Tíminn - 30.08.1970, Blaðsíða 13

Tíminn - 30.08.1970, Blaðsíða 13
M . ' < i I I I I SUNNUDAGUR 30. ágúst 1970. TÍMINN Línurnar að skýrast Þó að línurnar í 1. deild séu nokkuð farnar að skýrast, er erfitt að spá um úrslit keppn- innar. Að vísu liggur ljóst fyr- ir, hvaða lið munu bítast um efsta sætið — íslandsmeistara- titilinn — en það eru Kefla- vík, Akranes og Fram, en lið- in þar fyrir neðan eru öll í meiri eða minni falihættu. Vik ingar eru neðstir á blaði og er staða þeirra óneitanlega verst. Áður en tengra er haldið, skulum við líta á stöðuna i deildinni, eins og hún er fyr- ir leikina um heigina, og hve mörg stig liðin geta enn þá náð, miðað við, að þau vinnl leikina, sem eftir eru: Kefiavík 15 — getur náð 23 Akranes 15 — getur náð 23 Fram 12 — getur náð 20 KR 10 — getur náð 16 Akureyri 9 — gatur náð 17 Valur 8 — getur náð 16 Vestm. 7 — getur náð 15 Víkingur 6 — getur náð 12 Til nánari skýringar, skai það tekið fram, að öll liðin, nema KR og Víkingur eiga eft ir að leika 4 leiki, en KR og Víkingur 3. í fljótu bragði virðist keppn in um íslandsmeistaratitilinn standa eingöngu á milli Kefl- víkinga og Akurnesinga, þar sem þau hafa þriggja stiga for skot, en sarnt þarf ekki mikið að gerast til að Fram komist í spilið. Vinni Fram Akranes í leik liðanna, sem fram fer á Akranesi 5. september n.k., en á undanförnum áratug hef- ur það verið nær óbrigðul regla að Fram vinni Akranes á útivelli, og Akranes vinni síðan Keflavík í „úrslitaleik“ mótsins, þ. e. í síðari leik lið anna, sem fram fer í Keflavílk 12. september, skilur ekki nema 1 stig á milli þriggja efstu liðanna. í þessu dæmi er reiknað með, að Keflavík, Akranes og Fram vinni sína leiki nú tun þessa helgi. En ef úrslit þeirra leikja verða á annan veg (Akranes-Valur, Akureyri-Keflavík og Fram- Vestm.), t.d. að Keflavík og Akranes tapi stigum, getur baráttan orðið enn tvísýnni. En tapi hins vegar Fram — og Akranes og Keflavík sigri, þá mun baráttan standa ein- göngu á milli tveggja síðast- töldu liðanna um fslandsmeist aratitilinn. Eyleifor Hafsteinsson í leik gegn KR. Hann hefur ekkl sízt átt þátt í velgengni Akranes-liðsins í sumar. Háþrýstar 1” Miðstöðvardælur fyrirliggjandi á hagkvæmu verði. S M Y R I L L, Ármúla 7, sími 84450. Veljið yður í hag * Úrsmíði er okkar fag OMEGA Mvada ©lHgnjl JUpina. PIERPOflT Magnús E. Baldvlnsson Laugavegi 12 - Simi 22804 VÉLAVERKSTÆÐI HARÐAR SIGURÐSSONAR HÖFÐATÚNI 2 Annast viðgerðir á: Utanborðsmótorum Vélsláttuvélum Vélsleðum Smábátamótorum o. fL Slípum ventla og sæti. Einnig almenna jámsmíði. SÍMI 25105. Til þess að gera mönnum gleggri grein fyrir hvernig stáða efstu liðanna er, birtist hér tafla yfir leiki, sem bau eiga eftir: Keflavík. Akureyri 30. ágúst (úti) KR 8. september (úti) Akranes 12. sept. (heima) Valur 20. september úti) Akranes: Valur 30. ágúst (heima) Fram 5. sept. (heima) Keflavík 12. sept. (úti) Vestm. 19. sept. (úti). Fram: Vestm. 29. ágúst (heima) Aíkranes 5. sept. (úti) Akureyri 13. sept. (heima) KR 19. september Látum þá útrætt um efstu lið in, en víkjum aðeins að fall- baráttunni. Þegar litið er á töfluna, er greinilegt, að staða nýliðanna, Víkinga, er verst, þó að bsir hafi bætt stöðu sína með því að vinna KR á fimimtudagskvöld. Helzta von Víkinga er sú, að þeim takist að sigra Vestmannaeyinga í _____________________________13 siðari leik liðanna, sem fram fer í Reykjavík 5. septenlber. Sá leikur þarf ekki endilega að ráða úrslitum, en verður þó að öllum 'íkindum, þýðingar- mesti liður fallbaráttunnar. Víkingar eiga auk þess eftir að leika gegn Val á Laugardals- veili og Abureyri fyrir norðan, en Eyjamenn eftir að leika gegn Fram á Laugardalsveili (í gær) og gegn KR og Akra- nesi heima. Getur því margt gerzt enn þá. Enn þá eru Vai- ur, Akureyri og KR einnig í fallhættu, þó að staða þeirra sé skárri. En staðan ætti að skýrast enn betur eftir leikina nú um helgina. Hver svo sem úrslitin verð'a, þá er eitt Ijóst. Knattspyrnan er með betra móti þessa dag- ana, hver úrvalsleikurinn á fæt ur öðrum. Það er orðið virki- lega gaman að fara á völlinn og sjá knattspymu, sem býður upp á góðan samieik og skemmtileg augnablik, ólíkt því, sem var fyrri hluta sum- ars. alf. þegar annimar eru mestar er gott aö hafa Malta viö hendina Það er fátt eins hressandi og góður svaladrykkur og Malta súkkulaðíkex. Atmars mælir Malta með sér sjálft. Bragðið er svo miklu betra. H.F. SÚKKULAÐIVERKSM1ÐJAN SÍRÍUS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.