Tíminn - 01.10.1970, Qupperneq 12
12
IÞROTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 1. október 1971»
Einn varnarmaöur Everton snýr sér undan skoti frá Magnúsi Torfasyni en
hinn frægi, Newton er viS öllu búinn.
ÞRJÚ ÁR ER OF MIKIД
- segir Hermann Gunnarsson um hugsan-
legan samning við Oberhausen.
klp—Reykjavík.
Eins og íþróttasíSan skýrði
frá í sumar, fékk Hermann
Gunnarsson knattspyrnumaður,
tilboð frá einum fararstjóra
þýzka liðsins Speldorf, sem hér
var í boði Þróttar, um að ger-
ast atvinnumaður með þýzka
1. deildraliðinu Rot Weiss Ober
hausen, en þessi maður er einn
af forráðamönnum þess.
Hermann kom heim í gær
úr keppnisferðinni með ÍBA í
E vrópukeppni bikarmeistar a,
og höfðum við bá samband við
hanm, og spurðum hann um
hvort eitthvað hefði skeð i
þessu máli, meðan á ferðinni
stóð.
Hermann sagði forráðamenn
Oberhausen, hefðu haft sam-
mand við sig, eins og um var
talað í sumar, í þessari ferð.
og hefðu óskað eftir því að
harin kæmi til þeirra, sem
fyrst, svo þeir gætu séð hann
leika.
„Ef þeim lízt á mig, og mér
að vera þar, þýðir það 3ja ára
samning og það finnst mér of
mikið“ sagði Hermann, — en
ef af því verður, þá skeður það
ekki fyrr en eftir áramót“.
Hann sagði einnig að allt
væri enn óákveðið. hvort
hann yrði áíram á Akureyri,
en hann er ráðinn þjálfari þar
til 1. desember. „Mér hefur
líkað mjög vei að vera þar,
sagði hann, — og Akureyring-
ar verið mér mjög góðir í alla
staði — en ég hef hugsað mér
að reyna að fá meira út úr mér
sem knattspyrnumanni, meðan
maður er í þessu — og þá er
vonlaust að þjá’lfa sjálfur hóp
af mönnum um lcið.“
„Við gerðum okkar bezta"
— en það er ekkert hægt að sýna við svona aðstæður, sagði Harry Catter-
ick, framkvæmdastjóri Everton, eftir leikinn. ,
Eftir leikinn í gærkvöldi, brá
blaðamaður Tímans sér niður í
búningsklefa leikmamia og átti
tal við leikmemi og ýmsa for-
ráðamenn liðanna. Voru þeir
spurðir álits á leiknum, og fara
svör þeirra hér á eftir:
Þorstelnn Ólafsson
Þorstejnn Olafsson,
markvöriður ÍBK:
Þessi leikur var ekki eins erfið
ur og fyrri leikurinn. Þá léku
allir leikmenn Everton á fullu,
en þeir reyndu ekki nærri því
eins mikið á sig í þessum leik,
og miklu minna að gera í mark-
inu nú en þá .Það var allt ánnað
að leika á Goodison Park, miklu
meiri stemning i fólkinu, hraði
í leiknum, fullt að gera og að-
stæður allar mun betri. Eina
markið, sem ég er óánægður með
að hafa fengið í þessum leik, var
vítaspyrnan — ég fékk skotið í
síðuna, en sá ekki hvar knötturinn
var þegar ég stóð upp aftur. Það
var ergilegt að fá hann inn þá“.
SKOTIN VORU 25:0
EVERTON I VIL
í leiknum í gærkkvöldi milli
Everton og ÍBK var mikill
munur á liðunum hvað skot á
mark og tækifæri snertir. Við
tókum saman að gamni okkar
Glímudeild Ármanns
Æfingar Glímudeildar Ármanns
hefjast fimmtudaginn 1. október
fcl. 21 í íþróttahúsi Jóns Þorsteins-
sonar við Lindargötu.
Æfingar verða í vetur á mánu-
dögum og fjmmtudögum k!. 21—22.
Glímudcild Áimamis.
öll skot og skalla, sem koinu
á mörkin í leiknum, og er út-
koman þessi:
Samtals átti Everton 25 skot
og skalla á mark ÍBK og skipt
ust þau þannig: Skotin — 10
i fyrri hálfleik. og 10 í síðan.
Skallar á marfc — 3 i fyrri
hálfleik, 2 í síðari hálfleik.
Af þessari súpu, fóru 9 franv
hjá, 1 í stöng, 3 í mark og 12
sinnum varði Þorsteinn.
Keflvíkingar áttu ekkert skot
á markið, en áttu 3 lækifæri.
er knötturinn komst inn i víta-
teig Everton.
Hornspyrnurnar í leiknuœ
voru 10:3, Everton í vil.
—klp.—
Mr Hacking
Mr. Ilacking,
varaformaður Everton:
„Keflavíkurliðið lék mun betur
á Goodison Park. en í þessum
Jeik. og það gerði Evertoniiðið
reyndar !íka. — Miðað við aðstæð-
ur var leikurinn góður, því völl-
urinn var eitt svað, og erfitt að
fóta sis á honum. — Keflavíkur-
liðið er mjög gott lið af áhuga-
mannaliði að vera, og markmað-
urinn er frábær. og hans verður
lengi minnzt. á Goodison Park
fyrir leifc sinn þar. — Það er
stórkostlegt þegar maður athugar,
að Keflavíkurliðið kemur frá 5500
manna bæ hvað það getur í knatt-
spymu. Everton kemur frá borg
méð um 1 milljón íbúa, og hefur
bess vegna úr miklu að velja. —
5500 manna bær í Englandi á
varla iið, og ef það er til er það
mörgum ,.klössum“ lakara en
Keflavíkurliðið. — Þetta verðið
þið að hafa í huga. og halda áfram
að taka þátt í Evrópukeppnun-
um. og leik? annan leikinn á
heimavelli. Annað er svik við
ykkar litla þjóðfélag“.
Hafsteinn Guömundsson
Hafsteinn Guðmundsson,
formaður ÍBK:
,,Ég er ánægður með leikinn. og
útkomuna úr honum 3:0, sem er
góð útkoma í keppni milli áhuga-
manna og atvinnumanna. — Og
ef maður tekur tillit til þess, að
öll mörkin, sem Everton skorar,
eru ódýr mörk, þá er þetta enn
betra. — Það er þó efcki þar með
sagt, að Everton hefðj ekki átt
að sigra. en ensku meistararnir
voru heppnir með mörkin. — Fjár
hagslega sleppum við vel út úr
þessari keppni — og við erum
í alla staði ánægðir með þessa
þátttöku okkar í Evrópukeppn-
í leiknum, og leikurinn sætnileg-
ur, miðað við aðstæður, sem voru
slæmar, sérstaklega við mörkin.
Markvörður Keflavíkur var góð-
ur ,og margir góðir leikmenn aðr-
ir eru í liðjnu, en hann ber þó
af þeim öllum“.
Harry Catterick
Harry Catterick,
framkvæmdastjóri Everton:
„Ég er ánægður, við erum
komnir í 2. utnferð í Evrópu-
keppninni. — Þessi leikur var
ekki eins góður og leikurinn á
Goodison Park, enda völlurinn hér
mjög slæmur. — Við gerðum okk
ar bezta í þessum leik, en það
er ekkert hægt að sýna við svona
aðsitæður, endia hljóltið þi'ð að
hafa séð Keflavík leifca betur en
þetta. Keflavíkurliðið er gott
r.hugamannalið, og markvörður-
inn, Ólafsson, góður leifcmaður,
sem veit hvað hann á að gera
þarna í markinu, rólegur, yfirveg-
aður, kaldur og gáfaður — haaa
er maður að mínu skapi“.
— Klp.
GuSni Kjartansson
Guðni Kjartansson,
fyrirliði ÍBK:
„Þetta var mjög erfiður leikur,
því völlurinn var svo þungur og
blautur, að ómögulegt var að spila
knattspyrnu á honum. — Leikur-
inn í Liverpool var svipaður, en
sjálfsagt skemmtilegri því þá voru
skoruð fleiri mörk, enda voru all-
ar aðstæður þar ólíkt betri. —
Everton getur betur en það sýndi
í þessum leik — en ég er ánægður
með útkomu okkar í báðum lei'kj-
unum“.
Malcolm Wright
Maleolm Wright,
dómari leiksins:
„Keflavíkurliðið er gott lið að
áhugamannaiiði að vera, og er i
svipuðum „klassa“ og írsku liðin,
sem taka þátt í Evrópukeppninni
— en Everton er of gott fyrir
það. — Mér fannst margt gott
Litlu munaði
að leiknum
yrði aflýst!
Litlu munaði að ekkert yrði
af leiknum milli Everton og
Keflavíkur á Laugardalsvellin-
um í gær. Þegar dómaii leiks-
ins kom inn á Laugardalsvöll í
gærmorgun, leist honum ekki
meir eu svo á völlinn að hann
taldi hann fyrst vera ónothæf-
ann.
Var bað fyrst og fremst svæð ]
in í kringum bæði mörkin^
sem hann fann að, en
þar var mikið sva'ð, og rign-
jngarvatn lá yfir öllum vellin-
um, og ekki ’ etti það úr skák. <
Ilann fór þegar fram á það!.
við starfsmenn vaL'arins, að
þeir löguðu þetta, og kom hann
síðan eftir hádegi til að sjá
hver útkoman hefði orðið, og
leízt honum þá sæmilega á
þetta, og sagði að allt yrði í'
iagi með að leika leikinn.
Iþróttasíðan spurði hann um
þetta í gær, og sagði hann þa@
rétt vera, sér hefði ekkert :it-
izt á aðstæðurnar, þegar hann
kom fyrst inn á völlinn — en
vel hefði verið gert við það
sem hann hefði beiðið um, og .
því all-t verið í lagi, — en |
völlurinn hefði þó alls ekki ver
ið 100%, eins og þeir hefðu!
séð, sem horfðu á leikinn.