Tíminn - 10.09.1970, Qupperneq 14
I .
\ -
W&M:
iwk
u m
..> >:**/ : ** ;>-:.
•£5j
^ÍwÍk'
Sendir heim
„Den Nordiske“ ncfnast nýstofnuð samtök myndlist armanna, sem nú lialda sýningu í Charlottenborg á
SJálandi. f Kaupmannahafnarblaðinu Extrabiadet birtist í gær umsögn um sýningu þessa ásamt mynd-
inni hér að ofan, sem er af einu listaverkanna, en það er eftir Sigurjón Jóliannsson. f greininni segir,
að samtökin hafi verið stofnuð í því skyni að efna til nútímalegri sýninga en hingað til hafa tíðkazt.
Gagnrýnanda blaðsins finnst þó erfitt að koma auga á nýjungar á sýningunni, sem hann telur hefð-
bundna og lítt í samræmi við nútímann. Áhugaverðustu listaverkin skipa, að hans dómi, óæðri sess á
sýningunnl, í hornum og afherbergjum. íslendingarnir Tryggvi Ólafsson og Sigurjón Jóhannsson eru
ásamt þrem öðrum listamönnum þeir sem gagnrýnandinn telur eiga áhugaverðustu verkin á sýningunni.
Auglysing
SPÓNAPLÖTUR 10—25 mm.
PLASTH. SPÓNAPLÖTUR
13—19 mm.
HARÐPLAST
HÖRPLÖTUR 9—26 mm.
HAMPPLÖTL R 10—12 nm
BIRKI GABON 12—25 mm.
BEYKl-GABON 16—22 mm.
KROSSVHJUR
Birki 3—6 mm.
Beyki 3—6 mm.
Furn 4—10 mm.
með rakaheldu limi.
HARÐTEX með rakaheldu
lími V2' 4x9
HARÐVIÐUR
Eik 1". 1—2”
Beyki 1”. 1—%’, 2",
n
Teab 1—V4n, 1—W. *
2“ 2—%“
Afromosla 1", 1—Yí", 2“
Maghogny 1—2”
Irokt 1—2”
Cordia 2"
Pal/sandeT 1”, 1—
1—2“. 2—Vi”
Oregor Pine
SPÓNN
Eik — Teak
Oregon Plne — Fura
GuilálmuT — Álmur
Abakki — Beykl
Asknr — Koto
Am — Knota
Af'omnsra — Maghogny
Paíesander — Wenge.
FVRIRMGGJANDI
OG VÆNTANLEGT
Nýfar birgðii teknar
•’eim vikulega
VERZI.ro PAIt SEM ORVAL-
II) ER MES2 OG RJÖRIN
BEZ1
JO^t t OLnqciON H.F
HRINGBRAUT 121
SlMi 10600
Nýjar loftvarnar-
flautur settar upp
í Reykjavík
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
Viðvörunarkerfi Almanna-
varna hefur nú verið sett upp
á 19 stöðum í Reykjavík, og
er tengt við stjórntöflu í lög-
regiustöðinni. Stillingar og próf
anir á kerfinu fara fram í þess
um mánu'ði, og mega borgar-
búar búast við að heyra annað
slagið þann hávaða sem fram-
leiddur er til að vara við yfir-
vofandi hættu. Síðan fer fram
allsherjarprófun kerfisins og
verður almenningi þá kynnt
mismunandi þýðing merkja-
sendinganna.
Loftvarnarflauturnar eru 19
taisins og komið fyrir í Gllu.m
hverfum borgarinnar, þannig
að alls staðar á að heyrast í
þeim innan borgarmarkanna.
PILTAh
er »>io rior vnhjctuk.i ■/æ
pa a id hrinöana Aft/
■ • -#■
• /tAhyrjtrs' S \ vsis
— PÓSTSENDUM
ðkukennsla
- æfingatímar
Cortina
Upplýsingar I síma 23487
kl 12—13. og eftir fcl. 8 S
kvöldip virka daga.
Ingvar Björnsson.
Útför mannsins míns
Bjarna ívarssonar,
fyrrum bónda
að Álfadal á Ingjaldssandi,
verSur gerS frá Langholtskirkju föstudaginn 11. þ.m., kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á að láta líknarstofn-
anir njóta þess.
Jóna Guðmundsdóttir.
Skoðanakönnun
Framhald af bls. 1
sæti, 62 í þriðja sæti, 146 i fjórða
sæti og 115 í fimmta sæti. Sam-
tals fékk hann 893 atkv. og 4.185
stig.
Næstir komu:
Elín Sigurðardóttir, ljósmóðir,
Stykkishólmi, með 844 atkvæði og
3.607 stig; Þórður Kristjánsson,
bóndi, Hreðavatni, með 784 atkv.
. og 2.761 stig. Steinþór Þorsteins-
son, kaupfélagsstjóri, Búðardal,
með 776 at'kv. og 3.278 stig. Bjarni
Arason, héraðsráðunautur, Borg-
arnesi, með 700 atkv. og 3.113
stig. Atli Freyr Guðmundsson,
erindreki, Akranesi, með 612 at-
kvæði og 3.084 stig.
íþróttir
Framhald af bls. 13
fram fór í Argentínu, lauk með
jafntefli 2:2, og er Feyjenoord
því ,,heimsmeistari félagsliða
1970“, — fyrsta hollenzka liðið,
sem þann titil hlýtur, enda voru
hinir 67 þúsund áhorfendur leiks-
ins ærðir af gleði í leikslok.
íþróttir
Framhald af bls. 13
einasta þeirra, því þau hefðu öll
verið óverjandi með tölu.
„Fyrsta markið skoraði Her-
mann mjög glæsilega,“ sagöi Árnd,
„en síðan bætti Þormóður öðru við
með þrumuskoti með jörðu af urn
20 metra færi. — Þannig var stað
an í hálfleik, en á þrem fyrstu
mínútunum í síðari hálfleik skpr-
aði Hermann þrjú mörk hvert
öðru giæsilegra, og öll óverjandi
Þá var staðan orðin 5:0, en Vík
ingarnir gáfust ekki upp, og
minnkuð bilið í 5:2 með tveim
góðum mörkum. sem Gunnar Gunn
arsson skoraði. Rétt fyrir leiks-
lok skoraði svo Þormóður sitt
annað mark í leiknum og loka-
tölurnar urðu því 6:2 Akureyri
í vil“.
Árni sagði að allir leikmenn
Víkings og ÍBA hefðu átt
góðan leik, og hefði eng-
inn skorið sig úr hópnum, nema
ef vera skyldi Diðrik markvörður
Víkings sem hefði átt alla áhorf
endur, Leikurinn hefði verið pt-úð
mann.'ega og vel leikinn, og hefði
hann verið báðum liðunum til
sóma.
Framhald af bls. 1.
ar um, hvort þeir yrðu einnig
fluttir úr landi.
Liðsforingjarnir þrír, sem áður
eru nefndir, voru staddir í Reykja
vík í kvöld, og náði blaðið tali
af þeim og spurði þá um þlaðið
og orsakir þess, að þeir gáfu
það út, og jafnframt hvað þeir
vildu segja um viðbrögð yfir-
manna á Keflavíkurfiagvelli.
Vettvangur frjálsra
skoðanaskipta
Alec Lamis sagði, að ástæðurn-
ar fyrir útgáfu blaðsins kæmu
greinilega fram í forsíðugrein um
tilgang blaðsins. Hann hefði talið,
að aðstæður til frjálsra skoðana-
skipta meðal hermanna á Kefla-
víkurflugvelli væru ófullnægjandi.
Væri blaðið gefið út til þess að
reyna að bæta úr þessu. Það kæmi
fram í blaðinu, að efnisval í byrj-
un væri á nokkuð þröngu sviði.
en vonazt væri til að er frá liði
yrði efnisvalið víðtækara, eftir því
sem fleiri rituðu í blaðið. Yrði
það þannig til gagns fyrir her-
menn á Keflavíkurflugvelli sem
raunverulegur umræðuvettvang-
ur. Einnig væri tilgangurinn að
veita upplýsingar um fsland, og
birta fréttir, sem ekki kæmu
annars staðar fram.
Hann sagði, að þeir hefðu talið
blaðaútgáfuna í fyllsta samræmi
við rétt Bandaríkjamanna til rit-
og málfrelsis, auk þess sem útgáf-
unni hefði verið hagað í samræmi
við reglur hersins þar að lútandi.
A3 auka þekkingu á
landi og þjóS
Douglas Peel sagði að hann og
kona hans hefðu haft mikinn áhuga
á að koma til íslands, en frúin
er að vinna að doktorsritgerð um
íslenzkar fornbókmenntir. Við
fengum leyfi til að koma hingað,
og höfum verið hér í 15 mánuði.
Þetta hefur verið mjög ánægju-
leg dvöl fyrir okkur, og við höf-
um ferðazt mikið um landið. Okk
ur líkar vel við fólkið og stjórnar-
farslegt fyrirkomulag. Hér ríkir
það frelsi og þau mannréttindi,
sem talið er að séu til staðar í
okkar eigin landi.
És hef hins vegar komizt að
raun um, að meðal þeirra, sem
dvelja á Keflavíkurflugvelli, er
slíkur áhugi á íslandi takmarkað
ur, enda fara flestir þeirra mjög
sjaldan út fyrir herstöðina. Ég
hef reynt að auka áhuga á, og
kynni af íslandi, eftir hinum venju
legu leiðum, en þær tilraunir
hafa vakið lítinn áhuga hjá yfir-
mönnum á Keflavíkurflugvelii.
Það var því meginástæða mín
fyrir þátttöku í þessari blaðaút-
gáfu, að reyna með henni að auka
þekkingu Bandaríkjamanna í her-
stöðinni á íslandi og íslendingum.
Þannig ritaði ég t.d. grein í blað-
ið um ýmislegt, sem hægt væri
að gera utan herstöðvarinn-
ar, og kona mín ritaði grein um
islenzkar fornbókmenntir.
í samræmi við lög og reglur
William Laubenstein, sem er
lögfræðingur, sagðist bæði hafa
kynnt sér þær reglur, bandarísk-
ar, sem gilda um blaðaútgáfu sem
þessa, o, eins íslenzk lög, og
hefðu þeir farið nákvæmlega eftir
þeim reglum og lögum við útgáfu
blaðsins. Hann sagðist vera
sannfærður um, að innan hers-
ins væri mikið af mönnum, sem
hefðu ýmislegt fram að færa, en
fengju ekki tækifæri til þess.
Blaðið væri m.a. gefið út til þess
að draga þessa menn fram i dags-
liósið og nýta hæfileika þeirra.
Hann kvaðst að vísu hafa húizt við
einhverju svari frá yfirmönnum
staðarins, en samt sem áður
aldrei dreymt um, að gripið yrði
til svo róttækra aðgerða sem
brottflutnings þeirra, sem að
blaðinu stóðu.
Mildari gagnrýni en í banda-
rískum blöðum
Peel henti á, að sú gagnrýni,
sem fram hefði komið í blaðinu
t. d. á stefnu Bandaríkjastjórnar
í Víetnam, væri mun mildari en
sú gagnrýni, sem lesa mætti í
bandarískum hlöðum, sem seld
væru á Keflavíkurflugvelli, svo
sem New York Times og Play-
boy.
Lamis sagðist hafa rætt við
marga í herstöðinni um blaðið, og
hefðu flestir þeirra verið ánægðir
með blaðið og að það skyldi gefið
út. og verið sammála þeirri gagn
rýni sem þar kom fram. Hins vegar
hefðu sujnir yfirmenn, sem hann
ræddi við, talið að ekki væri rétt
að láta þessa gagnrýni koma
frá bandarískum hermönnum utan
Bandadkjanna sjálfra. Þetta gæti
hann ekki fallizt á. Hann hefði rit
að greinina um Víetnam vegna
þess, a@ þetta væru- hans skoðan-
ir, og það væri réttur hans sem
Bandaríkiamanns að setja skoðan
ir sínar fram. Þar sem hann væri
staðsettur hér á landi, teldi hann
eðiilegt að setja þær fram hér.
Einnig sagði hann, að þessi gagn
rýni sín væri mildari en sú sem
lesa mætti í handarískum blöðum,
og sem verulegur hluti bandarísku
þjóðarinnar og verulegur hluti
bandarískra þingmanna væri sam-
þykkur.
Vonast til að koma hingað
aftur
Dou-glas Peel sagði það ein-
læga von sjna, að þau hjónin gætu
komið til fslands aftur seinna, því
þau væru mjög hrifin af landi og
þjóð. Þeir tóku allir fram, vegna
þeirrar yfirlýsingar sem þeir
fengu frá yfirvöldum á Keflavík
urflugvelli, að þau teldu frekari
útgáfu blaðsins hafa slæm áhrif
á samband Bandaríkjanna og ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar. að það
væri vissulega ekki æthin þeirra
að svo væri, og ef íslendingar
móðguðust á einhvern hátt við út-
gáfu þessa blaðs, þá yrði ekki af
frekari útgáfu. Lamis sagði, að
hann teldi að hlaðaútgáfan ætti
þvert á móU að hafa góð áhrif
á sambúð íslendinga og Banda-
ríkjamanna, því hún sýndi banda-
rískt lýðræði í fratmkvæmd. Þótt
aðgerðir yfirmanna hans væru
reyndar ekki í samræmi við banda
ríska lýðræðishefð.
Engin afskipti íslendinga
af málinu
Blaðið hafði í dag samband við
Pál Ásgeir Tryggvason í utanrík-
isráðuneytinu, og sagði hann að
íslendingar hefðu engin afskipti
haft af þessu máli og myndu eng-
in afskipti hafa, þar sem þessi
blaðaútgáfa væri algjört „innan-
ríkismár* Bandaríkjamanna á
Keflavíkurflugvelli.
EFLUM 0KKAR
HEIMABYGGÐ
SKIPTUM Vlf)
SPARISJ0OINN
• ‘ . . *
SAMBANÍO’- l§i,; .SPARISJQÐA
4