Tíminn - 30.08.1970, Blaðsíða 7

Tíminn - 30.08.1970, Blaðsíða 7
SUNNUDAGUR 30. ágúst 1970. TIMINN ibæta heiisu sína, sem alltaf er það veigamesta og oftast auð- velt í framkvæmd heima fyrir. Pálína R. Kjartansdóttir Imatrá'ðskona Ihefur sýjni- kennslunámskeið við og við fyrir dvalargesti, og að henni hefur verið mjðg mikil og vax- andi laðsókn, sem er augljós vottur hess að áhugi hús- mæðra á jurtafæði er mjög að aukast. Starfið hér við hælið er orðið ofmikið fyrir einn lækni en skilyrði eru góð og batn- andi til að veita nauðsynlega læknisþjónustu. Það sem aðal- lega veldur erfiðleikum er vönt un á sjúkraþjálfun. Árni Áshjarnarson hefur verið framkvæmdastjóri heilsu hælis Náttúrulækningafélags- ins í 12 ár. 3Ég komst í snertingu við náttúrulæikningastefn- una, vegna þess, að ég var frá unga aldri gigtveikur og heilsuveill og var gefið í skyn af ágætum læknum, að ég þyrfti varla að vonast eftir fullum bata. Þessu vildi ég ekki hlíta en hafði samband við Jónas Krist jánsson lækni, og hvatti hann mig til að koma strax suður sem ég gerði. Tók hann þegar sjúkdóm minn til meðferðar og má segja að hann vekti yfir mér eins og smábarni, enda batnaði mér fljótlega. Þegar mér svo var boðið að taka hér við framkvæmda- stjórastarfinu, fannst mér ég ekki geta hafnað þvi. Aðeins þrjú ár voru liðin frá því að hæiið tók tii starfa, þeg- ar ég tók við. Búið var að steyipa grunninn að miðálm- unni og engir peningar til nema kr. 100.000,00 frá Reykja vikurborg. Með þessu fé var byrjað og svo tekin lán eftir því sem hægt var. Lánstofnan- ir tóku okkiur yfirleitt vel og greiddu fyrir framikvæmdum. Höfum við hjá þeim notið vax- andj tiltrúar og getað breytt lausum skuldum í lengri föst lán. Ríkissjóður hefur árlega lagt fram nokkurn bygginga- styrk, áð vísu ekki háan, og mætti frekar segja að þar væri um siðferðilegan og viður- fcennandi stuðning að ræða en verulegt f járframlag. f upphafi hafði ég ekki trú á að þessi uppbygging myndi takast, fannst skorta fjárhags- legan grundvöll, en þá kom almenningur ti.l sögu, keypti hlutdeildarskuldabréf og lán- aði þannig mikið fé. Og nú er ég bjartsýnn. Hér er allt í uppbyggingu og fjár- hagsörðugleikar minni. Stofnunin hefur þegar mætt þeim vinsældum, að óhjá- kvæmilegt er að byggja ann- að hæli í svipuðu formi eigi að vera tök á að fullnægja að einhverju verulegu leyti eftir- spurn frá því fólki, sem sann- arlega þarfnast hælisvistar. Starfið hér hefur fyrir mig verið lærdómsríkt og upp- byggjandi. Ég hef átt góð sam- skipti við þá, sem hér hafa dvalizt og sé eftir því hvað ég hef haft lítinn tíma til að ræða við fólkið og kynnast því. Ef um árekstra er að ræða, þá er það helzt í sambandi við að fólk vilji sniðganga reglur, sem hér verður að framfylgja, en að því eru svo hverfandi lítil brögð að þáð fyrnist fljótt. Hitt er öllu ljósara og leng- ur í minni, hve margir leggja sig fram um að vera góðir gest ir, og fara héðan þakklátir og heilbrigðari en þeir komu og vilja mega leita hér hælis aft- ur ef þeir þarfnast þess. Margt það fól-k sem hér kem ur öðru sinni hefur haft við orð, að því fyndist sem það væri að koma heim. Þetta við- horf er okkur, sem hér störf- um, mikið ánægjuefni. Og þann heimilisbrag þarf að varðveita, sem skapar frið og öryggi meðal dvalargesta. Ég hef látið mér detta í hug þann möguleika og hreyft ’ið ráðamenn, áð hér rísi upp heimili, handa þeim börnum, sem þurfa þess með að eign- ast athvarf og komast í kynni við hollar lifsvenjur í ríki gróandans. Og vera mætti, áð það, staðsett í grennd við elli- heimili, gæti orðið þess vald- andi, að bláþráðurinn í nú- timaþjóðfélagi — bilið milli hinna elztu og yngstu yrði brúað með gagnkvæmri kynn- ingu, án þess að skapa þeim öldnu erfiðleika hins daglega amsturs. Já, Árni, og ef til vill mun þá ömmusagan gefa okkur ann að nóbelsverðlaunaskáld. Þ.M. TILKYNNING um lögtaksúrskurð 29. ágúst s.'L var úrskurðað Iögtak vegna ógreiddra þing- gjalda, bifreiðagjalda, skemmtanaskatts, tolía, skipulags- gjalda, skipagjalda, öryggis- og vélaeftirlitsgjalda, raf- stöðva- og rafmagnseftirlitsgjalda, gjalda vegna lögskráðra sjómanna, söfuskatts og aukatekna ríkissjóðs álagðra í Hafnarfirði og Gullbringu- og Kjósarsýslu árið 1970. Lögtök veriða framkvæmd fyrir gjöldum þessum, að liðnum 8 dögum frá birtingu auglýsingar þessarar, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tíma. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Deildarstjóri óskast Stórt innflutningsfyrirtæki vill ráða vel hæfan mann til að annast stjórn á heildsöludeild, er selur vefnaðar- og fatnaðarvörur. Undir starfið falla, auk stjórnar á fólki, erlend og innlend vörukaup og erlendar bréfaskriftir. Tilboð með nauðsynlegum upplýsingum sendist afgreiðslu blaðsins, merkt: „Vefnaðarvara — Fatnaður — 1094“ fyrir 10. sept. n.k. Undan rótum Reykjafjalls streyma heitar lindir, sem bjóða að- stöðu til ylræktar, og leirhverir hlaða kringum sig jarðefnum, sem fróðir menn telja, að stutt geti að bættri heilsu fólks í landinu. 'Hér sjást nokkrir dvalargesta njóta góða veðursins. | SKULTUNA eldhúsáhöBd I | meðTEFLON Hvað ei* TEFLON? T E F L O N er ný uppgötvun, gerð af hinu heimsfrœga firma, sem fann upp nylon. Eldhúsóhölcl, pottar og pönnur er húðað innan með T E F L O N-efninu og veldur þaS byltingu í nothœfni aluminium búsóhalda. KosfiiP TEFLONs Minni feitisnotkun, hollari fœða, stefktur eða soðinn matur festist ekki við pott- inn eða pönnuna. Uppþvotturinn er leikur UmboS: Þórður Sveinsson & Co. hf. Auk þessara kosfa eru SKULTUNA óhöld prýSi á heimiiinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.