
gerðum GSM síma.
Microsoft sími
sem gerir þér
kleift að vinna með
tölvupóst o.fl í
Microsoft umhverfi.
BlackBerry 7290™
BlackBerry 7100g™
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 B 15