Tíminn - 24.06.1970, Blaðsíða 5

Tíminn - 24.06.1970, Blaðsíða 5
•flÐVIKUDAGUR 24. júní 1970 TÍMINN 5 MEÐ MORGUN KAFFINU Pasesturinn var í heimsókn í þorpsskólanum og nú var hann að fara. Að lokum sagði hann við börnin: — Þið hafið nú verið dugleg og svarafð fjölda spurninga, svo það er ekki nema sanngjarnt, að þið spyrjið mig svolítið. Friðrik litli var ekki seinn á sér, að rétta upp hendina. — Hvað vilt þú spyrja um, litli vinur? — Mig langar bara til að vita. hvort, ef þér stæðuð fast- ur upp að höku í kviksyndi og einhver kastaði stórum steini í áttina til y@ar, þér mynduð stinga höfðinu ofan í líka? — Stillturðu vekjaraklukkma, elskan? Nemanda var vísað frá stúdentsprófi eftir skriflega stærðfræði. Faðir hans fór fokreiður til rektors, og spurði. hver meiningin væri. — Hann svindíaði! — Getið þér sannað það? — Það er auðvelt. í prófinu sátu nemendurnir tveir og tveir við borð. Hér eru svör sessunautar sonar yðar. Eitt þeirra er svona: Þessu get ég ekki svarað. Sonur yðar svaraði sömu spurningu á þessa leið: Ekki ég heldur. Skólastjórinn var í heimsókn. — í dag ætla ég að spyrja ykkur tveggja spurninga, sagði hann við nemendurna og sneri sér að þeim fyrsta. — Ef þú getur svarað þeirri fyrri rétt, sleppurðu við að svara þeirri síðari. — Hvað eru mörg hár á svörtum hesti? Drengurinn hugsaði sig um stundarkorn en svaraði svo: — 87421. — Hvernig geturðu svarað því svona nákvæmlega spurði skólastjórinn hissa. — Þú sagðir, að ég slyppi við að svara fleiri spurningum. DENNI DÆMALAUSI Ó, Ó. Guð sprcngdi annaö öryggi. \ i < ( ( Veronica Collen-Smith heitir hún þessi og starfar fyrir brezka flugfélagið B.O.A.C., hún gerir ekki anna'ð en fljúga með vélum félagsins baðstrand- anna á milli og lætur mynda sig á bikini, síðan sendir B.O.A.C. myndir af henni út um víða ver öld og reynir að tæla mig og þig til að skreppa með til suð- rænna landa. Veronica segist vera mikill aðdáandi baðstr(anda, og safna skeljum á öllum þeim strönd- um : sem hún tyllir tánum á. Hún segir að skelijarnar megi ekkj vera stórar, því hún megi ekki fara með nema vissan þunga með sér í flugvélina, en samt á hún dáfallegt safn úr öllum heimshornum, t. d. frá Hongkong, Sydney, Honolulu, Beirut, Kýpur og San Francisco, „og þá fæ ég líka mikið af skeljum í Bombay. Bombay er góður skeljastaður, þar er svo mikið af litlum skeljum sem auðvelt er að taka rtieð sér. Þær eru dásamlega fallegar, litskrúð ið svo mikið,“ eða svo segir hún Veroniea sem er 26 ára gömul og hefur starfað fyrir B.O.A.C. um nokkurra ára skeið. í þessari viku verður hún komin til Vestur-India, „mér er sagt að baðstrendur á Mart inique séu sérlega fagrar.“ Fjögur dönsk ungmenni léto lífið fyrir skömmu, eftir að hafa stokkið út af þriðju og fjórðu hæð fjölbýlishúss eins, en ungmenni þessi voru undir áhrifum fíknilyfja, þ.e. LSD í þessu tilfelli. Þessir unglingar voru allir óvanir að taka LSD, og er áhrifin svifu á þau, fannst þeim skyndilegá, að þau gætu flogið. í fréttinni er greinir frá þessum óhugnanlega afburði segir, að þetta slys sé aðeins eitt af mörgum dæmum er greini frá misnotkun lyfja sem LSD í Danmörku. ★ Tveir sprengjusérfræðingar þurftu að beita öllu sínu and- lega jafnvægi er þeir voru kallaðir til áð gera óvirka sprengju sem fannst á akri ein- um skammt frá Kent, Englandi. Auðvitað er það fremur hvers dagslegt starf fyrir sprengju- sérfræðinga að möndla við sprengjur, en hér kom annað til. Er þeir voru ikomnir út á akurinn og farnir að bardúsa við sprengjuna, dreif að þeim múgur manns sem hreinlega virtist spretta þarna upp úr grasinu. Og hjarlsláttur sér- fræðinganna jókst mjög er þeir sáu, að hver einasti áhorfandi var kviknakinn. Sérfræðingarn- ir höf'ðu nefnilega ekki hug- mynd um að þeir höfðu verið sendir til að gera óvirka sprengju frá því í síðasta stríði, en þar sem sprengjan féli, er núna sólbaðsstaður strípalinga. Eftir að sérfræðingarnir höfðu unnið sitt starf, sagði ritari strípalingaklúbbsins: „Mennirnir unnu frábært verk undir erfiðum kringumstæ'ð- um“ * Á myndinni til vinstri er hann Nikki Elverson, 21 árs piltur úr London að kyssa brúði sína, Sallý Locke, en hún er bara 17 ára. Á myndinni til hægri er svo frændi hans Nikka, Tekki Tilly, 56 ára að kyssa brúði sína, en hún er móðir hennar Sally litlu Locke og heitir Eunice Locke. Þau létu dómara einn í Aldersholt gefa sig saman og á eftir héldu þau mikla veizlu sem Sally litla sá algjörlega um. Þau sögðu að húsið væri svo fulit af brúðargjöfum, að engu væri líkara en verið væri að halda þar uppboð. -sí

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.