Tíminn - 17.10.1970, Page 3
LAUGARDAGUR 17. október 1970
TIMINN
Skattvísitala
Framhald af bls. 1
mönnum vakti með umræddri til-
lögu, að umreikningur á sköttum
skyldi miðast við breytingar á
verðlagi, en tilgangur framfærslu
vísitölunnar er að sýna þær. Um
þetta sagði Jóhann:
„Þetta ákvæði á að miða að
því, áð verðbreytingar, hækkandi
dýrtíð í landinu, verki ekki ein
út af fyrir sig sem stórkostleg
skattahækkun á þegnana, þó að
skattalöggjöfin að öðru leyti breyt
ist ekki neitt, heldur að skatta-
álagningin að þessu leyti hreyfist
til og frá eftir því, sem verðhækk-
anir eða verðlækkanir kunna að
verða í þjóðfélaginu." íAlþt. 1952.
C. 480).
Það ákvæði laganna frá 1953,
að tekjuskattur bVeyttust til hækk
unar eða lækkunar í samræmi við
kaupgjaldsvísitölu, helzt óbreytt
til 1960. Þá beitti „viðreisnar-
stjórnin“ svonefnda sér fyrir setn
ingu nýnra skattalaga. Sagt var,
að tilgangur þeirra væri m. a. sá
að „fella niður tekjuskatt á al-
mennum launatekjum". Þetta fór
þó á annan veg. Vegna þess, að
umrætt ákvæði var feUt niður,
hækkuðu skattgreiðslur stöðugt
næstu áirin sökum vaxandi dýr-
tíðarbóta, án þess að rauntekjur
ykjust nokkuð tilsvarandi. Þetta
varð sérstaklega eftirminnilegt
sumarið 1964, þegar gengið var
svo nærri skattgreiðendum, að
efnaha'gsráðgjafar ríkisstjórnar-
innar lögðu til, að þeim yrðu veitt
sérstök lán til greiðslu á sköttum.
Ríkisstjórnin vair því tilneydd að
gera nýja brcytingu á skattlög-
unum vorið 1965, þar sem ýmsir
frádrættir voru auknir og jafn-
framt sett í lögin það ákvæði, að
frádrættir og skattstigar skyldu
hækka eða lækka „í samræmi við
skattavísitölu, sem ákveðin er af
fjármálaráðherra, í fyrsta sinn
árið 1966, að fengnum tillögum
kauplagsnefndar, hagstogustjóra
og ríkisskattstjóra".
Framkvæmd þessa lagaákvæðis
hefur orðið á þann veg, að fjár-
málaráðherra hefur ákveðið skatt
vísitöluna frá ári til árs án þess
að leita nokkuð álits þeirra aðila,
er lögin mæla fyrir um. að hann
geri. Skattvísitalan virðist hafa
verið ákveðin af hreinu handahófi
og tekjuþörf rikisins verið látin
ráða henni miklu meira en
greiðslugeta skattþegnanna. A
þessu ári var t. d. skattvísitalan
ákveðin 140 stig, en hefið átt að
vera um 173 stig, ef framfærslu-
vísitölunni hefði verið fylgt og
meðaltal hennar á árinu 1964, þeg
ar skattalögin voru sett, lagt til
grundvallar. Því er nú svo komið,
að verulegur hluti af tekjum lág-
tekjufólks lendir í hæsta skatt-
þrepi.
Fjármálaráðherra hefur enn
ekki ákveðið skattvísitöluna fyrir
næsta ár, en í greinargerð fjár-
lagafrumvarpsins fyrir árið 1971
segir, að „gert sé ráð fyrir, að
skattvísitalan hækki til jafns við
meðaltekjur". Ekki er ljóst, hvað
hér er átt við. Hitt er víst, að
fáist ekki skattvísitalan hækkuð
miklu meira en svarar þeim verð-
hækkunum eða launahækkunum,
sem verða í ár, mun láglaunafólk
verða að greiða um 60% í skatt
af þeim launahækkunum, sem
það hefur fengið á þessu ári, eða
27% í tekjuskatt og 30% í út-
svar. Þessu valda m. a. þau 33
stig, sem vantaði á skattvísitöl-
una á þessu ári, miðað við fram-
færsluvísitölu.
Það er skattgreiðendum bæði
réttlætismál og hagsmunamál, að
skattvísitalan sé ekki ákveðin
af handahófi, heldur fylgi ákveð-
inni reglu. Einkum á þetta þá
við á vea-ÍJbólgutknum. Skattar
eiga þvi aðeins að hækka, að raun-
tekjur hækki. Þetta verður bezt
tryggt með því, að skattvísitalan
fylgi framfærsluvísitölunni.“
1 „Glerbrotiö”
ný barnabók
i
i EB—Reykjavík, föstudag.
Út er komin hjá bókaforlaginu
j Örn og Örlygur barnasagan „G.'er-
brotið“ eftir Ölaf Jóhann Sigurðs
son, einn þeirra rithöfunda og
skálda er s.l. laugardag var út-
h’.utað styrk úr Rithöfundasjóði
ís.'ands. — Bókin er í alla staði
mjög vel af hendi genð. Gísli Sig-
urðsson teiknar kápu bókarinnar,
og einnig eru margar skemmtileg-
ar myndir eftir Gísla í bókinni.
Frá Tafl-
félaginu
SB—Reykjavík, föstudag.
Friðrik Ólafsson er efstur í
meistaraflokki á Afmæ.ismóti
Taflfélags Reykjavíkur, með 7%
vinning. Næstir eru Magnús Gunn
arsson, Ingi R. Jóhannsson, Björn
Sigurjónsson, Guðmundur Ágústs
son og Bragi Kristjánsson, með
5%.
í fyrsta flokki er hinn góðkunni
útvarpsmaður, Baldur Pá.’mason
efstur með 5% vinning og hefur
hann þegar tryggt sér meistara-
flokksréttindi. Sigurður Tómas-
son er efstur í 2. flokki. í 1. og 2.
flokki eru tefldar 7 umferðir.
Aðalfundur félags
Framsóknarkvenna
ASalfundur félags Framsóknar-
kvenna í Reykjavík, verður hald-
inr á Hallveigarstöðum, fimmtudag
inn 22. okt. kl. 8.30.
Venjuleg aðalundarstörf. Að
þeim Ioknum kynnir Margrét
Kristinsdóttir ostarétti. Framsókn
arkonur fjölmennið og mætið
stundvíslega. Stjórnin.
Æskulýðsráð Reykjavíkur:
Fréttablað og ungmenna-
kór á starfsskrá í vetur
EB-Reykjavik, föstudag.
Æskulýðsráð Reykjavíkur mun
að venju standa fyrir margþættu
starfi með æskufólki. Jafnframt
leggur Æskulýðsráð áherzlu á
stuðning við æskulýðsfélög borg-
arinnar, eftir því sem við verður
komið. Fulltrúar Æskulýðsráðs og
félaganna hafa lialdið með sér
fund, og rætt ýmis sameiginleg
málefni. — Ákveðið liefur verið
að efna til sameiginlegrar kynn-
ingar á starfsemi Æskulýðsráðs
og æskulýðsfélaganna, halda nám
skeið í félagsstörfum fyrir forystu
| menn félaga og leiðbeinendur. —
j Nokkur breyting verður á rekstri
Tónabæjar, verða dausleikir yfir-
leitt ekki haldnir á vegum ráðs-
ins. Verða salarkynnin leigð æsku
lýðsfélögunum, skólum og fleiri
aðilum. — 250 þúsund kr. um-
framfjárþörf hefur nú fengizt úr
borgarsjóði vegna starfsemi æsku
lýðsváðs á þessu ári, en áður var
búið að veita 550 þúsund úr borg-
arsjóði fyrir þetta ár.
Vetrarstarfið byggist í fyrsta
lagi á starfseminni j Tónabæ, en
þar verður sem áður opið hús,
tvö til þrjú kvöld í viku. Kjall-
ari hússins verður nú tekinn til
notkunnar fyrir ýmiss konar fé-
lags- og tómstundastarfsemi. f
öðru lagi byggir vetrarstarfið á
starfsetninni á Fríkirkjuvegi 11,
og verður þar ýmislegt tál dund-
urs, námskeið, haldin í ljósmynda
iðju og radíóvinnu. Þá verða starf
andi tveir skemmti- og ferðaklúbb
ar og leiklistarklúbbur. Umferðar
fræðsla verður á vegum Vélhjóla-
klúbbsins Eldingar á mánudags- og
miðvikudagskvöldum. Og í þriðja
lagi er það tómstundastarf í skól
um. Verða námskeið í félags- og
tómstundagreinum, sem kynnt
verða í skólunum næstu daga.
f undiirbúningi eru ýmis ný-
mæli, svo sem útgáfa fréttablaðs
með frásögnum af starfi með
æskufólki. Ráðgert er stofnun ung
mennakórs, og unnið að gerð kvik
myndar um æskulýðsstarf. Þá er
ráðgert að halda áfram athugun-
um og rannsóknum á félagslegri
aðstöðu ungs fólks í Reykjavík,
m.a. hópmyndunum, en þær at-
huganir hófust veturinn 1968—
1969.
,Hjartað og
gæzla þess’
ný bók AB
Þrátt fyrir miklar framfarir í
læknavísindum og stöðuga sókn
þeirra gegn' sjúkdómum, hrörnun
og dauða, gefst almenningi vart
að sama skapi aukinn kostur hag-
nýtra fræðslurita, er ef.'i vilja
hans og getu til að verjast og vinna
á þeim meinum, sem sitja um
heilsu hans og líf. Það má því
þykja tíðindum sæta, þegar við
bætist á markaðinn nýtt rit um
þesskonar efni, og þá ekki hvað
sízt, ef það á erindi við allan
þorra manna í svipuðum mæ.’i og
Hjartað og gæzla þess, sem al-
menna bókafélagið sendir frá sér
þessa dagana.
Bók þessi. Hjartað og gæzla þess,
kom fyrst út I New York á s.l. ári
og hlaut þá strax mik.’a útbreiðslu.
Höfundur hennar er bandarískur
hjartasérfræðingur og geimfara-
læknir, dr. Lawrence E. Lamb,
en Þorsteinn Þorsteinsson dósent
í lífefnafræði við Háskóla íslands,
hefur þýtt hana og búið textann í
hendur íslenzkum .’esendum. Þá
skrifar ennfremur Árni Kristinsson
hjartalæknir, formála fyrir bók-
inni.
Hjartað og gæzla þess er bók,
sem varðar aila, unga sem gam.'a,
og þá einnig m.a. foreldra, sem
standa frammi fyrir þeim vanda
að temja börnum sínum lífsvenj-
ur og hollustuhætti. Ö.lu þessu
fólki miðlar hún fræðslu, sem fyrr
eða síðar kann að bjarga lífj þess
sjálfs, ástvina þess eða annarra.
Og sannast þá það, sem sagt hefur
verið um Hjartað og gæzlu þess,
að e.t.v. sé þetta „mikilvægasta
bókin, sem mönnum geti borizt í
hendur.“
Bókin er 214 bls. í stóru broti,
prentuð í Setbergi og bundin í
Félagsbókbandinu. Kápuna gerði
Ástmar Ólafsson.
Ályktun Hagfræða-
félagsins
Stjóm Hagfræðafélags fs-
lands vill. vegna blaðaskrifa und-
anfarið, beina eftirfarandi tilmæl-
um til stjórnvalda.
Endurskoðuð verði, nú þegar,
gildandi lagaákvæði um ráðningu
forstöðumanna opinberra stofnana.
Þess sé gætt við setningu nýrra
laga, að menntun og reynzla um-
sækjenda á sviði stjórnunar sitji
í fyrirrúmi, við ráðningu þeirra.
Ákveðnum stéttum verði ekki veitt
ur forgangsréttur að einstökum
embættum, svo sem embætti Vega
málastjóra, Hagstofustjóra, for-
stjóra Sementsverksmiðjunnar
o.s.frv.
f.h. stjórnar Hagfræðafélags
ís'ands, Ragnar Borg, form.
Framsóknarf lokkurinn:
sfarfshættir og skipulag
Ráðstefna um „Framsóknar-1 verður haldin á vegum SUF næst- Glaumbæ kl. 14.00.
Framsögumenn: Helgi Bergs,
rltari Framsóknarflokksins,
Þráinn Valdimarsson, fram-
flokkinn: starfsliætti og skipulag“ 1 komandi sunnudag, 18. október, í
Helgi
Þráinn
Már
Jónatan
\
kvæmdastjóri Framsóknar-
flokksins,
Már Pétursson, formaður SUF
Jónatan Þórmundsson, pró-
fessor.
Þingflokki og Framkvæmda-
stjórn Framsóknarflokksins er
sérstaklega boðið á ráðstefnuna.
SUF.
Þverrandi virðing
opinberra aðila fyrir
lögum og rétli?
Ekki er ein báran stök. Það
eru ótal mörg dæmi frá síð-
ustu misserum, scm benda ótví
rætt til þess að virðing æðstu
valdamanna og ýmissa opin-
berra aðila fyrir lögum og
rétti fari þverrandi. Sýnist í
sumum tilvikum vera svo langt
af réttri leik komið, að alvar-
legt má teljast. Víst er það, að
eftir höfðinu dansa limirnir og
það, sem höfðingjarnir hafast
að, hjnir ætla sér leyfist það.
t f athugasemdum frá mennta
málaráðherra, sem birtar eru
hér til hliðar í blaðinu í dag,
játar hann reyndar, að ekki
hafi verið farið að réttum regl-
um og staðfestir, að lækna-
deild háskólans hafi ekki farið
a® lögum í svokölluðu prófess-
orsmáli. Hins vegar segir ráð-
herrann, að sér komi það ekk-
ert við hvernig „cinstakar
deildir hans (háskólans) standi
að ályktunum sínum“. Hér tal-
ar sá maður, sem er æðsti yfir-
maður stofnunarinnar og ber
að gæta þess að hún starfi lög-
um og reglum samkvæmt.
Þannig sýknar ráðherrann sig
en vísar sök til fyrrverandi
deildarforseta læknadeildar. Af
lagaskýringum ráðherrans sést,
að það var ekki of sagt í grein
minni í gær, að hann er með
allra frjálslegustu mönnum í
þeim efnum þegar henta þykir.
Nenni ég ekki að elta ólar við
cinstök atriði í því sambandi,
tel ekki að ráðherra hafi í
nokkru hnekkt mínu máli, sem
var ítarlega rökstutt, og vísa
ég til greinar minnar í blað-
inu í gær um það.
Niðurlæging Alþingis
Hins vegar verður ekki kom-
izt hjá að benda á eitt atriði,
sem flokka má undir sjúkdóms-
einkenni þess, að valdamaður
sé búinn að vera hættulega
lengi víð völd í lýðræðisríki,
þ.e. að hann er hættur að gera
nægan greinarmun á persónu-
legum ákvörðunum og lögum
og telur meira að segja, að
fjárlagafrumvarp sé sama og
lög. Lítil er virðing þessara
manna fyrir lögum og enu
minni er hún greinilcga fyrir
fjárveitingavaldinu, Alþingi.
Gylfi lítur svo á, að fjárveit-
ingavaldið sé hjá honum á
skrifstofunui þegar svo ber und
ir og honum sýnist svo, hann
sé örlátur maður í þessum efn
um og í þessum persónulegu
fjárveitingum sé honum ekki
naglaskapur að skapi!
Skal svo enn vísað til greinar
miunar í gær um þetta mál,
sem er útrætt að minni hálfu
og orðið að eins konar „innan-
húss-máli“ í læknadeild.
En anað dæmi um þverrandi
virðingu valdsmanna fyrir lög-
um, er nýkomið á markaðinn
frá sýslumanninum í Borgar-
nesi vegna Sementsevrksmiðju
málsins. Þegar eitt virðuleg-
asta stéttarfélae landsins, V°rk
fræðingafélag íslands, telur
sér skylt að kæra meirihluta
stjórnar Sementsverksmiðju
ríkisins til saksóknara, fyrir
Framhald á bls. 6.