Tíminn - 16.08.1970, Síða 16

Tíminn - 16.08.1970, Síða 16
Sunnudagur 16. ágúst 1970. ^ Rætt við fyrstu matreiðslukonuna - Bls. Þingeyingar halda upp á 11 alda afmæli íslandsbyggðar Gísli Helgason úr Veshnannaeyjum viS nýju IBM-blindraritvélina. iamvinnustarfsmenn SB-Reykjavík, laugardag. Þingeyingar ætla aS halda upp á 11 alda afmæli íslandsbyggðar um næstu helgi, og er þaa hvorki meira né minna en fjórum árum á undan öðrum íslendingum. Raun ar er það 11 alda byggð í Þing- eyjarsýslu, sem um ræðir, því Garðar Svavarsson kvað hafa kom ið til Húsavíkur, áður en Ingólf- ur Arnarson settist að í Reykja- vík. Hátíðin hefst á ftistudagskvöldiS með dansleik í Félagsheimilinu, en hátíðin verður sett á laugar- daginn á útisamkomu. Þar verður Garðars Svavarssonar minnzt í ræðu bæjarstjóra, Björns Frið- finnssonar. Karl Kristjánsson, fyrr verandi alþingismaður flytœr þætti úr sögu Húsavíknr og síðan verða skeanmtiatriði. Síðari hluta laugardagsins verða sýndar fþrótt ir og keppt í ýmsum greinum. Um kvöldið er kvöldvaka, þar sem flutt verður ýmislegt þjóðlegt efni og að lokucn verður dansað. Sunnudagurinn hefst með guðS' þjónus'tu 'kl. 10.30 og eftir hádegið ' verða íþróttir og tónlist á dag-' skránni og trni kvöldið kvöldvaka \ og dans. Bæði kvöldin verða flug- ■ eldasýningar á miðnætti. Þingeyskir málarar opna mál-1 verkasýningu í Barnaskólanum á, Húsavík á fimmtudaginn o« verð' ur hún opin að minnsta kosti: hátíðardagana. KJ—Reykjavík, laugardag. Samvinnustarfsmenn í Verzl iu n arm&n naf óiiagi Reyk javíkur hafa gefið B'lindraskólanum og Bókagerð blindra, fyrstu blindra ritvélina, sem kemur til lands ins. Með tilkomu þessarar vél- ar verður bókaútgáfa fyrir blinda mikið auðveldari, en blindraritvél þessi, sem er af IBM gerð, er hvers manns með færi. Hér fer á eftir fréttatilkynn ing frá blindrastarfseminni um gjöf þessa: Stjórn deildar samvinnustarfs manna í Verzlunarmannafélagi Reykjiavíkur ákvað fyrir nokki*u, að gangast. fyrir fjár söfnun meðal samvinnustarfs- manna og samvinnufyrirtækja í Reykjavík tii kaupa á IBM rafmagnsritvé'l, sem skrifar blindraletur í stað svartlefcurs. Vélin er hinn mesti kjörgrip ur og kostar með leturbreyt- ingu fimmtíu þúsund krónur. Hinn 29. júlí s.l. afhenti stjórn Deildar samvinnustarfs- mianna í VR vél þessa full- trúum Blindraskól'ans og Bóka gerðar blindra, sem þökkuðu stjórninni og hinum mörgu gefendum hina veglegu gjöf. Geigvænlegur heyskortur víða á Vestfjörðum og Norðurlandi — að áliti Harðærisnefndar, sem ferðazt hefur að undanförnu um landiðu Sumarhátíð FUF í Árues- sýslu Hin árlega sumarhátíð Félags jtingra Framsóknarmanna í Árnes ’sýslu verður í Árnesi, hinu nýja jng glæsilega félagsheimili Gnú*v verja, laugardaginn 22. ágúst og ihefsí kl. 21. Hljómsveit Ólafs 'Ga"ks, Svanhildur og Ómar Ragn arsson skemmta. — FUF i Árnes sýslu Ríkisstjórnin mótmælir >IOB-Reykjavík, laugardag. Ríkisstjórn íslands hefur sent utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna mótmælaorðsendingu, vegna áforma Bandaríkjahers um að sökkva taugagasbirgðum 450 km. út af strönd Flórída. Ríkisstjórn- in varar við mögulegri mcngun, sem af þessu gæti stafað. Héraðsmót \ Barðastranda- sýslu Héraðsmót Framsóknarmanna í Barðastrandarsýslu, verður haldið í Tálknafirði, föstudaginn 21. ágúst og hefst kl. 9 síðdegis. Ræður og ávörp flytja: Stein- grímur Her- mannss., Halldór Kristjánsson og Ólafur Þ. Þórð- arson. Ómar Ragnarson skemmtir. — Hljómsveitin BG og Ingibjörg Steingrímur lelka fyrir dansl* Halldór Ólafur Harðærisnefnd hefur að undan- förnu ferðazt um Vestfirði, Strandasýslu, SnæfeUsness og Hnappadalssýslu, Dalasýslu, Húna- vatnssýslur, Skagafjörð, Eyjafjörð og Su'ður-Þingeyjarsýslu, til að kyima sér heyskaparhorfur, en þær hafa verið siæmar vegna mikilla nýrra og eldri kal- skemmda í túnum og vegna kulda, auk þess sem sumir bændur báru of seint á vegna þess, hve seint þeir gátu fengið áburð. Verði hlýviðri það sem eftir er sumars og sæmileg heyskapartíð, getur ástandið batnað nokkuð og grænfóður komið að meiri not- um en nú lítur út fyrir. Samt sem áður er auglj óst að geigvæn- legur heyskorfcur verði fyrir hendi í mörgum hreppum allt frá Hvammsfirði vestur og norður um land að Héraðsfilóa. Nefndin hélt fund með forráða mönnum búnaðarsa'mbanda og sveitarfélaga á þeim svæðum, sem útlitið er labast. Þá hefur nefnd- in haft samband við nok'kra bænd ur og ráðunauta á Suðurlandi, Austurlandi og Norðausturlandi til að fregna um heyskaparhorf- ur þar. Á suðaustanverðu landinu frá Eyjafjallasveitum um Skaftafells- sýslur o,g Suður-Múlasýslu er hey fen'gur í meðaliagi að vöxtum. Á Suðvesturhluta landsins þ. e. Rang árvallasýslu vestan Eyjafjalla, Ár- nessýsiu, Gullbringu- og Kjósar- sýslu, Borgarfjarðar- og Mýra- sýslu og Snæfellsness og Hnappa- dalssýslu lítur út fyrir að heyskap u,r verði frá meðallagi niður í hálf an heyskap. í Norður-Þingeyjar- sýslu er mikið nýtt kal í Sval- barðshreppi og nokkuð í Keldu- hverfi og í Norður-Múlasýslu eru miklar kalskemmdir í mörgum túnum 5 hreppa á utanverðu Fljótsdalshéraði og Jökuldal Að öðru leyti munu heyskaparhorfur í N.-Þingeyjai'sýslu og N.-Múla- sýslu svipaðar og á Suðvestur- landi. í Suður-Þingeyjarsýslu, Eyja- firði, Skagafirði, Húnavatnssýsl- um og Dalasýslu hefux spretta víðast hvar verið óvenju lítil og mjög mikið kai í túnuim í nokkr um hreppum í öfluim þessum sýsl um, allra verst í Ljósavatnshreppi, Bárðardal og Fnjjóskadal í Þing- eyjai*sýslu og í Haganesbreppi í Sfcagafirði. Mikið fcal er einnig í úthluta Eyjafjarðar og í öllum útsveitum Norðurlands svo og á nokfcrum hæjum í Dalasýslu. Á þessum svæðum verður heyskapur hjá mörgum, sem hafa fcalin tún innan við 20% af meðalheyskap, en hjá öðrum frá 40—80% af með alheyskap. f Starandasýslu er mjög mikið kal um alla sýsluna, en þó meira eftir því sem norðar dregur. í sýslunni eru heyskaparhorfim* ein- sbakra bænda^ frá 10—60% af með alheysikap. í Norður-ísafjarðar- sýslu er ástandið jafnverst, bæði vegna kals og sprettuleysis á þeim fáu blettum, sem eru óskemmdir. Varla mun nokfcur bóndi ná 50% af meðalheyskap_ í sýslunni, en flestir 10—20%. í Vestur-ísafjarð arsýslu og Barðastrandasýslum báðum er ástandið nokfcru betra. Að vísu eru daúðkalin tún á nokkr um býlum í þessum sýslum, en á meira hluta býla má vonast eftir 50—80% heysbapar. Harðærisnefnd lagði á fundum sínum ríkt á við bændur, að beyja allt land, sem kostur væri að slá, enda þótt ekki sé um véltækar slægjur a0 ræða, ýmist tún á eyði- býlum, engjar og grösugar eyjar. Hét nefndin í því sambandi að mæla með aðstoð við flutning á slíku heyi. Þá hefur nefndin þegar ákveðið að beita sér fyrir heymiðlun eftir því sem kostur er á. Eins og horf- ur eru nú verður lítið heymagn til miðlunar ínilli landshluta, en brýn þörf að útvega þeim hey, sem verst eru settir, til þess að þeir geti a. m. k. haldið lífi i kjarnanum af bústofni sínum. Sér staklega þarf þó að tryggja að halda lífi í kúim á þeiim svæðum,. sem ©lla yrði tilfinnanleigur mjiSfc urskortur á, eins og á ísafirði Sá heyfengur scm þegar hefttr i aflazt í landinu er ágætlega verfc-; aður. ; í Harðærisnef.nd. Jón L. Axnalds, Halldór Pálsson ; og Einar Ólafsson. Hátíð í Arbæ Oó—Reyfcjavík, Igiugardag. Afmælis Reykjavíkur, sem er 18. þ.m. verður minnzt á morgum, sunnudag, með myndarlegri úti- skemmtun í Árbæ, en venja er að balda upp á afmælið þá helgi sem næst er sjálfum afmælisdeginum, þegar hann ber upp á virkan dag. Hátíðardagskráin hefst kl. 2 og verður sitthvað til skemmtunar. Birgir Kjaran, albingismaður, flytur ávarp og Matthías Johann- essen, skáld flytur ljóð. Síðan fer fram sérstæð íþróttakeppni, sem Stefán Kristjánsson, íþróttafulltrúi, stjórnar. Keppni verðut miilli KR og ÍR í reiptogi og Ármann og Víkingur keppa í stultuboðhlaupi. Þá gengst Reyfcvíkingafélagið fyrir bögglauppboði að gömlum og góðum sið. Uppboðshaldarinn verður hinn aldni og fcunni borgari Meyvant Sigurðsson. Boðnir verða upp fáir bögglar, en í þeim verða góðir munir. Ágóði af uppboðinu rennur til Árbæjar safns. Síðan verður stiginn dans á úti- danspallinum á Árbfejartúni, og þar verður harmonika þanin, en annað hljóðfæri er yfirleitt ebki notað á þeim danspalli. Að sjálf sögðu verða öll hús safnsins opin.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.