Tíminn - 26.06.1970, Page 8
*****
8
TIMINN
SÞRÓTTIR
FÖSTUI) A <ÍUR 26. júní 1070
PANELOFNAR
LÆGRI
HITAKOSTNAÐUR
BETRI HITANÝTING
HÆRRA HITAGILDI
Reíknum hitaþörf og ofna-
stærð.
Sendið okkur teikningu — við
sendum tilboð um fast verð.
Það er prýði að
PANELOFNUM.
ÍSLENZK FRAMLEIÐSLA.
Söluumboð:
HITATÆKI H.F.
Skipholti 70,
sími 30200
MOSM
MEST NOTUÐU
HJÓLBARÐAR
Á ÍSLANDI
Flestar gerðir
ávallt j
fyrirliggjandi
FÓLKSBÍLASTÖÐIN
AKRANESI
! MALVERK
i
j Gott úrval Afborgunar-
j kjör. Vöruskipti. — Um-
j boðssala.
Gamlar bækur og antik-
! vörur.
! Önnumst inrömmun mál-
I verka.
MÁLVERKASALAN
TÝSGÖTU 3.
Simi 17602.
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
Nivada
<£>■■
OMEGA
JfllpÍSUL.
PIERPOÍIT
Magnús E. Baldvlnsson
Laugavegi 12 - Sfmi 22804
Verkir, þreyta í baki ?
DOS/ beltin hafa eytt
þrautum margra.
Reynið þau.
R.EMEDIA H.E
LAUFÁSVEGI 12 - Sími 16510
Heims-
þekkt
merki, —
gæðavara
CEBO
f svcitina, í fcrðalög, í íþróttirnar
Fást I fiestum skóverzlunum.
Nýtt ungmenna-
félag stofnað í
Vík í Mýrdal
Laagardaginn 20. júní s.l. var
stofnaS nýtt ungmennafélag í Vik
í Mýrdal, en þar hefur ekki starf
að ungmennafélag síðan 1955
Aðalhvatamaður ,að stofnun fé-
lagsins. og fundarstjóri á stofn-
fundinum var séra Ingimar Ingi-
marsson, sóknarprestur f Vík, en
Ingimar á einnig sæti í Æsikulýðs
nefnd Vestur-Skaftafellssýslu.
Hafsteinn Þorvaldsson, formað-
ur Ungmennafélags íslands, sat
stofnfundinn, ásarnt framkvæmda-
stjóra UMFÍ, Sigurði Geirdal.
Stofnfundinn sóttu um 40 ung-
- menni á aldrinum 14—1!8 ára,
I sem öll gerðust stofnfélagar, þá
j sátu fundinn nokkrir eldri áhuga
; menn, þar á meðal settur sýslu-
1 maður Vestur-Skaftfellinga, Þor-
i leifur Pálsson. Hétu þeir fyllsta
stuðningi hinu nýja félagi, og
hvöttu ungmenni staðarins til
i déða undir merki ungmennafélags
hreyfingarinnar.
Kjörin var þriggja manna stjórn.
Form. Ævar Harðarson. gjald-
keri Þórður Karlsson, og ritari
Anna Björnsdöttir.
Boðað verður til framhaldsstofn
fundar fljótiega, þar sem gengið
verður frá lögum félagsins,
nefndaskipun, og félaginu gefið
nafn.
Um árabil hefur verið starfandi
■ í Vík æskulýðsfélag undir leið-
sögn séra Ingimars Ingimarsson-
ar, það mun nú starfa sem yngri
deild innan ungmennafélagsins.
Mikill og vaxandj íþróttaáhugi
hefur nú gert vart vi'ð sig í Vest-
ur-Skaftafellssýslu, og þörfin fyrir
fjöllþætt æskulýðsstarf verður
mönnum æ Ijósari. Hið nýja og
glæsilega félagsheimili „Leikskál
ar“ skapa hinu nýstofnaða félagi
ákjósanlega aðstöðu til ýmiss kon
ar félagsstarfsemi og íþróttaiðk-
ana innanhúss.
íþróttaaðstaða utanhúss er enn-
þá frefkar ófullkomin, en mifcill
áhugi er hjá hinum ungu félög-
um að fá hana bætta sem fyrst,
og góður skilningur forráðamanna
á staðnum fyrir því.
Fulltrúar UMFÍ á stofnfundi
fluttu fræðsluerindi um starf og
stefnu Ungmenaafélags fslands,
og hétu hinu nýstofnaða félagi
fyllsta stuðningi í starfi.
Á sumnudag 21. júní boðuðu
fulltrúar UMFÍ til fundar í félags-
heimilinu að Kirkjubæjarklaustri,
þar sem mættir voru allmargir
fulltrúar frá ungmennafélögunum
í Vestur-Skaftafellssýslu.
Tilefni þessa fundar var, að
sameina og endurvekja uugmenna
samhand, er næði yfir sýsluna
alla, og kanna stöðu félagsskapar
ins í sýslunni.
Mikill áhugi var á því að
blása nýju lífi í félagsstarfið, og
vinna að frekari samstarfi félaga
á milli, undir forustu ungmenna-
samihandsins. Samþykkt var að
vinna að því að bæta aðsíöðu
til íþróttaæfinga, og ko«* á
keppni í íþnóttum, j afnfraæt því
sem aðrir þættir félagsstarfsins
yrðu efldir svo sem tök værn á.
Þá var samþ. að reyna að fá
íþróttakennara til starfa þegar á
þessu sumri, og skipuleggja ferð
ir hans tii þjálfunar um sambands
svæðið.
Hið óformlega sambandsþing
samþ. að lokum að stefna að því
að halda héraðsmót í íþróttum
í haust og þá einnig reglnlegt
héraðsþing.
Á þessum fundi var kosin 5
manna bráðabirgðastjórin. sem sit
ur til næsta héraðsþings og á
hún að vinna að frekari fram-
gangi mála, og endurvafcningu Kf-
lítilla félaga á sambandssvæðinu.
Stjórnina skipa: Þorsteinn Gísla
son, Nýja-Bæ, Bergur Ingimund-
arson, Melhól, Haukur Valdimars
son, Kirkjubæjarklaustri, Reynir
Ragnarsson frá Höfðabrekku, og
Ævar Harðarson Vík í Mýrdal.
l'Frétt frá UMFÍ)
íslandsmót í
körfuknattleSk
kvenna
Klp-Reykjavík.
í sambandi við íþróttahátfðina
í byrjun næsta mánaðar, fer fram
hér í Reykjavík fslandsmót í
körfuknattleik kvenna.
Keppt verður bæði í meistara-
flotkki og 2. flotoki, og verður
leikið í íþróttahúsinu á Seltjamar
nesi, en úrslitaleikirnir fara fram
í Laugardalshöllinni þann 7. júlí.
í 2. fl. taka þátt 4 lið, eitt af
Norðurlandi, Hörður, ísafirði,
Snæfell, og KR. f meisfcarafl.
taka einnig þátt 4 lið: KR og ÍR
úr Reykjavík, Snæfell og UiMFS.
Féllu í 2. deild
Klp-Reykjavík.
Eisenstadt, liðið, sem Her-
mann Gunnarsson lék með í
Austurríki s.l. sumar féll í 2.
deild á keppnistímabilinu sem
lauk þar nú fyrir skömmu.
Íþróttasíða Tímans hafði
samband við blaðamenn frá
stærsta íþróttabl aði_ Austurrík-
is, „Sport und Toto“ — og
sagði hann okkur að Eisenstadt
hefði fallið ásamt FC Dornbirh
og Austria Klagenfurt, en
þrjú lið falla niður í hvert
sinn, og hefðu þessi lið verið
lang neðst.
Sigurvegari liefði orðið með
yfirburðum Austria Wien, síS-
an hefði komið Winer Sportsk
Rapid, bezta lið Austurríkis
mörg undanfarin ár hefði verið
slakt í þetta sinn, og verið neð
arlega í deildinni.
Hann sagði að liðsandinn
hjá Eisenstadt hefði farið ört
versnandi er á leið, sérstak-
lega eftir að Pfeiffer hefði orð
ið að hætta. Margir af beztu
ieikmönnum Eisenstadt hefðu
óskað eftir því að verða seldir,
og væru þeir nú allir famir
frá félaginu, sem sæti eftir
með heldur lítilfjbrlegan mann
skap.
Enginn vissi hvar Pfeiffer
væri niðurkominn þessa stund
ina, en hann væri örugglega
ekki í Austurríki eða þar í ná-
grenninu.