Tíminn - 24.06.1970, Page 1

Tíminn - 24.06.1970, Page 1
1 VerlcfaHsverðir yfirmanna á farskipum, við landfestarnar á Bestum og Selfossl á Grandagarði í gærdag. (Tímamynd: Gunnar) Yfirmenn stöðvuðu brott- för leiguskipsins Bestum Undanþága með skilyrðum veitt í gærkvöldi KJ-Reykjavík, þriðjudag. Norska flutningaskipið Best- um var eitt af fyrstu farskipun um ,sem stöðvaðist í Reykja- víkurhöfn vegna verkfalls hafn arverkamanna, og komst það ekki úr höfninni vegna þess, að Selfoss liggur utan á þvi við bryggjuna á Grandagarði, og farmenn hafa verið í hópum niður við höfn, til að sjá um að landfestar Selfoss væru ekki hreyfðar. i kvöld veittu þeir Kristiansen sklpstjóri á Bestum. Lenti i svipuðu fyrir stríð. hins vegar undanþágu með viss um skilyrðum. t Bestum kom hingað til Reykjavíkur 2. júní, og er því búið að vera þrjár vikur í höfninni. Áttj skipið að fara héðan klukkan tólf á hádegi í dag, en verkfallsverðir far- manna, „settust á pollana", eins og það var orðað við höfn ina, og komu þannig í veg fyrir að landfestar Selfoss væru hreyfðar, svo Bestum kæmist út. Hópur verkfallsmanna var við afturfestar skipanna um há- degið, en um borð í Bestum var verið að mála. Fréttamaður Tímans fór um borð í skipið, og fann skip- stjórann þar sem hann hafði lagt sig eftir hádegismatinn í íbúð sinni. Skipstjórinn, sem heitir Kristiansen, sagði að ráð gert hefði verið að hann sigldi héðan um hádegið, cn það hef ur ekki orðið af því ennþá, því miður. Sagðist skipstjórinn ekki vita hvert ferðinni væri heitið, en héðan frá Reykjavík er hann með tómt skip. Hafði eitthvað kom'ið til mála, að hann færi á aðrar hafnir til að sækja farm, en ekkert væri Framhald á bl» 14 Tíminn ræðir við bændur og ráðunauta á Norður- og Norðausturlandi: Meira kal í túnum en dæmi eru til um áður SB-Reykjavík, þriðjudag. Tún á Norður- og Norðausturlandi eru víSa mjög illa kalin og eru menn sammála um, að ástandið sé verra en nokkru sinni fyrr. Verst munu tún þó líta út í Þingeyjar- sýslum, og er þar fyrst og fremst um nýttkal að ræða. í Svarfaðardalnum er meira og minna kal á hverju túni, en þar lá svell yfir öllu, mánuðum saman í vetur. í Fljótum er víða mikið kal, en annars staðar í Skagafirði er ástandið skárra. Grímur Jónsson á Ærlækjarseli í Axarfirði, sagði í viðtali við blaðið í dag, að mjög mikið kal væri í öllum túnum í Kelduhverf- inu oa að langcnestu leyti nýtt. Aðeins nýjar sléttur frá í fyrra erj þar óskemmdar og sæmilega sprottnar. Á Langanesi mun eteki vera miteið kal, en annars eru öll tún austan Jökulsár í sárum. Tilfinnanlegast mun kalið vera í Þistilfirðinum, því þar voru tún graslítil fyrir, frá 1968, þegar mikið teól. Reynt hafði verið að rækta þau upp að talsverðu leyti síðan, en nú er það allt unnið fyrir gýg. — Við áttum alls etetei von á svona kali eftir þennan vetur, hann var ekki frostharður og þetta kom otekur gjörsamlega á óvart, sagði Grímur að endingu. Ævar Hjartarson, ráðunautur á Akureyri, sagði, að talsverð brögð væri að kali í Eyjafirði, sérstaklega frammi í dölunum, Hörgórdal, Öxnadal og Ólafsfirði og innst í Eyjafirðinum. Framar væri ástandið betra. Undanfarin ár hefur Ársteógar.strbndin verið illa farin af kali, en í vetur var þar meiri snjór og ekki mjög mi’kið nýtt kal. Spretta í héraðinu sagði Ævar, að vaeri heldur hæg, en þó væri ekki mjög langt í slátt sums stað ar, tii dæmis í Hrafnagilshreppn- um. Hjörtur Þórarinsson á Tjörn í Svarfaðardal, sagði að þar í daln- um væri teal mjög mikið. — Við hérna höfum n-ú etetei kynnst þessu áður, nema af afspura. Bændur á SuSurlandi ræða ástandið á af- réttar- og beitilöndum eftir Heklugosið: Skipuleggja víðtæka áburðardreifingu á heimahaga - afréttir víðast undir ösku Stjas-Vorsabæ, þriðjudag. í gær var haldinn fundur á vegum Búnaðarsambands Suðurlands á Hvoli, með gróðurvarnarnefndum á Suður- landi. Voru gróðurverndar og landeyðingar- og land- græðslumál rædd á breiðum grundvelli. Páll Sveinsson, landgræðslustjóri og Ingvi Þorsteinsson, landgræðslu- fulltrúi, voru gestir fundarins og ræddu þeir um þessi mál, ásamt ráðunautum Búnaðarsambandsins, Hjalta Gestssyni og Einari Þorfinnssyni. Gróðurverndarnefndirnar steýrðu frá sínum störfum og gerðar voru áætlanir um frek- ari starfsemi þeirra. Samtkv. þeim athugunum sem gerðar hafa verið að undanförnu er víða ofsett í afréttir og beiti- lönd og ísteyggileg þróun sums staðar í héraðinu í þessum efn um. Verið er að skipuleggja allsherjar áburðardreifingu vegna Hetelugossíns, en mikið af beitiltindum hefur farið und ir ösku. Til dæmis er vitað máj að Skeiða- og Flóamanna- afrétt verða ekki nothæfir í sumar. Stór hluti at Biskups- tungnaafrétti og eitthvað af: Hrunamannaafrétti verður ekki hægt að nýta. Þegar þétt ist í högum verður að vinna beitina upp með áburðardreif- ■ ingu. Verið er að vinna að því að áburðarflugvélin verði lát- in annast dreifinguna. En ekki er sýnilegt að eins og er, fáist allt það áburðarmagn sem þarf. En reynt verður að leysa vandamálin eins og tök verða á. Allt fé Flóamanna verður að vera í heimahögum í sumar og sama er að segja um fé Skeiðamanna. Verður að bera á þar sem þéttast verður bitið.1 Hér er meira og minna kalið á hverjum bæ, en þó minna frammi í dölunum, enda var þar meiri snjór. Hér neðan við lágu svell yfir öllium túnum mánuðum sam- an. Bændur hér bíða bara og vona, þeir framtatessamari eru að reyna að sá grænfóðri í dauðu túnin. Mikið verður sennilega heyjað af engjum í sumar og yfirleitt allt það land, sem hægt er að nýta. Svo kemur í ijós seinna, hvort grípa þarf til þess að fækka fé á fúðrum í vetur, sagði Hjört- ur að lokum. Fpr skólanema atvinnu- lausir OÓ-Reykjavík, þriðjudag. Hátt á þriðja hundrað skóla- nemar í Reykjavík eru nú skráðir atvinnulausir og er ekki nema lítili hluti þess hóps sem hefur von um vinnu í sumar. Af þess- um fjölda eru nær 200 piltar og virðast mun færri stúlkur sem eru atvinnulausar, það er að segja miðað við þann fjölda sem látið hefur skrá sig sem atvinnu- leysingja, en líklegt má telja affl mun fleiri stúlkur hafi ekki feng ið vinnu, þótt þær séu ekki á atvinnuleysisskrá. Nemendur við menntasteólana í Reykjavíte hafa eigin vinnumiðl- unarsterifstofur og hefur tekizt að útvega mörgum vinnu gegnum þær, m.a. hafa talsvert margir framhaldsskólanemar fengið vinnu erlendis. En samt eru margir sem ektei hefur tekizt að útvega atvinnu og líti] von virðist til affl svo verði fyrr en þá seint og síðar meir, ef atvinnulífið glæðist. f Reytejavík eru nú skráðir 354 atvinnulausir, 233 karlmenn og 121 kona. Meðal þeirra eru 24 verzlunarkonur. Bryndís Schram um sýningu Þjóðdansa- félagsins - bls. 2

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.