Tíminn - 24.06.1970, Blaðsíða 14
14
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 24. júnf 1970
1. t/g 2. júní voru gefin út
bráðabirgðaíög, sem hafa mjög
mikll áhrif á fiskverðið. Ég
vil minna á, að hugmynd um
stofnun áhafnardei'ldar varð
til við undirhúning að gerð
sacnninga í febr. ’69, sem voru
að síðustu lögbundnir. Stofnun
þessarar deildar var liður í
lausn erfiðrar deilu, sem sjó-
menn fengu ekki að leysa við
samningaborðið. Aðilar að
saimíkomulagi um gjaldstofn
fyrir deildina og upphæð sú
sem ákveðin var að greidd
skyldi pr. dag var gerð af aðil
um deilunni með fulltrúa frá
efnahagsstofnuninni, sem skip
aði oddamann í yfirnefnd Verð
lagsráðs.
Sjómenn stóðu í þeirri trú
að oddamaður Verðlagsráðs
h'efði verið fulltrúi Sjávarút-
vegsmálaráðuneytisins og gegn
ir furðu, að einn aðili þessa
satnkomulags þ.e. sjávarútvegs
málaráðuneytisins skuli rifta
því samkomuilagi sem staðið
hefur síðan lögin og, samning
arnir voru gerðir. Á síðasta
Aliþingi var breytt lögum Afla
og fleira
tryggingarsjóðs og aukin út-
gjöld sjóðsins þrátt fyrir mót
mæli samtaka yfirmanna. Ekki
sá hið háa Alþingi ástæðu til
að gerðar yrðu ráðstafanir í
sambandi við áhafnardeildina
til að auka tekjur hennar, af
þei-m sökum álitu þeir sem laun
taka úr aflaverðmæti, að ríkis
sjóður yrði látinn standa undir
þeim greiðslum sem af laga
breytingunni hlytist. Á síðasta
ári munu tekjur áhafnadeildar
hafa verið um 90 milljónir kr.
Nú hefur úitflutningsverð hækk
að til muna svo að gera má
ráð fyrir að það V2% sem nú
er tekið geri að minnsta kosti
50 milljónir kr.
Vísit'ölukostnaður 1 fertug-
asti af þeirri upphæð sem
greiða á eða tæplega það og
samkvœmt því ætti kostnaður
við vísilölubindingu fæðiskostn
aðar að geta verið 4—5 millj.
krónur.
Ekki er sjáanlegt annað en
teknar hafi verið margíaldar
þær upphæðir sem til áhafna-
deildar þarf vegna umsaminna
kaupliða og hefði ekkert þurft
að hækka, þar sem útfliutnings
verðmæti er nú mikið hærra
en á síðasta ári, eða sem nem
ur að minnsta kosti 10% eftir
sögn Morgunblaðsins. Ekki er
annað sýnilegt en sjómenn
þurfi í framtíðinni að binda
við samningagerð fiskverð það
sem gilda á yfir samningstíma
bilið. Auk þess sem áður er
tatið eru útflutningsgjöld hækk
uð gífurlega, af freðfiski um
10% og öðrum lið 1%. hvert er
ríkisstjórnin að fara með þessu
móti? Á ennþá að taka við
ranglætmu þegjandi og þakka
stjórninni fyrir tillegg hennar
til hátíðahalda sjómanna? Var
stjórnin að þakka sjómönnum
störfin á síðastliðinni vertíð
með þessum ráðstöfunum?
Ingólfur Stefánsson.
Norska skipið
Framhald af bls. 1
ákveðið.
Hann sagðist hafa lent í svip
uðu fyrir stríð. Þá var hann á
norsku skipi, sem tepptist í San
Fransisco..
Bestum er 2700 dw og á því
er 16 manna áhöfn.
Er fréttamaður kom frá
borði, var Ingólfur Stefánsson
framkvæmdastjóri Farmanna-
og fiskimannasambandsins kom-
inn á vettvang. Ingólfur sagði
að Eimskip hefði verið til-
kynnt um verkfallið og fyrir-
komulag þess í fyrri viku, og
hefði verið í lófa lagið, að
haga hlutunum þannig, að ekki
hef'ði þurft að koma til þess-
ara árekstra út af Bestum.
I dag óskaði Vinnuveitenda-
sambandið eftir fundi með full
trúum farmanna um málið og
samkomulag varð um að leyfa
skipinu að fara gegn því að
ekkert yrði reynt til að brjóta
þau ákvæði sem verkfallsmenn
hafa sett og virtar þær reglur
sem settar voru í upphafi. en
þær voru meðal annars að
skip yrðu ekki hreyfð i höfn-
inni.
Gullfoss kemur á morgun til
Reykjavíkur. Leggst hann upp
að gömlu uppfyllingunni, og
hefur verið leyft að Laxfoss
verði færður að Ingólfsgarði.
í kvöld fer norska skipið frá
Reykjavík og til Straumsvíkur.
Áætlanagerð Nixons
Framhald af bls. 9
fimm árum v;egna aukningar
vinnuafls og framleiðnimögu-
leika þess.
í öðru lagi flytur skýrslan
áætlun um þær kröfur, sem
líklegt er að gerðar verði um
afköst efnahagslífsins á þessum
tíma, — og er þá átt við kröfur
neytenda, kröfur athafnalífsins
um fjárfestingu, kröfur um í-
búðabyggingu og hvers konar
kröfur hins opinbera. Kröfur
hins opinbera stafa bæði af
áætlunum, sem verið er að
framkvæma, og nýjum áform-
um, sem ríkisstjórnin hefir
lýst. Einnig fylgir skrá um
skatttekjur samkvæmt áætlun
um skatta næsta fjárhagsár.
VITASKULD er margt í ó-
vissu um þessar áætlanir. Þrátt
fyrir það leiðir samanburður á
áætluðum heildarafköstum og
heildarkröfum í ljós, a'ð mögu-
leikar okkar eru ekki ótakmark-
aðir, þrátt fyrir auðæfi Banda-
ríkjanna. Kröfur, sem þegar eru
kunnar, gleypa mjög mikinn
hluta af framleiðslu þjóðarinn-
ar fram til ársins 1975.
Þetta táknar þó engan veg-
inn að ríkisstjórnin geti ekki
lagt fram nýjar áætlanir fram
til ársins 1975. Hitt ætti að
verða Ijóst við lestur skýrslunn-
ar, að þjóðin verður að velja
milli mismunandi áætlana.
Flutningar
Framhala af Ws 16.
í bilum sínum ýfir blánóttina, til
að tefja sem minnst.
Vegir eru að verða alilgóðir um
allt héraðið. Vaktoskipti eru á
vegheflunum og hafa þeir aidrei
stanzað allan sólarhringinn síðan
verkfallinu lauk, og eru vegir að
komast í gott horf vjðast hvai.
Sumir bændur voru lítinn eða
engan áburð búnir að fá og er nú
unnið myrkranna á milli við að
dreifa áburði á túnin. Kal er víða
í túnum, en þar sem túnin á ann-
að borð eru í góðri rækt hefur
spretta tekið við sér síðustu daga.
Hér neðarlega í sýsilunni er
búið að sleppa kúm, en ver noaf
ir í uppsveitunum. í Biskupstung
um er tæpast hægt að setja út
kýr ennþá, veikjast sumar og eru
illa haldnar.
Heimsfréttir
Framhald af bls. 2
og berjast við Joe Frazier, nú-
verandi heimsmeistara. Clay
hefur ekki leyfi til að yfirgefa
Bandaní'kin, því hann bíður eft
ir úrskurði áfrýjunardómstóls
um neitun við að gegna her-
skyldu sinni.
NTB-IIelsingfors. — Þegar
íranskeisari og Farah Diba,
kona hans komu í opinbera
heimsókn til Helsingfors í gær,
voru um 200 stúdentar fyrir ut
an ráðhús borgarinnar. Þeir
báru spjöld með áletrunum eins
og: „Farið heim“ „Keisarinn
svikur írönsku þjóðina" og
„látið pólitíska fanga lausa“
100 lögregluþjónar komu til
skjalanna og handtóku 10—>15
af stúdentunum. Keisarahjönin
verða í Finnlandi í 5 daga.
fþróttir
Framhald af bls. 12
ast aftur á sunnudag. Þar sigraði
Sveinn Long Bjarnason á nettó
74 höggum, annar Kristján
Tryggvason á 77, og þriðji Pétur
Elíasson á 84 höggum. Beztum
árangri náði hinn gamaikunni golf
keppandi Jóhann Eyjólfsson, en
hann fór á 84 höggum brúttó.
■fc f dag kl. 17,00 hefst hjá Golf
klúbbi Reykjavíkur Coca Cola-
keppnin, sem er 72 holu keppni,
með og án forgjafa. Leiknar verða
18 holur í dag, og lýkur keppn-
inni á laugardaginn. Coco Cola-
keppnin er opin keppni, og ein
sú stærsta og elzta, sem hér er
haldin.
Kvennasíðan
Framhald at ois. 7
borðstofuhúsgögnin úr tekki,
eins miikið og hægt var af tekki
í sófasettinu, vegghillurnar úr
tekki, sjónvarpið úr tekki, út-
varpsfónninn úr tekki, öll smá
borð úr tekki. og sem sagt allt,
sem hægt var að koma því við
að nota í tekk. Nú er tekkþreyt
an farin að segja til sín, og
ég veit þess dæmi, að hvítt
málninganlag þekur þessar
dýrindis tekkkommóður, sem
áður voru svo eftirsóttar. Það
gerist víðar en í bókum Lax-
ness að harðviðurinn er málað-
ur, en ’hann lét vörubílstjóra
í Kristnihald undir jökli mála
nýju palisanderin'nrétting-
una sína með sinkhvitu.
En ef til vill ættu þeir, sem
eiga tekkhúsgögn að bíta á jaxl
inn, og reyna að umbera þau
í nokkur ár enn, þau eldast,
og verða að dýrgripum eins
og annað, sem hefur náð að
verða gamalt. Ég leit inn í
fornverzlun fyrir skömrnu, og
þar var mér boðið sett borð-
stofuhúsgagna, skenkur, an-
réttuborð, dekkatauskápur,
borðstofuborð og sex stólar,
allt úr ei'k. Þessir hlutir hefðu
selzt fyrir lítið til sfcamms
tíma. eigendurnir ef til vill
orðið þeirri stund fegnastir, ef
einhver hefði viljað keyra þá
á haugana fyrir litla borgun.
Nú er annað uppi á teningn-
um. Hlutirnir voru íalir fyrir
65 þúsund krónur. fcðems. Þvi
segi ég það, tekkið hlýtur að
vefða antik, eins 02 flest ann-
að, ef nógu lengi er beðið.
AUGLÝSIÐ
í TÍMANUM
ÞAKKARÁVÖRP
Öllum þeim, fjær og nær, sem glöddu mig og
heiSruðu 7. júní s.l. með heimsóknum, heiilaskeytum
og gjöfum, færi ég innilegar þakkir. Lifið heil.
Bjartmar Guðmundsson.
Móðir okkar
Sigrún Eiríksdóttir Hjartarson,
lézt 22. þ.m. að Elliheimillnu Betel, Gimli Manitopa, Canada.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Hjörtur E. Guðmundsson.
Þökkum af alhug auðsýndan vlnarhug við fráfall,
Herborgar Guðmundsdóttur,
Tungu.
Sérstaklega viljum við þakka Alfreð Gíslasyni Isekni og hjúkrunar-
liðl á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir frábæra umönnun.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð vlð andlát og jarðarför,
Guðmundar Kristins Kristinssonar,
Jaðri, Dalasýslu.
Slgríður Guðjónsdóttir,
Rögnvaldur Guðmundsson
og aðrir ættingjar.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
Sigfús Kr. Gunnlaugsson
viðskiptafræðingur, Hvassaleiti 139,
lézt i Borgarsiúkrahúsinu 22. júni.
Ragnhildur Eyja Þórðardóttlr
og börnin.
TILKYNNING
Samkvæmt samningum milli Vörubílstjórafélags-
ins Þróttar í Reykjavík og Vinnuveitendasambands
íslands, og samningum annarra sambandsfélaga,
verður leigugjald fyrir vörubifreiðar frá og með
19. júní 1970 og þar til öðruvísi verður ákveðið,
eins og hér segir: Dagv. Eftirv. Nætur- og helgid.v.
Fyrir 2V2 tonna bifr. 242,90 278,10 313,30
— 2V2-.3 t. hlassþ. 269,40 304,60 339,80
— 3 —3j/2 + hlassþ. 295,90 331,20 366,40
— 3V2—4 t. hlassþ. 320,20 355,40 390,70
— 4 —4V2 t. hlassþ. 342,30 377,60 412,80
m i 1 + L. hlassþ. 360,10 395,30 430,60
— 5 —5V2 t. hlassþ 375,50 410,70 446,00
— 51/2—6 t. hlassþ. 391,00 426,30 461,50
— 6 — 61/2 t. hlassþ. 404,20 439,50 474,70
— 6V2—7 t. hlassþ. 417,50 452,80 488,00
1 <1 ! <1 £ t. hlassþ. 430,80 466,10 501,30
co i i t. lilassþ. 444,10 479,30 514,60
Iðgjald atvinnuveitenda til Lífeyrissjóðs Landssam
bands vörubifreiðastjóra innifalið í taxtanum.
Landssamband vörubifreiðastjóra.