Morgunblaðið - 10.11.2005, Síða 18
18 B FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ll INNHERJI SKRIFAR
Í fjármálaheiminum eru vanga-veltur um, að krónan sé aðveikjast og að mikil og snöggumskipti geti orðið á þeim vett-
vangi á næstu dögum, vikum eða allra
næstu mánuðum. Yfirleitt hefur verið
talið, að krónan muni halda styrk-
leika sínum að mestu fram á árið
2007.
Nú er einhver óróleiki að grípa um
sig. Sumir fjárfestar hafa um nokkurt
skeið átt fjármuni sína í erlendum
gjaldmiðlum og hafa viljað hafa vaðið
fyrir neðan sig. Aðrir eru þessa dag-
ana að kaupa gjaldeyri með það í
huga að hagnast verulega, þegar
krónan gefur eftir og þá er menn
væntanlega að reikna með því, að
þegar fallið byrji muni það nema 20-
25%.
Fyrirtæki og einstaklingar, sem
hafa verið með skuldbindingar sínar í
erlendum myntum og hagnast á
sterkri stöðu krónunnar eru byrjuð
að breyta þeim lánasamningum í ís-
lenzkar krónur til þess að forðast
áfall vegna gengisfalls krónunnar,
þegar það kemur.
Sennilega er það ótrúlega algengt
að einstaklingar hafi verið með hús-
næðislán og jafnvel bílalán í erlend-
um myntum, sem gæti haft alvarleg-
ar afleiðingar ef mestu svartsýnis-
spár um fall krónunnar rætast. Búast
má við að þessir aðilar leiti eftir
breytingum á þeim lánasamningum,
ef sú tilfinning verður sterk að geng-
isfallið komi fyrr en almennt hefur
verið reiknað með.
Í fjármálaheiminum eru uppi mis-
munandi skoðanir um þetta efni.
Sumir telja, að mikið gengisfall geti
komið, hvort sem er fyrir áramót eða
fljótlega eftir áramót. Aðrir telja að
þetta sé víðs fjarri öllum veruleika.
Þeir sem vilja vera öruggir um sína
stöðu eru byrjaðir að gera ráðstafanir
en einmitt þær aðgerðir þeirra geta
flýtt fyrir falli krónunnar.
Og svo er milljón dollara spurning-
in þessi: Verður Seðlabankinn jafn
fyrirsjáanlegur og hann hefur verið
eða kemur hann með óvænt útspil?
Átök um ál
Það sem er einna athyglisverðast í at-
vinnulífinu þessa dagana eru átökin í
álheiminum á Íslandi. Nú takast þrjú
álfyrirtæki á um hvort þau fá heimild
til að byggja álver hér og þá hvenær
og með hvaða hætti. Alcan vill stækka
álverið í Straumsvík en sú stækkun
mundi þýða þrefalda afkastagetu
miðað við núverandi álver í Straums-
vík. Sennilega er mesti vandinn, sem
Alcan stendur frammi fyrir á þessum
vettvangi skipulagsmál Hafnarfjarð-
ar og hugmyndir um tengingu byggð-
arinnar í Hafnarfirði við Voga og
Reykjanesbæ. Vilja menn hafa risa-
stórt álver inni í miðju bæjarfélag-
inu? Hins vegar er Straumsvík senni-
lega komin lengra með undirbúning
en aðrir. Umhverfismat liggur fyrir.
Alcoa vill byggja nýtt álver við
Húsavík og Landsvirkjun hefur
styrkt stöðu sína á orkumarkaðnum
með landakaupum. En verður ein-
hver losunarkvóti eftir? Er hag-
kvæmt að byggja álver á Íslandi ef
fyrirtækin þurfa að kaupa kvóta? Eða
er hugsanlegt að fyrirtækin geti flutt
með sér kvóta frá öðrum löndum með
því að leggja niður úrelt álver þar?
Norðurál vill byggja álver í Helgu-
vík og hefur skapað sér sterka stöðu
með samningum við Reykjanesbæ,
Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu
Reykjavíkur. Móðurfyrirtæki Norð-
uráls er lítið fyrirtæki í Bandaríkj-
unum. Er hugsanlegt að eitthvert
stóru álfyrirtækjanna reyni að kaupa
Norðurál og hvaða áhrif mundi það
hafa á ofangreind áform?
Gengið að veikjast?
innherji@mbl.is
’Fyrirtæki og einstakling-ar, sem hafa verið með
skuldbindingar sínar í
erlendum myntum og
hagnast á sterkri stöðu
krónunnar, eru byrjuð að
breyta þeim lánasamn-
ingum í íslenzkar krónur
til þess að forðast áfall
vegna gengisfalls krón-
unnar, þegar það kemur.‘
FJÁRFESTIRINN goðsagna-
kenndi, Warren Buffett, hefur ákveð-
ið að draga úr fjárfestingum sínum í
gjaldmiðlum öðrum en dollar en fjár-
festingarfélag hans, Berkshire
Hathaway, hefur það sem af er ári
tapað um 900 milljónum dollara
vegna stöðutöku gegn dollarnum.
Buffet, eins og svo margir aðrir,
taldi víst að hinn mikli viðskiptahalli
Bandaríkjanna myndi veikja doll-
arann og veðjaði stórt. Alls var hann
með framvirka samninga um gjald-
eyriskaup að andvirði um 21,5 millj-
arða dollara í júní síðastliðnum. Í
september losaði hann sig undan ein-
hverjum af þessum samningum svo
andvirði gjaldmiðlasafns hans er nú
um 16,5 milljarðar dollara. Til eru
þeir sem nú velta fyrir sér hvort karl-
inum sé farið að förlast en hann er
orðinn 75 ára gamall.
Safninu breytt?
„Honum til málsbóta verður að nefna
að hann minnkaði gjaldeyrissafn sitt
áður en nýleg styrking dollars kost-
aði hann enn meira,“ segir Tim Russo
hjá Gardner, Russo & Gardner sem á
um 250 milljónir hluta í Berkshire, í
samtali við Bloomberg-fréttastofuna.
Fátt virðist þó hafa gengið Berks-
hire í hag á þessu ári en afkoma fé-
lagsins á þriðja fjórðungi ársins var
48% lakari en á sama tímabili í fyrra.
Ástæðan mun vera sú að trygginga-
félög á borð við General Re og Reico
eru mjög mikilvæg í tekjuflæði
Berkshire en í kjölfar fellibyljanna
Katrínar og Rítu hefur tíðin verið
mjög slæm tryggingafélögum. Þann-
ig kostuðu fellibyljirnir félögin tvö
um 3 milljarða dollara í bætur sem
síðan leiddi til versta fjórðungs hjá
Berkshire frá 2001.
Sérfræðingar Bloomberg telja lík-
legt að Buffett hafi á einhvern hátt
breytt safni sínu til þess að takast á
við vandamálið og máli sínu til stuðn-
ings benda þeir á að á þriðja ársfjórð-
ungi nam hagnaður af gjaldeyriseign
um 29 milljónum dollara, þrátt fyrir
að gengi dollars gagnvart evru og
jeni hefði styrkst á tímabilinu.
„Ég veit ekki hvernig hann fór að
þessu. Kanadíski dollarinn hefur
styrkst að undanförnu, hann gæti
hafa keypt kanadíska dollara,“ segir
Chris Melendez, forstjóri Tempest
Asset Management í Kaliforníu.
Þarf að breyta?
„Það er möguleiki að hann hafi lokað
einhverjum af þessum samningum á
tímabilum þegar dollarinn var veik-
ari,“ segir Russo og bætir við: „Þetta
er allt saman háð tímasetningu.“
Það vekur athygli að verðmæti
gjaldeyrissafns Buffetts hefur ekki
verið lægra síðan í árslok 2003 þegar
það var 11 milljarðar dollara. „Nafn
hans hefur áhrif og það getur orðið til
þess að hækka gengi dollars,“ segir
Kamal Sharma, gjaldeyrissérfræð-
ingur hjá Bank of America í London.
Í ljósi þess að tekjur Berkshire
minnkuðu í kjölfar fellibyljanna telja
margir sérfræðingar að tími sé kom-
inn fyrir Buffett til að breyta að-
ferðafræði sinni. Einn þeirra er Jos-
eph Parnes, forstjóri Technomart
Investment Advisors í Baltimore, en
hann telur að gengi Berkshire muni
falla. „Það er kominn tími til fyrir
Buffett að dreifa safni sínu betur,“
segir hann í samtali við Bloomberg.
Sá hlær best …
En hverju þarf Buffett að breyta?
Hann er talinn vera næst ríkasti mað-
ur í heimi og hefur á síðustu fjórum
áratugum breytt Berkshire Hatha-
way úr misheppnaðri vefnaðarverk-
smiðju í risastórt fjárfestingarfélag
sem á eignir upp á 135 milljarða doll-
ara. Margir hafa áður orðið til þess að
spá því að hann væri að tapa sér en
hann hefur alltaf sýnt að sá hlær best
sem síðast hlær.
sverrirth@mbl.is
Goðsögnin Ekki er gott að segja
hvort Warren Buffett sé farið að
förlast en hann hefur áður sýnt að
sá hlær best sem síðast hlær.
Er Buffett farið að förlast?
VIÐSKIPTAVINUM
Símans gefst nú kostur
á að tengja farsíma sína
við samanbrotið lykla-
borð. Í tilkynningu frá
Símanum segir að lykla-
borðið geri það mögu-
legt að skrifa texta og
vinna í skjölum í sama
umhverfi og í tölvunni.
Vegna þessa hefur
Síminn sett á markað
hugbúnaðarlausnir fyr-
ir farsíma- og lófatölv-
ur, sem eiga það sam-
eiginlegt að veita
viðskiptavinum tæki-
færi á að vera í stöðugu
sambandi við tölvupóst,
dagbók og tengiliði í
gegnum GPRS-kerfi
Símans.
„Nú er hægt að skilja
fartölvuna eftir heima
og tengjast tölvunni
með farsímanum og
nýta lyklaborðið við alla
hefðbundna tölvuvinnslu, því með
lyklaborðinu er nú í fyrsta sinn
mögulegt að slá inn tölvupóst og
önnur skjöl án þess að skrifa beint í
símann,“ segir í tilkynningu Sím-
ans.
Í samstarfi við Microsoft hefur
Síminn hafið sölu á Microsoft-
símum sem styðjast við lyklaborðið.
Á næstunni mun Síminn svo bjóða
fjölnota farsímana frá BlackBerry,
sem eru sérhannaðir til að vinna
með tölvupóst og dagbækur.
Þá býður Síminn einnig hugbún-
aðarlausnina OpenHand frá fyr-
irtækinu Softís. Með henni er settur
upp nýr hugbúnaður í sjálft sím-
tækið. Hugbúnaðurinn gengur með
mörgum gerðum símtækja en með
honum næst aðgangur að gögnum
sem annars þarf að samræma á
milli tölvu og farsíma.
Samanbrotið lyklaborð
með Microsoft-síma
Ný tækni Sævar Freyr Þráinsson, fram-
kvæmdastjóri farsímasviðs Símans, með nýja
símtækið tengt við lyklaborð.
MICROSOFT á Íslandi stóð fyrir
ráðstefnu í Smárabíói sl. mánudag
fyrir forritara og tæknimenn í til-
efni nýrrar útgáfu af Visual Studio
2005, SQL Server 2005 og BizTalk
Server 2006. Á ráðstefnunni fluttu
ýmsir sérfræðingar fyrirlestra um
þessa nýju tækni. Í lok ráðstefn-
unnar var síðan skipt yfir á beina
útsendingu frá San Francisco þar
sem Steve Ballmer, forstjóri Micro-
soft, kynnti nýju vörurnar.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Steve Ballmer í Smárabíói