Tíminn - 26.06.1970, Side 7

Tíminn - 26.06.1970, Side 7
P’ÖSTUDAGtTU 26. Júní 197® Otgofsndl: FRAMSÓKNARt'LOKKURINN Framfcvæmdaertj6rt: Kristján Benedflrtsson RttstJOrar: Þórarinn Þdrarinsson (áb). Andés Krlstjánsson, Jón Helgason og Tóma* Karlason. Angjýsingaetjórl: Stetngrímur Gislason Ritstjórnar- ricrifstofur 1 Edduhúsinn. simar 18300—18306. Skrifstofur Banikastraetj 7 — Afgreiðslusiml: 12323 Auglýsingasiml- 19523. ABrar Bfcrtfstofur simi 18300. Áskrifargjald kx. 165.00 á mán- u9i, innanlanda — í iausasðlu kr. 10.00 elnt Prentsm Edda hf. Hagnaður S.Í.S. í skýrslu þeirri um rekstur Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga á árinu 1969, sem Erlendur Einarsson, for- stjóri, flutti á aðalfundi þess í fyrradag, kom m.a. í ljós, að umsetning þess hafði orðið um 4.281 millj. kr. á árinu, og hafði aukizt um 39% frá fyrra ári. Þegar þess er gætt, hve umsetning Sambandsins varð mikrl, þarf e(kki að undra, þótt tekjuafgangur yrði nokkur í krónutölu. Samkvæmt skýrslu forstjórans varð hann 21,9 millj. kr., eftir að þessir liðir höfðu verið færðir til gjalda: Afskriftir af eignum 30,2 millj., af- skrifaðar skuldir 40,6 millj., endurgreiðsla til sambands: félaga 10,4 millj., og endurgreiðsla til frystihúsa 9,4 míllj. Þá voru samhandsfélögunum greiddir vextir af stofnsjóði 10,2 millj. kr. Sjóðir og höfuðstóll hækkuðu á árinu um 53,5 millj. kr. Hin bætta aðstaða S.Í.S. hefur orðið til þess, að það hefor nú getað hafizt handa um ýmsar framkvæmdir, en þær höfðu verið í algjöru lágmarki á árunum 1966 —458. Vegna brunans á Akureyri, var ákveðið að hefja þegar uppbyggingu þeirra verksmiðja sem skemmdust í eldinum og einnig, að ráðast í byggingu nýrrar loðsútunarverksmiðju, sem gæti sútað í 1. áfanga um 300.000 gærur á ári, og er hér um að ræða mestu framkvæmd, sem Sambandið hefur lagt í á sviði iðnaðar. Var unnið að þessum framkvæmdum á árinu 1969, og verður sútunarverksmiðjan fullbúin á þessu sumri. Þá var á árinu samið um kaup á nýjum vélum í Gefjun og Heklu, sem koma til með að stórauka afköst þessara verksmiðja. Þá samdi skipadeild S.Í.S. á síðastl. ári um byggingu á nýju 1680 lesta frystiskipi, sem afhenda á haustið 1971. Nýlega var samið um smíði á öðru skipi, 2600 lesta, sem afhendast á í desember 1971- Hagnaður sá, sem hefur orðið á rekstri S.Í.S. á síðastl. ári, hefur þannig stuðlað strax að stórauknum fram- kvæmdum, er munu efla og styrkja atvinnulíf þjóðar- innar á komandi árum. Það er þannig öllum hagur, að fyrirtæki eins og sam- vinnufélögin geti skilað nokkrum arði til að halda áfram uppbyggingu atvinnulífsins. Það er jafn mikilvægt og að launþegar búi við sæmileg kjör. Þess vegna er jafn rangt að fárast yfir bættri afkomu atvinnuveganna og að skammast út af lífvænlegri kjörum launafólks. Þetta tvennt þarf að haldast í hendur, ef vel á að fara, og getur líka gert það, ef rétt er stjórnað. Aðkaliandi samstarf Á aðalfundi S.Í.S. urðu umræður um samstarf Sam- vinnuhreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar. Er- lendur Einarsson forstjóri minntist nokkuð á þessi mál í skýrslu sinni og urðu umræðumar í framhaldi af því. í lok þessara umræðna samþykkti fundurinn einróma tillögvi, þar sem skorað er á stjóm Sambandsins að taka upp viðræður við forystumenn Alþýðusambands íslands um nánara samstarf þessara tveggja stærstu fjöldahreyfinga í landmu. Því ber vissulega að fagná, að aðalfundur S.Í.S. skyldi þannig hafa frumkvæði að viðræðum við verkalýðshreyf- inguna og ber að vænta þess, að þær beri tilætlaðan árangur. Það er þeim báðum mikilvægt, að hér geti skapazt svipað samstarf milli þeirra og er annarsstaðar á Norðurlöndum. Þessar hreyfingaa- em í raun greinar á sama stofni og eiga að haga samskiptum sínum sam- kvæmt því. Þ.Þ. TÍMINN 7 ERLENT YFIRLIT j Ráðuneytið, sem Keath hefur ! myndafi, fær yfirleitf gööa dóma Mest athygli beinist að þeim ráðherrum, sem eru óreyndir HEATH forsætisráðherra Breta hefur nú lokið stjórn- armyndun sinni að mestu. Hann lauk á einum degi tnynd- un sjálfs xáðuneytisins, sem verður skipað 18 mönnum, en þar eiga jafnan sæti þeir ráð- herrar, sem skipa þýðingar- mestu emhættin að mati for- sætisráðherrans. Heath hefur síðan verið smátt og smátt að skipa í önnur ráðherraembætti og í embætti aðstoðarráðherra. I þau embætti hefur hann aðal fe lega valið menn, sem ekki f| hafa gegnt ráðherrastörfum áður, og er nú verið að veita tækifæri til að reyna sig. Sum- ir þeirra geta þvi átt mikinn fratna fyrir höndum. Eins og að vanda beinist aðalathyglin að skipun sjálfs ráðuneytisins og reyna blaða- menn m.a. að draga af því ályktanir af væntanlegri stefnu stjórnarinnar. FLEST veigamestu embætt- in eru Skipuð mönnum, sem hafa langan ráðherraferil að baiki Staðgengill forsætisráð- herans verður Reginald Maud- ling (53 ára), sem jafnframt verður innanríkisráðherra. — Maudling er talinn frjálslynd- ur og þykir val hans í stöðu innanríkisráðherra benda tdl, að Heath ætli að fylgja hóf- samri stefnu í málum blökku- manna, í trúarbragðadeilun- um í Norður-írlandi og í fram kvæmd löggæzlumála, en 611 þessi mál munu heyra uadir Maudling. Skipun hans í em- bætti innanríkisráðherra hefur mælzt vel fyrir, en hann hefur áður gegnt miikilvægum ráð- herrastörfum. Fjármálaráðherra er Iain MacLeod (56 ára), sem áður hefur gegnt margvíslegum ráð- herrastörfum og þótt reynast vel. Hann er lang gáfaðasti maðurinn í heimskum flo&ki, er haft eftir Michael Foot um MacLeod. Hann er talinn bezti ræðumaður flokksins í þing- inu, en þykir nokkuð erfiður í sambúð. Yfirleitt hefur skip un hans í fjármálaráðberraem- bættið mælzt vei fyrir. Utanríkisráðberra er Alex Douglas-Home (66 ára). Hann var einn nánasti aðstoðarmað- ur Newille Chamberlains á ár- unum 1937—39, og sat með honum Munehen-fundinn fræga. Hann bar þá nafnið Dunglass lávarður, en hann er kominn af frægri aðalsætt. Hann varð utanríkisráðherra 1960 og for- sætisráðh. 1963—64, en lét af flokksforustunni 1065. Hann þykir líklegur til fylgja gam- alli hefðbundinni utanríkis- stefnu Breta að svo miklu leyti, sem hægt er. Heath hef- ur bersýnilega valið hann í utanríkisráðherraembættið til að fullnægja afturhaldssamari mönnum flotoksins. Dónasmálaráðherra og forseti lávarðardeildarinnar er Quin- Carrlngton lávarSur Margaret Hilda Thatcher Anthony Lysberg Barber tin Hogg (62 ára), sem hefur sögurfloaa stjórnmálaferil að baki og talinn er einn mikil- hæfasti maður flokksins. Það embætti, sem hann fær nú, þykir mikil tignarstaða og gegndi faðir hans því um skeið. Því er ekki ólíklegt að Hogg hafi viljað Ijúka stjórn- málaferli sínum þar, en þessu embætti fylgir það, að hann verður að afsala sér þing- mennsku. ÞEHt FJÓRIR menn, sem hér hafa verið nefndir, eru allir gamalþetoktir og reyndir og hefur því 611u meiri athygli beinzt að þeim mönnum í ráðu neytinu, sem telja má nýrri af nálinni. Af þessum nýliðum hefur einna mesta athygli beinzt að eftirtöldum mönn- um: Anthony Perrinot Lysberg Barber (49 ára), verður ráð- herra án sérstakrar stjórnar- deildar, en aðalstarf hans verð ur að annast samninga við Efnahagsbandalagið. Lysberg- nafnið stafar af því, að móðir hans var dönsk, en faðir hans var brezkur sælgætisframleið- andi. Barber dvaldist oft í Dan- möriku og Þýzkalandi fyrir styrj61dina og talar því sæmi- lega dönsku og þýzku. Hann var orrustuflugmaður á stríðs- árunum, flugvél hans var skot- in niður og hann teíkian tíl fanga. Hann strauk úr fanga- búðunum, en náðist aftur, og vann sér síðar til frægðar að læra lögfræði meðan hann var fangi. Hann var kosinn á þing 1051 og hefur átt þar sæti síðan. Hanu hefur verið for- maður landssamtaka íhaldis- flokksins síðan 1067 og þykir mjög snjall skipuleggjari. Hann er talinn einna nánasti samstarfmaður Heatlh. Robert Carr (54 ára) verður verMýðmálaráðherra og tekur þvi við hinu vandasama em- bætti, sem Barbara Castle gegndi. Hann er iðjuhöldur, sem hefur látið stjómmál og verkalýðsmál mjög til sín taka. Hann hefur gert sér sér- staM far um að kynnast for- ustumönnum verkalýðssamtak anna og er álitið, að þeir hefðu fáa fhaldsmenn fremur kosið í þetta emibætti. Vandasamt starf bíður hans, því að íhalds flokkurinn hefur boðað löggjöf til að hindra ólögleg verkföll, en Wilson gafst upp við slíka lagasetningu. Carrington lávarður (91 árs) er varnarmálaráðherra. Hann hefur áður gegnt ýmsum ráð- herraembættum, m.a. verið flotamálaráðherra. Síðustu ár- in hefur hann verið málsvari íhaldsflokksins í lávarðardeild B inni. Hann nýtur mikils álits bæði sem stjórnmálamaður og fjármálamaður. Hann á sœti í stjórn ýmissa banka og fjár- málastofnana, m.a. Hambros og Barclays. Margaret Hilda Thatcher (44 ára) er menntamálaráð- herra. Hún er lögfræðingur að mennt og hefur setið á þingi síðan ’59. Hún er sögð gáfuð og einbeitt. Hún hefur verið talin hallast að hægri armi íhalds- flokksins, en er þó mikill and- stæðingur Powells. í skólamál um er hún s6gð mikill fylgj- andi einkastoóla. Þó hún sé einheitt, er hún sögð órög við að skipta um skoðun, ef hún telur sig komast að raun um, að hún hafi etoki haft rétt fyrir sér. Talsmaður íhaldsflotoksins í neðri málstofunni verður Will- iam Stephen Ian Whitelaw (51 árs), og fær sem slíkur sæti í ráðuneytinu. Hann hefur ver- ið framtovæmdastjóri þing- flokksins (Chief Wliip) síðaa 1964, en hefur átt sæti á þingi síðan 1955. Hann er landeig- andi og bóndi að starfi. Hann | Framhald á bls. 11. _

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.